Morgunblaðið - 30.04.1991, Page 55

Morgunblaðið - 30.04.1991, Page 55
55 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991 Sumarsala á listaverkum: Leikskólarnir á Sauð- árkróki fagna sumri Sauðárkróki. í TILEFNI af komu sumars, buðu leikskólarnir á Sauðárkróki, Glað- heimar og Furukot, til sölusýningar á verkum nemenda sinna. Var sýningin haldin í húsnæði Gagnfræðaskólans á sumardaginn fyrsta og stóð frá kl. 13-15. Aðsókn var mjög góð og sögðu forstöðukonur leikskólanna, Helga Sigurbjörnsdóttir í Glaðheimum og LindaiHlín Sigurbjörnsdóttir í Furu- koti, að_ þessi sölusýning sem nú er haldin í fyrsta sinn, verði tvímælalaust árviss viðburður, enda hefðu allir sem komu lýst sérstakri ánægju með þetta og mikið af myndverkunum hefði selst. Gestir þessa tvo tíma sem sýning- in stóð, voru á milli 3 og 4 hundruð og á meðan hinir fullorðnu skoðuðu myndirnar og fengu sér kaffisopa, lék yngri kynslóðin sér í þrauta- brautum sem komið var upp á opnu svæði við hlið sýningaraðstöðunnar. Þá voru þar einnig ýmis áhöld til allskonar listsköpunar, og voru verkin sem unnin voru hengd upp jafnharðan. Þær Helga og Linda Hlín sögðu að vérkin sem seld voi-u hefðu kost- að frá kr. 50-200 og mundu þeir peningar sem með þessu móti söfn- uðust verða notaðir til kaupa á ýmsum þeim tækjum til leikskól- anna sem ekki yrðu keyptir fyrir það fé sem skólarnir hefðu á fjár- hagsáætlun. - BB. Skrúðgangan í Stykkisliólmi á sumardaginn fyrsta. Stykkishólmur: Morgunblaðið/Árni Helgason Kuldalegt á sumardagimi fyrsta Stykkishólmi. ÞAÐ VAR ekki beinlínis sumarlegt eða góðlegt um að litast þegar Hólmarar komu út á fimmtudag og varla að menn myndu eftir að óska hver öðrum gleðilegs sumars. Frostið yfir 3 stig, kuldagjóstur lagði af hafinu og beit kinnarnar. Fjöllin að handan hvít oní rætur og blessaðar tijágreinarnar skjálfandi og berar. Skrúðgarðurinn var held- ur dapur í bragði og ekki hægt að segja að hann biði með brosandi útréttan faðminn. Sumardagurinn fyrsti var að venju haldinn hátíðlegur hér í Stykkis- hólmi. Safnast var saman niður við höfnina kl. 10.30 þar sem böm og foreldrar gengu í skrúðgöngu með íslenska fánann í fararbroddi um Austurgötu og Skúlagötu til kirkju og var engan kulda að sjá í fasi fólks- ins. Þarna voru allar árgerðir af fólki, allt frá börnum í barnavagni, sem mættu vel, og í aldraða borgara. í kirkjunni var svo fjölskyldumessa 25 hús í Reykjavík friðuð AÐ TILLÖGU Húsfriðunar- nefndar hefur menntamálaráð- herra, með samþykki borgar- ráðs, ákveðið að friða 25 hús- eignir í Reykjavík. Þá hefur ráð- herra að tillögu nefndarinnar' ákveðið að friða Gamla íbúðarhú- sið í Ögri, Norður- ísafjarðar- sýslu. Tekur friðunin til alls húss- ins, utan sem innan. Friðun fimm húseigna í Reykjavík nær lengar en til friðun- ar að utan og eru það húsin við Austurstræti 9, þar sem loftskreyt- ing á 1. hæð er einnig friðuð, Aust- urstræti 11, en þar eru upprunaleg: ar innréttingar einnig friðaðar. í Austurstræti 16, nær friðunin einn- ig til innréttinga í apóteki og í stiga- gangur að sunnan. Pósthússtræti 2, er friðað að utan og að auki af- greiðslusalur á 2. hæð. Þá er Vonar- stræti 3, Iðnó friðað að innra skipu- lagi. Húseignir sem eingöngu eru frið- aðar að utan eru, Pósthússtræti 3, og 5, Hafnarstræti 1 til 3 og Hafn- arstræti 16, Kirkjutorg 6, Lækjar- gata 10 og Aðalstræti 16. Við Tjarnargötu eru húseignirnar númer 18, 22, 24, 26, 28, og 32 friðaðar að utan og Skálholtsstígur 1, 6 og 7. Einnig Öldugata 23, Túngata 18, Landakotsskóli við Túngötu og Skólavörðustígur 35. þar sem sóknarpresturinn, séra Gísli Kolbeins, predikaði og kirkjukórinn söng. Eftir hádegi voru svo ýmsar íþrótt- ir eins og venjulegt er enda hafa íþróttir færst í aukana við tilkomu þessa góða íþróttahúss sem nú er hér risið. Nú þegar þessi vetur kveður er ómögulegt að segja annað en hann hafi farið mildum höndum um okk-, ur. Það hefur ekki oft verið ófært um Kerlingaskarðið og Vegagerðin sloppið merkilega vel við snjómokst- urinn. En einkennilegt hefur veðrið verið. Skipst svo oft á kulda og hlýju, rigningu og snjó og oft ekki langt á milli. Fréttaritari hefur t.d. aðeins einu sinni eftir áramót þurft að moka frá bílskúrnum sínum og eru það tíðindi út af fyrir sig. En nú eru allir að búa sig undir ferðamannabransann. Hótelið stífpantað, Eyjaferðir eins, og far- fuglaheimilið svo nokkuð sé nefnt4 og gildir nú að afpantanir verði ekki margar. Það fer því að verða aðalat- vinnuvegur okkar um stimarið að horfa til ferðamanna og er ekki nema gott eitt um það að segja, svo langt sem það nær. . . - Arni Reykhólasveit: Nýtt merki fyrir Reyk- hólahrepp Miðhúsum, Reykhólasveit. HREPPSNEFND Reykhóla- hrepps hefur valið hreppn- um merki, eftir mikla sam- keppni. Þátttakendur í keppninni skiptu mörgum tugum. Veitt voru þrenn vejðlaun og hlaut 1. verðlaun Ásberg Hlynur Sigurgeirsson, Hjöllum í Patreksfirði, 2. verðlaun hlutu saman Jóhannes B. Jó- hannsson, Höfða, Akureyri, og Magnús Jónsson, Tjarnarlandi 8, Akureyri. Einnig hlaut verð- laun Magnús B. Óskarsson, Drápuhlíð 24, Reykjavík, og Nemendaráð Reykhólaskóla, en fjöldi nemenda sendi teikn- ingar í keppnina. - Sveinn LANG ÓDYRASTA PYLSAN Nú eru Búrfellspylsurnar á sértilboði og kosta einungis 474 kr. kg. Það býður enginn ódýrari pylsur. Lækkaðu matarreikning fjölskyldunnar og kauptu Búrfellspylsur á sértilboði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.