Morgunblaðið - 26.05.1991, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.05.1991, Qupperneq 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991 Gísli Benjamíns- son - Minning Fyrir um það bii 43 árum eða svo byrjaði ég sem unglingur að snattast og síðar leysa af í sumarfríum í Smjörlíkinu — Afgreiðslu Smjörlíkis- gerðanna og S.L.A. eins og fyrirtæk- ið hét þá. Þá, eins og nú, var hér hörkulið, valinn maður í hveiju rúmi, mikið um að vera og fjör í öllum deildum. Stói’veldin niðri, Einar Þórðarson, Bjarni Bjarnason og Einar Hjörleifs- son, voru mjög ólíkir, höfðu ólíkan stjórnunarstíl, eins og það heitir víst á nútímamáli, en þeir höfðu þó eitt sameiginlegt einkenni, brennandi áhuga á vinnunni og að það, sem gera þyrfti, skyldi gert og það strax. Maður fór að sjálfsögðu varlega í að nálgast stórveldin og hallaði sér fremur að þeim, sem yngri voru. Ég tók strax eftir ungum, frískum manni í verksmiðjunni, röskum, hvik- um á fæti og sí og æ á fullu, en jafnan með spaugsyrði á vörum, enda alltaf líf og fjör og hlátrasköll í kring- um hann, bæði á gólfmu og á kaffi- stofunni. En, ég tók líka eftir því að þegar þessi ungi maður sagði eitthvað um vinnuna eða vinnutilhögun, að ég tali nú ekki um einhveijar endurbæt- ur á framleiðslunni, þá hlustuðu stór- veldin þijú og fóru oftar en ekki að ráðum hans. Þetta var Gísli Benjamínsson. Þarna kynntumst við fyrst. Hann fullþroska karlmaður í blóma lífsins og ég óharðnaður unglingur. Og þessi kynni, sem þarna var stofnað til, rofnuðu aldrei, fyrr en nú, þegar hann var kallaður burtu yfir móðuna miklu. Þessum gömlu yfirmönnum mínum hefur fækkað óðfluga, en ég held að engan hafi órað fyrir því að Gísli, svona eldhress og hraustur sem hann var, yrði tekinn svona snemma frá okkur. Þó Gísli ynni hér ekki nema í nokk- ur ár og það fyrir mörgum áratug- um, litum við alltaf á hann sem einn okkar og kom þar margt til. Hann leit alltaf inn þegar hann átti leið framhjá og var því eins og heimagangur hérna og hér hitti hann lífsförunaut sinn, Rósu, sem aldrei brást honum og sem annaðist hann með stakri umhyggjusemi og hlúði að honum sem best hún gat, meðan ógnvaldurinn var að vinna á honum. Rósa vinnur hér enn af sama kappi og fyrr og ég held ég fari rétt með að árshátíðin í mars síðastliðnum var fyrsta sameiginlega skemmtun starfsfólksins, sem þau Gísli mættu ekki á, síðan 1948. Gísli var feiknalegur áhlaupamað- ur til vinnu og bæði útsjónarsamur svo af bar og ósérhlífinn. Afköstum hans kynntist ég enn á ný af eigin raun fyrir nokkrum árum, þegar ég var handlangari hjá honum heima hjá mér og það var á kvöldin, þegar hann var búinn að vera tíu klukku- stundir í múrverki. Hann var líka einn af þeim fáu, sem hljóta þá náðargjöf að allt lék í höndunum á honum, pensill, múr- skeið, hamar, sög, rörtöng, pípur og plötur, plankar, flísar og veggfóður beygðu sig fyrir vilja og höndum Gísla. Gísli var bráðvel gefinn, léttur í lund og skemmtilegur, stríðinn nokk- uð eins og vera ber, en alltaf þannig að ekki sveið undan og engum sárn- aði. Minningarnar um áratuga ánægjuleg samskipti, ýmis uppá- tæki, sem enn er ekki hægt að segja frá á prenti og trúnaði, sem aldrei bar skugga á, streyma fram á skiln- aðarstundu sem þesari og þá óskar maður þess að geta fært klukkuna aftur um nokkur ár, helst áratugi. Við minnumst góðs drengs með söknuði og þakklæti fyrir samfylgd- ina og biðjum góðan Guð að styrkja þig Rósa og börnin, bamabömin og aðra aðstandendur í þeim erfiða tíma saknaðar og tómleika sem í hönd fer. Davíð Sch. Thorsteinsson Mér þykir verst að ég gat ekki kvatt afa áður en hann fór. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að hann færi svona fljótt, og mig hefði mikið langað til að sjá hann í hinsta sinn, halda í hönd hans og kveðja. Ég vildi líka óska að við hefðum hist oftar, en þess óska víst allir eft- ir á þegar ekki meiri tími er til. Afi var alltaf tilbúinn að koma og flísaleggja, múra, hlaða glerveggi, eða hvað sem var fyrir okkur systkin- in, kom alltaf þegar við báðum hann og hjálpaði okkur að standsetja híbýli okkar og ég veit að það veitti honum gleði og ánægju að gera það. Við kynntumst honum betur á þessum samverustundum. Mér fannst afi Gísli alltaf svolítið stríðinn, en alltaf glaður og skemmti- legur. Hann var sívinnandi, alltaf hjálpandi hinum og þessum, það átti ekki við hann að sitja aðgerðalaus, alltaf glaður við vinnu sína og naut þess að sjá árangur hennar. Móðir mín er haldin sama dugnaðinum, einnig Dagný og Helga, og við Láru- börn stærum okkur stundum af því að við höfum erft dugnaðinn og vinnugleðina frá, og við erum mjög stolt af því að hafa átt þvílíkan dugn- aðarfork fyrir afa og okkur öllum gott fordæmi og veganesti í framt- íðinni. Ég hef reynt að gráta sem minnst. Þeir segja það sem vita að það sé verra. Það er best fyrir alla að sætta sig við orðinn hlut. Helst hefði ég viljað að afi yrði lengur á meðal okkar en ég veit að honum líður vel þar sem hann er, nú laus. við kvalir og sjúkdóm, og eflaust getur hann fylgst með okkur að ofan. Guð geymi afa, hann var góður maður, gerði sitt gagn hér á jörð. Ég hlakka til að hitta hann þegar minn tími kemur. Guðlaug Á morgun, mánudag, fer fram útför Gísla Benjamínssonar, múrara, tengdaföður míns, og langar mig að minnast hans nokkrum orðum. Gísli fæddist í Reykjavík 21. júní 1922. Foreidrar hans voru hjónin Benj- amín Gíslason, skipstjóri og stein- smiður, og Margrét Sveinbjörnsdótt- ir, búsett í Reykjavík. Atvikin höguðu því svo að kona mín, Dagný Olafía, og systur henn- ar, Lára Margrét, gift Halldóri J. Guðmundssyni, og Helga Jenný, gift Sigurgeiri Siguijónssyni, dætur Gísla heitins af fyrra hjónabandi, höfðu lítil tækifæri til að kynnast föður sínum með þeim hætti sem hefðbund- inn er. Þær voru aðeins börn að_ aldri þegar móðir þeirra, Guðlaug Ólafs- dóttir, og Gísli skildu. Með árunum jukust samskiptin, ekki síst að frumkvæði elstu dóttur- innar, Láru, og tel ég að sú þróun hafí orðið' þeim systrum og honum mikils virði. Gísli var dagfarsprúður maður, lágvaxinn og grannur. Lét ekki mikið yfir sér, fyrr en menn sáu hann taka til hendi. Einhver fyrstu kynni mín af Gísla fólust í samtölum við gamlan vinnu- félaga hans í múraraiðninni. Brást það varla, þegar fundum okkar bar saman, að hann léti í ljós einlæga aðdáun á þessum einstaka manni, sem Gísli tengdafaðir minn væri. Gísla taldi hann feiknalega verklag- inn og ókvíðinn til vinnu. Öll hans verk væru mjög vel unnin og af rösk- leika. Hann hefði drifið alla áfram og haldið uppi góðum anda á vinnu- stað. Gísli hefði verið ráðvandur og heiðarlegur í samskiptum. Á sínum yngri árum spilaði Gísli knattspyrnu með Fram og varð Is- landsmeistari með þeim árin 1946 og 1947. Hann þótti snöggur með boltann. Seinni kona Gísla var Ragnheiður Rósa Eðvaldsdóttir, glæsileg kona og sköruleg. Börn þeirra eru Eðvald Einar, kvæntur Sigrúnu Jóhanns- dóttur, og Andrea Ingibjörg, gift Ólafi Jóhannessyni. Ég bið Gísla heitnum Guðs bless- unar. Börnunum og Rósu votta ég sam- hug minn. Ragnar Tómasson Á morgun verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Gísli Benjamíns- son. Hann var fæddur í Reykjavík 21. júní 1922 en þar ól hann aldur sinn: Einn af fimm börnum hjónanna Benj- Dalur til framtíðar Sajamklputíí Lóðaúthlutanir í Kópavogi Kópavogskaupstaður auglýsir eftirtaldar lóðir lausar til umsóknar 1. Raðhúsalóðir í Kópavogsdal (austan íþróttavallar). Um er að ræða 53 lóðir fyrir tveggja hæða raðhús eða raðhús með portbyggðu risi, til ein- staklinga og/eða byggingaraðila. Áætlaður grunnflötur allt að 130m2. Gert er ráð fyrir að hefja megi byggingar- framkvæmdir í ágúst 1991. 2. Lóðir fyrir 9 raðhús og 3 sam- býlishús (þrjár hæðir) með 43 íbúðum sem verða byggingar- hæfar í ágúst 1991. 3. Lóðir fyrir einbýlishús, parhús, raðhús og sambylishús í Digranes- hlíðum, byggingarhæfar í ágúst 1991 4. Sjávarlóð við Huldubraut, byggingarhæf nú þegar. Skipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingarskilmálar, svo og umsóknareyðublöð liggja frammi á tæknideild Kópavogskaupstaðar að Fannborg 2, 3. hæð. Opið kl. 9:00 til 15:00. Umsóknum skal skila á sama stað fyrir 19. júní 1991. Bæjarstjórinn í Kópavogi. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.