Morgunblaðið - 26.05.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 26.05.1991, Qupperneq 21
- - - -áoi&i$röiiiÖö H9 Brynhildur S. Einars- dóttir - Minning Fædd 5. apríl 1915 Dáin 15. maí 1991 Það er tregt tungu að hræra, þegar sannir hollvinir hverfa okkur. Þegar nálgaðist Hvítasunnuhátíð lauk góð vinkona, Brynhildur Svala Einarsdóttir, þungri og erfiðri veg- ferð þessa lífs, og barðist við ofur- efli, sem ekki varð sigrað. Að Svölu stóðu sterkir stofnar, þrekmenni til allra lífsrauna. Glæsi- mennska og reisn einkenndi hennar fólk. Sjálf bar Svala þessi sterku skapgerðareinkenni með fágaðri hógværð. Þó er einn þáttur sem þéttastur var ofinn. Tónlistin, sem var svo sterkur þáttur í lífi fjölskyld- unnar, að hún varð eins konar fjör- egg hennar. Gegnum þá list lágu leiðir okkar Svölu saman, og varð úr vinátta og skilningur til æviloka. Sjálf bjó Svala og hennar fólk alla tíð á Skálholtsstíg 2. Steinsnar þaðan var sú eina tónlistarhöll, sem byggð hefir verið yfir tónlist á okk- ar landi, eða Hljómskálinn, sem við nemendur kölluðum „Tónó við Tjörnina". Leiðin var stutt en fjöl- farin, stutt var milli skólans og heimilis Svölu. Móðir hennar var síveitandi, gestum og gangandi og nutu margir góðs af, enda var hún sönn „Dama“. Um þetta leyti var Svala nýgift Sveinbirni Þorsteins- syni, bráðmúsikölskum manni, með undur fagra söngrödd og mjög list- rænn í huga og höndum. Þau eign- uðust 6 börn, tvö þau elstu misstu þau ung. En fjórar dætur eiga þau ogeru bamabörnin orðin 7, gullmol- ar og gleðigjafar. Elsta dóttirin Kristín er tón- menntakennari og sér auk þess um skipulag tónleikahalds sem er mikið vandaverk. Guðrún er fornleifa- fræðingur búsett í Bretlandi og gefur deginum í dag vitneskju um það sem var, og rennir stoðum und- ir það sem við byggjum á í dag. Unnur er lágfiðluleikari og býr í Þýskalandi, og mun vera ein sú færasta í þeirri grein þótt víða væri leitað, enda eftirsótt af úrvals- hópum. Ég tilfæri hér smá atvik, sem er mér minnisstætt. Svölu barst snælda með lágfiðlusónötu eftir Brahms leikna af Unni. Góðvinir mættu á Skálholtsstíg 2. Þvílíkur tónn og túlkun. Það glitraði tár á hvarmi, og í lokin var löng þögn og stór „fermata“. Svo magnþrung- ið var augnablikið. Helga tvíbura- systir Unnar átti alltaf hlýjan selló- tón og hafa ýmsir notið tilsagnar hennar í sellóleik. Svala mín var aldrei málgefin en orðvör og áreið- anleg. Eitt sinn barst talið að þeim harmi að missa tvö fyrstu börnin, ég hafði einmitt þreifað á þeirri reynslu að missa tvö böm. Við þögðum lengi en létum Lacrimosa Mozarts hljóma inn í þögnina. Hann sagði okkur allt, svona er tónlistin græðir og mildar, við skildum hvor aðra án orða. Lífið hefir sín tök á okkar lífsferli og oft er okkur of- raun að hemja hann. Mér kemur í hug ljóð sem rúmar sanna lífsspeki. Sorgin reisir hallir í hafdjúpi augna þinna hafdjúpi hreinu og bláu, meðan hljóðlátt þú, grætur útlæg verður gleðin, sem áður þar bjó. Ekki tjaldar sorgin til einnar nætur. Hannes Pétursson. Allt á sinn tíma gleði og sorg, með Sveinbirni tek ég af alhug þátt í harmi hans og allra hans barna. Hann var sá virkisveggur er vel við studdi. Laufeyju sendi ég hjartans samhug. Sá undirleikur sem ég heyri enn, er dillandi hláturinn hennar Guðnýjar (Bobbu) okkar allra, sem ávallt gladdi mest á gleði- stundum. Hjartans kveðjur. Unnur Arnórsdóttir Nylátin er hér í Reykjavík frú Brynhildur Svala Einarsdóttir til heimilis á Skálholtsstíg 2 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Einarsdóttir og Einar Þorsteinsson, kaupmaður. Eftir barnaskólanámið fór hún í Tónlist- arskóla Reykjavíkur og lauk þaðan prófi. Eftir námið vann hún á skrif- stofu Sjóvátryggingafélags íslands. Hún giftist Sveinbirni Þorsteinssyni frá Hurðarbaki í Reykholtsdal á jólunum árið 1939. Þau eignuðust 4 dætur sem upp komust en þær eru: Kristín kennari sem búsett er í Reykjavík. Guðrún fornleifafræðingur sem búsett er í London og er hún gift Robert Boyse. Þau eiga tvær dætur, þær' Brynhildi og Steinunni. Yngstar eru tvíburarnir Helga og Unnur. Helga býr í Reykjavík og er gift Jakobi Hallgrímssyni og eru börn þeirra tvö: Einar og Lauf- ey- Unnur fiðluleikari er búsett í Banberg í Þýskalandi, maður henn- ar heitir Georg Klutch og eiga þau þijú börn: Sveinbjörn, Jóhannes og Ónnu. Af dætrum þeirra Kristínar og Einars kaupmanns er nú aðeins ein á lífi, Laufey. Við sendum henni innilegar samúðarkveðjur. Svala var mjög heilsteypt kona. Hún var hæglát, prúð og hafði yndi af tón- list. Hún tók oft börn í tónlistar- kennslu. Svala var félagi í Thorvaldsensfé- laginu, og spilaði hún oft á fundum félagsins. Einnig vann hún af mik- illi samviskusemi skyldustörf sín fyrir félagið, hæglát og prúð að venju. Thorvaldsenskonur hugsa með hlýju til eiginmanns hennar, barna hennar og systur, og þakka henni af alhug margra ára samveru. F.h. Thorvaldsensfélagsins Unnur Schram Ágústsdóttir + Eiginkona min, SIGRÍÐUR SVAVA VALFELLS, andaðist aðfaranótt laugardagsins 25. maí. Stefán J. Björnsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma KLARA SVEINSDÓTTIR, Melbrún, Fáskrúðsfirði, lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 24. maí sl. Þórunn Ingólfsdóttir, Ástþór Guðnason, Margeir Ingólfsson, Elsa Guðsteinsdóttir, Gyða Ingólfsdóttir, Sveinn R. Eiðsson, Stefanía Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær sonur okkar og bróðir, GUÐJÓN GUÐJÓNSSON, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 28. maí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Fjórðungssjúkrahús- ið á Akureyri. Guðjón Pálsson, Kristjana Marteinsdóttir og systkini hins látna. + Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, SVEINN H. VALDEMARSSON stýrimaður, Heiðarbæ 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 27. maí kl. 13.30. Elisabet Jónsdóttir, Sólveig Sveinsdóttir, Benedikt Þ. Ólafsson, Valdemar Sveinsson, Ingi Geir Sveinsson, Særún H. Ragnarsdóttir, Berglind Sveinsóttir, Haukur Sveinsson, Hinrik J. Þórisson, Kristín Þórisdóttir, Vincent Newman og barnabörn. Heilsudagur í Gerðubergi Breiðholti Litsjónvarpstæki KR. 23.950,- stgr. 20" m/flarst. Kr. 33.950,- stgr. 5 ára ábyrgð á myndlampa VÖNDUÐ VERSLUN Mlpi, FÁKAFEN 11 — SIMI 688005 i + Bróðir okkar og frændi, OTTÓ J. GUNNLAUGSSON listmálari, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. mai kl. 15.00. Jón Gunnlaugsson, Þórhalla Gunnlaugsdóttir, Börkur Karlsson, Gunnlaugur Guðmundsson, Oktavía Guðmundsdóttir. + Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA S. GUÐMUNDSDÓTTIR, Lækjargötu 10, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 28. maí kl. 13.30. Guðmundur Þorgeirsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Elísabet Guðmundsdóttir, ísidór Hermannsson, Gústaf Sæmundsson, Erla Eiríksdóttir, Laufey Messína, L. Messina, Gunnar Engilbertsson, Amfrfður Richardsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Bílaleigubílar á íslandi og í 140 öðrum löndum á mjög hagstæðu verði. Ri iHnof UUUUJSl rent a car *** sími 91-641255 Miðvikudaginn 29 maí: Heilsufæði í kaffiteríunni allan daginn. Heilsuveisla kl. 19.00 Fullgildur kvöldverður á aðeins kr. 400,-. -Grennbrauð frá Þrem fálkum, Smiðjuvegi 4-E. -Sojakjötréttur frá Eðalvörum. -Heilsumeðlæti frá Faxafelli. Fyrirlesturkl. 20.00 Fjallað um matarfíkn og GR0NN- námskeiðið kynnt. Samskipti og sjálfsskoðun kl. 21.00-23.00 Erfið og krefjandi vinna fyrir þá sem vilja horfast í augu við matarfiknina eins og hún raunverulega er. ...../ Bakaríið ÞRÍR FÁLKAR Smiðjuvegi 4-E hefur fengið einkaleyfi til að baka Gronnbrauð á stór- Reykjavíkursvæðinu ásamt Björnsbakaríi í vesturbænum. Brauðin fást í öllum Hagkaups- og Nóatúns- verslunum. GR0NN-NÁMSKEIÐ verður haldið í Mannræktinni Vesturgötu 16 helgina 1.-2. júníkl. 9.00-17.00. Ef þú vilt takast á við matarfíkn þína og ert tilbúin/n að stíga skrefi lengra en þú þorir, þá ert þú velkomin/n hver sem þyngd þín er. Þetta námskeið byrjar í raun með samskipta- vinnunni í Gerðubergi. Það er erfitt og krefjandi en fyllilega þess virði. Stígðu fyrsta skrefið og hringdu núna að degi eða kvöldi. Axel Guðmundsson leiðbeinandi hjá Mannræktinni s. 625717. MANNÚÐ & MENIMING Sumarnámskeið fyrir börn í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Seyðisfirði og Akureyri. LEIKUR - NÁM - STARF Dagskrá námskeiðanna byggist á blöndu af gamni og alvöru. Grundvallarmarkmið Rauða krossins eru túlkuð í leik og starfi. Kennd skyndihjálp fyrir börn og fyrirbygging slysa, fjallað um samskipti fólks, vin- áttu, ólíka menningarheima, umhverfismál, farið í gróðursetningarferð og vettvangsferðir. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 8-10 ára og standa yfir í eina og tvær vikur frá kl. 9.00-16.00. Upplýsingar og skráning i síma 91-2 67 22 á skrif- stofutíma. Ungmennahreyfing Rauða kross íslands. Rauði kross íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.