Morgunblaðið - 11.06.1991, Side 1
64 SIÐUR B
orcjunXiínMíi
STOFNAÐ 1913
129. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
I Bombay á Indlandi, þar sem þessi mynd er tekin, var um helg-
ina mesta úrhelli sem mælst hefur þar í landi. Létu í það minnsta
Urkomumet í Bombay
Reuter.
44 manneskjur lífið í Bombay og nágrannaborginni Thane í kjöl-
far rigninganna. Sjá nánar frétt á bls. 26.
Bandaríkjaforseti:
Friðarráðstefna hugsanleg'
án samþykkis ísraelsmanna
Jerúsalem, Washington. Reuter, The Daily Telegraph.
HUGSANLEGT er að Bandaríkja-
menn og Sovétmenn kalli saman
friðarráðstefnu um málefni Mið-
Austurlanda jafnvel þó að sam-
þykki Israelsmanna og Arabaríkja
fyrir slíku liggi ekki fyrir. Kemur
þetta fram í bréfi frá George
Bush Bandaríkjaforseta til Yitzh-
aks Shamirs, forsætisráðherra
ísraels, sem birt var í dagblaðinu
Maariv í gær.
í bréfi Bush segir að Bandaríkja-
stjóm sé að undirbúa hveijum eigi
að bjóða til ráðstefnunnar og gangi
út frá stuðningi Sovétmanna við
málið. Er Shamir varaður við því að
ísraelsmenn geti ekki búist við mik-
illi samúð neiti þeir að sækja ráð-
stefnuna. Hvetur Bandaríkjaforseti
ísraelsmenn til að samþykkja að full-
trúi frá Sameinuðu þjóðunum fylgist
með ráðstefnunni og að hún muni
koma reglulega saman.
Svar Shamirs við bréfinu er einnig
birt þar sem hann hafnar tillögum
Bandaríkjamanna. Shamir bætir auk
Leiðtogafund-
ur í júlílok ?
Washinglon. Reuter.
MARLIN Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, skýrði í gær
frá því að fundur George Bush,
Bandaríkjaforseta, og Míkhaíl
Gorbatsjovs, forseta Sovétríkj-
anna, verði líklega ekki haldinn
fyrr en síðari hluta júlí.
í síðustu viku var því lýst yfir að
ætlunin væri að halda leiðtogafund-
inn í lok júní eða byijun júlí. Ástæð-
an fyrir því að honum seinkar er sú
að erfiðlega gengur að reka enda-
hnútinn á samkomulag um fækkun
langdrægra eldflauga. Fyrir skömmu
náðu risaveldin samkomulagi um
samdrátt hefðbundins heraflá.
þess við því skilyrði, að Israelar fái
neitunarvald um hveijir verði fulltrú-
ar Palestínuaraba.
David Levy, utanríkisráðherra
ísraels, fer í dag til Bandaríkjanna
til að útskýra afstöðu ísraelskra
stjómvalda. Talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins sagði í gær
að enn hefðu engir fundir með Levy
verið ákveðnir. Hins vegar mætti
gera ráð fyrir að hann myndi hitta
James Baker utanríkisráðherra.
Ítalía:
95% vilja ný
kosningalög
Róm. Reuter.
TILLAGA um umbætur á ítölsku
kosningalöggjöfinni var sam-
þykkt með miklum meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslu, sem
fram fór á Ítalíu í gær og á
sunnudag.
Samkvæmt lokatölum greiddu
95,5% atkvæði með tillögunni, sem
miðar að því að einfalda til muna
framkvæmd þingkosninga í land-
inu. Samkvæmt tillögunni eiga
kjósendur aðeins að merkja við einn
frambjóðanda í stað fjögurra áður.
Rita verður eftirnafn frambjóðand-
ans en áður átti að merkja við þá
með tölustöfum í forgangsröð. í
suðurhluta landsins, þar sem maf-
ían hefur mest ítök, höfðu verið
brögð að því að kjörstjórnir breyttu
tölustöfunum þeim frambjóðendum
í hag, sem nutu stuðnings mafíunn-
ar.
Sósíalistaflokkurinn, næst
stærsti stjórnarflokkurinn, lagðist
gegn tillögunni, sagði hana gagns-
lausa og bijóta gegn stjórnar-
skránni. Fréttaskýrendur sögðu að
úrslit atkvæðagreiðslunnar sýndu
að ítalskir kjósendur væru óánægð-
ir með að stjórnmálamönnum lands-
ins skyldi ekki hafa tekist að
stemma stigu við hinum ýmsu
vandamálum landsins, svo sem vax-
andi glæpatíðni og viðvarandi halla
á rekstri ríkisins. Enginn flokkur
hefur nægan þingstyrk til að stjórna
einn og hver samsteypustjórnin á
fætur annarri hefur fallið vegna
innbyrðis deilna.
Borís Jeltsín spáð sigri í forsetakosmngunum í Rússlandi:
Einíng verður að vera leiðar
liósið en ekki sundurlyndi
- segirtalsmaðurMíkhaílsGorbatsjovs,Sovétforseta,ísamtaiíviðMorgunblaðið
BORÍS Jeltsín er spáð sigri í fyrstu almennu forsetakosningunum í
Rússlandi á morgun. Að sögn Karens Karagesjans, talsmanns Míkha-
íls Gorbatsjovs Sovétforseta, sem Morgunblaðið ræddi við símleiðis
í gær, hefur Gorbatsjov ákveðið að taka ekki afstöðu í kosningunum.
Karagesjan sagði að af skoðana-
könnunum mætti ráða að Jeltsín,
sem nú gegnir embætti forseta Rúss-
lands, færi með sigur af hólmi.
Næstir kæmu Nikolaj Ryzhkov, fyrr-
verandi forsætisráðherra, og Vadím
Bakatín, fyrrum innanríkisráðherra
Sovétríkjanna. Óvíst væri hinsvegar
hvort Jeltsín fengi tilskilinn hreinan
meirihluta strax í fyrstu umferð.
Aðspurður um afstöðu Gorbat-
sjovs Sovétforseta til kosninganna
sagði Karagesjan: „Hann hefur lýst
þeirri skoðun sinni að forseti Sovét-
ríkjanna eigi ekki að skipta sér af
kosningunum. Hann hefur því ekki
lýst yfir stuðningi við neinn fram-
bjóðanda." Karagesjan sagði að að-
stæður í Sovétríkjunum hefðu knúið
Jeltsín og Gorbatsjov til að snúa
bökum saman þótt ekki væri hægt
að tala um bandalag á milli þeirra.
„Eins og ástandið er verður eining
að vera leiðarljósið en ekki sundur-
lyndi.“ Karagesjan sagði að ekki
hefði verið tekin ákvörðun um það
enn við gerð nýrrar stjórnarskrár
Sovétríkjanna með hvaða hætti for-
seti Sovétríkjanna yrði valinn.
Pravda, málgagn sovéska komm-
únistaflokksins, birti viðtal við Jelts-
ín á forsíðu í gær. Þar segist hann
geta boðið Rússum trygga og gæfu-
ríka framtíð. Við hlið viðtalsins er
birt fréttaskýring þar sem farið er
hörðum orðum um Jeltsín. Hann er
sagður vanhæfur, einráður og svik-
ull. í viðtali við þýska dagblaðið
Bild sem birtist í gær sagðist Jeltsín
ætla að hreinsa til í kerfinu og reka
ónytjunga í opinberum stöðum fengi
hann kosningu.
í Leníngrad verður einnig kosið
um hvort taka eigi upp hið gamla
nafn borgarinnar Sankti Pétursborg.
Gorbatsjov hefur lagst gegn breyt-
ingunni og skoðanakannanir benda
til þess að meirihluti borgarbúa sjái
ekki ástæðu til að kenna borgina
við Pétur mikla fremur en Vladímír
Lenín.
Reuter.
Tugþúsundir komu saman til fundar í Moskvu í gær til stuðnings
Boris Jeltsín í forsetakosningunum í Rússlandi. Meðal þeirra sem
héldu ræðu á fundinum var heimsmeistarinn í skák Garí Kasparov.
„Það er ekki nóg fyrir Jeltsin að fá 51% atkvæða. Hann verður að
fá tvo þriðju atkvæða,“ sagði Kasparov.