Morgunblaðið - 11.06.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.06.1991, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991 Mikið vatn í Gígjukvísl ÓVENJU mikið vatn mældist í gær í Gígjukvísl, sem er vestar- lega á Skeiðarársandi, en vatn í Skeiðará var hins vegar ennþá með minnsta móti, samkvæmt upplýsingum rannsóknarmanna þar. Mælingar gáfu til kynna þrisvar til fjórum sinnum meira vatn í Gígjukvísl en í Skeiðará sem er afar óvenjulegt. Talið er að einhver tengsl séu á milli þessa og fram- hlaups Skeiðaráijökuls undanfarið. Hins vegar er ekki talið víst að nein tengsl séu á milli framskriðu jökulsins og væntanlegs Grímsvatnahlaups. Mikill aur er í Gígjukvísl um þessar mundir en mælingar hafa ekki gefið til kynna neinar breytingar á efnasamsetn- ingu Skéiðarár. Miljo 91: Um þúsund manns sitja ráðstefnuna Morgunblaðið/Sverrir Fimm bílar í árekstri Árekstur fimm bíla varð á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar laust fyrir hádegi í gær. Oku- menn tveggja bíla voru fluttir slasaðir á sjúkrahús og mikið eignatjón varð. Við gatnamótin eru beygjuljós frá Kringlumýrarbraut austur og vestur Miklubraut og myndast oft löng röð bíla við þau, sem skapar hættu þegar grænt ljós kviknar fyrir aðra umferð, að sögn lögreglu. Nokkuð var um harða árekstra í umferðinni í gær og í einu tilviki hvarf ökumaður af vettvangi eftir að hafa ekið á stúlku í Þverholti. Stúlkan var flutt á slysadeild. Vestmannaeyjar: Illskeyttur selur tók land íhofnmm Vestmannaeyjum. STÓR og mikill selur tók land í höfninni í Eyjum fyrir skömmu. Var selurinn í miklum vígahug, lét all ófriðlega er nærstaddir reyndu að nálgast hann og vildi alls ekki í sjóinn á ný. Selurinn var hinn grimmasti og reyndi að bíta allt sem fyrir honum varð. Ákveðið var að koma selnum til hjálpar en þar sem erfitt var að eiga við hann sökum þess hve illskeyttur hann var, var gripið til þess ráðs að lokka hann ofan í stóran mjölpoka. Þegar selurinn var kominn í pokann var hann hífður á bílpall og honum ekið suður í Klauf þar sem honum var sleppt í fjöruna. Selurinn staldraði stutt við í flæðarmálinu en hélt síðan á haf út, þokkalega sáttur við tilveruna að sjá og hafa Eyjamenn ekkert orðið hans varir síðan. Grímur Verkalýðsfélög á Suðurnesjum gera áfangasamning við Atlantsál: Á MORGUN hefst í Reykjavík norræn ráðstefna um umhverfis- mennt sem ríkisstjóm íslands heldur að tilstuðlan norrænu ráð- herranefndarinnar og nefnist hún Miljo 91. Ráðstefnan er haldin fyrir fóstmr og kennara á öllum skólastigum, í öllum námsgrein- um og aðra sem vinna að um- hverfisfræðslu sem starfsmenn, stjómendur eða áhugamenn. Þátttakendur verða um 1000 tals- ins. Ráðstefnunni lýkur á föstu- dag. Aðalmarkmiðið með Miljo 91 er að efla umhverfismenntun á Norður- löndum, einkum á íslandi. Sam- starfsnefnd fjögurra ráðuneyta hef- ur yfírumsjón með undirbúningi Miljo 91. Í nefndinni sitja Þorvaldur Öm Ámason fyrir menntamálaráðu- neyti, sem jafnframt er formaður, Elín Pálmadóttir fyrir félagsmála- ráðuneyti (tilnefnd af Samtökum sveitarfélaga), Gestur Ólafsson fyrir umhverfisráðuneyti og Hrafn V. Friðriksson fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Sigurlín Sveinbjarnardóttir er verkefnisstjóri Miljo 91. Ráðstefnur af þessu tagi hafa verið haldnar til skiptis á Norður- löndum: í Stokkhómi 1983, Osló 1985, Helsinki 1987 og í Kaup- mannahöfn 1989. Um það bil 1000 manns hafa sótt hveija ráðstefnu og er svo einnig í þetta sinn. Samið verði til 5 ára og trygg- ing gegn verðbólguhækkunum Sett sem skilyrði að Atlantsál verði ekki í Vinnuveitendasambandi íslands VERKALÝÐSFÉLÖG á Suðurnesjum hafa gert áfangasamkomulag við Atlantsálhópinn, sem felur í sér að ef væntanlegt álbræðslufyr- irtæki fari sjálft með samningamál gagnvart starfsmönnum, þá verði kjarasamningar í upphafi gerðir til 5 ára og starfsmönnum veittar tryggingar gegn verðbólguhækkunum. Að sögn Karls Stein- ars Guðnasonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavík- ur, var það krafa verkalýðsfélaganna að Atlantsál fari sjálft með samningamál ef af byggingu álversins verður. j Vinnuveitendasamband íslands greindum toga hafí verið gerður hefur sent Verkamannasambandi íslands bréf, þar sem meðal ann- ars segir að ef það reynist rétt að einstök verkalýðsfélög eða sam- bönd hafi samið um sérstök for- réttindi til nanda hinu erlenda fyr- irtæki gegn því að fyrirtækið verði ekki aðili að VSÍ eða aðildarsam- tökum þess, þá hafi verið brotið blað í samskiptum aðila vinnu- markaðarins. Þess vegna sé brýnt að fá þegar fram upplýsingar um hvort rétt sé að samningur af ofan- og hveijir standi fyrir honum, og enn fremur hvort VMSÍ telji það samræmast samskiptahefð sam- taka á vinnumarkaði að í samning- um sé gerður áskilnaður um að gagnaðili gangi ekki í hlutaðeig- andi félög viðsemjenda á vinnu- markaði, þ.e. fyrirtæki ekki í at- vinnurekendafélög og þá launþeg- ar ekki í stéttarfélög. Einar Oddur Kristjánsson, for- maður VSÍ, sagði í samtali við Morgunblaðið að ef samkomulagið hefði verið gert með vitund og vilja samtaka Iaunþega, þá mættu þau sannarlega eiga von á hörðum viðbrögðum frá VSÍ. „Við teljum að það eigi að vera ljóst í nútíma- þjóðfélagi að ábyrgð og skyldur eru gagnkvæmar. Við erum mjög eindregið þeirrar skoðunar að það eigi enginn að vera þátttakandi í VSÍ nema sá sem sjálfur vill það, og þannig höfum við ekkert upp á Atlantsálhópinn að klaga. En verkalýðshreyfingin hefur síðustu áratugina verið mjög hörð á því sjónarmiði að allir launþegar skuli vera í verkalýðsfélögum og aðeins skuli samið -við verkalýðsfélög. Ég held að þeir hljóti að gera sér grein fyrir því að þeir verða aðvera sjálf- um sér samkvæmir, en ef þarna er um stefnubreytingu að ræða þá munum við ekki hlíta þessu Mismunandi mat á áhrifum hækkunar framfærsluvísitölu: Verðbólgan talin verða allt frá 8 til 18 af hundraði á ári VÍSITALA framfærslukostnaðar í júní er 1,4% hærri en í maí og jafngildir sú hækkun 12,8% verðbólgu á heilu ári. Mest munar þar um hækkun á fjármagnskostnaði íbúðaverðs. Þessar upplýs- ingar koma fram i fréttatilkynningu frá Hagstofu íslands. í álykt- un frá formönnum aðildarfélaga BSRB segir að hækkun fram- færsluvísitölu um 1,4% frá maí til júní samsvari 18% verðbólgu á ársgrundvelli. Þórarinn V. Þorarinsson framkvæmdastjóri VSÍ segir að þessi mismunur stafi af ólíkum reikniaðferðum sem notaðar séu, þar sem annars vegar sé reiknað út frá þremur mánuðum, hins vegar einum. Þórarinn segir að verðbólgan á ársgrundvelli sé í raun 8-10%. Samkvæmt upplýsingum hag- stofunnar er vísitalan 154,9 stig miðað við verðlag í júníbyijun ef reiknað er með að hún hafí verið 100 stig í maí 1988. Ef miðað er við eldri grunn (að vísitalan hafi verið 100 í febrúar 1984) er vísi- tala framfærslukostnaðar 379,9 stig. Hagstofan segir að af 1,4% hækkun vísitölunnar frá 1. maí stafí rúmlega 0,6% af hækkun á fjármagnskostnaði íbúðaverðs. Verð á bensíni hækkaði um 5,4% 1. júní og olli það um 0,2% hækk- un á vísitölunni. Verð á áfengi hækkaði um 2,6% og tóbaki um 2,2% 28. maí og hafði það í för með sér tæplega 0,1% vísitölu- hækkun. Verðhækkun ýmissa annarra vöru- og þjónustuliða olli alls um 0,5% hækkun á vísitölu framfærslukostnaðar. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 6,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækk- að um 3,1% og jafngildir sú hækk- un 12,8% verðbólgu á heilu ári. í ályktun frá formönnum aðild- arfélaga BSRB segir að hækkun framfærsluvísitölu um 1,4% frá maí til júní samsvari 18% verð- bólgu á ársgrundvelli og helming þessara hækkana megi rekja beint til vaxtahækkana. Að sögn Þórarins V. Þórarins: sonar framkvæmdastjóra VSÍ stafa mismunandi niðurstöður Hagstofunnar og formanna aðild- arfélaga BSRB af ólíkum reikn- iaðferðum, þar sem annars vegar séu gefnir upp þrír mánuðir en hins vegar margfaldað upp eitt mánaðargildi. „Vextir hafa áhrif á húsnæðis- lið framfærsluvísitölu, þannig að 0,6% af þessum 1,4% eru ein hækkun sem kemur inn núna en við eigum ekki von á að endur- taki sig. Þetta er því í raun ekki mælikvarði á hraða verðbólgunn- ar eins og hún er núna. Þar standa þessi 0,8% hins vegar eftir þannig að verðbólgan er, sé miðað við heilt ár, milli 8 og 10%. Þessi breyting vegna vaxtanna mun ekki rekja sig áfram í næsta mán- uði,“ sagði Þórarinn V. Þórarins- son framkvæmdastjóri VSÍ í sam- tali við Morgunblaðið. þegjandi og hljóðalaust." sagði hann. Karl Steinar Guðnason sagðist ekki að svo stöddu vilja tjá sig opinberlega um innihald áfanga- samkomulagsins í smáatriðum, en þessa dagana væri verið að kynna það fyrir stjórnum viðkomandi verkalýðsfélaga. Helsta atriðið í samkomulaginu væri að stefnt væri að því að gera kjarasamninga sem gilda ættu í fímm ár, og þá með þeim tryggingum gegn verð- bólgu sem verkalýðsfélögin væru sátt við. Þá væri það nýmæli að öll verkalýðsfélögin á Suðurnesj- um kæmu til með að standa að kjarasamningi við Atlantsál sem ein heild. „Þetta áfangasamkomulag er fyrst og fremst samkomulag um vinnubrögð. Það er alveg jafngilt og orkusamningurinn þegar tekin verður afstaða til byggingu álvers- ins, og er því einn af þeim horn- steinum sem byggja ber á ákvörð- unina um hvort hér rísi álver eða ekki,“ sagði hann. Grindavík: Strandaði í innsiglingunni Grindavík. EVA ÍS 111, 7 tonna bátur, strandaði í innsiglingunni í Grindavíkurhöfn í gærkvöldi um tíuleytið. Hann var dreginn af strandstað rúmlega hálftima seinna og sigldi fyrir eigin vélar- afli inn í höfnina. Skipstjórinn tilkynnti óhappið til lögreglunnar sem kallaði út björg- unarsveitina Þorbjörn til aðstoðar. Björgunarsveitarmenn fóru út á nýjum slöngubát, Hjalta Frey, og drógu Evu af strandstað og henni var síðan siglt inn í höfnina. Ekki er talið að neinar skemmdir hafi orðið á Evu við óhappið. Skipstjór- inn kvaðst hafa beygt of snemma við hafnarmynnið og tekið niðri. FÓ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.