Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGÚR 11. JÚNÍ 1991
Sakadómur:
Dæmdur til greiðslu
miskabóta vegna æru-
meiðandi ummæla
Ummælin dæmd dauð og ómerk
DÓMUR féll í Sakadómi síðastliðinn föstudag í máli ákæruvalds-
ins gegn Halli Magnússyni blaðamanni vegna ærumeiðandi
ummæla hans í dagblaðsgrein um séra Þóri Stephensen staðar-
haldara í Viðey. 011 ummæli sem ákært var fyrir voru dæmd
dauð og ómerk og var Halli gert að greiða séra Þóri 150 þús-
und kr. í miskabætur auk almennra vaxta frá 6. febrúar 1991
til greiðsludags.
Hallur var dæmdur til að greiða
allan sakarkostnað, þar með talin
saksóknaralaun til ríkissjóðs, 180
þúsund kr., og málsvamarlaun
skipaðs verjenda síns, Ragnars
Aðalsteinssonar, 180 þúsund kr.
Séra Þórir Stephensen hafði kraf-
ist þess að sér yrðu dæmdar 305
þúsund kr. í miskabætur vegna
ummæla ákærða í grein sem birt-
ist í Tímanum 14. júlí 1988.
Málið var höfðað með ákæru-
skjali ríkissaksóknara 12. október
1990 á hendur Halli Magnússyni
„fyrir óviðeigandi og móðgandi
ummæli og ærumeiðandi aðdrótt-
anir um opinberan starfsmann,
séra Þóri Stephensen, í grein er
ákærði ritaði undir fullu nafni og
birtist í dagblaðinu Tímanum."
Hallur var þá starfandi blaðamað-
ur á Tímanum og varaborgarfull-
trúi.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, dró urriða á land en
sneri heim án þess að fá lax þegar hann opnaði
Elliðaárnar fyrir veiði í gærdag. Ekki voru veiðifélag-
ar hans, Haukur Pálmason, aðstoðarrafmagnsveitu-
stjóri, og Jón G. Tómasson, borgarritari, heppnari
því hvorugur þeirra náði laxi.
Morgunblaðið/Sverrir
• Rennt fyrir lax í EUiðaánum
VEÐURHORFUR í DAG, 11.JÚNÍ
YFIRLIT: Minnkandi lægð yfir Norðursjó þokast norðaustur. Hæð
yfir Norðaustur-Grænlandi. Víðáttumikil og vaxandi lægð um 600
km suðsuðaustur af Hvarfi hreyfist austur.
SPÁ: Norðaustan kaldi eða stinningskaldi vestanlands en austan
og norðaustan gola eða kaldi annars staðar. Skúrir verða á Suðaust-
ur- og Austurlandi og með noröurströndinni en þurrt á Vestur-
landi. Hiti 5-10 stig, svalara norðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðan- og norðaust-
anátt, dálítill strekkingur vestanlands á miðvikudag en annars
hægari. Fremur svalt í veðri og skúrir eða slydduél norðanlands
og austan en 7 til 12 stiga hiti að deginum og víða léttskýjað suð-
vestanlands.
Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V E1
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
|~<^ Þrumuveður
TAKN:
Ö
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR IfÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 7 skýjað
Reykjavik 7 skúr
Bergen 17 skýjað
Helsinki 16 skýjað
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað
Narssarssuaq 12 léttskýjað
Nuuk 6 þoka
Ósló 11 rigning
Stokkhólmur 15 skýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 30 léttskýjað
Amsterdam 15 úrkoma í grennd
Barcelona 22 lóttskýjað
Berlfn 20 léttskýjað
Chicago 19 skúr
Feneyjar 23 léttskýjað
Frankfurt 18 urkoma ígrennd
Glasgow 13 skýjað
Hamborg 18 skúrir
London 18 skúrlr
Los Angeles 15 þokumóða
Lúxemborg 15 skýjað
Madríd 27 skýjað
Malaga 21 léttskýjað
Mallorca 26 hálfskýjað
Montreal 19 alskýjað
NewYork 23 skýjað
Orlando vantar
París „ vantar
Madeira 21 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Vín 21 skýjað
Washington vantar
Winnipeg 13 léttskýjað
Magnús ráðinn aðstoðar-
maður umhverfisráðherra
EIÐUR Guðnason, umhverfis-
málaráðherra, hefur ráðið Magn-
ús Jóhannesson, siglingamála-
stjóra, aðstoðarmann sinn. Magn-
ús mun taka sér leyfi frá starfi
siglingamálastjóra og hefja störf
í umhverfismálaráðuneytinu á
næstunni.
Magnús er fæddur 23. mars 1949
á ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1969, prófi í efnaverkfræði frá há-
skólanum í Manchester 1973 og
M.Sc.-prófi í verkfræði frá sama
skóla 1974. Magnús hefur verið
siglingamálastjóri frá 1. janúar
1985.
Eiginkona Magnúsar er Ragn-
heiður Hermannsdóttir, kennari, og
eiga þau tvö böm.
Magnús Jóhannesson
Björgunarþyrla Gæslunnar:
Sovétmenn ætla að
bjóða sendinefnd heim
OPINBERIR aðilar hafa ekki tekið afstöðu til tilboðs sovéska fyrir-
tækisins um sölu á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Von
á er boði frá fyrirtækinu um að senda íslenska sendinefnd til
Sovétríkjanna til að skoða þyrlurnar, sem eru af gerðinni KA-32T
og MI-17.
Umboðsmaður sovéska fyrir-
tækisins, Hallgrímur Marinósson,
sagði að viðhalds- og varahluta-
þjónusta Aviaexport, fyrirtækisins
sem framleiðir þyrlurnar, væri
sambærileg við þá þjónustu sem
aðrir þyrluframleiðendur byðu.
„Þeir bjóða upp á viðhaldssamning
og tilgreina í tilboðinu varahluta-
pakka. Tilboðið felur einnig í sér
þjálfun áhafna. Auk þess eru þeir
Lést eftir
umferðarslys
KONAN sem lést eftir umferð-
arslysið við Austurbrún síðast-
iiðið fimmtudagskvöld hét
Hansína Jónsdóttir til heimilis
að Kambsvegi 33, Reykjavík.
Hansína var fædd 1906 í Mið-
dal í Laugardal. Hún starfaði
lengst af við kennslu, þar á meðal
við ísafjarðardjúp og á Barða-
strönd.
Eftirlifandi eiginmaður Hansínu
er Hafsteinn Guðmundsson, fyrr-
um jámsmiður. Hún lætur eftir
sig fjögur uppkomin böm.
opnir fyrir öllum öðrum möguleik-
um,“ sagði Hallgrímur.
Hann sagði að sovésku vélarnar
stæðust vestrænum vélum fylli-
lega á sporði hvað gæði snertir.
„Miðað við það sem skrifað er um
þær í bandarísk rit um þyrlur er
ekki hægt að segja annað. Þar er
farið mjög jákvæðum orðum um
tæknina í þyrlusmíði Sovét-
manna,“ sagði Hallgrímur.