Morgunblaðið - 11.06.1991, Síða 9

Morgunblaðið - 11.06.1991, Síða 9
•MORGUNBLAÐíÐ ÞRIÐJUDA.GUR 11. J.ÚNÍ1991 9 " " 1 \ ■JF m ® IHICO REIKNIVÉLAR ERU ÓDÝRARI OG BETRI j ifoico 1232 0 12 stafa reiknivél meö minni 0 Frábær vél á einstöku verði 0 Strimill og skýrt Ijósaborð 0 Svart og rautt letur 0 Stærð: 210x290x80 mm Reykjavík: Penninn, Hallarmúla, Kringlunni, Austurstræti. E.TH.MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUN 10 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 651000 ORYCCI FYRIROLLU r- .VVC'C - &$> ' " ... Sbe Stundar gáleysi er oft orsök meiðsla við vinnu. Erfitt er að koma í veg fyrir slíkt en auðvelt er að minnka líkurnar á skaða. Að því vinnur Dynjandi ötullega. Dynjandi selur allar gerðir öryggisbúnaðar, m.a. hina vönduðu öryggisskó frá Jallatte. Þeir fást í mörgum gerðum og þeim er ætlað að fyrirbyggja meiðsli á fótum. >X< JalEabii Sáttin og sjóðurinn Að dómi Ásmundar Stefánssonar forseta ASÍ voru markmið samninga 1986 og 1990 hin sömu. „Það sem fór úrskeiðis árið 1986,“ segir hann, „var m.a að þá lögðum við of þungar byrðar á ríkissjóð. Þá var samið um tollalækkanir og fleira sem reyndist ríkissjóði um megn að standa við ... í síðustu samningum voru aftur á móti ekki lagðar klyfjar á ríkið ...“ Staksteinar staldra við þessi mál í dag sem og forystugrein Þjóðviljans um ástæður þess að lesendur kaupa sum blöð en önnur ekki. 1986 og 1990 Forseti ASI segir í við- tali, sem Staksteinar hafa lítillega vitnað til áður, að aðilar vinnumarkað- arins hafi „reynt að læra af reynslunni frá árinu 1986“ við gerð þjóðar- sáttar 1990. Það sem fór úrskeiðis 1986 „var m.a. að þá lögðum við of þungar byrðar á rikis- sjóð“. Það var hins vegar ekki gert 1990. „Heildar- kostnaður ríkissjóðs vegna sanminganna [1990] var um 600 m.kr. Ríkissjóður hafði beinan hag af stöðugleikanum og því að samningamir héldu.“ Þessi staðreynd, að viðbættri breiðri sam- stöðu [þjóðarsátt], færði verðbólguna niður í 7%. Pólitískir ábyrgðaraðilar og stjómendur ríkisfjár- mála stóðu liins vegar ekki á sínum bremsum. „Það er gífurlegt út- streymi fjái’ úr ríkissjóði, samhliða þenslú hús- bréfakerfisins, og það sér ekki fyrir endann á því. Hallarekstur ríkis- sjóðs keyrir nú upp vext- ina og veldur hættu- ástandi í efnaliagskerf- inu ...“ „Vimiumark- aðurinn tók forystuna“ Fijáls verzlun spyr forseta ASÍ: „Segja má að aðilar vinnumarkað- arins hafi að vissu marki tekið fram fyrir hend- urnar á ríkisstjóminni með þjóðarsáttarsamn- ingum í ársbyrjun 1990. Getur það ekki verið hættulegt fyrir lýðræðið ...“? Svar: „Það er einstakt að vinnumarkaðurinn skyldi taka forystuna með þessum hætti. Þetta þekkist ekki í nágranna- löndunum. Það er ef til vill vegna þess að þar em ljós skil milli verkalýðs- flokka og atvinnurek- endaflokka þamúg að pólitisk forysta, sem þarf í aðgerð sem þessa, kem- ur í gegnum þá. Hér em þessi mörk mun óljósari. Stjómmálamenn á ís- landi hafa fæstir reynslu af hinum almemia vinnu- markaði. Þeirra reynslu- heimur er yfirleitt á sviði fjölmiðlunar, kennslu eða í öðrum opinbemm störf- um. Fæstir þeirra hafa unnið í verkalýðshreyf- ingunni eða við stjómmi í atvinnufyrirtækjum. Til að draga úr verð- bólguimi þurfti að ná breiðri samstöðu. Það þurfti yfirsýn vinnu- markaðarins til að skynja hvernig hægt væri að taka á vandanum, sem öllum vai- ljóst að eyði- lagði bæði fyrirtækin og heimili fólks í landinu. I öðmm þjóðfélögum hefði þetta hugsanlega gerzt skiptara. Stjómmála- meim verða að draga þá ályktun af þessum samn- mgum og þeim árangri, sem þeir skiluðu, að þeir þurfi á sérþekkingu vinnumarkaðarins að halda. Við segjum þeim ekki fyrir verkum og þeir segja okkur ekki fyrir verkum.“ Sérstætt sjálfsmat Þjóðviljans Forystugrein Þjóðvilj- ans á laugardagimi fjall- ar um mismikið sölu- gengi dagblaðaima. Hvað veldur almennum áhuga og eftirspurn eftir einum fjölmiðli en áhugaleysi fyrir öðmm? Leiðarahöfundur velt- ir því fyrir sér, hvers vegna útbreiðsla Þjóðvilj- ans er ekki meiri en raun ber vitni. Og fimiur svar- ið í „kvennabaráttublað- inu Vem“. Orðrétt: „Ein lesenda hafði móðgast við Vem vegna snyrtivömauglýsingar sem hún taldi kvenfrels- isblaði til skammar. Og ákvað því að segja Vem upp. Til útskýringar sagði lesandinn að hún keypti að vísu blöð, sem hún væri ósammála, t.d. Morgunblaðið, eins þótt þar væri á hveijum degi eitthvað sem hún væri ósátt við. „En ég segi blaðinu ekki upp af því að það skiptir mig ekki máli. Ég veit að Morgun- blaðið selur sig fyrir pen- inga og hefur engai' hug- sjónir. Það geta ekki aðr- ir sært mann en þeir sem manni er ekki sama um.“ — Þessa afstöðu könn- umst við Þjóðviljameiin mæta vel við. Menn hafa . fyrr og síðar sagt upp Þjóðviljanum, vegna þess að hann hefur misstigið sig í einhveiju máli, van- rækt amiað og svo fram- vegis. Menn þola ekki að „þeirra blað“ geri slíkt. Og því kaupa þeir heldur einlivern Mogga vegna þess að þeim „er sama“ um hann.“ Svona er hinn svart- hvíti veruleiki málgagns sósíalismans á íslandi einfaldur og auðskilimi. Memi segja Þjóðviljanum upp vegna þess að þeim stendur ekki á sama um „blaðið sitt“. Svo ljósrauð og léttbær er skýringin á sölutregðumii. „Og kaupa heldur einhvern Mogga vegna þess að þeim „er sama“ um hann“. Það er súm sé ekki frétta- og upplýsinga- gildi sem ræður eftir- spum og útbreiðslu blað- amia, að mati Þjóðviljans. Sussu-nei. Memi segja einfaldlega hve vænt ■þeim þykir um Þjóðvilj- ann með því að segja honum upp. HÆKKANDI VEXTIR Á SPARIFÉ Með hækkandi vöxtum er raunávöxtun verðbréfa nú orðin hærri en oftast áður. Dæmi um raunávöxtun m.v. heilt ár: Sjóðsbréf VÍB 6,0-11,0% Skuldabréf Glitnis 9,5% Húsbréf 8,7% Spanskírteini ríkissjóðs 7,9-8,1 % Ráðgjafar VIB veita viðskiptavinum persónulega þjónustu við val á verðbréfum. Verið velkomin í VÍB. VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.