Morgunblaðið - 11.06.1991, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991
11
INNSETNING
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Það er algengasti vinnumáti list-
amanna, að skapa sín verk ein-
göngu út frá eigin innri þörf og
tilfinningum. Þá skiptir minna
máli fyrir sköpunargleðina hvernig
þau koma öðrum fyrir sjónir, eða
hvort þau fara vel í einhveiju því
sýningarrými, sem þau kunna síðar
að lenda í. Stöku sinnum vinna list-
amen'n þó á hinn veginn, þ.e. miða
verk sín við það rými, sem þeir
hafa til afnota, og setja þau sam-
viskusamlega upp með samspil
rýmis og áhorfenda í huga. Ef til
vill er nær að kalla slíka vinnu inn-
setningu en uppsetningu einstakra
verka, þar sem það er heildin sem
skiptir máli; hver hluti sýningarinn-
ar fyrir sig kann að vera fullgild-
ur, en öðlast aukið gildi í samhengi
við allt annað sem fyrir augu ber.
Erlingur Páll Ingvarsson hefur
unnið sýningu sína í Galleríi Sæv-
ars Karls á þennan máta. Hann
skapar ákveðið umhverfi, sem gest-
urinn gengur inn í og innan um,
þar sem smágerðir hlutir á veggj-
um og gólfi tengjast náið í heildar-
myndinni. Erlingur Páll stundaði
nám í Myndlista- og handíðaskóla
íslands á árunum 1974-78, en hélt
svo til Amsterdam og þaðan til
Þýskalands, þar sem hann var í
Myndlistarháskólanum í Dusseld-
orf 1979-81. Þetta er ijórða einka-
sýning hans, en auk þess hefur
hann tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum.
Það er oft varhugavert að reyna
að skilgreina sýningar af þessu
tagi of mikið; til þess er sjónreynsl-
an sem þær bjóða upp á of einstakl-
ingsbundin, og því kunna of miklar
skýringar að rýra gildi reynslunnar
fyrir einstaka gesti. I sýningarskrá
segir listamaðurinn: „Þessi sýning
er stefnumót, — skyndikynni ólíkra
hluta og mynda i afmörkuðu rými.
Erlingur Páll Ingvarsson í Galleríi Sævars Karls.
í einni og sömu andrá mætast
myndverk og áhorfandi í framandi
veröld. Tvær línur skarast og önnur
þeirra veit út í vorið.
Þessi orð gætu í raun talist við-
bót og útvíkkun á því sem fyrir
augu ber, fremur en tilraun til skýr-
ingar. í blaðaviðtali í tilefni sýning-
arinnar segir Eriingur Páll m.a.:
„Myndirnar eru sprottnar út úr
vorinu og bjartsýni. Ég fann í mér
löngun til að miðla því. Að sumu
leyti langaði mig til að láta litla
hluti ná saman og mynda sprengi-
kraft.
Það er síðan áhorfenda að meta
hvernig þeim finnst hafa tekist til.
Þungamiðjan felst í skemmtiiega
samsettu verki á miðju gófi, sem
er allt í senn, hrörlegt og líflegt.
Það er síðan endurspeglað á vegg,
og hjólið, sem kemur fyrir í því,
er loks tengiliður heildarinnar, þar
sem það kemur fyrir víða um sal-
inn, heilt eða í brotum, þannig að
úr verður bogamynd. Andlit í próf-
íl fylgist svo brosandi með öllu
saman.
Hin sjónræna heild sýningarinn-
ar er opin og létt; litir eru bjartir,
og engin mörk teikninga og bak-
grunns, þannig að heilu veggimir
taka þátt í mynduninni. Það er lík-
legt að hinir smærri þættir heild-
arinnar misstu marks án tengsl-
anna, en hér virðist flest skipast
vel niður, og nýting staðarins þann-
iggóð.
Þessi sýning Erlings Páls Ingv-
arssonar er létt og skemmtileg, og
hentar árstímanum vel. Þó þarna
sé ekki efnt til mikilla átaka ber
innsetningin vott um gott skyn-
bragð á samspil rýmis og verka,
og því er full ástæða til að vænta
þess að listamaðurinn hafi alla
burði til að láta nokkuð að sér
kveða, ef hann ákveður að snúa
sér að myndlistinni af meiri þrótti
en hingað til.
Sýningin í Galleríi Sævars Karls
er opin á verslunartíma út
júnímánuð.
Selfoss:
Yinabæjasamstarf um tengsl
við Evrópubandalagið
Selfossi.
FYRIRTÆKJUM og félögum á Selfossi, og í vinabæjum Selfoss á Norð-
urlöndunum, gefst kostur á því að nýta sér upplýsinga- og ráðgjafa-
skrifstofu Efnahagsbandalags Evrópu sem staðsett er í vinabæ Sel-
foss, Silkiborg á Jótlandi. Þetta kom meðal annars fram á ráðstefnu
sem fram fór í Silkiborg 1. júní í tengslum við mót bæjarstjórna vina-
bæjanna Silkiborgar, Selfoss, Arendal í Noregi, Kalmar í Svíþjóð og
Savonlinna í Finnlandi.
Suomi
borðbúnaður
Upplýsinga- og ráðgjafaskrifstof-'
an í Silkiborg hefur verið starfrækt
í fjögur ár og var sú fyrsta sem
opnuð var í Evrópubandalaginu. Alls
eru starfandi 200 slíkar skrifstofur
innan bandalagsins. Skrifstofurnar
eru tengdar með tölvuneti og geta
haft samskipti um það. Á bak við
hveija skrifstofu eru margir aðilar
sem mynda samtök um skrifstofuna.
Skrifstofurnar einbeita sér að því
að veita upplýsingar um að hveiju
fyrirtæki og félög þurfa að einbeita
sér þegar og áður en innri markaður
EB verður að veruleika. Með slíkum
upplýsingum er fyrirtækjum gert
auðveldara að laga sig að aðstæðum.
Skrifstofurnar gefa upplýsingar um
lána- og styrktarmöguleika innan
bandalagsins, þróunar- og rannsókn-
arverkefni sem EB styður fjárhags-
lega og fyrirtæki og stofnanir geta
tekið þátt í. Einnig upplýsingar um
viðskipta- og samstarfssambönd
gegnum tölvunet (Business Coop-
eration Network) og upplýsingar
varðandi útboð á vegum opinberra
aðila víða í Evrópu.
Vinabæir Silkiborgar fá með þessu
aðgang að upplýsingum varðandi EB
og innri markaðinn, eiga þess kost
að ná viðskipta- og menningarsam-
böndum og finna samvinnuaðila inn-
an EB til þess að laga sig að þróun-
inni sem er í gangi innan bandalags-
ins;
I lok ráðstefnunnar var gerð sam-
þykkt milli forystumanna vinabæj-
anna um að vinna að því að koma á
sambandi milli atvinnumálanefnda
vinabæjanna og ráðgjafaskrifstof-
unnar í Siikiborg. Einnig að opna
möguleika á því að vinabæirnir hafi
aðgang að fuiltrúa á ráðgjafaskrif-
stofunni og að bæjarstjórnir og at-
vinnumálanefndir vinabæjanna hæfu
skráningu á beinum óskum atvinn-
ulífsins varðandi samvinnu um tengsl
við EB. Samþykkt var að niðurstöður
þessa lægju fyrir fyrir 1. september.
Þetta tilboð Silkiborgar til vina-
bæjanna um aðgang að upplýsinga-
og ráðgjafaskrifstofunni gefur vina-
bæjasamstarfinu nýja vídd og mögu-
leika á því að efla þessi samskipti
og skapa ný tækifæri fyrir fyrirtæki
og félög að koma á nýjum sambönd-
um um alla Evrópu.
Sig. Jóns.
„Lífslistin
í postulíni frá Ros-
enthal. Fagurborð-
búnaðurá yðareigið
borð- «,,Ju
Nýborg C§D
Ármúla 23, s. 813636
, SKIPAPLOTUR - INNRETTINGAR
PLÖTURÍLESTAR
I 1 I I SERVANT PLÖTUR
I I I I SALERNISHÓLF
1 1 BADÞIUUR
ELDHÚS-BORÐPLÖTUR
1 A LAGER -NORSK HÁ GÆÐA VARA
Þ.Þ0B6BÍMSS0M fcCO
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640
^SKIPAPLOTl
fljJD
Kjarrhólmi - íb. með húsnláni
Vorum að fá í sölu sérlega glæsilega 3ja herb. íbúð á
1. hæð. Öll í toppstandi m.a. nýflísalagt bað, nýlegt
parket á öllu, hurðir og skápar nýsprautaðir. Þvotta-
herb. í íb. Suðursvalir. Sameign og hús nýendurnýjuð.
Áhvílandi húsnlán 2,8 millj. Verð 6,4 millj.
Upplýsingar gefur,
HUGINN, fasteignamiðlun,
Borgartúni 24,
sími 625722.
Austurlenskur
veitingastaður
Vegna brottflutnings af landinu er til sölu veitingastað-
ur sem er sérhæfður í austurlenskri matargerðarlist.
Fyrirtækið hefur getið sér gott orð, er vel staðsett á
höfuðborgarsvæðinu og rekstur þess skilar hagnaði.
Velta er ört vaxandi. Sanngjarnt verð og góð greiðslu-
kjör í boði.
Frekari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
SMfSNÚKM #/i
Nóatúni 17 105 Reykjavík Sími: 621315
Atvinnumiölun # Firmasala # Rekstrarróögjöt
Verslunarhúsnæði
Til sölu fullinnréttað verslunarhúsnæði í Skipholti 50b,
226 fm í SA-hluta jarðhæðar (Sportmarkaðurinn).
Góðar innkeyrsludyr fyrir lager. Áhvílandi hagstæð lán.
Verð kr. 17.800 þús.
Nánari upplýsingar í síma 812300.
Frjálst framtak hf.
★ Fyrirtæki til sölu ★
• Matvælaiðja og dreifing. Fiöfum fengið til sölumeð-
ferðar þekkt fyrirtæki, sérþekkt á ákveðnu sviði
matvöru. Ársvelta 60-70 millj.
• Þjónustufyrirtæki. Af sérstökum ástæðum er til
sölu fyrirtæki, sérhæft í þjónustu við bifreiðaeigendur.
Fyrirtækið er í rúmgóðu húsnæði og nýtur góðs orðs.
• Sportvörufyrirtæki. Smásala og heildsala.
• Sérversiun. Til sölu eða leigu er vel staðsett sér-
verslun. Eiginn útflutningur, trygg innflutnings-
sambönd og rúm álagning. Hagkvæmur rekstur.
Heildsöludreifing vel möguleg.
• Söluturnar í Reykjavfk og Hafnarfirði. Velta um og
yfir 3,0 millj.
• Bónstöð á besta stað.
• Verslunarhúsnæði til leigu við Hlemmtorg, ca 200
fm. Innréttingar fyrir hendi að nokkru leyti.
Upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofunni.
Fjöldi annarra fyrirtækja á skrá.
FYRIRTÆKJASTOFAN
Varslah/f. Ráðgjöf, bókhald,
skattaöstoö og sala fyrirtækja
Skipholti 5, Reykjavík, simi 622212
i
pa ■ w®ia®®® ■ uiaasií ke’}
íbúðar- og sumarhús byggó af traustum aðilum. r» ^ 7-1 • .1 , ir
Leitaóu upplysmga og faðu sendan bækling.Se!fossLsmú9M2277