Morgunblaðið - 11.06.1991, Side 28

Morgunblaðið - 11.06.1991, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991 ! MORGUNBLAÐIÐ ÞIiIÐJUDAGUR 11. J.UNl 1991 29 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Tekjutenging ellilífeyris Aundanförnum áratugum hafa við og við komið upp umræður um það, hvort taka ætti upp tekjutengingu á elli- lífeyri, þ.e. að þeir, sem hafa tekjur yfir ákveðnum mörkum, eftir að þeir eru komnir á eftir- laun skuli ekki fá greiddan elli- lífeyri úr sameiginlegum sjóði. Að þessum hugmyndum var vik- ið í Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins fyrir skömmu. Tveir greinarhöfundar gerðu athugasemdir við þessi sjónarmið í Morgunblaðinu sl. laugardag. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sambands al- mennra lífeyrissjóða taldi, að Morgunblaðið hefði hvatt til þess, að þeir, sem fá greiddan lífeyri úr lífeyrissjóði fái ekki greiddan ellilífeyri frá hinu almenna tryggingakerfi. Þetta er mis- skilningur. Því var varpað fram til umhugsunar og umræðu, að ellilífeyrir yrði ekki greiddur til þeirra, sem hafa verulegar tekjur af öðrum tekjustofnum, eftir að þeir eru komnir á eftirlaun. I þessari umljöllun var einnig vísað til fámenns hóps þjóðfé- lagsþegna, sem nýtur lífeyris úr mörgum lífeyrissjóðum og orð á því haft, að það væri óeðlilegt. Það er auðvitað ljóst, að fjöl- margir lífeyrissjóðir greiða þeirri kynslóð, sem nú fær lífeyri úr þessum sjóðum, svo lágan lífeyri, að þorri þeirra mundi augljóslega ekki vera fyrir ofan þau tekju- mörk, sem eðlilegt gæti talizt að setja. Jafnljóst er, að fjölmargir þeirra, sem nú eru komnir á eftir- laun og ekki síður margir þeirra, sem fara á eftirlaun á næstu árum og áratugum, hafa búið svo vel í haginn fyrir efri ár, að þeir hinir sömu þurfa ekki á elli- lífeyri úr sameiginlegum sjóði að halda. Við þá þjóðfélagshópa var átt en ekki hina almennu félags- menn lífeyrissjóðanna. Sigurgeir Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, gagnrýnir einnig þessi skrif Morgunblaðs- ins. Höfuðröksemdir hans eru tvær: annars vegar að meðan allir fái jafnan ellilífeyri úr sam- eiginlegum sjóði verði ekki litið á þá greiðslu sem ölmusu, en hins vegar, að sú kynslóð, sem nú fær ellilífeyri greiddan, hafi greitt fyrir þennan lífeyri með sérstökum iðgjaldagreiðslum fyrr á árum. Fyrri röksemdin er sú sama og jafnaðarmenn hafa yfirleitt borið fram gegn tekjutengingu ellilífeyris og er meginástæðan fyrir því, að umræður um tekju- tengingu hafa aldrei komizt á skrið. Þess vegna þótti það tíðindum sæta fyrir nokkrum árum, þegar Alþýðuflokkurinn léði í fyrsta sinn máls á því að taka upp tekjutengingu ellilífeyr- is. Síðari röksemd Sigurgeirs Jónssonar vegur auðvitað þungt ekki sízt í hugum þeirra, sem telja það fyrir neðan allar hellur, að stjórnvöld breyti sífellt þeim forsendum, sem legið hafa til grundvallar fjárhagsráðstöfun- um fólks. Sú var tíðin, að skatt- greiðendur greiddu sérstakt ið- gjald til tryggingakerfisins og það er með tilvísun til þeirrar greiðslu, sem um allmörg ár hef- ur verið hluti af hinni almennu skattheimtu ríkisins, sem Sigur- geir Jónsson telur tekjutengingu ellilífeyris fráleita. Þetta er röksemd, sem sjálf- sagt er að taka til alvarlegrar umfjöllunar. Hins vegar verður að telja ólíklegt, að þeir, sem á sínum tíma inntu þessar sérstöku iðgjaldagreiðslur af hendi, hafi litið svo á, að með þeim væru þeir að tryggja fjárhagslega af- komu sína í ellinni. Lífeyrissjóðir hafa verið starfræktir í allmarga áratugi og áreiðanlega hafa flestir litið til lífeyrisgreiðslna úr þeim, sem grundvöll fjárhags- legrar afkomu á efri árum. Þess vegna er hæpið, að með tekju- tengingu ellilífeyris nú væri for- sendum fyrir fjárhagsráðstöfun- um fólks fyrr á árum gjörbreytt. Kjarni málsins er auðvitað sá, að við íslendingar stöndum frammi fyrir því, að við ráðum ekki við kostnaðinn við óbreytt velferðarkerfi. Aðstæður eru breyttar. Fólk hefur fleiri mögu- leika en áður til þess að tryggja afkomu sína á efri árum. Nauð- syn á sparnaði í opinberum rekstri er brýn. Þess vegna hlýt- ur tekjutenging elli- og að ein- hveiju leyti örorkulífeyris að koma til umræðu. Með þeim hætti væri í senn hægt að bæta kjör þeirra ellilífeyrisþega, sem minnst hafa og spara nokkur útgjöld fyrir hið opinbera. Þjóðfé- lag nútímans og framtíðarinnar býður upp á meiri fjölbreytni og fleiri valkosti en áður var og þess vegna er hæpið, að litið yrði á þessar greiðslur til þeirra, sem þurfa á þeim að halda, sem ölmusu. Hins vegar eru umræður og skoðanaskipti um þessi málefni af hinu góða. Núverandi ríkis- stjórn nær engum raunveruleg- um árangri í niðurskurði ríkisút- gjalda nema hún taki trygginga- kerfið, heilbrigðiskerfið og skóla- kerfið til einhverrar endurnýjun- ar. Það er meiri kjaraskerðing fyrir unga og gamla fólgin í óbreyttu ástandi en einhveijum þeim breytingum á velferðar- kerfinu, sem taka mið af því, að við sníðum okkur stakk eftir vexti. REKSTUR HRAÐFRYSTIHUSS OLAFSVIKUR STOÐVAST Nettóskuldir fyrirtækis- ins um 400 milljómr króna - segir framkvæmdastjóri HÓ OLAFUR Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, segist búast við því að stjórn fyrirtækisins óski eftir því í dag, að það verði tekið til gjaldþrotaskipta. Hann segir að nettóskuldir fyrir- tækisins séu um 400 milljónir króna. Hraðfrystihúsið hafi átt við erfiðleika að stríða síðustu árin, fastgengisstefnan hafi reynst því þung í skauti, verulega hafi dregið úr þeim afla, sem komið hafi að landi í bænum og ekki dugi lengur að taka lán til að halda rekstrin- um gangandi. Hraðfrystihús Ólafsvíkur var stofnað árið 1939 og segir Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri, að oft á tíðum hafi það verið næst stærsta fyrirtækið í greininni í Vesturlandskjördæmi á eftir Har- aldi Böðvarssyni á Akranesi. Hann segir að aðaleigendur fyrirtækisins séu sex, en nokkrir tugir manna til viðbótar eigi smærri hluti frá fornu fari. Að jafnaði hafi um 100 manns starfað hjá Hraðfrystihúsinu og auk þess hafi það haft mjög mikil við- skipti við þjónustuaðila í bænum. Nettóskuldir 400 milljónir Ólafur segir, að nettóskuldir Hraðfrystihússins séu nú um 400 milljónir króna og stærstu kröfu- hafar séu Landsbanki íslands og Byggðastofnun. Ekki sé auðvelt að meta verðgildi eigna fyrirtækisins, en það séu frystihúsið sjálft, salt- fiskvinnsla, geymsluhús, auk nokk- urra íbúðarhúsa í bænum. Hann segir að fyrirtækið hafi átt við rekstrarvanda að stríða síðustu 10 árin og hafi þar margt hjálpast að. „Fastgengistíminn var mjög erfiður fyrir fyrirtæki eins og þetta, sem skuldar mikið. Það hefur verið mikil samkeppni um kvóta á síðustu árum og hún hefur reynst okkur erfið. Sá afli, sem hefur verið lagð- ur upp hér hefur á nokkrum árum minnkað úr 8 til 9.000 tonnum á ári í 4 til 5.000 tonn og það hefur haft sitt að segja. Það þarf til dæm- is að borga mikil gjöld af húseignum fyrirtækisins og það er auðvitað ekki eins auðvelt að standa undir þeim núna eins og var þegar aflinn var meiri.“ Lán leysa engan vanda Ólafur segir, að menn hafi lengi getað velt þessum vanda á undan sér, veðsett húsin og alltaf fengið lán. Nú sé það hins vegar farið að renna upp fyrir mönnum, bæði þeim Hraðfrystihús Ólafsvíkur, sem var stofnað árið 1939, hefur verið meðal stærstu fyrirtækja í greininni á Vesturlandi. Nú blasir hins vegar við gjaldþrot þess. sem í rekstrinum standa, sem og lánastofnunum, að þannig geti það ekki gengið til eilífðar. Lántökur leysi engan vanda. Hann segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi reynt að komast fyrir erfiðleika í rekstrin- um með því að vinna eftir áætlun um fjárhagslega endurskipulagn- ingu samkvæmt hugmyndum frá Landsbankanum. Sú áætlun hafi meðal annars gengið út á, að fyrir- tækið tryggði sér nægilegan afla og fengi á móti niðurfellingu skulda. I síðustu viku hafi hins veg- Morgunblaðið/Bjarni Ólafur Gunnarsson, fram- kvæmdasljóri Hraðfrystihúss Ól- afsvíkur. ar orðið ljóst, að Landsbankinn og Byggðastofnun teldu, að samningar um niðurfellingu skulda fyrirtækis- ins gengju ekki. Við þær aðstæður hefði ekki verið um annað að ræða, en stöðva starfsemi þess og að öll- um líkindum yrði samþykkt í stjórn þess í dag, að óska eftir því að það verði tekið til gjaldþrotaskipta. Ólafur segir að vonir manna standi til þess, að hægt verði að halda uppi vinnslu í frystihúsinu á meðan fyrirtækið sé til gjaldþrota- skipta og í bígerð sé að stofna félag um þann rekstur. Segist hann ekki eiga von á öðru en allir aðilar fall- ist á það, enda verði hagsmunum þrotabúsins best borgið með þeim hætti. Þingrnenn vilja stuðla að áfram- haldandi rekstri ÞINGMENN Vesturlandskjör- dæmis höfðu eftirfarandi að segja um þá stöðu sem upp er komin eftir að rekstur Hrað- frystihúss Ólafsvíkur hefur stöðvast. Mikilvægt að vinna hefjist sem fyrst í frystihúsinu „Það verður að sjálfsögðu að tryggja að rekstur frystihússins fari af stað aftur sem fyrst. Lausn- irnar hef ég hins vegar ekki á tak- teinum," sagði Jóhann Ársælsson þingmaður Alþýðubandalags í Vesturlandskjördæmi. „Satt að segja'kom mér þetta mjög á óvart. Það vissu að vísu flestir af þessu máli sem snerist fyrst og fremst um það í vetur að bankinn vildi hafa áhrif á það að togarinn færi yfir á frystihúsið. Það var lagt mjög hart að sumum sem eiga hlut að máli, af hálfu bankans, að samþykkja þá tilhögun. Þessi nið- urstaða nú kemur því öllum að óvörum og menn þurfa nokkra daga til að átta sig 4 stöðunni," sagði Jóhann. Hann sagðist telja það aðalatrið- ið nú að tryggja að vinna gæti hafist í fiystihúsinu sem fyrst. „Bæjarstjórnin er núna að leitast við að sjá til þess að aflinn verði unninn á staðnum á meðan að þetta gengur yfir. Þessi vandi frystihússins er hins vegar bara hluti af þeim vandamálum sem hafa verið í gangi i atvinnulífinu síðastliðin ár og satt að segja þá hef ég áhyggjur af því að fleiri vandamál geti komið upp, sérstak- lega nú þegar vextir eru á uppleið og verðlag í kjölfarið. Mörg fyrir- tæki standa ekki vel og þola iila að fá á sig þann kostnað sem fylg- ir aukinni verðbólgu," sagði hann. Mikilvægt að gera það sem heimamenn telja rétt Ingibjörg Pálmadóttir, þingmað- ur Framsóknarflokks, sagði að sér litist vel á þá hugmynd sem fram hefði komið komið hjá bæjarstjórn Ólafsvíkur um að heimamenn leigðu rekstur frystihússins _ef eig- endur lýstu sig gjaldþrota. „í fram- haldi af því verður að tryggja frystihúsinu hráefni til þess að það geti haldið áfram rekstrinum en það er mjög mikilvægt fyrir stað- inn, bæði vegna þess hve margir bæjarbúa starfa þar og vegna þess hve fullkomið frystihús þetta er. Það væri mjög óhagkvæmt ef það væri ekki í rekstri. Þess vegna verður að sjá til þess að togarinn Már haldi áfram að landa þama og þeir bátar sem að undanförnu hafa lagt upp hjá frystihúsinu," sagði Ingibjörg. Hún sagðist telja mjög mikil- vægt að gera það sem heimamenn teldu rétt að gera í stöðunni vegna þess að þeir vissu það best. „Þing- menn Vesturlands eiga að styðja þá í þeim aðgerðum sem þeir telja skynsamlegar en forðast að taka fram fyrir hendur þeirra. Það er líka greinilegt að á Óiafsvík ríkir mikið frumkvæði og framkvæmda- vilji og fólk er tilbúið að takast á við vandann og það er mikilvægt," sagði Ingibjörg. Kom á óvart hve brátt þetta barað „Erfiðlejkar við rekstur frysti- hússins í Ólafsvík hafa lengi verið ljósir. Það kom mér hins vegar á óvart að þetta uppgjör skyldi bera svona brátt að,“ sagði Eiður Guðnason, en hann skipaði fyrsta sæti Alþýðuflokks í kjördæminu fyrir kosningar. „Ég vissi ekki betur en verið væri að vinna að lausn málsins og taldi horfur á að það tækist að leysa þetta, með sameiginlegu átaki ýmissa aðila. Hraðfrystihús Ólafsvíkur er einn af aðalburðarás- unum í atvinnulífi þess bæjar og hefur verið í hálfa öld. Ég fæ ekki séð að hægt sé að leysa þetta mál með því að skipta afla og fólki upp á milli annarra vinnslustöðva. A þessu stigi hef ég hins vegar ekki að takteinum neina lausn á mál- inu. Mér sýnist vera unnið að þessu af atorku af hálfu forystumanna bæjarfélagsins og ég er vongóður um að það takist að finna lausn á þessu,“ sagði Eiður. Hann sagði að þingmenn Vest- uriands myndu hittast í dag og halda fund um málið. „Ég geri ekki ráð fyrir að þingmenn finni lausn á málinu en munu auðvitað eftir fremsta megni aðstoða við að leysa þennan hnút, sem ég vona svo sannarlega að takist," sagði Eiður. Trúi því að lausn finnist á málinu „Hraðfrystihús Ólafsvíkur er þvílíkur burðarás í atvinnulífinu á staðnum að starfsemi í því fyrir- tæki verður að komast af stað á nýjan leik og það sem fyrst. Síðan er spurning hvernig að því sé stað- ið,“ sagði Sturla Böðvarsson, fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokks á Vesturlandi. Hann sagðist telja að sú tilraun sem bæjarstjórn Ólafsvíkur stæði nú fyrir væri að hans mati eðlileg og það yrði að leggjast á eitt við að aðstoða hana til að kanna alla möguleika á að koma fyrirtækinu aftur í rekstur, á meðan aðrar leið- ir væru síðan-kannaðar frekar. „Ég tel einsýnt að bæjarsjóður geti ekki sem slíkur tekið mikinn beinan þátt í þessum rekstri eða stofnun nýs fyrirtækis. Hins vegar er eðlilegt að bæjarstjórnin leiði þessa vinnu og ég trúi því að það finnist lausn á þessu,“ sagði Sturla. Verðum að vera bjartsýn - segir trúnaðarmaður starfsmanna „VIÐ verðum að vera bjartsýn. Það þýðir ekki að vera með neinn uppgjafartón," segir Kristín Bjarg- mundsdóttir, trúnaðarmaður starfsmanna í Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur. Hún segist telja nauð- synlegt að finna lausn á vanda fyrirtækisins til frambúðar, það dugi engar Kristín Bjarg- mundsdóttir. bráðabirgðalausnir. Kristín segir að starfsmenn Hraðfrystihússins hafi ekki haft neina hugmynd um hvað var að gerast fyrr en um hálf tíu á föstu- dagsmorguh. Þeir hafi þá átt von á sinni vikulegu útborgun, en ver- ið sagt, að ekki yrði af henni að þessu sinni. Um klukkán hálf íjög- ur um daginn hafi framkvæmda- stjóri fyrirtækisins svo komið að máli við fólkið og sagt, að þetta yrði líklega síðasti dagurinn í bili, sem unnið yrði í húsinu. Hún segir að fólk hafi auðvitað verið slegið yfir þessum tíðindum. Þetta kæmi mörgum illa, ekki síst fjölskyldum þar sem báðar fyrir- vinnurnar ynnu hjá fyrirtækinu. „Við vitum ekki neitt um fram- haldið, en verðum samt að vera bjartsýn. Það þýðir ekki að vera með neinn uppgjafartón," segir Kristín. Bæjarstjórn fundar um yfirvofandi gjaldþrot Ólafsvík. BÆJARSTJÓRN Olafsvíkur hélt aukafund á sunnudagskvöld vegna yfirvofandi gjaldþrots Hraðfrystihúss Ólafsvíkur. Morgun- blaðið hitti tvo bæjarfulltrúa að máli eftir fundinn og innti þá frétta af málinu. Björn Arnaldsson bæjarfulltrúi sagði að full samstaða væri i bæj- arstjórn um þessi fyrstu skref. Menn sæju þó að ýmis ljón gætu orðið á þessum vegi til lausnar en bjartsýni yrði að ríkja og að ekki mætti láta hugfallast. Ef til gjald- þrots H.Ó. kæmi væri mikilsvert að bústjóri væri jákvæður fyrir því að starfsemi yrði komið á, bæjar- stjórn væri staðráðin í að gera sitt til þess að draga úr áfallinu fyrir byggðina. Margrét Vigfúsdóttir formaður bæjarráðs sagði að nú væri mikil þörf á að bæjarbúar sneru bökum saman við þeim vanda sem upp væri kominn í bæjarfélaginu. Hún sagði brýna nauðsyn á að reynt yrði að halda áfram starfsemi í Fiskvinnslustöð H.Ó. þótt til gjald- þrots kæmi. Margrét sagðist ekki leyna því að henni og ýmsum öðr- um bæjarfulltrúum þætti hart að bæjarstjórn skyldi ekki fá að fylgj- ast betur með en raun varð á hvað væri að gerast í málefnum Hrað- frystihússins. Búið hefði verið að óska eftir fundi með forráðamönn- um Byggðastofnunar og Lands- bankans en síðan hefði komið til- kynning um hvað orðið væri án nokkurra viðræðna. Hún sagði að sér þætti sú framkoma Lands- bankans og Byggðastofnunar jaðra við hroka gagnvart fólkinu í byggðarlaginu. - Helgi. Starfsfólk Hraðfrystihúss Ólafsvíkur: Uppsagnimar mikið áfall Ólafsvík. STARFSFÓLK Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, seni rætt var við eftir að því hafði verið sagt upp störfum og tilkynnt hafði verið að óskað yrði gjaldþrotaskipta frystihússins, var sammála um að uppsagnirnar hefðu komið mjög á óvart og væru mikið áfall. Eins og rothögg Björk Bergþórsdóttir trúnaðar- maður sagði að starfsfólkið hefði engan veginn átt von á uppsögn, og þess vegna hefði þessi fram- vinda mála kom- ið eins og rot- högg. „Þetta er vissulega mikið áfall. Hjá fyrir- tækinu vinna mörg hjón, og Björk það verður erfitt Bergþórsdóttir að ná endum saman hjá þessu fólki, en hins vegar vill það mér til happs að maðurinn minn er í góðu skipsrúmi. Ég er mjög svart- sýn á að þessu fyrirtæki verði bjargað, þó ég voni svo sannarlega að það verði opnað aftur,“ sagði Björk. Kom ekki alveg á óvart Ríkharður Jónsson sagði að uppsagnirnar hefðu ekki komið honum alveg á óvart, en þó hefði hann ekki átt von á þeim á þessari stundu. „Ég vissi að fyrirtækið ætti í erfiðleikum, og þegar okkur var tilkynnt á föstu- dagsmorguninn að útborgun Ríkharður Jónsson launa drægist fram yfir hádegi datt mér í hug að eitthvað færi að draga til tíðinda. Þetta er mik- ið áfall fyrir allt byggðarlagið því hér er ekkert annað en fisk að hafa. Ég vona að stjórn fyrirtæk- isins takist að rétta það af. Hvað mig varðar er ekki mikið fram- undan annað en að halda áfram á sömu braut, en það er þó ekki hlaupið að því að fá sér aðra vinnu,“ sagði Ríkharður. Kom eins og reiðarslag Elísabet Mortenssen sagðist ekki eiga von á öðru en hraðfrysti- húsið yrði opnað aftur, en það hefði komið eins og reiðarslag þegar tilkynnt var að húsinu yrði lokað og starfsfólkinu til- kynnt að. það þyrfti ekki að mæta aftur. - . Ellsabet „Það er mjög Mortensen slæmt fyrir hjón sem hér störfuðu að missa vinnuna svona skyndi- lega, og að sjálfsögðu er þetta slæmt fyrir allt byggðarlagið í heild þar sem þetta var lang- stærsti atvinnurekandinn í 01- afsvík. Þetta var eins og kjafts- högg þegar okkur var sagt að taka saman föggur okkar, og nú er sennilega ekkert annað að gera en að skrá sig á atvinnuleysisbæt- ur,“ sagði Elísabet. Jóhannes Kjartansson Atvinnuleysi framundan Jóhannes Kjartansson sagði að enginn hefði átt von á stöðvun hraðfrystihúss- ins, og fregnir um það hefðu komið eins og köld vatnsgusá framan í hann. „Þetta er gífurlegt áfall fyrir mig eins og alla aðra sem vinna hér, því þetta hélt jú í manni lífinu. Sérstaklega kemur þetta sér auðvitað illa fyrir fjöl- skyldufólk. Hér hefur ekkert verið að hafa nema fiskvinnslu og sjó- mennsku, þannig að það er ekk- ert framundan hjá manni nema atvinnuleysi," sagði Jóhannes. Er alveg miður mín Hulda Sigurðardóttir sagði að þar sem hún væri ein á báti og hefði enga fyrir- vinnu þá væri uppsögnin sér- staklega erfið, en auðvitað væri þetta mikið áfall fyrir byggðar- lagið í heild. „Ég hef unnið hjá þessu fyrir- tæki í yfir 30 ár, Hulda Og mér hefur Iið- Sigurðardóttir ið mjög vel að vinna hjá því. Ég átti alls ekki von á uppsögn, og er alveg miður mín út af þessari ákvörðun. Ég vona bara að húsið verði opnað aftur svo við fáum okkar atvinnu áfram," sagði Hulda. Alfons Aflinn verði áfram unninn hér - segir Atli Alexandersson, forseti bæjarstjórnar „VIÐ viljum tryggja að aflinn verði áfram unninn hér og að fólkið fái vinnu á meðan þrolabúið er til meðferð- ar,“ segir Atli Alexandersson, forseti bæjar- stjórnar Ól- afsvíkur. Bæjar- stjórn fundaði á sunnudaginn um yfirvofandi Atli gjaldþrot jlrað- Alexandersson. frystihúss Ólafsvíkur og var þar ákveðið að leita samstarfs við útgerðaraðila og Verkalýðsfé- lagið Jökul um samstarf um rekstur fiskvinnslu fyrirtækisins til bráðabirgða. Atli Alexandersson segir, að Hraðfrystihús Ólafsvíkur sé lang- stærsta fyrirtækið í bænum og því yrði stöðvun á rekstri þess verulegt áfall fyrir byggðarlagið. Af þessum sökum sé mikilvægt að tryggja áframhaldandi rekstur eigna þrota- búsins, komi til gjaldþrots fyrirtæk- isins. Bæjarstjórn hafi á fundi sinum á sunnudag ákveðið að leita samstarfs við Verkalýðsfélagið Jök- ul, Útver, sem gerir út togarann Má og bátaútgerðarfélögin Tungu- fell og Vararkoll um að stofna fé- lag, sem leigði eignir þrotabúsins og héldi rekstri áfram. „Við viljum tryggja að aflinn verði áfram unnin hér og að fólkið fái áfram vinnu,“ segir Atli. „Stefna bæjarins er ekki sú, að taka beinan þátt í atvinnurekstri, en við óttumst að hjá því verði ekki komist í þessu tilviki. Við munum nú vinna að því að koma saman áætlun um rekstur- inn, sem við munum leggja fyrir væntanlegan bússtjóra, en svo er óljóst hvað verður með framhaldið." Atli segir að yfirvonandi gjald- þrot Hraðfrystihússins hafi komið bæjaryfirvöldum á óvart. „Við töld- um að það væri verið að vinna að endurskipulagningu hjá fyrirtækinu eftir tillögu Landsbankans og það kom flatt upp á okkur þegar við heyrðum að Landsbanki og Byggðastofnun teldu ekki forsend- ur fyrir niðurfellingu skulda." Við inunum ekki skor- ast undan ábyrgðinni - segir formaður Verkalýðsfélagsins Jökuls KRISTJÁN Guðmundsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Jök- uls í Ólafsvík, segir að félagið muni ekki sko- rast undan ábyrgð við að gera það sem í þess valdi standi, til að vinna geti hafist sem fyrst aftur í Hraðfrystiliúsi Ólafsvíkur. Fé- lagið hefur tek- ið þátt í viðræð- um um stofnun leigja á rekstur Kristján Guðmundsson. félags, sem eigna bús Hraðfrystihússins, verði það úrskurðað gjaldþrota. Kristján segir að það hafi verið mikið áfall þegar tilkynnt var um stöðvun vinnu í Hraðfrystihúsinu á föstudaginn. Hann hafi að vísu vitað um mikla erfiðleika hjá fyrir- tækinu, en talið að verið væri að vinna að endurskipulagningu hjá því. Fyrirtækið sé burðarás í at- vinnulífi bæjarins, þar hafi um 100 manns haft vinnu að jafnaði og það sé mjög stór hluti félagsmanna í Jökli. „Ég hef lýst því yfir, að við í félaginu komum ekki til með að skorast undan því að gera það sem í okkar valdi stendur til að vinna geti hafist sem fyrst aftur í frysti- húsinu," segir hann. „Við höfum því tekið þátt í viðræðum við bæj- aryfírvöld og útgerðaraðila um að stofna félag til að leigja rekstur- inn. Ég geri ráð fyrir að það fyrir- komulag yrði bara til bráðabirgða enda er það ekki okkar markmið að taka þátt í atvinnurekstri. Það er hins vegar grundvallaratriði fyrir okkur að frystihúsið starfi áfram og að togarinn landi hér,“ segir Kristján Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.