Morgunblaðið - 11.06.1991, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ VlDSKIPniflVIHNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1991
ERTU MEÐ SKALLA?
HÁRVANDAMÁL?
Aðrir sætta sig ekki við það!
Af hverju skyldir þú gera það?
Fáðu aftur þitt eigið hár, sem vex eðlilega
Sársaukalaus meðferð
Meðferðin er stutt (1 dagur)
Skv. ströngustu kröfum banda-
rískra og þýskra staðla
Framkvæmd undir eftirliti og stjórn
sérmenntaðra lækna
Upplýsingar hjá EURO CLINIC Ltd.
Ráðgjafastöð, Neðstutröð 8, Póshólf 111,
202 Kópavogi - Sími 91 -641923
á kvöldin - Sími 91-642319.
Verslunarráð
Morgnn verðarfundur
um ECU-iengingii
Honda 791
Civic
Sedan
16 ventla
VERSLUNARRAÐ Islands efn-
ir til morgnnveröarfundar á
Verð frá kr. 1.095 þús.
GLi-special
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
(H
VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
VZterkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Veitingahús
Akademía
Café Operu
stofnuð
VEITINGASTAÐURINN Café
Opera hefur stofnað Akademíu
Café Operu. í fréttatilkynningn
segir að markmiðið sé að virkja
og efla áhuga, metnað, frum-
kvæði og hugvitsemi í íslensku
atvinnulífi og verðlauna þá for-
ystumenn og forstjóra sem hafa
náð framúrskarandi árangri í fyr-
irtækjum sínum.
I akademíuna verða skipaðir tíu
menn árlega. Munu þeir í samein-
ingu velja þá aðila sem þykja mest
hafa skarað fram úr hveiju sinni.
Við tilnefningarnar verður miðað við
árangur á eftirtöldum sviðum:
1. Framlag eða átak til framfara
og heilla íslensku samfélagi, t.d. í
umhverfismálum, menningarmáium
og á alþjóðavettvangi.
2. Árangur í frumsköpun í atvinnu-
og viðskiptalífmu með tilliti til út-
flutningsverðmæta og atvinnuupp-
byggingar.
3. Forystuhæfileika og hugmynda-
auðgi í rekstri fyrirtækis sem byggja
á ferskum hugmyndum og nýjum
starfsaðferðum.
Að þessu sinni hafa eftirtaldir
menn verið valdir: Valur Valsson
bankastjóri, Friðrik Pálsson for-
stjóri, Jón Ásbergsson frkvstj. Ingi-
mundur Sigfússon stjórnarfor-
maður, Helgi Jóhannsson forstjóri,
Lýður Friðjónsson frkvstj., Magnús
Oddsson frkvstj., Baldvin Jónsson
markaðsstjóri, Þorgeir Baldursson
forstjóri og Herluf Clausen forstjóri.
4
Morgonverðarfundur Verslunarráðs Islands
í Skálanum, Hótel Sögo,
miðvikudaginn 12. júní 1991 kl. 08.00-9.30
VIÐHORFIN í GJALDEYRISMÁLUM
0G TENGING KRÓNUNNAR VID ECU
Mörgum spurningum er ósvarað um framtíðar-
stöðu íslands varðandi fjárfestingu og viðskipti
með gjaldeyri. Er jafnvel tími til kominn að tengja
krónuna við Evrópumyntina ECU? Sú spurning
er nú til skoðunar.
Frummælendur:
Birgir ísleifur
Gunnorsson,
Seðlobankostjóri
Vilhjólmur Egilsson,
fromkvæmdostjóri VÍ
Ólofur Davíðsson,
framkvæmdostjóri FÍI
Aðgangur með morgunverði kr. 800.
Þátttaka tilkynnist fyrirfram í síma 678910.
morgun, miðvikudag, þar sem
fjallaö verður um mögulega
tengingu krónunnar við Evr-
ópumyntina ECU og ný frjáls-
ræðisskref í fjárfestingu og við-
skiptum með gjaldeyri.
Framsögumenn á' fundinum
verða þeir Birgir ísleifur Gunnars-
son, seðlabankastjóri, Ólafur
Davíðsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags ísl. iðnrekenda og Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri
Verslunarráðs. Að afloknum fram-
söguerindum gefst tími til fyrir-
spurna, að því er fram kemur í
frétt frá Skrifstofu viðskiptalífs-
ins.
Fundurinn verður haldinn í
Skála á Hótel Sögu og stendur frá
kl. 8.00-9.30. Hann eröllum opinn
en tilkynna þarf þátttöku til Skrif-
stofu viðskiptalífsins.
Hlutabréfamarkaður
Raftækjadeild Heklu flutt
R AFTÆK J ADEILD
Heklu flutti nýlega í
húsakynni í nýbygg-
ingu fyrirtækisins að
Laugavegi 174.
Raftækjadeildin hef-
ur aukið vöruúrval sitt
og hefur meðal annars
tekið að sér umboð fyr-
ir Hotpoint heimilis-
tæki, en það fyrirtæki
framleiðir þekktar vör-
ur fyrir eldhús. Þá hef-
ur jafnframt verið lögð
aukin áhersla á sölu
fjarskiptatækja, svo
sem síma, myndsendi-
tækja og skyldra hluta
frá Panasonic. Stefnt
er að því að auka vöru-
úrvai frá þeim umbjóð-
endum sem Raftækja-
deildin hefur þjónað
hingað til, en það eru
m.a. General Electric,
Kenwood, Lec og De
Dietrich.
HEKLA — Raftækjadeild Heklu er
flutt í nýbyggingu fyrirtækisins að Lauga-
vegi 174.
Hvenær á að gera yfírtökutílboð?
Á Norðurlöndum hafa verið settar reglur um yfirtökutilboð í hlutafé-
lög til að vernda hagsmuni hluthafanna
LÖG eða reglur um svonefnd
yfirtökutilboð eru víðast hvar í
gildi á hinum þróaðri verðbréfa-
mörkuðum. Með slíkum reglum
er reynt að koma í veg fyrir að
einstakir aðilar geti í krafti tak-
markaðs eignarhluta nánast
stjórnað fyrirtækjum. Eitt helsta
úrræðið í þessum efnum er að
skylda slíka hluthafa til að gera
tilboð í öll önnur hlutabréf í við-
komandi fyrirtæki þegar eignar-
hlutur þeirra >fer yfir ákveðin
mörk. Þeir Eyjólfur Konráð
Jónsson og Matthías Bjarnason,
þingmenn Sjálfstæðisflokkssins
lögðu á síðasta þingi fram þing-
sályktunartillögu þar sem lagt
er til að undirbúin verði löggjöf
um yfirtökutiiboð og önnur al-
menn tilboð í hlutafélög. Á öllum
Norðurlöndunum gilda mismun-
andi reglur um yfirtökutilboð og
má vænta þess að nokkur hlið-
sjón verði höfð af þeim hér á
landi.
í greinargerð sinni með þingsá-
lyktunartillögunni benda þeir Matt-
hías og Eyjólfur á að til að tryggja
að allir hluthafar njóti jafnréttis
verði að ákveða tiltekin mörk sem
skyldi tilboðsgjafa til þess að gera
yfirtökutilboð. Hér sé átt við tiltek-
ið hlutfall hlutaíjárins t.d. 33,3%
eins og gert sé ráð fyrir hjá Evrópu-
bandalaginu. Þar að auki verði, til
þess að tryggja hagsmuni minni-
hlutans og hindra spákaup-
mennsku, að setja reglur sem skyldi
tilboðsgjafana til að bjóða í alla
hluti í félaginu.
Dönsku reglurnar um yfirtökutil-
boð er að finna í siðareglum kaup-
hallarinnar þar i landi. Þar eru þó
ekki sett fram nákvæm mörk um
hvenær hluthafa er skylt að setja
fram tilboð í hlutabréf. Hins vegar
er kveðið á úm að slíkt tilboð beri
að gera þegar einstakir hluthafar
hafa náð ráðandi stöðu innan við-
komandi fyrirtækis og tekið fram
að þetta geti átt við aðila sem eigi
minna en 50% hlutabréfanna. Til-
boðið skal fela í sér sambærilegt
verð og hinn ráðandi aðili þurfti að
greiða til að komast í þessa aðstöðu.
í Noregi ber aðilum sem eignast
45% hlutafjár í tilteknu fyrirtæki
að gera tilboð í öll önnur hlutabréf
í fyrirtækinu og skal þá miðað við
hæsta gengi sem hann greiddi fyrir
hlutabréf á síðustu sex mánuðum
á undan. Þessi lög eru hins vegar
ný af nálinni og hefur ekki verið
framfylgt enn sem komið er.
Svíar hafa þann hátt á að skil-
málar um yfirtökutilboð eru settir
í samning viðkomandi fyrirtækis
við kauphöllina. Þar eru þó ekki
tilgreind ákveðin mörk um yfirtök-
utilboð en tilboðsgjafi getur skilyrt
tilboð þannig það sé háð því skil-
yrði að hann nái ákveðnum eignar-
hlut.
í Finnlandi eru tiltekin ákveðin
mörk um yfirtökutilboð í lögum og
er þar miðað við 2/3 hluta af at-
kvæðisrétti í viðkomandi fyrirtæki.
Þjónusta
Greiðsludreifing Kreditkorta
KREDITKORT hf. hafa breytt
útliti korta sinna og í kjölfarið
hafa fylgt ýmsar nýjungar. Að
sögn Gunnars Bæringssonar
framkvæmdastjóra Kreditkorta
lif. hafa viðbrögð viðskiptavina
verið góð og sagði hann að breyt-
ingunum væri ætlað að koma til
móts við korthafa og auka þjón-
ustu við þá.
Nú gefst korthöfum kostur á að
dreifa greiðslum á allt að þrjá mán-
uði tvisvar á ári og nefnist þessi
nýja þjónusta Greiðsludreifing.
Hægt er að velja hvaða mánuð sem
er, en ekki geta verið tveir slíkir
samningar í gangi samtímis. Gunn-
ar sagði að þetta væri gert til að
létta undir með viðskiptavinunum
og væru þeir ánægðir með að hafa
möguleika á þessu þó þeir nýttu sér
það ekki á þessari stundu. Komið
hefði í ljós að það væru aðallega
tvö tímabil sem væru koithöfum
frekar erfið, þ.e. eftir jólin og eftir
sumarfrí. Gunnar tók fram að
greiðsludreifingin skerti á engan
hátt úttektarheimildina.
Korthafar geta nú sótt sérstak^
lega um aðild að Euro-klúbbnum
og fá félagsmenn, börn þeirra og
makar ferðatryggingar sem veita
meiri vernd en aimenna kortið veit-
ir. Þetta eru m.a. farangurs-, ferða-
Morgunblaðið/Bjarni
KREDITKORT —
Gunnar Bæringsson fram-
kvæmdastjóri Kreditkorta hf.
slysa-, sjúkra- og ferðarofstrygg-
ingar, endurgreiðsla orlofsferðar,
innkaupatryggingar og ábyrgðar-
tryggingar. Gunnar sagði að auk
víðtækra ferðatrygginga væri
klúbbfélögum veittur afsláttur í
skoðunarferðum sem farnar.væru
með ferðaskrifstofunni Úival-
Útsýn og síðan væri ætlunin að
vera með sérstök ferðatilboð bæði
innanlands og utan. Gullkorthafar
njóta allra sömu réttinda og þeir
sem eru í Euro-klúbbnum.
Kreditkort hafa tekið upp þá
nýbreytni að hafa kynningu á einu
fyrirtæki í mánuði sem er þá til-
nefnt „Fyrirtæki mánaðarins".
Korthafar fá senda kynningu á við-
komandi fyrirtæki auk afsláttartil-
boða. Gunnar sagði að Húsasmiðjan
væri nú fyrirtæki mánaðarins og
til marks um viðbrögðin mætti
nefna7 að allar sláttuvélarnar sem
þeir voru með tilboð á hefðu selst
upp.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um sameinuðu fyrirtækin Kredit-
kort hf. og Samkort hf. rekstur sinn
um sl. áramót. Nokkrar breytingar
hafa verið gerðar á Samkorti til
samræmis við Eurocard og sagði
Gunnar að hugmyndin væri að
Samkort yrði alþjóðlegt kort, mark-
aðssett í samvinnu við Samband
samvinnuverslana, SSV. Nú eru um
2.000 fyrirtæki innanlands sem
nota Samkort og eru úttektartíma-
bilin tvö. þ.e. 1.-30. dag mánaðar
með eindaga 17. næsta mánaðar
og 18.-17. dag mánaðar með ein-
daga 2. dag nsesta mánaðar.