Morgunblaðið - 11.06.1991, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1991
35
KEPPNISBRAUT VÍGÐ
MEÐ LÍFLEGRIKEPPNI
Á ANNAÐ þúsund áhorfend-
ur fylgdust með fyrsta niót-
inu, sem haldið var á nýrri
keppnisbraut akstursíþrótta-
manna, skammt frá Hafnar-
firði á fyrir nokkru. Brautin
sem kostaði 15 milljónir að
standsetja var kostuð af
einkaaðilum og er rekin af
Rallykrossklúbbnum, sem er
deild innan Bifreiðaíþrótta-
klúbbs Reykjavíkur. Verður
brautin notuð til keppni á als-
kyns farartækjum, bilum,
jeppum og mótorhjólum.
Um leið og brautin var vígð,
var Jóns S. Halldórssonar
minnst, en hann fórst í umferðar-
slysi fyrir skömmu og var ein
aðal driffjöðurin í því að brautin
komst á laggirnar. Verður hon-
um reistur minnisvarði á keppn-
issvæðinu i framtíðinni. Líklegt
er að keppnisbrautin muni auka
til muna áhuga manna á aksturs-
íþróttum, enda geta nú áhuga-
menn keppt í brautarkeppni án
mikils tilkostnaðar. Keppt verður
í ýmsum flokkum, þar sem bæði
dýr og ódýr farartæki geta notið
sín.
í þessari fyrstu keppni var
keppt í fjórum flokkum, krónu-
bílakrossi þar sem bílarnir eru í
ódýrari kantinum og keppendur
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Guðmundur Árni Stefánsson, vígði
brautina ásamt Önnu, móður Jóns heitins S. Halldórssonar og
Ágúst Guðmundssyni, formanni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavík-
ur.
eru skyldaðir til að selja bíla sína þessu móti eru allir bílarnir svip-
að lokinni keppni fyrir 150.000 aðir að gæðum og kostnaður
krónur, vinni þeir mótið. Með helst í lágmarki, þar sem enginn
leggur mikla peninga í bíla sem
þarf síðan kannski að selja strax
eftir keppni. í rally crossi keppa
vandaðri bílar, sem svipar til
rallbíla, en eru ekki á skrá og i
flokki amerískra bíla eru stórir
bílar frá því landi, svokölluð teppi
á máli bílamanna. í opnum flokki
geta síðan .öll farartæki keppt,
t.d. vann Árni Kópsson í opnum
flokki á sérsmíðaðri torfæru-
grind sinni í þessari keppni.
Tilþrifin á brautinni voru oft
skrautleg, margar veltur, menn
óku hver á annan í krónubíla-
krossinu og skröpuðu handriðin
meðfram brautinni, áhorfendum
til mikillar skemmtunar. Meðal
keppnisbíla í rally crossinu var
sérsmíðaður Porsche-keppnisbíll
og Skoda með öfluga Saab-vél í
skottinu, siðarnefndi bíllinn náði
öðru sæti undir stjórn Eliasar
Péturssonar, rétt á eftir Viðari
Halldórssyni á Toyota, sem fagn-
aði sigri. Jón Þór á Mazda vann
krónubílakrossið, en Ingimar
Baldursson á Firebird vann hins-
vegar ameríska flokkinn. Tutt-
ugu bílar tóku þátt í keppninni
og er líklegt að fjöldi keppenda
muni tvöfaldast fyrir næsta mót,
en þá verða mótorhjól einnig
með.
-GR.
í upphafi mótsins var öllum keppnisbílum stillt upp og Jóns S.
Halldórssonar minnst með þögn, en hann var einn fimmmenning-
anna sem kom brautarsmíðinni í gang. Hann fórst í umferðar-
slysi fyrir skömmu og hafði lengi dreymt að koma keppnisbraut
í gagnið.
Hörkuslagur í krónubílakrossinu, Guðný Úlfarsdóttir á Toyota
Ieiðir Jón Þór á Mazda eftir keppnisbrautinni, en sá síðarnefndi
stóð að lokum uppi sem sigurvegari. En Guðný var kvenþjóðinni
til sóma og sneri á margan karlmanninn.
Hugleiðingar á vordögum og
ábendingar til hesteigenda
eftir Pétur Hjálmsson
Nú er kominn sá árstími sem
þið eruð farnir að huga að slepp-
ingu hrossa í sumarhaga. Að
mörgu þarf að huga áður en hross-
um er sleppt af húsi.
Best er, ef hægt er að sleppa á
land, sem er loðið af sinu. Þá verða
umskiptin ekki eins hörð, auk þess
sem þannig beitiland er best undir
beitina búið og þolir ágang hrossa
mjög vel. Ástæðulaust er að hafa
áhyggjur af þvi að lítið sjáist af
grænum grösum. Þau eru til stað-
ar þó lítið beri á þeim í sinunni.
Hrossin venjast nýgræðingnum
smám saman og fá góða kviðfylli
á slíkri beit.
Ef svona land er ekki til þarf
að bíða eftir því að grösin nái að
spretta nokkuð áður en byrjað er
að beita landið. Gott er að gefa
beitilandinu áburð, ca. 6 poka af
Græði 6 á hektara. Blautir flóar
og óframræstar mýrar svara ekki
áburðargjöf. Bíða með sleppingu
í ca. 10—14 daga. Hagkvæmast
er að sleppa ekki á allt landið í
einu. Besta nýting beitilandsins
fæst með því að hólfa landið niður
í skákir, sem duga í um það bil
viku til tíu daga, hver. Hagkvæm-
ast og auðveldast er að nota raf-
girðingu til að hólfa landið sund-
ur. Þá er gott að geta flutt hrossin
í óbitið hólf. Hreinsa (slóðadraga)
bitna hólfið og bera á ca. 2—3
poka af áburði á ha. Þá verður
þetta hólf tilbúið til notkunar þeg-
ar hæfílegt er að flytja hrossin
aftur í nýtt beitarhólf.
Ef þú vilt að hrossin verði ekki
of feit, þá skaltu hafa lítið en skjól-
gott sveltihólf á þurrlendum stað,
þar sem hægt er að hafa hrossin
skamman tíma í einu, t.d. frá
föstudegi til sunnudagskvölds því
oftast eru hrossin notuð mest um
helgar og þá er gott að þau nái
að létta vel á sér.
En umfram allt: Það má aldr-
ei nauðbeita land, það eyðilegg-
ur landið á ótrúlega skömmum
tíma.
Annað sem vert er að nefna
þegar hugleiðingar um beitarmál
fara fram, er skortur á góðu beiti-
„Ef þú vilt að hrossin
verði ekki of feit, þá
skaltu hafa lítið en
skjólgott sveltihólf á
þurrlendum stað.“
landi. Víða er auðvelt að auka við
beitilöndin með því að rækta upp
holtin og melana sem víða eru í
nálægð við hesthúsahverfin og
nota til þess moð og hrossatað sem
til fellur í hesthúsunum og slá þá
um leið tvær flugur í einu höggi,
en það er að losna við úrganginn
um leið og þú breytir arðlausum
holtum í gróið og fallegt beitiland.
Ýmsir hafa fundið því til foráttu
að aka hrossataði á holtin hér í
nágrenni þéttbýlisins þar sem slíkt
skapaði mengun, því er til að svara
að slik uppgræðsla er uinhverfis-
væn og laus við mengun. Holtin
gróa upp án þess að nokkuð sé
frekar aðgert þar sem nægilegt
er af fræjum í moðinu og hrossa-
Pétur Hjálmsson
taðinu. Til að dreifa taðinu eru
víða til stórvirkir keðju- eða spaða-
dreifarar, sem eiga auðvelt með
að dreifa þessum áburði, eftir að
landið hefur áður verið sléttað
nokkuð til að auðvelda akstur um
það.
Höfundur er ráðunautur.
SIEMENS
Þvottavélar
Þurrkarar
Örbylgjuofnar
Gceðatœki fyrir
þig og þína!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
V^terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!