Morgunblaðið - 11.06.1991, Blaðsíða 47
tfioi ivnn.ii íiuoAauiGiaí aiaAjanuoHOM 9Jþ ,
SÍÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUR lí. JÚNl 1991 “ 47
Kveðjuorð:
Geirþrúður J. Ás-
geirsdóttir Kúld
Fædd 23. mars 1904
Dáin 23. maí 1991
Nú ert þú leidd mín ljúfa
lystigarð drottins í
þar átt þú hvíld að hafa
hðrmunga og rauna frí.
Við guð þú mátt nú mæla
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín, hjá lambsins stól.
(Hallgr. Péturss.)
Mikil heiðurskona, Geirþrúður
Jóhanna Ásgeirsdóttir Kúld, er lát-
in. Þann 23. maí sl. kom engill
dauðans og fór með hana í þá ferð
sem við öll eigum eftir að fara. En
það er nú svo þegar náinn ættingi
eða vinur kveður þessa jarðvist
verður tungu tregt um mál og hug-
ur okkar sem eftir lifum fyllist sorg
og söknuði.
Geirþrúður fæddist 23. mars,
árið 1904 að Arngerðareyri í Norð-
ur-ísafjarðarsýslu. Foreldrar henn-
ar voru Ásgeir Guðmundsson, bóndi
og hreppstjóri, og Aðalbjörg Jóns-
dóttir, kona hans. Geirþrúður var
yngst fjögurra alsystkina. Eftirlif-
andi er nú aðeins Margrét, milli
þeirra systra hefur alla tíð verið
mjög kært, því er harmur og sökn-
uður hennar mikill. Geirþrúður var
mjög vel menntuð kona, hún var
skarpgreind, uppalin á orðlögðu
mennta- og myndarheimili og fékk
því gott veganesti út í lífið. Aðeins
19 ára var hún búin að ljúka námi
í Kvennaskólanum og fáum árum
síðar útskrifaðist hún frá Hjúkrun-
arskóla íslands. Eftir það fór hún
til Danmerkur í framhaldsnám og
lauk þaðan prófi í fæðingarhjálp
og geðhjúkrun. Einnig vann hún
lijúkrunarstörf við The Generale
Hospitale í Birmingham á Eng-
landi. Er heim kom, vann hún tvö
ár á Vífilsstöðum en fór þá að starfa
hjá Hjúkrunarheimilinu Líkn, þar
var hún í ein 16 ár, eða þar til hún
fór að vinna við Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur. Hún hefur oft átt að
baki langan og strangan vinnudag
við frumheijastörf sín hér heima
vegna ungbarnaeftirlits, þar sem
aðstæður voru mjög svo erfiðar.
Ég kynntist Geirþrúði ekki fyrr
Sýning á um-
hverfisverk-
efnum barna
OPNUÐ verður sýning á verk-
um barna úr umhverfismenntun
þriðjudaginn 11. júní. Allir Ieik-
skólar og skóladagheimili Rík--
isspítalanna standa að þessari
sýningu sem verður í anddyri
K-byggingar Landspítalans.
Formleg setning verður kl.
10.00, þar munu börn flytja ávörp,
syngja, fara með vísur og lesa fru-
mort ljóð o.fl. Forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, verður sér-
stakur gestur á setningunni.
Þessi sýning tengist norrænu
umhverfisári sem senn er á enda
og norrænni ráðstefnu um um-
hverfismenntun, sem verður dag-
ana 12.-14. júni í Reykjavík.
Allt síðastliðið ár hafa börnin
verið önnum kafin við að kanna
umhverfi sitt og velta fyrir sér
hvernig þau geti bætt það og
hvernig eigi að ganga um það og
hvernig ekki. Þau hafa skoðað,
ræktað, hreinsað, rannsakað,
mælt, snert, tekið tré í fóstur,
unnið að endurvinnslu, farið í vett-
vangsferðir, ort ljóð og ýmislegt
fleira. Hver leikskóli hefur valið
sér þema og vinnur að því eftir
getu og þroska barnanna.
(Fréttatilkynning)
en eftir að hún giftist móðurbróður
mínum Jóhanni J. E. Kúld rithöf-
undi, en þau giftust árið 1941.
Hjónaband þeirra var alla tíð mjög
farsælt, óhætt er að segja að hún
var sólargeisli lífs hans, sem
umlukti hann með ástúð og kær-
leika og ekki bara hann heldur okk-
ur öll, frændfólk hans. Geirþrúður
og Jóhann eignuðust eina dóttur,
Halldóru, fædda 15. júlí 1946, en
hún dó aðeins 12 dögum síðar.
Sorg sína, djúpa og sára, báru þau
ekki á torg en gengu með reisn í
gegnum lífið.
Geirþrúður eða Dúdda eins og
vinir og ættingjar kölluðu hana var
svo kærleiksrík, heil og sönn, svo
hógvær og lítillát, svo jákvæð, hjá
henni þekktist ekki kynslóðabil. Þó
árin hennar yrðu 87, kinnin hrukk-
ótt, líkaminn hrörlegur og þrekið
hyrfi varð Dúdda aldrei gömul, fal-
lega brosið hennar, glettnu og
skemmtilegu tilsvörin sýndu unga
og göfuga sál.
Að leiðarlokum sendir móðir mín
mágkonu sinni og vinu þakklæti
fyrir vináttu og tryggð í gegnum
árin. Ég minnist Geirþrúðar með
ást og virðingu og þakka henni af
alhug það sem hún var mér og
mínum. Margréti systur hennar og
öðrum ástvinum sendi ég innilegar
_ samúðarkveðjur. Góð kona er geng-
in. Guð blessi minningu hennar.
Sesselja Davíðsdóttir
t
Móðir okkar,
SIGRIÐUR JOIMSDOTTIR,
Ferjubakka 16,
Reykjavík,
er látin.
Jarðarförin auglýst síðar.
Erna Aradóttir,
Örn Arason
og fjölskyldur.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HJÖRLEIFUR MAGNÚSSON
fv. bæjarfógetafulltrúi,
Siglufirði,
lést í Borgarspítalanum laugardaginn 8. júní sl.
Herdís Hjörleifsdóttir,
Magnús Þ. Hjörleifsson,
Jóhanna Hjörleifsdóttir,
Þorkell Hjörleifsson,
Edda Hjörleifsdóttir,
Guðrún Hjörleifsdóttir,
Kristín Hjörleifsdóttir,
Stefán Ólafsson,
Giovanna Hjörleifsson,
Geir Pétursson,
Stefanía Vigfúsdóttir,
Viktor Már Gestsson,
Páll E. Ingvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengamóðir, systir, amma og langamma,
ERNA ÁSGEIRSDÓTTIR,
Neðstaleiti 2,
Reykjavík,
sem andaðist í Landspítalanum 5. júní sl., verður jarðsungin fró
Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. júní kl. 13.30.
Fríða Margrét Jónsdóttir,
Vilhjálmur Jónsson,
Valgerður Jónsdóttir,
Ásgeir Jónsson,
Ásgerður Ásgeirsdóttir,
Svanhildur Ásgeirsdóttir,
Rúnar Smárason,
Tamar Jónsson,
ívar Harðarson,
Sæmundur Pálsson,
Regin Valtýsson,
barnabörn, barnabarnabörn og vandamenn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andtát og jarðarför
JÓNU ÞORBJARNARDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Hafnarfirði.
Guðsveinn Þorbjörnsson,
Hallgrímur Pétursson,
Sigríður Pétursdóttir,
Þorbjörn Pétursson,
Jón Egilsson,
Hulda Björgvinsdóttir,
Kornelfus Jónsson,
Erla Guðmundsdóttir.
LEGSTEINAR
GRANIT - MARMARI
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður,
pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL ÁSGRÍMUR ÁGÚSTSSON,
Litla-Garði,
Akureyri,
sem andaðist 6. júní, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 13. júní kl. 13.30.
Þórhalla
Halldór K. Karlsson,
Steinn Þ. Karlsson,
Katrin H. Karlsdóttir,
Ágúst B. Karlsson,
Anna H. Karlsdóttir,
Ásgrímur Karlsson,
Þórhildur Karlsdóttir,
Guðmundur Karlsson,
barnabörn og
Steinsdóttir,
Halla S. Guðmundsdóttir,
Þórunn Jónsdóttir,
Andrés Valdimarsson,
Svanhildur Alexandersdóttir,
Björn Axelsson,
Guðlaug Gunnarsdóttir,
Matthías Garðarsson,
Valgerður Sigf úsdóttir,
barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug vegna andláts og jarðarfarar ástkærrar eiginkonu minnar og
systur,
SIGRÚNAR (GÓGÓ) GUÐMUNDSDÓTTUR.
Kristján Ágústsson,
Magnús Guðmundsson
og aðrir aðstandendur.
t
Innilega þökkum við fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför móður okkar og tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
KLÖRU SVEINSDÓTTUR,
Melbrún,
Fáskrúðsfirði.
Ástþór Guðnason,
Elsa B. Guðsteinsdóttir,
Þórunn Ingólfsdóttir,
Margeir Ingólfsson,
Stefanía Ingólfsdóttir,
Gyða Ingólfsdóttir, Sveinn R. Eiðsson,
barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir færum við þeim, sem heiðruðu minningu eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
EINARS THORODDSEN,
og vottuðu okkur samúð við andlát hans og útför.
Ingveldur B. Thoroddsen,
Ólafur Thoroddsen, Sólveig Hákonardóttir,
Ásta St. Thoroddsen, Bolli Héðinsson,
Gígja Thoroddsen
og barnabörn.
t
Þökkum öllum þeim, er sýnt hafa okkur vinarhug og veitt ómetan-
legan stuðning við fráfall elskulegs sonar okkar og bróður,
SIGURJÓNS AXELSSONAR.
Hlýhugur ykkar hefur yljað á þessum nöpru tímum.
Guð veri með ykkur öllum.
Axel Eiríksson, Stefania Vilborg Sigurjónsdóttir,
Grímur Axelsson,
Hjalti Axelsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
JÓNÍNU HERMANNSDÓTTUR,
Ketilsbraut 15,
Húsavík,
sem lést 1. júní sl.
Ragnar Jakobsson,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
VIGFÚSAR JÓNSSONAR,
Austurgötu 31,
Hafnarfirði.
Steinunn I. Jónsdóttir,
Magnús Jónsson,
Ásta V. Jónsdóttir,
Sigríður Áslaug Jónsdóttir,
Gunnar Kr. Jónsson,
Jón Gestur Jónsson,
Sigrún Einarsdóttir,
Haukur Jónsson,
Hörður Jónsson,
Einar Þórir Jónsson,
og systkinabörn.
Guðjón Sigurjónsson,
Elín Guðjónsdóttir,
Hermann Björnsson,
Margrét Eyþórsdóttir,
Rósa Arnórsdóttir,
Yngvi Guðmundsson,
Guðný L. Jóhannsdóttir,
Kristín S. Guðmundsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir