Morgunblaðið - 05.07.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991
19
Frá opnun sýningarinnar.
Sjóminjasafnið í Hafnarfirði:
Sýning um skipsljórn-
arfræðslu á Islandi
SKIPSTJÓRNARFRÆÐSLA á íslandi er heiti sýningar sem efnt
hefur verið til í Sjóminjasafninu í Hafnarfirði í tilefni af 100 ára
afmæli Stýrimannaskólans í Reykjavík. Sýningin var opnuð 29. júní
og stendur yfir fram yfir næstu áramót.
Fljótsdalur:
V orgróðursetningn plantna
á veffum Héraðsskósra lokið
Geitagerði. *■—J J
Vorgróðursetningu plantna á
vegum Héraðsskóga, sem hófst
21. mai sl., lauk um síðustu
helgi.
Alls voru gróðursettar 350 þús-
und lerkiplöntur, sem fóru í 130
hektara lands á 36 jörðum í 6 hrepp-
um, þ.e. Fljótsdal, Skriðdal, Völlum,
Eiðaþinghá og Fellum og ennfrem-
ur Egilsstaðabæ. Þá voru settar
niður um 12 þúsund plöntur af öðr-
um tegundum í hinar eldri girðing-
ar sem heyra undir hina svokölluðu
Fljótsdalsáætlun, sem er frá 1970.
Var það fyrst og fremst stafafura
og sitkabastarður. Að meginhluta
var það bændafólk, sem vann við
gróðursetninguna.
Þær plöntur, sem gróðursettar
voru í vor, eru frá uppeldisstöðinni
á Hallormsstað, þar sem fyrsta
uppskera á vegum Barra hf. verður
ekki tilbúin fyrr en í ágúst.
í verkslok kom starfsfólkið og
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
Efnt var til grillveislu í Geitagerði að loknu verki.
fjölskyldur þeirra saman til grillhá- setið við varðeld eða farið um skóg-
tíðar í skógræktinni í Geitagerði, inn fram eftir kvöldi.
milli 60 og 70 manns. Var ýmist - G.V.Þ.
Ágúst Georgsson, starfsmaður
safnsins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að sýningin væri tvíþætt.
Annars vegar væri rakin saga sigl-
inga frá því fyrir Kristsburð. Bygg-
ist þessi hluti upp á texta, myndum,
Stykkishólmur:
Margir fara
í Súgandisey
Stykkishólmi.
ÞAÐ eru alltaf fleiri og fleiri
sem notfæra sér að fara út í
Súgandisey og horfa þaðan yfir
bæinn og höfnina. Þetta er stór-
kostleg sjón og sérstaklega við
sólarlag.
Þótt mörgum hrysi hugur við að
loka höfninni og setja upp stiga upp
í eyna hjaðna þær raddir alltaf
meir og meir. Erlendum gestum
þykir dýrlegt að fara út í eyna og
horfa yfir bæði til fjalls, fjöru og
sjós. Náttúrufegurðin er mikil og
þeir fara ekki erindisleysu sem
koma í Hólminn í góðu veðri.
- Árni.
gripum og líkönum. Nefndi hann
sérstaklega umijöllun um vita, kíki
í eigu Bjarna Sívertsen, eins af for-
kólfum skútuútgerðar á íslandi, og
samanburð á starfí formanna á ára-
bátum og skipstjóra á nútíma skip-
um.
Hins vegar er á sýningunni rakin
aðdragandinn að stofnun Stýri-
mannaskólans og saga hans. Stýri-
mannaskólinn tók til starfa árið
1891. Hann var til 1898 til húsa í
svokölluðu Doktorshúsi í Vestur-
bænum en fluttist þá í nýbyggt hús
þar skammt frá, Stýrimannaskól-
ann gamla. Þar var skólinn til
haustsins 1945 að hann flutti í Sjó-
mannaskólann þar sem hann hefur
verið síðan. í ritlingi um sýninguna
segir að fram yfir síðari heimsstyij-
öldina hafi kennslan verið fremur
fábreytt á nútímamælikvarða en
síðan hafi tækniframfarir sett
síaukinn svip á kennsluna.
Þeir sem stóðu að uppsetningu
sýningarinnar voru Ágúst Georgs-
son, Einar Arnalds, sagnfræðingur,
og Páll V. Bjamason. Einar vinnur
nú að því að rita sögu Stýrimanna-
skólans. í sumar er Sjóminjasafnið
opið þriðjudaga til sunnudaga frá
14-18.
Heiibrigðisráðuneyti:
Þroskaheftur afbrota-
maður verður vistaður
hjá ættingjum sínum
SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra undirritaði í gær
samning við ættingja þroskahefts afbrotamanns, sem vistaður hefur
verið í Síðumúlafangelsi, um að þeir taki að sér gæzlu og umönnun
mannsins. Ráðherra segir þetta vera neyðarúrræði þar til réttargeð-
deild komist á laggirnar.
Maðurinn, sem um ræðir, réði
þroskaheftri stúlku bana á heimili
fyrir þroskahefta síðastliðinn vetur.
Hann var ekki talinn sakhæfur og
því úrskurðaður til meðferðar á við-
eigandi stofnun, en hefur verið
hafður í einangrunarklefa í Síðu-
múlafangelsinu.
Að sögn Sighvats Björgvinssonar
var maðurinn nánast hættur að
matast og hreyfa sig í fangelsinu
og við svo búið mátti ekki standa
lengur. Samningurinn við ættingja
mannsins felur í sér að þeir vaki
yfir honum dag og nótt og sjái um
hreinlæti og mat. Þá aki þeir honum
í og úr læknisskoðun. Lögreglumað-
ur mun fylgjast með manninum
daglega og einnig á geðlæknir að
heimsækja hann reglulega. Ráðu-
neytið greiðir aðstandendum fyrir
gæzluna og borgar húsaleigu í
tveggja herbergja íbúð, þar sem
maðurinn verður vistaður.
Að sögn ráðherra kostar þetta
fyrirkomulag um 300 þúsund krón-
ur á mánuði. Hann segir það dýr-
ara en að vista manninn í Síðumúla-
fangelsinu og ekki viðunandi lausn
á neinn hátt, en þó betra en að
láta manninn veslast upp í einangr-
unarfangelsi.
Gert er ráð fyrir að maðurinn
verði fluttur á réttargeðdeildina,
sem fyrirhugað er að taki til starfa
á Sogni í Ölfusi í haust. Samningur-
inn við aðstandendur hans gerir ráð
fyrir að um tímabundið ástand sé
að ræða, og muni þeir ekki annast
manninn lengur en til áramóta.
Tveir afbrotamenn aðrir, sem
einnig hafa verið úrskurðaðir ósak-
hæfir, sitja í Síðumúlafangelsinu.
Sighvatur sagði að lausn þeirra
mála væri ekki eins aðkallandi, þar
sem líðan þeirra væri ekki jafn
slæm.
Nýr ELO-skákstigalisti:
Jóhann Hjartarson er aftur
orðihn efstur Islendinganna
ALÞJÓÐA skáksambandið hefur gefið út nýjan lista yfir ELO stig
skákmeistara. Samkvæmt honum er Jóhann Hjartarson efstur ís-
lenskra skákmanna á ný með 2.550 stig og hefur bætt við sig 15
stigum frá síðasta lista. Næstur kemur Margeir Pétursson með 2.540
og hefur bætt við sig 25 stigum. Á heimslistanum er Kasparov heims-
meistari áfram efstur, en hefur lækkað um 30 stig, er með 2.770.
Ivantsjúk hefur skotið Karpov aftur fyrir sig og er nú annar með
2.735 stig, hefur bætt sig nm 40 stig. Efstar kvenna eru tvær Polgar
systra, Judit með 2.550 stig og Zusza með 2.535 stig.
Helgi Ólafsson, sem var efstur Steingrímsson með 2.505 stig, þá
Islendinga á síðasta lista, er nú þriðji
með 2.525 stig og hefur lækkað um
65 stig. Fjórði er Jón L. Árnason
með 2.520 stig, fimmti Héðinn
koma Friðrik Ölafsson með 2.485,
Hannes Hlífar Stefánsson og Karl
Þorsteins með 2.470, Guðmundur
Sigutjónsson með 2.465, Þröstur
Þórhallsson og Björgvin Jónsson
með 2.425.
Sex efstu menn í heiminum eru
allir Sovétmenn. Karpov, fyrrum
heimsmeistari, er nú þriðji með
2.730 stig, þá koma Bareev með
2.680, Salov og Gelfand með 2.665.
Bretinn Short er sjöundi með 2.660,
þá er Beljavskíj með 2.655 og Ind-
verjinn Anand með 2.650. í 10.-14.
Einn íslendinganna, Jóhann
Hjartarson, er á lista yfír 100 efstu
skákmenn heimsins. Hann er í
93.-99. sæti.
Þegar kemur að vali á veiði-
vörum er Abu Garcia merki
sem æ fleiri treysta á
Nú er einmitt rétti tíminn til að
huga að endurnýjun eða kaupum
á veiðibúnaði. Sértu að gera
klárt fyrir væntanlegar veiði-
ferðir skaltu kynna þér hið góða
úrval Abu Garcia veiðivara því
Abu Garcia hefur í áratugi verið
leiðandi í tækniþróun
veiðibúnaðar.
Það kemur meðal annars fram í
aukinni notkun á fisléttum en
sérlega sterkum efnum ásamt
nýjung sem stóreykur langdrægni
hjólanna (ULTRA CAST). Þetta
er meðal annars ástæðan til þess
að æ fleiri veiðimenn treysta
á Abu Garcia.
■Abu
Garcia
SUMAROPNUNARTIMI:
Mánud.-fimmtud. opið til kl. 19.00
Föstud. opið til kl. 20.00
Laugard. og sunnud.
opiö frá ki. 10.00-16.10
Hafnarstræti 5 ■ Símar 1 67 60 og 1 48 00