Morgunblaðið - 05.07.1991, Side 21

Morgunblaðið - 05.07.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 21 Líbanon: Friður saminn og stjórn- völd fá yfirráð yfir Sídon Sídon, Líbanon. Reuter. Líbanskir hermenn spyrna hér upp dyrum í flóttamannabúðum Pa- lestínumanna í gær í leit að skæruliðum PLO. BARDAGAR stöðvuðust í gær við flóttamannabúðirnar tvær þar sem libanski herinn og skærulið- ar Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) hafa barist. Við- ræður hófust strax á milli full- trúa sfjórnvalda og leitoga PLO. Eftir 6 tíma setu var komist að samkomulagi um að líbanski her- inn fengi að koma sér fyrir í Suður-Libanon átakalaust. Alls fórust um 65 manns í átökunum og 104 særðust. í samningaviðræðunum tóku þátt tveir ráðherrar í líbönsku stjórninni og fimm leiðtogar PLO. Fjallað var um borgaraleg og félagsleg réttindi Palestínumanna í Líbanon, en sjórn- völd höfðu fram að því neitað að ræða þau mál fyrr en liðsmenn PLO hefðu lagt niður vopn. Þau vildu að skæruliðar PLO hættu árásum á ísraela til að ná fram auknum þrýstingi á þá að yfirgefa hið 15 km breiða „öryggissvæði" meðfram landamærunum. Samkomulag náð- ist um að líbanski herinn fengi að koma sér friðsamlega fyrir á svæð- inu, að sögn ráðherra í stjórninni. Abdullah al-Amin, innanríkisráð- herra Líbanon, var annar ráðherr- anna sem tóku þátt í viðræðunum. Aðspurðut um hvort bardögunum sem staðið hafa yfir í ijóra daga væri nú lokið, svaraði hann: „Stríð- inu er lokið ef guð lofar.“ Líbanski stjórnarherinn hafði haldið uppi hörðum árásum á pal- estínska skæruliða, sem voru inni- króaðir í tvennum flóttamannabúð- um fyrir utan borgina Sídon í Suð- ur-Líbanon og neituðu að láta vopn sín af hendi við stjórnarhermennina. í flóttamannabúðunum búa að jafnaði um 65.000 manns og er aðbúnaður þeirra slæmur og versn- aði til muna í umsátri herins. Þeir skæruliðar sem króaðir voru inni í búðunum voru örvæntingarfullir en höfðu þó svarið þess eið að deyja fyrr en að láta vopn sín af hendi. ■ JÓHANNESARBORG - Ösku- gos bytjaði í eldfjalli á Comoro-eyj- um í Indlandshafi á þriðjudags- kvöld og flýðu hundruð manna heimili sín í nálægum þorpum. Haft var eftir fimm jarðfræðingum að eldvirknin í Kartala-fjalli væri eðli- leg og fólki á eynni Grande Co- more, sem er stærsta eyjan í eyja- klasanum, væri engin hætta búin af þess völdum. ■ WASHINGTON - Norman Sch- warzkopf hershöfðingi, yfirmaður herafla Bandaríkjamanna í Persaf- lóastríðinu, sækist ekki eftir sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings, eftir því sem fram kemur í viðtali við hann, sem birt var í tímaritinu Parade í gær, fimmtudag. Mikið hefur verið rætt og ritað um það hvað Schwarzkopf muni taka sér fyrir hendur þegar hann lætur af störfum hjá Bandaríkjaher í ágúst á þessu ári. Hann útilokaði þó ekki að hann gæti fengið áhuga á að snúa sér að stjórnmálum síðar meir. Schwarzkopf hefur aldrei látið uppi hvort hann er repúblikani eða demó- krati. ■ RÓM - Talsmenn ítalska for- setaembættisins vísuðu því á bug í gær að Francesco Cossiga forseti hefði í viðtali sagt fjárlagaráðherra landsins, Paolo Cirino Pomicino, ólæsan. Dagblaðið Corríere Della Sera, sem gefið er út í Mílanó, birti ummæli forsetans á forsíðu í gær en ítalska fréttastofan ANSA segir að forsetaembættið hafi gefið út yfirlýsingu þar sem þeim er vísað á bug. Þegar Cossiga var spurður hvers konar þjóð ítalir væru, á hann að hafa sagt: „Við erum þjóð sem sættir sig við að hafa ólæsan mann eins og Paolo Cirino Pomicino í embætti ijárlagaráðherra." ■ GUWAHATI - Aðskilnaðar- sinnaðir Maóistar í héraðinu Assam í norðausturhluta Indlands sögðu í gær að þeir myndu taka af lífi tvo gísla sem þeir hafa í haldi, Sovét- mann og Indverja, ef sex leiðtogum þeirra yrði ekki sleppt úr fangelsi fyrir næsta þriðjudag. Sameinaða þjóðfrelsishreyfingin í Assam (ULFA) lýsti ábyrgð á ránum á Sovétmanninum og 14 indverskúm embættismönnum á hendur sér á mánudag. Þeir segja að til að byrja með muni þeir sleppa Sovétmannin- um og einum Indverja fyrir leiðtog- ana sex. ■ TÓKÝÓ - Japanir telja að sér stafi meiri ógn af Bandaríkjamönn- um en Sovétmönnum. Þetta kemur fram í könnun sem japanska dag- blaðið Yomiuri gerði meðal 3.000 Japana. 24% aðspurðra sögðu að Japönum stafaði mest hætta af Bandaríkjamönnum, 22% nefndu Sovétmenn, 12,6% Norður-Kóreu- menn, 5,9% Suður-Kóreumenn og 3,7% Kínverja. Aðeins þessar fimm þjóðir voru nefndar í könnuninni sem gerð var í júní. Frakkland: Þingheimur flýr hvít- lauksstybbu París. Reuter. RÝMA þurfti franska þingið á miðvikudag eftir að lyktar- sprengju hafði verið varpað frá áheyrendapöllum. Lagði í kjölfar þess megna hvítlauksstybbu yfir sali þingsins. Þingmenn urðu að flýja þingsali og var það ekki fyrr en einni klukkustund síðar að þeir gátu haldið inn í þinghúsið á ný. í opinberri yfirlýsingu sem gefin var út eftir þetta atvik segir að fíytja hafi þurft einn þingmann á spítala vegna öndunarerfiðleika og að annar hafi hlotið læknismeðferð í þinghúsinu. Málið er í rannsókn. 1/utasicL Heílsuvörur nútímafólks Blomberg eldunartækin hlutu hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF hönnunarverðlaun fyrir framúr- skarandi glæsilega og hugvit- samlega hönnun. Enginn býður nú meira úrval af innbyggingartækjum í sam- ræmdu útliti en Blomberg ! Komdu til okkar og kynnstu Blomberg af eigin raun, hringdu eða skrifaðu og fáðu sendan 60 síðna litprentaðan bækling á ís- lensku. f/7há Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 S 622901 og 622900 LAGER- ÚTSALA FLÍSABÚÐARINNAR á Dverghöfða 27 Allir afgangar eiga að seljast. Ótrúlegt verð. Einnig er um að ræða sértilboð á nokkrum gerðum aí flísum. m i/rv - IL V I & 3L 1 1 a "5 kj ra 'rn & r j rr r □ L Stórhöfða 17 v/Gullinbrú, sími 674844. MITSUBISHI MOTORS 0 HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI695500 □ Handskiptur / Sjálfskiptur □ Aflstýri og veltistýrishjól □ Framdrif Verðfrákr. 771.840.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.