Morgunblaðið - 05.07.1991, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991
Pollamót Þórs og Sjallans:
Þrjú hundruð sveinar
í fótbolta í hitamollu
POLLAMÓT Þórs hefst á Þórsvellinum á Akureyri um hádegi í
dag, föstudag, og stendur fram á laugardag. Um er að ræða knatt-
spyrnumót karla 30 ára og eldri. Margt fleira en knattspyrna verð-
ur til afþreyingar í tengslum við mótið.
Þetta er þriðja árið sem Knatt-
spyrnufélagið Þór á Akureyri og
Sjallinn standa fyrir knattspyrnu-
móti fyrir þennan aldursflokk. Að
þessu sinni er þátttakan meiri en
nokkru sinni. Liðin sem skráð eru
til leiks eru alls 27, víðs vegar af
landinu, svo alls verða það um
Sviðsvagn í
göngugötu
SVOKÖLLUÐUM sviðsvagni
verður komið fyrir í göngugöt-
unni á Akureyri hvar hann verð-
ur næstu vikurnar til afnota fyr-
ir þá sem skemmta vilja fólki sem
þar er á ferli.
Á liðnum árum hefur smám sam-
an fjölgað ýmis konar skemmtiatr-
iðum sem boðið er upp á í götunni
og verður umræddum vagni komið
fyrir til að auðvelda þeim sem koma
vilja efni sínu á framfæri að troða
upp.
Þeir sem hug hafa á að skemmta
gestum og gangandi í göngugöt-
unni er bent á að snúa sér til skrif-
stofu menningarfulltrúa á Akureyri
og panta þar tíma, en æskilegt er
að það sé gert með nokkurra daga
fyrirvara svo hægt sé að kynna það
sem fram á að fara.
Úr fréttatilkynningu
þijú hundruð vaskir eldri sveinar
sem spyrna knetti í hlýindunum á
Akureyri þessa daga.
Benedikt Guðmundsson, tals-
maður Þórs, sagði að færri hefðu
komist til keppni en vildu. Þannig
væri til dæmis ekkert lið frá Vest-
fjörðum, ísfirðingar hefðu því mið-
ur verið of seinir að tilkynna komu
sína og ástæðan til að þeir og
fleiri gætu ekki verið með væri sú
að hvergi væri gistingu að fá. Það
stafar meðal annars af því að á
sama tíma og þetta pollamót öld-
unga fer fram stendur yfir á
íþróttasvæði KA Esso-mót í 5.
flokki.
Leikirnir á Þórsvellinum standa
frá hádegi í dag og fram undir
kvöld, en síðan verður efnt til grill-
veislu fyrir þátttakendur og þá sem
þeim fylgja. Leikir hefjast á ný
klukkan 10 á laugardagsmorgun
og úrslitaleikurinn hefst klukkan
17. Um kvöldið verður stóiveisla
í Sjallanum. Þar verður veislustjóri
séra Pétur Þórarinsson en Bjarni
Hafþór Helgason flytur hátíðar-
ræðu. í hófinu verða veitt verðlaun
fyrir fræknasta frammistöðu í
mótinu, en meginheiðurinn fellur
í skaut því Iiði sem telst sýna
mestan persónuleika. Á síðasta ári
hlutu Mývetningar þann titil, en
þeir höfðu meðal annars liðsstjóra
sem stýrði sóknarlotum liðs síns
með harmonikkuleik.
Sparisjóðsmót í fótbolta
á Dalvík og Ólafsfirði
SPARISJÓÐSMÓTIÐ í knatt-
spyrnu verður haldið á Dalvík
800 manns í
sundlauginni
FJÖLMENNI hefur verið síðustu
daga í Sundlaug Akureyrar og
hafa upp undir 800 manns komið
þar yfir daginn. „Það er búið að
vera brjálað að gera, allir skápar
í notkun og fólk verður að konia
fötum sínum fyrir í hólfum,“ sagði
Jón Marinó Sævarsson starfsmað-
ur í sundlauginni, en að jafnaði
eru á bilinu 2-300 manns í einu í
lauginni.
I greinargerð um stefnumótun í
ferðamálum sem sérstakur vinnu-
hópur um ferðamál vann að og kynnt
var í síðasta mánuði kemur fram að
úrbætur við Sundlaug Akureyrar eru
á meðal brýnustu verkefna á sviði
ferðaþjónustu. Þar segir að fram-
kvæmdir við barnalaug og þætti
tengda afþreyingu verði strax hafn-
ar, en næst verði hafíst handa við
búningsaðstöðu.
■ og í Ólafsfirði á laugardag, en
mótið er haldið af Sparisjóði
Svarfdæla á Dalvík og Spari-
sjóði Ólafsfjarðar.
Mótið hefst kl. 11, laugardaginn
27. júlí og verður keppt í 3.flokki
kvenna og í 7. flokki karla. Spilað
verður í tveimur fjögurra liða riðl-
um og lýkur riðlakeppni kl. 14.
Sigurvegarar riðlanna leika síðan
til úrslita og lið í 2., 3. og 4. sæti
leika gegn liðum í sömu sætum í
gagnstæðum riðli. Úrslitaleikjum
verður lokið um kl. 18.
Drengirnir leika á Dalvík, en
stúlkur eigast við í Ólafsfirði, en
úrslitaleikir verða leiknir jafnhliða
hjá drengjum og stúlkum og fara
þeir leikir fram í Ólafsfírði.
Er úrslit eru ráðin verður stefn-
an tekin á Dalvík þar sem haldin
verður grillveisla og einnig verða
þar ýmsar knattþrautir, verð-
launaafhending auk afhendingar
viðurkenninga, en áætlað er að
Sparisjóðsmótinu ljúki um kl. 21.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Krakkarnir í vinnuskólanum á Dalvík fundu
mikið af rusli sem greinilega hafði verið hent í
sjóinn af skemmtiferðaskipi er þau voru að
hreinsa fjöruna skammt innan við bæinn í gær.
Innfellda myndin sýnir m.a. ástarbréf rituð á
þýsku, lyfjaglös og þýskar bókmenntir sem voru
á meðal þess sem skolað hafði upp að landi úr
skemmtiferðaskipinu.
Rusli fleygt í sjóinn af skemmtiferðaskipi:
Astarbréf, lyfjaglös og matseðl-
ar flutu upp í fjöru við Dalvík
„VIÐ erum búin að finna stóran haug af drasli, sem greinilegt
er að hefur verið fleygt í sjóinn hér inni í firði,“ sögðu krakkarnir
í vinnuskólanum á Dalvík, en þau hreinsuðu fjöruna austur á
Sandi, skammt innan við Dalvík í gær. Þar kenndi margra grasa,
bréfabunkar, dagbækur, matseðlar, uppskriftir, vinnuföt kokksins
og nokkrar tegundir lyfja.
Bjarni Gunnarsson æskulýðs-
fulltrúi á Dalvík og forstöðumaður
vinnuskólans sagði að augljóst
væri að miklu magni rusls hefði
verið fleygt fyrir borð einhvers
staðar inni í Eyjafirði, að öðrum
kosti hefði því ekki skolað að landi
í fjörunni við Dalvík. Hann sagði
að venjan væri sú að krakkar úr
Dalvíkurskóla hreinsuðu fjöruna
að vori um það bil sem skóla
væri að ljúka, þannig að ef allt
væri með felldu hefði ekki átt að
finnast mikið af rusli í fjörunni nú.
„Við tókum eftir þessu í fyrra-
dag og manni dettur í hug að
ruslinu hafi verið hent í sjóinn
einhvern tíma í síðustu viku,“
sagði Bjarni. Á meðal þess sem
fannst í fjörunni var mikið magn
bréfa, sem rituð voru á þýsku og
þar mátti finna eldheit ástarbréf,
bækur voru þar einnig og sáu
krakkarnir nokkuð af bókum
fljóta í sjónum, en náðu ekki til
þeirra. Margt bendir til að starfs-
menn í eldhúsi skipsins hafi kom-
ið þarna nærri, því föt kokksins
flutu að landi, svuntur með áletr-
unum hvar til kynna var gefíð að
um besta kokk heims væri að
ræða, matseðlar fundust sem og
uppskriftir.
Einnig fundu krakkarnir nokk-
ur lyfjaglös og sagðist Bjarni hafa
sýnt lyfjafræðingi staðarins þau,
sem kvaðst ekki kannast við þau
að óathuguðu máli, þau gætu þó
allt eins verið hættuleg börnum,
en Bjarni sagði að börn leituðu
mikið í þessa fjöru. Yngstu börnin
hefðu ti) að mynda talið að
ákveðnar töflur sem fundust væru
sætindi.
25 stiga hiti í Vaglaskógi:
Búist er við að ferða-
menn streymi norður
Lífi haldið í plöntum með stöðugri vökvun
REIKNAÐ er með straumi ferðafólks til Norðurlands um helgina,
en veður hefur verið einstaklega gott undanfarið og var til dæmis
25 stiga hiti í Vaglaskógi í gærdag. Farið er að sjá á gróðri í skógin-
um vegna þurrka og þarf stöðugt að vökva plöntur til að halda í
þeim lífinu. Ferðamannastraumur hefur farið rólega af stað í Mý-
vatnssveit, en búist var við fjölda fólks þangað um helgina. Um 160
manns gistu á tjaidstæðinu á Akureyri í fyrrinótt.
Sigurður Skúlason skógarvörður
í Vaglaskógi sagði að mikið af fólki
hefði verið í skóginum í gær, en
veður einstaklega gott, sól og 25
stiga hiti. Mun fleiri gestir komu í
Islandsmótið 2. deild - Akureyrarvöllur í kvdld kl. 20.00
Allir á völlinn í kvöld.
HYUNDAI
(íyi)vö r?
V /J BATASMICXJA
skóginn í júnímánuði síðastliðnum
miðað við áður, en skógurinn er að
jafnaði opnaður fyrir umferð um
miðjan mánuð. „Veðrið laðar fólk
hingað og eins held ég að fólk sé
farið að ferðast meira en áður, það
eru fleiri á ferðinni," sagði Sigurður.
Aðstaðan í Vaglaskógi hefur ver-
ið bætt, m.a. er búið að reisa'tvö
ný snyrtihús og eins er verið að
lagfæra tjaldstæðin og loka þeim
fyrir umferð. Um síðustu helgi voru
um 150 tjöld í skóginum auk þess
sem yfir sumarmánuðina standa um
40 hjólhýsi þar. Sigurður sagði að
um eða yfir eitt þúsund manns
væru í skóginum um helgar, en fjöl-
margir hafa þar viðveru yfir daginn
án þess að tjalda.
„Það er orðið heldur þurrt á okk-
ui', svo farið er að sjá á gróðri. Við
erum hér með plöntur sem vökva
þarf stöðugt til að halda í þeim
lífinu. Gras á útivistarsvæðum er
einnig orðið afar þurfandi fyrir góða
rigningu," sagði Sigurður.
Á tjaldstæðinu við Reykjahlíð í
Mývatnssveit fengust þær upplýs-
ingar að ferðamannastraumur hefði
farið hægt af stað í júní, en greini-
legt væri að fólk væri að fara af
stað. Fyrir lægu pantanir stórra
hópa m.a. í svefnpokapláss sem
boðið er upp á og eins á tjaldstæð-
ið. Gistinætur á tjaldstæðinu eru
orðnar um 2.600, sem er örlítið
minna en var á sama tíma á síðasta
ári. Um síðustu helgi var töluvert
af fólki á tjaldstæðinu og áttu tjald-
verðir von á að svo yrði einnig um
þessa helgi.
Um 160 manns gistu á tjaldstæð-
inu á Akureyri í fyrrinótt,_ en í júní
voru gistinætur þar 1551. Islending-
ar voru þar í meirihluta, eða rúm-
lega 700, en af útlendingum voru
Þjóðveijar fjölmennastir, 374 og
Frakkar rúmlega 100. Fljótlega
verða teknar í notkun sturtur í
íþróttahöllinni rétt við tjaldsvæðið
fyrir gesti og eins hefur snyrti-
aðstaða verið bætt, vöskum fjölgað
og tvær þvottavélar sjá um að ferða-
fólk getur yfírgefið svæðið í hrein-
um fötum.