Morgunblaðið - 05.07.1991, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.07.1991, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 fclk í fréttum Hrafn Gunnlaugsson við tökur á myndinni Hvíti víkingurinn. KVIKMYNDIR V íkingiirinn Hrafn Imenningarblaði sínu þann 14. júní sl. fjallaði norska blaðið Aftenposten ítarlega um nýjustu mynd Hrafns Gunniaugssonar, Hvíta víkinginn, og birti jafnframt viðtal við Hrafn þar sem hann talar aðallega um þessa mynd sína og viðhorf sín til kvikmyndalistar og galdursins að segja sögu. Blaðið fer mjög lofsamlegum orðum um Hrafn og verk hans og telur hann m.a. eiga margt sameiginlegt með kvikmmyndaleikstjórunum Akira Kurosawa, Sergio Leone og John Ford. Greinin byijar á því að Ilrafn er kynntur sem kraftmesti kvik- myndagerðarmaður Norðurlanda og síðan er tekið fram að með haustinu gefist norskum kvik- myndahúsagestum kostur á að sjá nýjasta kjarnastykki íslenska hreystimennisins, Hvíta víkinginn, sem síðan verður sýnt sem sjón- varpsþáttaroð á ollum Norðunönd- um um jólin. Hvíti víkingurinn Þessi mynd Hrafns, sem er sam- norrænt verkefni, er sögð kosta um 40 milljónir norskra króna (um 360 milljónir ÍSK). Hún gerist árið 999, þegar Ólafur konungui' Tryggvason (sem leikinn er af Agli Ölafssyni) var í óða önn að kristna Noreg. í meðförum Hrafns er konungurinn eineygður, líkt og æðsti guð ásatrú- armanna, Óðinn. Hann beinir þessu eina auga að Aski, unglingspilti, og felur honum að kristna Island. Askur er sendur gegn vilja sínum til íslands, en konungur heldur Emblu, heitmey Asks, eftir í gíslingu til að tryggja að Askur framkvæmi ætlunarverk sitt. Síðan fellir konungurinn hug til hennar og út frá þessu skapast spennandi atburðarás. Nöfnin Askur og Embla hefur Hi-afn að sjálfsögðu úr ása- trúnni, en þar voru þau forfeður mannkynsins, líkt og Adam og Eva í kristindómnum. Þegar Askur kem- ur til íslands mæta horfum ýmsir örðugleikar sem hann verður að yfirbuga, en íslendingar verða að bíða eftir myndinni til að sjá hvem- ig það gengur. Aðspurður um hvað nafn myndarinnar táknar svaraði Hrafn að þegar íslendingar fréttu að þeim væri gert að trúa á nýjan guð töldu þeir fullvíst að hann hlyti að vera mikill stríðskappi. Óðinn og Þór höfðu spjót og hamar að vopni, og hvert var þá vopn þessa nýja guðs? Jú, þennan torkennilega kross væri vel hægt að nota sem barefli! Hrafn sagði að íslendingasög- urnar væru helsta uppspretta kvik- myndagerðar sinnar og sig hefði dreymt um að sjá hinn forna norr- æna heim með eigin augum alveg síðan amma sín sagði sér sögurnar í æsku. Hann sagðist heillaður af Morgimblaðið/Ágúst Blbndal Sigurður Jónsson og Guðbjartur Magnússon með hinum ungu fótboltamönnuni NESKAUPSTAÐUR Signrður leiðbeinir ungnm fótboltamönnum Neskaupstad. Mikið hefur verið um að vera hjá Knattspyrnuskóla Þróttar nú að undanfömu. Sigurður Jóns- son, atvinnumaðurinn snjalli frá Arsenal, hefur dvalist hér um tíma og leiðbeint hinum ungu og upp- rennandi knattspyrnumönnum. Hefur þetta fallið í góðan jarðveg hjá krökkunum. Umsjónarmaður knattspyrnuskólans er Guðbjartur Magnússon. - Ágúst. Finnski leikbúningahönnuðurinn Ensio Souminen á heiðurinn af hin- um ógnvænlega höfuðbúnaði sem notaður er í myndinni. Askur og Embla. Ask leikur ungur islenskur piltur, Gottskálk Dagur Sigurðarson, og Emblu leikur norska stúlkan Maria Bonevie. ásatrúnni og tók fram að skrif arg- entíska rithöfundarins Jorge Louis Borges um hana hefðu veitt sér mikinn innblástur, en Borges telur að ásatrúin séu einu trúarbrögðin í heiminum sem einbeiti sér að ánægjunni og nautninni í lífínu. „Eg verð að segja sög- ur“ Hrafn var spurður að því hvort hann væri ekkert smeykur við að gera Ólaf Tryggvason, sem Norð- menn líta á sem hetju, að skúrki? „Þegar fengist er við listsköpun er fijálsræði leyfilegt. Öðru máli myndi gegna ef hér væri um heim- ildafnynd að ræða. Mér finnst Ólaf- ur spennandi vegna þess að hann beitti réttri hugmyndafræði við að leggja Noreg undir sig. Hann var merkilegur maður, öðruvísi en allir aðrir konungar. En fyrst og fremst: Ég leitast við að skapa persónur af holdi og blóði, ég fæst ekki við fornleifafræði!“ Hann sagði um víkingana sem héldu til íslands að þeir hefðu flest- ir verið ungir og hraustir menn að flýja undan skattaoki og fólksfjölg- un. „I hallæri má segja að þeir hafi verið þeirra tíma Vítisenglar, sem lögðu út á hafið.“ Hrafn sagðist leggja sig fram um að kunna skil á öllum þáttum kvikmyndgerðarlistar og hann kvaðst aldrei gefast upp, heldur fá sínu framgengt. Hann sagðist fyrst og fremst vera sögumaður, hann hefði einungis valið kvikmyndir fram yfir ritstörf. „Það sem mestu máli skiptir er að innra með mér brennur eldur, ég verð að segja sögur, ekkert annað kemur til greina. Ég leitast við að gefa kvik- myndalistinni það sem íslendinga- sögurnar gáfu bókmenntunum. Söguefni sem býr yfir sínum eigin stíl og lýtur eigin lögmálum." COSPER vVI/. rtM. \\Í\H 52!!! AU/. \\U. .\W/.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.