Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.07.1991, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Hljómskálinn fegraður Morgunblaðið/Ámi Sæberg Nú er unnið að því að færa Hljómskálann í Reykjavík í nýjan og fallegri búning, en skálinn var farinn að láta á sjá. Gera þarf við steypuskemmdir og að því loknu verður skálinn málaður. Hraðfrystihús Ólafsvíkur seldi Tungufelli fjóra báta: Landsbankinn krefst opin- berrar rannsóknar á sölunni Olíklegt að bankinn leigi hlutafélagi heimamanna rekstur hraðfrystihússins Meðvitund- arlaus eftir bifhjólaslys UNGUR maður slasaðist alvar- lega á höfði í bifhjólaslysi við Sveinatungu efst í Norðurárdal í gærkvöldi. Hann var fluttur á slysadeild Borgarspítalans með þyrlu Landhelgisgæzlunnar. Þyrlan fór frá Reykjavík stund- arfjórðungi fyrir miðnætti. Tveir ungir menn voru á bifhjól- inu, sem var ekið í suðurátt eftir Vesturlandsvegi. Ökumaðurinn er að sögn lögreglu talinn hafa misst stjórn á hjóiinu í lausamöl í beygju. Farþeginn slapp lítt meiddur en ökumaðurinn missti meðvitund og var fluttur á sjúkrahúsið á Akra- nesi. Þar kom í ljós að hann var hættulega slasaður og var ákveðið að flytja hann með þyrlu til Reykjavíkur. Fjölda reið- hjóla stolið í biíðviðrinu STULDUR á reiðhjólum hefur færzt í vöxt í góðviðrinu að und- anförnu, að sögn lögreglunnar í Reykjavík. Svo virðist sem fólk, sem ekki hefur efni eða nennu til að kaupa sér reiðhjól þegar það langar til að þeysa um göt- urnar í sólskininu, taki þá hjól- hesta náungans ófrjálsri hendi. Að sögn lögreglunnar er ævin- lega mikið um þjófnað á reiðhjólum yfír sumarmánuðina, að jafnaði er tveimur hjólum stolið á dag. Und- anfarnar vikur hafa tilkynningar um horfna hjólhesta hins vegar oft verið fleiri, allt upp í fimm á sólar- hring. ‘ Lögreglan segir að í fæstum til- vikum steli fólk reiðhjólum til að slá eign sinni á þau til frambúðar. Mest sé um að menn hjóli dálítinn sprett og fleygi þá hjólinu frá sér einhvers staðar á víðavangi. Lög- reglah brýnir fyrir fólki að ganga vel frá reiðhjólum sínum; læsa þeim við fasta hluti eða hafa þau inni í læstum hjólageymslum. I fjölbýlis- húsum er mikilvægj; að ákveðnar reglur gildi um hver hafi lyklavöld að hjólageymslum, sjái um að opna þær að morgni og læsa að kvöldi. Bústjórar óskuðu eftir því við stærstu veðkröfuhafa að þeir leystu til sín eignir þrotabúsins en Lands- bankinn hefur ekki fallist á það, þar sem bankinn þyrfti þá að greiða full- an virðisaukaskatt af eignunum og fær hann ekki frádreginn sem inn- skatt, því bankar eru ekki rekstrarfé- lög samkvæmt skattalögum. Myndi LANDSBANKINN hefur sent kæru til bæjarfógetans í Olafsvík, þar sem þess er krafizt að fram fari opinber rannsókn á sölu fjög- urra báta Ilraðfrystihúss Ólafs- víkur til hlutafélagsins Tungu- fells. Landsbankinn heldur því fram að málamyndafélög hafi ver- ið stofnuð um rekstur skipa fyrir- sú upphæð nema tugum milljóna, að sögn Skarphéðins. Bústjórar hafa átt fundi með bankastjórum Landsbankans að und- anförnu og bíða ákvörðunar bank- ans. „Bankinn hefur áhuga á að reka þetta áfram í einhverri mynd,“ sagði Skarphéðinn. Hann sagði að við gjaldþrotið hefði strax verið reynt tækisins þegar hilla fór undir gjaldþrot Hraðfrystihússins og bátarnir hafi verið seldir á of lágu verði. Sverrir Hermannsson bankastjóri Landsbankans segir að vegna þessa máls líti ekki vel út um leigu rekstrar HÓ til hluta- félags heimamanna. Þegar við gjaldþrot HÓ ítrekaði að aflienda Landsbankanum vélar og tæki þrotabúsins en komið hafi ú ljós að þá verði að innheimta virðis- aukaskatt af Landsbankanum. „Ef við seljum hins vegar til rekstrar- aðila þurfum við ekki að innheimta virðisaukaskatt. Það er því annað- hvort um það að ræða að við seljum til nýs félags, með fulltingi Lands- bankans eða sá fræðilegi möguleiki að bankinn stofni slíkt félag og yfir- taki reksturinn," sagði hann. í dag hefjast sumarlokanir hjá Alafossi og er rekstri þrotabúsins þar með lokið en hann hefur verið tryggður með afui'ðaláni Landsbank- ans frá 20. júní. Landsbankinn kröfu sína frá því síðastliðinn vetur að bátunum fjórum yrði skilað inn í þrotabúið. Tungu- fell hf. er að mestu leyti í eigu sömu aðila og Hraðfrystihús Ólafsvíkur. Ólafur Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins og núverandi stjórnarformaður Tungufells, hefur neitað því að um undanskot eigna hafí verið að ræða þegar bátamir voru seldir Tungufelli. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, sagði í samtali við Morgunblaðið að Landsbankinn hefði beðið átekta og gefið eigendum Tungufells frest fram á síðasta föstu- dag til að rifta samningum um bát- ana, sem þeir hefðu selt sjálfum sér. Þeir hefðu marglofað að það yrði gert, en ekki staðið við orð sín. Fyrir nokkrum dögum buðust eig- endur Tungufells til þess að skila tveimur bátanna inn í búið. „Á slíkt er ekki lítandi," sagði Sverrir Her- mannsson. „Banki hlýtur að krefjast þess að lögum sé framfylgt, þar sem hann hefur grun um að þau séu brot- in.“ Ólafsvíkurbær og verkalýðsfélagið Jökull hafa stofnað_ hlutafélag ásamt Tungufelli hf. og Útveri hf., sem er að hluta í eigu sömu manna og Hrað- frystihúsið og Tungufell. Nýja hluta- félagið hefur óskað eftir að taka rekstur HÓ á leigu eða kaupa þrota- búið, með því skilyrði að allir fjórir bátarnir, sem voru í eigu HÓ, og togarinn, sem nú er í eigu Útvers, leggi upp hjá frystihúsinu. Sverrir segir að Landsbankinn muni ekki semja við félagið, sem myndað var um kaup á bátunum. „Það er alveg ljóst að við förum ekki að semja við menn sem við höfum sakað um það, sem við köllum sviksamlegt athæfi,“ sagði hann. Bæjarstjómarmenn úr Ólafsvík munu hitta Sverri Hermannsson að máli í dag vegna mála þrotabúsins. Ilann sagðist ekki vilja segja fyrir- fram hvernig færi, en hann væri ekki bjartsýnn á niðurstöðu fundar- ins. „Við vonuðum að vandamálið vegna þessarar sérkennilegu báta- sölu yrði úr sögunni áður en setzt væri niður og farið að tala saman. Við munum hins vegar hlusta á það, sem þeir hafa fram að færa,“ sagði hann. Bæjarfulltrúar Ólafsvíkinga hittu Davíð Oddsson forsætisráðherra að máli í gær. Margrét Vigfúsdóttir, formaður bæjarráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið að forsætisráð- herra, sem yfirmaður Byggðastofn- unar, hefði verið beðinn að beita sér fyrir því að stofnunin gerði úttekt á atvinnumálum í Ólafsvík og legði fram tillögur í framhaldi af því. Að- spurð um kæru Landsbankans og áhrif hennar á hugsanlega leigu eða kaup heimamanna á þrotabúi HÓ sagði Margrét að bæjarfélagið vildi fyrir alla muni ekki blanda sér í deil- urnar um bátasöluna, það yrði að vera mál Landsbankans og eigenda Tungufells. Starfsemi þrotabús Álafoss stöðvast í dag: Landsbanki ákveður ráð- stöfun eigna búsins í dag ÁKVÖRÐUN verður tekin í Landsbankanum í dag í málum Álafoss. Að sögn Skarphéðins Þórissonar, eins þriggja bústjóra þrotabúsins, hefur bankinn hefur lýst áhuga á að starfsemi Álafoss verði haldið áfram með einhverjum hætti. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Lands- bankans, vildi ekki staðfesta þetta í gærkvöldi, en sagði að ákvörðun yrði tekin í dag. Bankinn á m.a. veð í tækjum og birgðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.