Morgunblaðið - 10.07.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 1991
3
*
Utvarpsréttarnefnd;
Báðir umsækjendur
fái sjónvarpsleyfi
Ástæðulaust að stöðva útsendingar vinsældalistans
Útvarpsréttarnefnd hefur fjallað um tvær umsóknir um sjónvarps-
leyfi, frá Sýn hf. og Ferskum miðli hf. en það eru sömu aðilar og
reka útvarpsstöðina FM. Að sögn Þorbjörns Broddasonar, formanns
nefndarinnar, er það vilji hennar að veita báðum umsækjendum leyf-
ið. Hefur honum verið falið að kynna Sýn hf. drög að samningi en
báðar umsóknirnar verða afgreiddar samtímis. Þá sér nefndin ekki
ástæðu til að stöðva útsendingar FM-stöðvarinnar á bandaríska vin-
sældalistanum. Nefndin ályktaði einnig um útsendingar Stöðvar 2 á
efni frá bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN og verður hún kynnt
forsvarsmönnum stöðvarinnar.
í samþykkt nefndarinnar vegna
útsendinga FM á bandaríska vin-
sældalistanum kemur fram að sam-
kvæmt bréfi útvarpsstjórans eru
útsendingar á þessu efni rofnar í
12 mín. á hverri klukkustund til
að endursegja efni þáttarins og
flytja auglýsingar. Engar erlendar
auglýsingar eru lesnar. „Útvarps-
réttarnefnd telur afar mikilvægt að
höfð séu í heiðri ákvæði 3. máls-
almennri menningarþróun og efla
íslenska tungu. Það girðir þó ekki
fyrir að í sérstökum tilvikum sé
efni flutt á erlendu máli. í ljósi
þess að um útsendingu einstaks
dagskrárliðar er að ræða, að hlut-
fall hans í heildarútsendingartíma
stöðvarinnar er lágt og að hinu er-
lenda efni fylgir endursögn á
íslensku telur útvarpsréttamefnd
ekki tilefni til viðbragða af nefndar-
greinar 3. gr. útvarpslaga um þær innar hálfu.“
skyldur útvarpsstöðva, að stuðla að
Verðlækkanir á sjófrystum fiski:
Ekkí ástæða til
breyttrar stefnu
VERÐ á fiskafurðum hefur lækk-
að nokkuð á erlendum mörkuðum
að undanfömu. Útgerðarmenn
meta lækkunina svo að um
árstíðabundna sveiflu sé að ræða
Þjóðhagsstofnun:
Ahrifa verð-
lækkana
gætir fljótt
ÞÓRÐUR Friðjónsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar segir að heild-
aryfirlits yfir verðbreytingar á
sjávarafurðum erlendis sé ekki
að vænta fyrr en eftir miðjan júlí.
Að sögn Þórðar er í drögum að
þjóðhagsspá fyrir árið 1992 gert ráð
fýrir umtalsverðum verðlækkunum
á sjávarafurðum. Forsendumar sem
spáin og undirbúningur vegna fjár-
lagafmmvarps og þjóðhagsáætlunar
byggir á segir Þórður, að séu að
sjálfsögðu sífellt að breytast, og það
segi fljótt til sín þegar verðlækkanir
verði á sjávarafurðum á stóram
mörkuðum.
og ekki sé ástæða til að breyta
um markaði í kjölfar lækkananna.
Kristján Vilhelmsson hjá Sam-
herja hf.- á Akureyri segir að verð-
lækkun nú komi ekki á óvart. Verð-
ið hafi verið mjög hátt allt undanfar-
ið ár og það sé ennþá hærra en það
hafi verið fyrir ári. Kristján segir
að sveiflur á verði séu mjög eðlileg-
ar, með hækkandi verði dragi smám
saman úr neyslu sem valdi svo aftur
verðlækkunum.
Jón Guðmundsson hjá Sjólastöð-
inni hf. segist ekki geta sagt til um
hvort verðlækkanimar nú séu tíma-
bundnar eða hvort þær verði til
frambúðar. Hann segir að það sé
augljóst að reksturinn verði erfíðari
þegar verðið á framleiðslunni lækki,
en að vísu komi olíuverðlækkunin
núna á móti og dragi úr erfiðleikun-
um. Að sögn Jóns hefur afli skipa
Sjólastöðvarinnar farið mikið á Jap-
ansmarkað að undanförnu og verðið
þar hefur ekki breyst verulega.
Hjörtur Gíslason hjá Ögurvík hf.
segir að sveiflurnar í fiskverðinu nú
séu ekki meiri en gera megi ráð
fyrir. í Þýskalandi sé um árstíða-
bundna sveiflu að ræða og verðlækk-
unin nú stafi meðal annars af hita-
bylgju sem gengið hafi yfir Evrópu
norðanverða frá því á laugardag.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Frá björgunaraðgerðum í Keflavíkinni. Þangað var Mjölnir dreginn á hvolfi frá hafnargarðinum.
A innfelldu myndinni sjást kampakátir félagar að lokinni vel heppnaðri björgun. Gunnar J. Ágústs-
son kafari lengst til vinstri, Sigurður Óskar Klein kafari fyrir miðju og Björn Bjarnason aðstoðar-
maður lengst tO hægri.
Vel heppnuð björgun sand-
dæluprammans Miölnis
Keflavík.
SANDDÆLUPRAMMINN Mjölnir sem hvolfdi út af Garðskaga
24, september og sökk daginn eftir við endann á hafnargarðinum
í Keflavíkurhöfn er kominn á flot aftur og verður einhverja næstu
daga dreginn til Hafnarfjarðar. Gunnar Ágústsson kafari úr
Reykjavík tók að sér að bjarga prammanum sem nú er í eigu
Vátryggingafélagsins og var tilboð hans hagstæðara en bresks
félags sem einnig vildi taka verkið að sér.
Gunnar Ágústsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að verkið
hefði gengið eftir áætlun. „Við
reiknuðum með að það tæki okkur
um 3 vikur að ná Mjölni upp og
koma honum á réttan kjöl sem
gekk eftir. í svona aðgerðum
koma alltaf upp vandamál sem
þarf að leysa en þessi aðgerð gekk
að mestu áfallalaust. Núna erum
við að þétta og laga Mjölni áður
en við drögum hann til Hafnar-
fjarðar," sagði Gunnar ennfremur.
Gunnar og menn hans gátu
komið lofti í tanka Mjölnis og
fleyttu honum að því búnu inn í
hina eiginlegu Keflavík þar sem
hann var dreginn upp í fjöru. Þar
var notað öflugt dráttarspil frá
Gunnari Guðmundssyni auk stór-
virkra tækja til að koma Mjölni
sem nú er orðinn ansi illa farinn
á réttan kjöl. BB
Húsbréfakerfið:
Sumir fá vaxtabætur
vegua affalla en aðrir ekki
ÞEIR sem fengið hafa húsbréfy-
lán vegna eigin húsbygginga eða
vegna greiðsluerfiðleika geta tal-
ið afföll sem verða við sölu bréf-
anna til vaxtagjalda og þannig
eignast rétt til vaxtabóta, sam-
kvæmt úrskurði ríkisskattstjóra.
Þetta á aðeins við um fyrrgreinda
flokka lántakenda, sem eru þeir
einu sem gefa sjálfir út fasteigna-
veðbréf til Húsnæðisstofnunar.
. Þeir sem kaupa notaðar íbúðir
eða nýjar af byggingaraðila geta
ekki nýtt sér afföll húsbréfa til
vaxtabóta, samkvæmt gildandi
skattalögum, að sögn Ævars Is-
berg hjá ríkisskattstjóra.
Hjá embætti ríkisskattstjóra vora
ekki tiltækar upplýsingar um hve
margir framteljendur hefðu öðlast
rétt til vaxtabóta með þessum hætti
eða um hve miklar fjárhæðir þar
væri að ræða.
Ævar ísberg var spurður hvort
ekki væri sanngirnismál að þeir sem
Vegur að nýrri Markarfljótsbrú:
Lægsta tilboð er rúmur þriðj-
ungur af kostnaðaráætlun
TILBOÐ í lagningu Suðurlandsvegar frá Vorsabæ í Landeyjum að
Seljalandi og Hlíðarvegar um Hellisheiði eystri hafa verið opnuð.
Fjöldi tilboða barst í þessi verk og var eitt þeirra óvenju lágt.
Alls bárust 17 tilboð í lagningu
vegarins frá Vorsabæ að nýju brúnni
yfir Markarfljót og áfram að Selja-
landi undir Eyjaflöllum. Vegurinn
sem um ræðir er rúmir 10 kílómetr-
ar að lengd og á lagningu hans að
vera lokið 15. maí á næsta ári.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
hljóðaði upp á 96 milljónir og 730
þúsund krónur en inni í þeirri tölu
er ekki bundið slitlag, þar sem ekki
er áætlað að leggja það fyrr én á
næsta ári. Athygli vekur að lægsta
tilboðið í lagningu vegarins hljóðar
upp á tæpar 34 milljónir, sem er
aðeins um 35 prósent kostnaðará-
ætlunar. Þetta tilboð gerði Eining
sf. — Ólafur Óskarsson. Hæsta til-
boðið var upp á tæpar 100 milljónir
og var frá Dalverki sf. á Selfossi.
Það er Vegagerð ríkisins á Sel-
fossi sem fer með samninga við til-
boðsaðila. Starfsmenn Vegagerðar-
innar þar hafa að undanförnu unnið
að því að bera tilboðin saman, en
að sögn Þórhalls Ólafssonar tækni-
fræðings þar hafa engar ákvarðanir
verið teknar um að hvaða tilboði
verði gengið. Þórhallur sagði að til-
boð Einingar sf. væri vissulega
óvenju lágt. Næstu tilboð við, sem
eru frá Suðurverki á Hvolsvelli,
sagði Þórhallur aftur á móti vera
nær því sem búast hefði mátt við.
Suðurverk lagði fram tvö tilboð í
verkið, annað er upp á tæpar 46
milljónir en hitt 750 þúsund krónum
lægra. Lægra tilboðið byggir á því
að gamall gijótgarður á svæðinu
verði notaður til uppfyllingar í veg-
inn.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar á lagningu Hlíðarvegar yfir Hell-
isheiði eystri var upp á 57 milljónir
og 536 þúsund krónur. Vegurinn á
að liggja frá Hellisá að Fjallshólum
og er í kringum 8 kílómetrar á lengd.
Verkinu á að vera lokið haustið
1992. Vegarstæðið liggur mjög hátt,
frá 345 metrum og upp í 655 metra
hæð yfir sjávarmáli. Tíminn sem
verktakar hafa til framkvæmda á
heiðinni getur þess vegna orðið mjög
stuttur og segir Guðmundur Arason
verkfræðingur Vegagerðarinnar því
mikilvægt að þeir ráði yfir öflugum
tækjabúnaði.
AIls bárast tólf tilboð í lagningu
vegarins yfir Hellisheiði. Hið lægsta
er frá Gunnari og Kjartani sf. á
Egilsstöðum, 41 milljón og 700 þús-
und krónur, sem er 72,5 prósent af
kostnaðaráætlun en hæsta tilboðið
var frá Jóni Marinó Oddssyni,
Skeggjastaðahreppi. Tilboð Jóns
Marinós var upp á tæpa 91 milljón
króna. Vegagerð ríksins á Austur-
landi sér um samninga um lagningu
vegarins yfir Hellisheiði.
keyptu húsnæði á markaði gætu
einnig nýtt sér afföll til vaxtabóta.
„Það er alþingis að ákveða hvað er
sanngirni eða ósanngirni. Við eram
aðeins framkvæmdaaðilar að þeim
lögum sem við fáum í hendur,“ sagði
hann.
Framteljandi sem fengið hefur 1,5
milljón króna greiðsluerfíðleikalán,
og sætt hefur 22% afföllum við sölu
húsbréfa, getur fært sér árlega í 25
ár, sem er afborgunartími lánsins,
13.200 krónur til vaxtagjalda og
fengið rétt til vaxtabóta séu laun,
hrein eign og fjárhæð vaxtagjalda
innan þess ramma sem um þær
gilda, samkvæmt útreikningum
Ævars fyrir Morgunblaðið.
Með sama hætti gæti húsbyggj-
andi sem fengið hefði 7 milljóna
króna húsbréfalán og sætt 22% af-
föllum við sölu húsbréfanna reiknað
sér 61.600 krónur á ári í 25 ár til
hækkunar vaxtagjalda.
Hámark vaxtabóta til einstaklings
er um 122 þúsund krónur, til ein-
stæðs foreldris um 160 þúsund krón-
ur og til hjóna tæpar 200 þúsund
krónur.
Hámarksfjárhæð vaxtagjalda á
ári við útreikning vaxtabóta er hjá
einstaklingi 438 þúsund krónur, um
575 þúsund krónur hjá einstæðu
foreldri og rúmar 711 þúsund krón-
ur hjá hjónum. Dregin era frá 6%
af tekjum.
Vaxtabætur til einstaklings eða
einstæðs foreldris skerðast sé hrein
eign meiri en um 2,8 milljónir króna
og falla niður við rétt tæpar 6 millj-
ónir króna.
Hjá hjónum skerðast vaxtabætur
þegar hrein eign nemur um 4,6 millj-
ónum króna og falla þær niður við
hreina eign upp á tæpar 9,3 milljón-
ir króna.