Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 16
I MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991 ísafjörður: Sorpið urðað í Sundahöfn ísafirdi. ÍBÚI í Hnífsdal hefur kært rekst- ur sorpbrennslustöðvarinnar á Skarfaskeri í útjaðri ísafjarðar- kaupstaðar til bæjarfógetans á ísafirði og óskað opinberrar rann- sóknar á starfseminni. Bæjarfóg- eti fékk kæruna til meðferðar 22. maí og sendi þá fljótlega málið til ríkissaksóknara, þar sem það bíð- ur enn afgreiðslu. Stöðin hefur verið lokuð undan- farnar vikur vegna lagfæringa, en ákveðið hefur verið að bíða með að opna stöðina þar til rannsókn er lok- ið. Að sögn talsmanna kærunnar hef- ur stöðin verið rekin starfsleyfislaus frá árinu 1985, en þá neituðu bæði Hollustuvernd og Náttúruverndarráð að viðurkenna reksturinn. Fyrir tveim árum var sett á lagg- irnar nefnd til að leita lausna vand- ans, en hún hefur ekki enn skilað áliti. Að sögn formanns heilbrigðis- nefndar Isafjarðar er sú nefnd sér vel meðvituð um vandann, en sér enga ástæðu til að loka stöðinni á meðan ekki finnst önnur lausn. Stöðin er í eigu Bolungarvíkur, ísafjarðar og Súðavíkur og er það því athyglisvert, ef þessi þijú bæjar- félög hafa rekið mjög mengunarvald- andi starfsstöð hér í 6 ár í blóra við lög. A meðan brennslan er lokuð, er allt sorp urðað í Sundahöfn en þann- ig var öllu sorpi komið fyrir áður en sorpbrennslustöðin tók til_ starfa 1974. - Úlfar Teikning/Sigurður Valur Víðsjármynd af Viðey. I bæklingnum eru merktar inn á hana gönguleiðir og örnefni. Nýr bæklingur um Viðey ÚT er kominn nýr bæklingur um Viðey, sem sr. Þórir Stephen- sen staðarhaldari hefur ritað. Bæklingurinn hefur verið gefinn út á fjórum tungumálum; íslenzku, ensku, þýzku og dönsku. Bæklingurinn er nú í nýju broti og að sögn sr. Þóris er hann gerð- ur með tilliti til þess að fólk geti áttað sig sem bezt á fjallasýn frá Viðey, næstu eyjum, gönguleiðum og örnefnum. í því skyni er í bæklingnum stór víðsjármynd af eyjunni og fjallahringnum, sem merktar eru inn á gönguleiðir og örnefni. í bæklingnum er fjallað um náttúrufar Viðeyjar og sögu. Þar er einnig að finna upplýsingar um veitingarekstur, ráðstefnuhald og Viðeyjarferðir. Ljósmyndir í bækl- inginn tók Björn Jónsson, en teiknari er Sigurður Valur. iPQnix HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420 'ASKO' þvottavelar Bæbi framhlabnar og topphlabnar á sérstöku kynningarverbi: ASKO10003 framhl. ASKO11003 framhl. ASKO12003 framhl. ASKO 20003 framhl. ASK0 13002 topphl. ASKO16003 topphl. KR. 71.500 (67.920 stgr.) KR. 79.900 (75.900 stgr.) KR. 86.900 (82.550 stqr.) KR. 105.200 (99.940 stgr.) KR. 62.900 (59.750 stgr.) KR. 78.900 (74.950 stgr.) OG MENNING LEIKUR-NÁM-STARF Barnanámskeið Ungmennahreyfing Rauða krossins gengst fyrir tveggja vikna námskeið fyrir börn á aldrinum 8-10 ára. Á námskeiðunum fræðast börnin um ólíka menningarheima, umhverfisvernd, skyndihjálp, starfsemi Rauða krossins og margt fleira auk þess sem þau gróðursetja tré, mála og fara í leiki. Námskeiðin eru haldin á eftirtöldum stöðum: REYKJAVÍK 15/7-26/7 kl.9.00-16.00 HAFNARFJÖRÐUR 15/7-26/7 REYKJAVÍK 29/7-9/8 Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu RKÍ í síma 91-26722 »*+***<«*** UNGMENNAHREYFING RAUÐA KROSS ÍSLANDS Landspítalinn: Reykingabannið dregur úr lyfjanotkun á afeitrunardeild REYKINGABANN á afeitrunardeild Landspítalans hefur orðið til þess að draga úr lyfjanotkun sjúklinga og auk þess breytt atferli sjúklinganna. Deildin er lokuð deild og fá sjúklingar ekki að fara út fylgdarlaust og engar heimsóknir eru leyfðar nema í undantekn- ingatilfellum. Meðal dvalartími er tíu daga og nær allir sjúklingar reykja, meirihlutinn meira en einn pakka á dag. Á hinum geðdeild- um spítalans eru reykingar ekki bannaðar og þar fara sjúklingar einir út til að reykja. Þetta kemur fram í hugleiðing- um Láru Höllu Maack deildar- læknis, sem birtar eru í Lækna- blaðinu. Þar kemur fram að lyija- notkun einkum að nóttu til hefur minnkað á.þeim fimm mánuðum sem liðrnir eru frá því reykbannið tók gildi en ekki aukist eins og búist var við. „Allir næturgenglar eru sammála um, að sjúklingarnir sofi miklu betur. Þeir eru ekki lengur að rífa sig upp fímm sinn- um að nóttu til að fá sér smók og aukaskammt af lyfjum í de- sert. Nú sofí sjúklingarnir á nótt- unni.“ í stað þess að reykja tyggja sjúklingar Nicorette en það er með dýrustu tyggjóum á markaðinu og hefur lyfjakostnaður deildarinnar því ekki lækkað. ★ GBC-lnnbjnding Fjórar mismunandi gerðir af efni og tækjum til innbindlngar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 ■ 105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 Þá kemur fram að áður hafí allir sjúklingar setið inn á reykher- bergi í hring og komu helst ekki þaðan út. „Það sat hlið við hlið, reykti og horfði út í tómið í gegn- um bláa hringina. Sjúklingarnir sitja nú í fallegu dagstofunum tveim, þar sem aldrei var nokkur maður áður, tala saman eða horfa á vídeó. í gamla reykherberginu spila þeir á spil, leika aðra leiki og borðtennisborð komst skyndi- lega í notkun, og allir eru farnir að stunda áhaldaleikfimi nú.“ Öllum sjúklingum er gerð grein fyrir reykbanninu áður en þeir leggjast inn og jafnframt minntir á að þeir geti fari annað, kjósi þeir reykmeðferð. Sjúklingar kvarta mikið einkum fyrstu dag- ana og taka þær engan enda því alltaf kemur maður í manns stað. „Ættingjar sjúklinganna eru þó erfiðari. Þeir hringja stöðugt til þess að ná í einhvern til þess að rífast við út af reykbanninu, því margir sjúklingar nauða auðvitað í sínum nánustu í síma út af bann- inu. Undantekingalaust reykja þessir ættingjar sjálfir. Aðstand- endur, sem ekki reykja, hringja aldrei til að rexa út af tóbaki.“ Lára segir, að starfsfólk deildar- innar sé þreytt á að framfylgja banninu. Samneyti við aðrar deild- ir er erfítt þegar senda þarf sjúki- inga þangað í meðferð. Þeir fái undanþágu frá banninu um leið og komið er út af deildinni og sjúklingar sem komi af öðrum deildum inni á afeitrunardeild heyra þar í fyrsta sinn að reyking- ar séu bannaðar á spítalanum. Sjúklingar á öðrum geðdeildum fari sjálfír út til að reykja og þeg- ar sjúklingar af afeitrunardeild fara út í heisubótargöngu er andy- rið fullt af reyk og sígarettustubb- um frá þeim sjúklingum sem laum- ast inn í hlýjuna. Framkvæmd bannsins er erfíð við þessar að- stæður segir Lára. „Það bætir ekki úr skák, að við á 33-A ímynd- um okkur stundum, erum raunar jafn upptekin af því og sjúkling- arnir okkar, að við séum ein á báti í framkvæmd þessa banns á Landspítalanum.“ -------------- Valt á Veiði- leysuhálsi Trékyllisvík. ÞAÐ óhapp varð nú um helgina að jeppi með fimm farþegum auk ökumanns valt við Kúvíkurdal í norðanverðum Veiðlleysuhálsi. Fólkið var á leið frá Hólmavík til Norðurfjarðar. Tveir farþegar meiddust nokkuð á fæti en önnur meiðsl urðu ekki á fólki. Bifreiðin sem talin er ónýt valt einn og hálf- an hring og stöðvaðist á hliðinni við stóran stein. Að sögn Gísla Guðsteinssonar eins farþega í jeppanum missti öku- maður stjóm á bílnum er hann rann til og er jafnvel talið að felgan hafi brotnað undan bílnum með fyrr- greindum afieiðingum. Gísli segir það mestu mildi að steinninn skyldi stöðva bílinn því bratt er þar sem óhappið átti sér stað. Bifreið með ferðafólki kom fljót- lega á slysstað og sótti hjálp til Djúpavíkur. - V.Hansen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.