Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991 Systir okkar, ÞÓRUNN HRINGSDÓTTIR, Hringbraut 78, er látin. Áslaug Hringsdóttir, ísak Örn Hringsson. t Faðir okkar, JÓHANNES EGILSSON, áður til heimilis á Hraunbergsvegi 2, Hafnarfirði, lést á Ljósheimum, Selfossi, mánudaginn 8. júlí. Sigrún og Svanhildur Jóhannesdætur. Móðir mín, t BRYNHILDUR BALDVINS, X—' Kambaseli 8, áðurtil heimils Laufskógum 32, Hveragerði, lést 8. júlf. Fyrir hönd vandamanna, Dorothe Gunnarsdóttir. t Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, ÁSDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR, Hegranesi 24, Garðabæ, andaðist í Landspítalanum að morgni hins 7. júlí. Jón Guðmundsson, Arnar Þór Jónsson, Guðmundur Theodór Jónsson, Sigríður Ásdís Jónsdóttir. t MAGNEA LOVÍSA MAGNÚSDÓTTIR frá Dal, Vestmannaeyjum, Kleppsvegi 32, Reykjavík, lést 22. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Magnús Oddsson, Þórunn Ólafsdóttir, Valur Oddsson, Kristín Stefándóttir, Árnný Guðjónsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Oddur Sigurðsson. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GYÐRÍÐUR G. JÓNSDÓTTIR, Frostafold 73, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. júlí kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast henn- ar, láti heimahlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess. Óskar Júniusson, Erla L. Guðjónsdóttir, Jóhannes Þ. Guðmundsson, Þorbjörg Guðjónsdóttir, Gunnar Hinz, Guðbjörg J. Guðjónsdóttir, Crister Holm, Jóhanna L. Guðjónsdóttir, ísak G. Stefánsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORGRÍMUR KRISTINSSON fyrrverandi bifreiðastjóri, Sörlaskjóli 17, Reykjavík, lést á heimili sínu 8. júlí sl. Kristín Sigurðardóttir, Sigurður Þorgrimsson, Þorbjörg Skarphéðinsdóttir, Amalia Þorgrímsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og barnabörn. Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar ÞÓRU KEMP. Laufás, fasteignasala. Þóra Sveinsdótt- ir — Minning Fædd 20. apríl 1952 Dáin 2. júlí 1991 í dag kveðjum við Þóru, vinkonu okkar og dansfélaga, með söknuði. Við kynntumst henni fyrir um það bil áratug í gegnum sameigin- legt áhugamál okkar, dansinn. Við hittumst í viku hverri og reyndum að bæta okkur í danslist- inni, en eftir því sem árin liðu og kynni okkar jukust, fóru kaffihléin að lengjast, því félagsskapurinn varð okkur æ meira vírði. Eftir að Þóra veiktist fyrir um það bil 7 árum var aðdáunarvert að fylgjast með dugnaði hennar og styrk. Hún var ekki fyrr komin úr læknismeðferð en hún var mætt í danstíma og áköf að læra það sem hún hafði misst af. Einnig koma upp í hugann ljúfar minningar frá sumarferðum hóps- ins að Flúðum, þar sem Þóra og hennar fjölskylda létu sig ekki vaiita í glens og gaman, enda voru Þóra og Hákon ákaflega samrýnd og félagslynd hjón. Að lokum viljum við biðja góðan Guð að veita Hákoni og börnunum styrk í þeirra miklu sorg og megi minningar um góða eiginkonu og móður létta þeim erfiðar stundir. Dansfélagarnir úr dansskóla Auðar Haralds. Við sjáum að dýrð á djúpið slær þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng að þar heyrast englar tala og einn þeirra blakar bleikum væng svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt svo blaktir síðasti loginn en svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. (Dav. Stef.) Elsku Hákon, börn og aðrir vandamenn, algóður guð styrki ykkur í ykkar miklu sorg. Okkar innilegustu samúðarkveðjur. Magga Bára og Ingvi. Hún Þóra okkar er dáin. Söknuð- urinn er mikill og sár, en minning- arnar um hana lifa og þær tekur enginn frá okkur. Þóra var einstök kona sem ætíð sá jákvæðar hliðar lífsins, jafnvel þegar síðasta vonin um að fá að lifa var slokknuð. Elsku Hákon og börn, söknuður ykkar er meiri en orð fá lýst. Megi Guð vernda ykkur og styrkja í sorg- inni. Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar var oft full af tár- um. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Sigurbjörg, Halli, Gunna og Baldvin. Þóra, eða Tóta eins og við kölluð- um hana oftast er fallin frá í bióma lífsins og söknuður okkar er sár. Blikið í augum hennar bar vott um hinn skæra lífsneista og lífsþrótt, sem hún bjó yfir. Þegar við rifjum upp okkar góðu kynni, minnumst við hvernig hún virtist alla tíð vilja fanga hamingju augnabliksins, njóta hverrar ein- ustu mínútu og upplifa sem mest á hverjum tíma. En örlögin gripu í taumana og hún veiktist af þeim sjúkdómi, sem að lokum bar hana ofurliði. Við erum þess þó fullviss, að hið jákvæða lífsviðhorf hennar hjálpaði til að höndla hamingju þeirra ára sem hún fékk að njóta hér á jörð. Bjartsýni hennar, þróttur og lífsgleði var undraverð. „Blessuð og sæl, ég er komin heim!“ Þetta giaðlega ávarp hljómaði oft í eyrum okkar nokkrum dögum eftir erfiðar skurðaðgerðir þegar hún hringdi og virtist ekki kenna sér neins meins. Alltaf voru framtíðaráætlan- ir á takteinum og er ekki að efa að þar hefur Hákon verið dyggur að styðja, hana og Ieggja á ráðin um framtíðina svo að hugurinn dveldi ekki við sjúkdóminn. Þau ferðuðust talsvert og komu sér upp yndislegu heimili þar sem gott var að koma, þiggja kaffi og njóta sam- vista þegar við komum suður. Það eru ekki margir dagar síðan hún var að ráðgera að koma norður til okkar í heimsókn, en eigi má sköp- um renna. Við verðum að sætta okkur við, að Tóta er ekki lengur meðal okkar. Minningin um hana mun lifa með okkur og deyfa sökn- uðinn. Við biðjum Guð að blessa og Lokað eftirhádegi ídag vegna jarðarfarar ÞÓRU KEMP. Hárog snyrting. Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar ÞÓRU KEMP. Interco. Lokað Hárgreiðslustofa Báru Kemp, Hár og snyrting verður lokuð í dag vegna jarðarfarar. Lokað Lokað í dag frá kl. 12.00-18.00 vegna jarðarfarar ÞÓRÐAR KRISTJÁNSSONAR. Vörukaup hf., Skipholti 15, Reykjavík. styrkja hennar nánustu í sorg þefrra. Sigrún og Halli, Ingvar og Gunna. Þóra Sveinsdóttir, samstarfs- maður okkar á Blaði hf. til margra ára er látin, aðeins 39 ára að aldri. Hún hafði barist hetjulegri baráttu við illvígan sjúkdóm um margra ára skeið. Til þeirrar baráttu gekk hún með bjartsýni sína og von að vopni. Margar og erfiðar læknisaðgerðir á síðustu árum fengu ekki bugað eðl- islæga létta lund Þóru og einstakt jafnaðargeð, né heldur þann mikla dugnað og kraft sem hún alla tíð bjó yfir. Hún barðist eins og hetja þar til yfir lauk aðfaranótt 2. júlí síðastliðinn. Þóra var fædd á Akureyri 20. apríl 1952, dóttir Guðrúnar Árna- dóttur og Sveins Ólafssonar. Hún ólst upp hjá móðurömmu sinni og afa að Þverá í Eyjafirði, þeim Þóru Jónsdóttur og Árna Jóhannessyni, sem þar bjuggu. Ung að árum kynntust þau Þóra og Hákon Hákonarson, nú fram- kvæmdastjóri Blaðs hf. Hófu þau búskap í Kópavogi 1979 og giftust 1982. Þóra átti fyrir dóttur, Guð- rúnu Erlu Brynjólfsdóttur, sem nú er 21 árs að aldri, en hún á dóttur- ina Þóru, 3 ára eftirlæti ömmu sinnar. Saman áttu þau Hákon einn son, Ólaf Hauk sem nú er 11 ára gamall. Stjúpbörn Þóru, börn Há- konar, eru þau Gunnar, 18 ára, sem verið hefur á heimili þeirra Þóru og Hákonar frá 8 ára aldri, Helga 19 ára, Hákon 13 ára og Hulda 11 ára og voru þau að sjálfsögðu hinir mestu aufúsugestir á myndarlegu heimili þeirra Þóru og Hákonar, sem þau höfðu reist sér af miklum dugnaði að Funafold 59 í Grafar- vogi. Barnahópurinn sem oft á tíðum fyllti heimili þeirra var því stór og getur nærri að þar var oft og ein- att glatt á hjalla. Reyndist Þóra þeim öllum hin besta móðir og sam- einaði hópinn í leik og starfi. Þóra starfaði í hlutastarfi við innheimtustörf og dreifingu á Helg- arpóstinum frá 1984, og síðar á Pressunni. Þessi störf vann hún af mikilli alúð og dugnaði. Hafði hún umsjón með þremur borgarhverf- um, Miðbænum, Vesturbænum og Breiðholti. Myndaðist hið ágætasta samband miili hennar og viðskipta- vinanna, enda var það auðvelt að efna til vináttu við Þóru, svo ljúf kona sem hún var. Þóra starfaði allt fram á þetta ár hjá Blaði hf. af sama áhuga og dugnaði. Samstarfsfólkið saknar Þóru. Hún var einstök í allri við- kynningu, hæglát en hafði þægilega nærveru. Um ára.bil var okkur kunnugt um sjúkdóm hennar, en við höfðum von, alveg eins og hún og hennar nánustu. Nú er sú von úti. Við kveðjum Þóru og þökkum henni margar ánægjustundir. Há- koni, börnunum öllum, litlu dóttur- dótturinni, og aðstandendum öllum, sendum við hugheilar samúðar- kveðjur. Söknuður þeirra er djúpur og sár. Eftir lifir minningin um heilsteypta og eftirminnilega konu. Samstarfsfólk lyá Blaði hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.