Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991 31 fclk f fréttum SUMARFERÐ Eldri borgarar af Skag- anum heimsækja Perluna Sextíu og fimm manna hópur aldraðra frá Dvalarheimilinu Höfða og sjálfseignaríbúðum fyrir aldraða á Akranesi heimsóttu Perl- una fyrir nokkru, rétt eftir formlega opnun hússins. íbúar umræddra staða fara árlega í sumarferðir og var ákveðið að í þetta sinn skyldi útsýnishús Hitaveitu Reykjavíkur heimsótt. Halldór Skaftason veitingastjóri tók á móti gestunum og lýsti húsa- kynnum. Var gengið um Vetrar- garðinn, á jarðhæð, og skoðuð lista- verk eftir sex myndlistarmenn, sem komið hefur verið þar fyrir. Síðan var gengið út á útsýnispalla hússins á 4. hæð en þar eru útsýnisskífur með öllum íjallahringnum. Veitingar voru bornar fram á 5. hæðinni og eftir borðhald dró Eirík- ur Porsteinsson 97 ára öldungur harmónikku upp úr kassa sínum og lék nokkur lög við góðar undir- tektir, en hljóðfærið var tengt við hljóðkerfi hússins þannig að tóna- flóðið fyllti húsið. Því næst var ekið austur fyrir fjall og veitingar þegnar í Hveragerði, Þingvallahringurinn afgreiddur og síðan ekið heim um Kjósarskarðs- veg. Morgunblaðið/Ásmundur Ólafsson. J j % :l • |M| p" 1 Eiríkur Þorsteinsson 97 ára, þenur nikkuna undir Setið að snæðingi á snningsgólfi 5. hæðar. borðum. Á myndinni sem tekin var í einni bækistöð slökkviliðsins á flugvellin- um, eru f.v. Haukur Hjartarson brunavörður, Jón Guðjónsson fyrrum aðalvarðstjóri, Valur Þorgeirsson fyrrum innivarðstjóri, Sigurgeir Benediktsson fyrrum aðalvarðstjóri og Sveinn Olafsson fyrrum aðal- varðstjóri. Þá Ármann Pétursson formaður Brunavarðarfélag Reykjavíkur. Lengst til hægri er Ágúst Guðmundsson fyrrum inni- varðstjóri. í hópnum miðjum, dökkklæddur, er Stefán Eiríksson aðalvarðstjóri. FÉLAGS SKAPUR Fyrrum brunaverðir heim sóttu Keflavíkurflugvöll Dálítill hópur fyrrverandi bruna- varða í slökkviliði Reykjavíkur hefur um árabil haldið hópinn. Hitt- ast þeir reglulega, einu sinni í mán- uði, yfir sunnudagskaffi á einhvetju veitingahúsanna. í þeim hópi eru t.d. gamlir brunaverðir, sem þátt tóku í slökkvistarfinu fyrir 40 árum er Hótel ísland brann til kaldra kola eina kalda vetrarnótt. Og þeir komu við sögu í mörgum öðrum minni og stærri brunum hér í bæn- um á starfsferli sínum. Þeir hafa og gott samband við sitt gamla stéttarfélag, Brunavarð- afélag Reykjavíkur og starfandi brunaverði í slökkviliðinu. Hefur félagið boðið þessum gömlu félög- um í kynnisferðir til nágrannabæja. Slík kynnisferð var farin í vor, und- ir fararstjórn Ármanns Péturssonar varðstjóra, formanns Brunavarðar- félagsins. í þeirri ferð var farið suður á Keflavíkurflugvöll, heim- sóttar slökkvistöðvar og tæki og búnaður þeirra skoðaður. Hafði Stefán Eiríksson aðalvarðstjóri orð fyrir heimamönnum. Var ferðin í alla staði hin fróðlegasta og skemmtilegasta og móttökur „kol- leganna" rómaðar. Bamfóstra í VesMæ Óska eftir stúlku til að passa rúmlega 11/2 árs gamlan strák fyrir hádegi, frá 15. júlí til 15. ágúst. Upplýsingar í síma 27557. SUMARBÚÐIR Gott að vera í Vatnaskógi Morgunblaðið/pþ Það þarf oft að vera staðfastur fyrir þegar þarf að stjórna 90 hress- um strákum. Þarna eru nokkrir foringjarnir að benda sumarbúða- strákunum að eitthvað megi betur fara í hegðun þeirra, sem yfir- leitt er þó til fyrirmyndar. SUMAR, SOL OG /ANCASTER SÓLAR- VÖRUR ZANCASTER Sun Cosmetics

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.