Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
Eldislax í íslenskum ám:
Búast má við hruni í
einstaka laxastofnum
FLÖKKULAXAR, fiskar úr hafbeit og eldi, verða æ meira áberandi í
laxveiðiám við sunnanverðan Faxaflóa. Samkvæmt skýrslu sem Sigurð-
ur Guðjónsson og Friðjón Már Viðarsson fiskifræðingar hjá Veiðimála-
stofnun hafa sent frá sér gætu einstakir laxastofnar I versta falli hrun-
ið og búast má við að sumir þeirra séu þegar all blandaðir fiski af
eldis- og hafbeitaruppruna.
Þéttleiki eldisfiska í sex laxveiði-
ám á síðasta sumri voru: í Elliðaán-
um 35,8% af sumaraflanum, í Úlf-
arsá (Korpu) 45,2%, í Leirvogsá
42,7%, í Laxá í Kjós 25,7% og í
Botnsá í Hvalfirði 61,1%. Búast
má við að svipaðar tölur séu fyrir
hendi í Brynjudalsá í Hvalfirði, en
mikil veiðiaukning í henni á síðasta
sumri á sama tíma og vel flestar
laxveiðiár voru í slöku meðallagi
vekja grunsemdir um samsetningu
aflans.
í flestum ánum hófust rannsókn-
irnar sumarið 1988. Tölur þeirra
Sigurðar og Friðjóns benda ótvír-
ætt til þess að eldislaxinum hafi
fjölgað verulega frá ári til árs. Sem
dæmi má nefna, að í Elliðaánum
reyndist 15,9% aflans vera eldislax,
1989 var talan 30,1%. í öðrum ám
eru tölurnar hærri. Sérfræðingarnir.
benda einnig á að hættan á
stofnablöndun er enn meiri er nátt-
úrulegu stofnarnir eru í niðursveiflu
eins og þeir voru 1989 og 1990.
Athuganirnar hófust í Leirvogsá
1986 og benda tölur þaðan til þess
að eldislax hafi ekki verið vanda-
mál í ánum fyrr en 1988. 1986 var
aðeins 2,1% aflans í Leirvogsá eldis-
fiskur, en talan var komin í 10,2%
strax sumarið eftir. Athygli vekur
að Laxá í Kjós kemur lang best út
þrátt fyrir að vera miðsvæðis á
svæðinu sem athugað var. Fá sýni
eru til frá 1988 og 1989, en þau
benda til um það bil 12,2% af eldis-
laxi, en í fyrra varð stóraukning,
þá var 25,7% aflans eldislax. I
Botnsá er ástandið verst, þar var
69% aflans 1988 eldislax, 47,5%
1989 og 61,1% í fyrra, eða að með-
altali rúmlega 59% aflans.
I niðurlagi skýrslunnar segir:
„Laxastofnar við sunnanverðan
Faxaflóa og ef til vill víðar hafa
orðið fyrir innrás mikils fjölda eldis-
laxa nú í nokkur ár. Lax sem notað-
ur hefur verið til eldis í Faxaflóa
er uppruninn alls staðar af landinu.
Það er því fyllilega ástæða til að
óttast um afleiðingar stofnablönd-
unar í þessum ám þó að hrygning
hjá eldislaxinum sé eitthvað minni.
Þær afleiðingar eru því miður nei-
kvæðar. Allar líkur eru á því að þær
valdi minnkandi laxaframleiðslu þar
eð afkomendur eldislaxins eru að
jafnaði ekki eins hæfir til að lifa
við þau skilyrði sem ríkja í hverri
á og heimastofninn. Heimastofninn
þynnist hratt út í þessum ám þar
sem blöndunin er mikil og árviss. í
versta falli má búast við hruni í
ákveðnum stofnum. Slíkt tjón er
óbætanlegt um alla framtíð."
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 10. JULI
YFIRLIT: Um 400 km suðar af Dyrhólaey er 990 mb lægð, en dálít-
il hæð er norður af Vestfjörðum, við strönd Grænlands.
SPÁ Fremur hæg suðlæg eða austlæg átt. Rigning eða súld við
suður og suðaustur ströndina en annars þurrt. Sumsstaðar léttskýj-
að á Norðvestur- og Vesturlandi. Lítið eítt kólnar í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG:Austlæg átt. Úrkoma um suðaustan og
austanvert landið en annars víðast skýjað.
HORFUR Á FÖSTUDAG:Austlæg átt. Skýjað um mesta allt land
og víðast þurrt, síst þó um suðaustanvert landið.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
y. Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r / Rigning
t r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * #
10° Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 12 alskýjað
Reykjavík 20 mistur
Bergen 18
Helsinki 25
Kaupmannahöfn 22
Narssarssuaq 12
Nuuk 3
Osló 24
Stokkhólmur 27
Þdrshöfn 12
skúrlr
iéttskýjað
rigning
léttskýjað
léttskýjað
skýjað
léttskýjað
þoka
Algarve 30 hei&skírt
Amsterdam 16 alskýjað
Barcelona 29 skýjað
Berlín 22 rigning
Chicago Feneyjar Frankfurt 28 vantar vantar skýjað skýjað
Gtasgow 16
Hamborg 23 skýjað
London 19 skýjað
LosAngeles 17 alskýjað
Lúxemborg 21 hálfskýjað skýjað
Madríd 32
Malaga 30 heiðskfrt
Mallorca 33 skýjað
Montreai 13 skýjað
NewYork 23 léttskýjað
Orlando vantar
París 22 hálfskýjað
Madeira 23 skýjað
Róm 26 heíðskfrt
Vín 30 skýjað
Washington 27 skýjað
Winnipeg 14 úrkoma ígrennd
Morgunblaðið/Ingvar
Vinnuslys við Síðumúla
Vinnuslys varð við hús Félagsmálastofnunar við Síðumúla í gær er
vinnupallar hrundu. Einn maður var á pöllunum og annar varð und-
ir þeim. Báðir voru fluttir á slysadeild, en meiðsli þeirra voru ekki
talin alvarleg. Myndin er tekin þegar verið var að flytja annan mann-
inn á slysadeild.
Borgarráð:
Opnun Austurstrætis
vísað til borgars^jórnar
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum í gær, tillögu borg-
arstjóra um að vísa ákvörðun
um opnun Austurstrætis fyrir
bílaumferð, til næsta reglulegs
fundar borgarsljórnar, að loknu
sumarleyfi.
A fundinum lágu fyrir tilmæli
frá Samstarfsráði verslunarinnar,
það er Félagi ísl. stórkaupmanna,
Kaupmannasamtökunum og
Verslunarráði, þar sem eindregið
er hvatt til þess að Austurstræti
verði opnað fyrir bílaumferð á ný.
Að auki var lögð fram útskrift úr
gerðabók skipulagsnefndar, þar
sem lagt er til að austurhluti Aust-
urstrætis verði opnaður fyrir bíla-
umferð til reynslu í 6 mánuði. Er
þar gert ráð fyrir að frágangur
verði þannig að loka megi götunni
fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum
eða við sérstök tækifæri.
í bókun Siguijóns Péturssonar
(Abl.), er lagt til að borgarráð
samþykki að vísa ákvörðun um
opnun Austurstrætis fyrir bílaum-
ferð til aukafundar í borgarstjórn.
Elín G. Ólafsdóttir (Kv.) lagði fram
tillögu um að efnt yrði til almennr-
ar skoðanakönnunar meðal borg-
arbúa um farmtíð götunnar og
Kristín Á. Ólafsdóttir (H) lagði
fram tillögu um að Vallarstræti
og Thorvaldssensstræti verði lok-
uð fyrir bílaumferð að hluta um
leið og framkvæmdir við opnun
Austurstrætis hæfust.
í bókun Sigrúnar Magnúsdóttur
(B), kemur fram að áðgerðir und-
anfarinna ára í Austurstræti hafi
ekki borið árangur og er hún því
fylgjandi að Austurstræti verði
opnað fyrir bílaumferð á ný. Jafn-
framt að Vallarstræti verði lokað
allri bílaumferð og skapi þannig
aðstöðu til'útivistar.
Heimsmeistaramót
barna í skák:
Helgi Ass
Grétars-
son í 2. sæti
HELGI Áss Grétarsson er nú
í 2. sæti í opnum flokki 14 ára
og yngri á Heimsmeistaramóti
barna í skák sem haldið er í
Varsjá í Póllandi þessa dag-
ana. Jón Viktor Gunnarsson
sem keppir í opnum flokki 12
ára og yngri er í 7. - 9. sæti
í þeim flokki. Bergsteinn Ein-
arsson er í 8. - 10. sæti í opnum
flokki 10 ára og yngri.
Helgi sigraði Piotr Bobra frá
Póllandi í sjöundu umferð móts-
ins og er nú með 6 vinninga.
Pólveijinn Kaminski er í efsta
sæti í opnum flokki 14 ára og
yngri með 6 1/2 vinning. Helgi
er í 2. sæti með 6 vinninga en
næstu menn eru með 5 vinninga.
Jón Viktor tapaði sinni skák
í sjöundu umferð og er því með
4 1/2 vinning í 7. - 9. sæti í
opnum flokki 12 ára og yngri.
Bergsteinn er í með 4 1/2 vinn-
ing í 8. - 10. sæti í opnum flokki
10 ára og yngri.
Skólaskrifstofa Reykjavíkur:
Ragnar Júlíusson forstöðu-
maður kennslumáladeildar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að ráða Ragnar Júliusson skóla-
stjóra Álftamýrarskóla, forstöðumann kennslumáladeildar Skóla-
skrifstofu Reykjavíkurborgar. Tekur hann við af Ragnari Georg-
syni, sem lætur af störfum fyrir aldurssakir.
Ragnar Júlíusson, er ráðinn frá nemendur sæki skóla. Hann hefur
1. ágúst að telja og mun hann sjá seturrétt í skólamálaráði og
um innra starf grunnskólanna í fræðsluráði með tillögurétt og
Reykjavík, hafa eftirlit með innra málfrelsi en ekki atkvæðisrétt.
starfi skólanna, skólahaldi, nem- Hann gegndi formennsku í ráðun-
endaskráningu og sjá til þess að um til skamms tíma.