Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991 25 JNk oWimjrB BkJi ■kJB ■ ■ A / //''—^ / \XO /K /A—N A D iPm ■ ■r ■NIW/~\L// O//N/C^t/A/v Bifreiðastjóri - lagerstörf Óskum að ráða starfsmann til bifreiðaakst- urs og lagerstarfa. Við leitum að duglegum starfsmanni með létta lund. Þarf að geta byrjað fljótlega. Umsækjendur tali við Haildór Laxdal. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Fóstrur Óskum að ráða fóstru til forstöðu við leikskól- ann Tjarnarbæ á Suðureyri. Nánari upplýsingar gefur Snorri Sturluson, sveitarstjóri, vs. 94-6122 og hs. 94-6195. Afgreiðsluritari Félagsmálaráð Garðabæjar óskar að ráða afgreiðsluritara í hálft starí. Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Garða- bæjar. Skriflegar umsóknir sendist fyrir 15. júlí til félagsmálastjóra Garðabæjar, Kirkjuhvoli við Kirkjulund, 210 Garðabæ. Nánari upplýsingar gefur félagsmálastjóri Garðabæjar í síma 656622. Traustfyrirtæki Óskum eftir að ráða í eftirtalin störf: ★ Deildarstjóra í raftækjaverslun, þekking á raftækjum og reynsla áskilin. ★ Bókara (kven/karlmaður), Verslunar- skólapróf eða sambærileg menntun ásamt reynslu skilyrði. ★ Lagermann, reynsla æskileg. ★ Sölumenn með góða og fágaða fram- komu. ★ Afgreiðslu V2 eða allan daginn. ★ Ræstingu V2 daginn. Æskilegur aldur 25 ára og eldri. Umsóknarfrestur er til 14. þ.m. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar veittar á skrifstofu okkar. SÉRHÆFÐ RÁÐNINGARÞJÓIMUSTA LAUGAVEGI 22A (BAKHÚS) - SÍMI/FAX 620022 OPIÐ FRÁ KL. 10-12 OG 13-15 „Au pair“ - London íslensk fjölskylda, með tveggja ára dóttur og barn væntanlegt í september, sem býr í einbýlishúsi í rólegu úthverfi London, óska eftir barngóðri „au pair“ frá 15. ágúst til 15. maí 1992. Aðeins mjög samviskusamur og barngóður einstaklingur, sem hefur áhuga á að taka þátt í rólegu fjölskyldulífi, kemur til greina. Óskað er eftir einstaklingi, eldri en 18 ára, sem reykir ekki. Þeir, sem áhuga hafa, sendi umsóknir, merktar undirrituðum, í pósthólf 3271, 123 Reykjavík, fyrir 20. júlí 1991. HalldórJ. Kristjánsson og Karólína F. Söebech. Garðabær Blaðbera vantar til afleysinga í Hraunsholt og Grundir. Upplýsingar í síma 656146. HAFNARFIRÐI Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækninga- deild spítalans strax eða eftir nánara sam- komulagi. Á deildinni eru 29 sjúkrarúm með fjölbreytta starfsemi, ásamt því að sinna bráðamóttöku fyrir Hafnarfjörð og nágrenni. Endurbætur hafa átt sér stað í tækjabúnaði og bættri starfsaðstöðu. Þróun í hjúkrun er góð hvað varðar fræðslu til sjúklinga og skráningu hjúkrunar. Uppiýsingar veitir hjúkrunaríorstjóri í síma 50188. jr Ahugasamir kennarar Á einum veðursælasta stað landsins, Vop- nafirði, eru 150 nemendur sem vantar dug- mikla og áhugasama kennara í eftiríaldar námsgreinar: Almenna kennslu, kennslu yngri barna, hand- mennt, myndmennt, sérkennara og raun- greinar. Flutningsstyrkur og húsnæðishlunnindi. Hringið og leitið upplýsinga. Við bíðum við síma 97-31108, 97-31275 og 97-31458. Skólanefnd. Sinfóníuhljómsveit íslands auglýsir lausar stöðurfiðluleikara frá og með 23. september nk. til 31. ágúst 1992. Prufu- spil verður haldið í Háskólabíói þann 21. september kl. 10.00. Verkefni sem krafist er: 1. Hraður þáttur úr fiðlukonsert eftir Mozart með kadensu. 2. Þættir úr einleiksverki eftir Bach (hægur og hraður). 3. Undirbúin hljómsveitarverk (nótur afhentar í byrjun sept.) 4. Lestur af blaði. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu hljóm- sveitarinnar í Háskólabíói og í síma 622255 eftir 6. ágúst. Sinfóníuhljómsveit íslands. Gamalgróið framleiðslufyrirtæki óskar eftir að ráða laghentan starfskraft í þjónustu- og viðhaldsdeild fyrirtækisins. Leitað er að handlögnum, þjónustuliprum og röggsömum starfskrafti sem getur unnið sjálfstætt. Áhugasamir skili inn urnsókn til auglýsinga- deildar Mbl. merkta: „Þjónustulipur - 8869“ fyrir 16. júlí nk. Frá Fræðslu- skrifstofu Suðurlands Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður í Suðurlandsum- dæmi framlengist til 22. júlí. Grunnskólarnir Vestmannaeyjum. Grunnskólarnir Selfossi. Fljótshlíðarskóli. Grunnskólarnir Hvolsvelli. Meðal kennslu- greina, íþróttir og smíðar. Grunnskólinn Hellu. Meðal kennslugreina, .almenn kennsla og íþróttir. Grunnskólinn Stokkseyri. Barnaskólinn Eyrarbakka. Kennsla yngri barna, sérkennsla. Grunnskólinn Villingaholtshreppi. Reykholtsskóli. Fræðslustjóri. Hjúkrunarfræðingar Staða deildarstjóra er laus, einnig 50% staða á næturvöktum. Upplýsingar í síma 26862 frá kl. 9.00-16.00. Sólveig Jónsdóttir, hjúkrunarforstjóri. Ræstingarstjóri Laus er staða ræstingarstjóra nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Getum einnig bætt við starfsfólki á allar vakt- ir í aðhlynningu og ræstingar. Upplýsingar í síma 26222 frá kl. 9.00-12.00. Ingunn. [© IÐNÞRÓUNARFÉLAG EYJAFJARÐAR HF. Rekstrarráðgjafi Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. óskar eftir að ráða rekstrarráðgjafa til starfa hjá félaginu. Stefnt er að því að viðkomandi geti hafið störf í byrjun september nk., eða samkvæmt nánara samkomulagi. Verkefni rekstrarráðgjafa felast einkum í leit að nýjum framleiðslumöguleikum, mati á hugmyndum, ásamt með ýmiskonar við- skipta- og tæknilegri ráðgjöf við fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu. í boði er fjölbreytilegt, en um leið krefjandi starí. Leitað er að duglegum og traustum starfs- manni, sem getur haft frumkvæði að verkefn- um og á auðvelt með að umgangast fólk. Æskilegt er að rekstraráðgjafinn hafi há- skólapróf eða sambærilega menntun í grein- um er tengjast viðskiptum og rekstri, svo sem rekstrartæknifræði, viðskiptafræði eða rekstrarhagfræði. Nauðsynlegt er að um- sækjandinn hafi nokkra reynslu úr viðskipta- lífinu. Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Magnússon framkvæmdastjóri, í síma 96-26200 eða 96-11363. Skriflegar upplýsingar, er tilgreina aldur, menntún og fyrri störf, sendist Iðnþróunarfé- lagi Eyjafjarðar, Geislagötu 5, 600 Akureyri, fyrir 17 þ.m. Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.