Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991 35 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS KR. 16.900 London Enga hrað- braut í Laugardal Ég bý í nágrenni við Laugardal- inn og er afar óánægður með fram- kvæmdir þær sem nú standa yfir í Laugardalnum. Það er búinn að snúa allri jörðinni við þannig að ekki er hægt að komast inn í Laug- ardalinn vestan frá. Þetta er mjög slæmt því að einmitt nú er gott að vera í Laugardalnum í þessu góða veðri. En þar er aldrei neinn vegna þess hve erfitt er að komast þangað vestan frá. Mér er sagt að þessar fram- kvæmdir séu vegna hraðbrautar sem leggja á um Laugardalinn þar sem Holtavegur er nú. Ég skil ekk- ert í því hvernig það á að ganga upp. Það eyðileggur dalinn gjör- samlega. Er í alvöru meiningin að leggja hraðbraut fram hjá barna- skólanum. Það er stórhættulegt að mínu mati. Af þessum ástæðum vil ég enga hraðbraut í Laugardal. Þórir Oþolandi tillitsleysi Gott að búa á íslandi Flogið alla miðvikudaga. Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir. Ég skil ekki fólk sem nennir að vera að því að kvarta og kveina allan liðlangann daginn. Ég les allt- af Velvakanda og það bregst ekki að alltaf eru einhverjir að kvarta og kveina. Og ef menn eru ekki að kvarta og kveina þá eru þeir að rífast um einhver guðfræðileg efni sem venjulegt fólk eins og ég skilur hvorki upp né niður í því. En ég ætla ekki að kvarta og kveina. Það er .svo mikið sólskin úti að ég kemst þegar í sólskins- skap og mig langar til að syngja og dansa. Sólin brosir til okkar allra og vermir okkur um hjartaræturn- ar. Hún skín jafnt á káta og dapra. Þegar sólin skín hljóta allir að verða glaðir og kátir. Ég hef undanfarið verið að hugsa um hvað við séum heppin sem búum á Islandi. Hér er ekki stríð og flest- ir hafa það gott og við búum við lýðræði og frelsi og hér er ekki vöruskortur eins og í Rússlandi og engar biðraðir. Og það sem meira er: Við erum svo heppin að vera ein þjóð í einu landi og með bara ein trúarbrögð svo hér er ekki allt í upplausn og borgarastríði eins og í Júgóslavíu. Þetta ættuð þið að hafa í huga, nöldurskjóður, sem haldið að allt sé svo slæmt á íslandi. Magdalena 12, Símar 620066, 22100 og 15331 tJeMlugvajlagjöldo^torfaljalr^in^ekknnnifalirnverfiim = SGLRRFLUC Hundurinn í næsta húsi er nú búinn að halda mér vakandi nóttum saman með eilífu spangóli sínu og væli og ég verð að segja það eins og er að mér þykir þetta óþolandi. Hvað er fólk líka að gera með þessi dýr í borgum? Hundar eiga ekki heima í borgum og eru yfirleitt til óþæginda þar. Þar að auki man ég ekki betur en að hundahald hafi verið fellt í Reykjavík fyrir þremur árum með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. En það stöðvar ekki hundaeigend- uma. Þeir valsa um allt með hunda sína, oft ekki einu sinni í bandi, og kunna flestir ekkert með þessi dýr að fara. Ég veit ekki hvort fólk áttar sig á því að Reykjavík er svona hrein borg vegna þess að hér er hundahald takmarkað en í erlend- um stórborgum, þar sem slíkt er leyft veður maður hundaskítinn í ökla. Ég hef líka heyrt margar sög- ur af því að hundar bani smábörn- um þar úti, t.d. frá Bretlandi. Ég vil hvetja borgaryfirvöld í Reykjavík til að fara að vilja borg- arbúa og banna tafarlaust allt hundahald í borginni. Síðan legg ég til að þessu banni verði fylgt eftir, rétt eins og öðram lögum. Einn svefnlaus “VAPLEX= TREFJAGIPSPLÖTUR ÁVEGGI, LOFTOGGÓLF KANTSKURÐUR SEM EGG ÖRUGGTNAGLHALD A BRUNAFLOKKUR VIÐURKENNT AF ELDVARNA- EFTIRLITI RÍKISINS HOLLEISISK GÆÐAVARA ►■MBfiBlMSSON&C0 ÁRMÚLA23, SiMI 38640 SCAELET Frábær hægindastóll á frábæru verði. Margir leðurlitir. Þú þarft ekki að fara annað BÍI.DSHÖFDA 20- 112 KKVKJAVÍK-SÍMI91-681199- FAX91-673511 BESTUKAUPALISTI LYFJA Auglýsing um fylgiskjal (bestukaupalista) með reglugerð nr. 300. 7. júní 1991 um grei&slu almannatrygginga á lyfjakostnaði. 1.gr. HEITI FORM Acinil Töflur Aldomet Töflur Amilín (Delta) Töflur Apurin Töflur Artane Töflur Asýran (Delta) Töflur Atamir Hylki Atenolol (Ger.) Töflur Atenólól (Delta) Töflur Baklofen Töflur Benshexól (LR) Töflur Betasel (Delta) Töflur Betnovat Áburður Betnovat Krem Betnovat Smyrsli Cardizem Retard Forðatöflur Cardól (Delta) Töflur Címetidín (Delta) Töflur Confortid EÞ-Stílar Cuprimine Hylki Daren (Delta) Töflur Diflonid Töflur Dilangin (Delta) Töflur Donobid Töflur Dopamet Töflur Elyzol SK-Stílar Entrvdil Töflur Furix Töflur Gastran (Delta) Töflur Halóperidól (LR) Töflur Flýdrókortisón (Delta) Krem Ftydrokortison AKV. (Delta) Krem Ibúfen (LR) Töflur Ibuprofen Töflur Inderal Töflur Inderal LA Forðahylki Indocid EÞ-tílar lndometacin.(Ger.) Hylk Indómetasín (Delta) EÞ-Stílar Indomethacin (Par.) Hylki Isordil Tunqur.töflur Isordil Töflur Isordil Tembid Forðahvlki Karbamazepin Töflur Korzem (Delta) Töflur Korzem-R (Delta) Forðatöflur Lanoxin Mixtura Lanoxin Töflur Lanoxin-PG Töflur Lobac Töflur Metýldópa (Delta) Töflur Míansín (LR) Töflur Mildison Krem Monistat SK-krem Múkal (Delta) Töflur Naproxen (Delta) Töflur Naproxen (Ger.) Töflur Naproxen (LR) Töflur Narox (Delta) EÞ-Stílar Nebacetin Smyrsli Neurotol.Slow Forðatöflur Nifedipin Hylki Nuelin Retard. Forðatöflur Optimol Augndropar Parazan (Delta) Töflur Própranóiól (Delta) Töflur Renitec Töflur Salbutamol Innúðalyf Seloken Töflur Sorbitrate Töflur Sorbitrate SA Forðatöflur Sparkal Töflur Sparkal Mite Töflur Spasmerín (Delta) Töflur Spirix Töflur Tamoxifen Töflur Trimonil Retard Forðatöflur T ruxal Töflur Verapamil Töflur Visloc Töflur Voltaren EÞ-stílar Voltaren SH-Töflur Vóstar (Delta) SH-Töflur 2. gr. Auglýsing þessi er gefin út skv. 3. tl. I. mgr. g. gr. reglugerðar nr. 300. 7. júní 1991 um greiðslur almannatrygginga á lyfjakostnaði, sbr. lög nr. 67/1971, um almannatryggingar, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur niður fylgiskjal skv. augl. nr. 155/1991 sbr. og ákvæði til bráðabirgða í reglugerð nr. 300/1991. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.