Morgunblaðið - 10.07.1991, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
5
Messað í skógar-
rjóðri í Skorradal
Grund, Skorradal.
VEGNA viðgerðar á Fitjakirkju
var brugðið á það ráð að mess-
að var í skógarrjóðri á Stálpa-
stöðum sunnudaginn 7. júlí sl.
Undanfarin ár hefur verið mess-
að einu sinni á sumri í Fitjakirkju
en þrátt fyrir fámennan söfnuð
hafa messur þar verið vel sóttar
af sumarbústaðafólki úr Fitjahlíð,
ásamt safnaðarfólki. Þar sem end-
urbygging Fitjakirkju stendur yfir
Olympíuleikarnir
í eðlisfræði:
og ljóst var að þar yrði ekki messu-
fært á þessu sumri koma sóknar-
nefndarformaðurinn, Ágúst Árna-
son í Hvammi, með þá tillögu að
messa í skógarijóðrinu á Stálpa-
stöðum. Sóknarpresturinn, sr.
Agnes Sigurðardóttir, samþykkti
það og 7. júlí sl. fór messan fram
í yfir 30 stiga hita í skjóli 10 m
hárra grenitrjáa sem gróðursett
voru 1954. Þetta var mjög hátíðleg
og eftirminnileg stund sem messu-
gestir áttu þarna í lundinum, en
milli 50 og 60 manns sóttu mess-
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Frá messunni á Stálpastöðum.
Islendingur
hlaut viður-
kenningu
Havana, Kúpu, frá Hans Guðmundssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
EINN íslensku keppendanna,
Magnús Stefánsson, hlaut við-
urkenningu á 22. alþjóðlegu
Olympíuleikjunum í eðlisfræði
sem var slitið á mánudag við
hátíðlega athöfn í hátíðarsal
Lenínskólans nálægt Havana á
Kúbú. 149 ungmenni hlýddu á
Carlos Rodrigues Castilione
segja frá úrslitum keppninnar
og árangri bestu manna. í ljós
kom að 75 keppendur fengu
umbun erfiðis síns í formi við-
urkenningar og verðlauna. 13
gullverðlaun voru veitt, 10 silf-
urverðlaun og 31 bronsverð-
laun auk þess sem 21 keppandi
hlaut viðurkenningu.
íslenska piltinum, Magnúsi
Stefánssyni úr Menntaskólanum í
Reykjavík, tókst að þessu sinni að
ná viðurkenningu með 23 stigum
af 50 mögulegum eftir að hafa
leyst verklega verkefnið með
ágætum. Þar átti að skilgreina og
mæla með mæliaðferðum raf-
magnsfræðinnar raftæknilega
íhluti sem tengdir voru saman inni
í svörtum kassa.
ISUZU pallbílarnir hafa vakið sérstaka athygli fyrir fallega og nýtískulega
hönnun. Þeir eru sterkir og kraftmiklir, en samt mjúkir og þœgilegir í akstri.
CREW CAB sameinar kosti 5 manna fólksbíls með ótrúlega rúmgóðu og
þœgilegu farþegarými og burðarmikils flutningatœkis.
STAÐGREIÐSLUVERÐ: BENSÍNBÍLL KR. 1.421.000 - DÍSILBÍLL KR. 1.511.000
Efstur í keppninni var Tímor
Sjovtenko, sextán ára piltur frá
Úkraínu í Sovétríkjunum, með
48,2 stig en þétt á hæla hans
fylgdi kanadískur piltur með 47,7
stig. Mikla athygli vakti frammi-
staða kínversku piltanna fimm
sem allir hlutu gullverðlaun og
skipuðu sér þar með fremstir með-
al þátttökuþjóða. Sovéska liðið
fylgdi þó fast á eftir með þrjú
gull eitt silfur og eitt brons.
Það var ekki síður ánægjulegt
að sjá Morten Kloster frá Noregi
taka við gullverðlaunum einan
Norðurlandabúa. Sá piltur hefur
áður sýnt góð tilþrif þegar hann
hreppti silfurverðlaun á Ólympíu-
leikum í stærðfræði á síðastliðnu
ári. Af öðrum afrekum Norður-
landabúa má nefna að Matt Lund-
berg frá Svíþjóð hlaut sérstök
verðlaun fyrir frumlega lausn í
verklega verkefninu þar sem hann
sá möguleika sem verkefnishöf-
undum hafði ekki dottið í hug.
Islenska liðið, sem nú er a heim-
leið, stóð sig með ágætum og hlaut
nú viðurkenningu í fímmta sinn á
átta ára ferli. Við höldum okkur
samt neðarlega í óopinbedrum
samanburði milli þjóða, erum nú
í 26. sæti af 31 miðað við heildar-
árangur liða. I þetta sinn urðu
aðrir Norðurlandabúar nokkru of-
ar en við en ýmis Evrópulönd eins
og Júgóslavía, Belgía og Spánn
hlutu nú svipaða eða lægri stiga-
tölu.
SPORTS CAB hefur rými og
kraft burðarmikils vinnubíls og
einnig ótrúlega gott pláss fyrir
aftan framsœtin fyrir farangur
eða 2 farþega.
STAÐQREIÐSLUVERÐ:
BENSÍNBÍLL KR. 1.371.000
DÍSILBÍLL KR. 1.474.000
SPORTS CAB
Bílarnir eru fáanlegir með 2,3 I bensínvél eða 2,5 I dísilvél.
Berðu ISUZU pallbílana saman við bestu og vinsœlustu jeppana á markaðnum I dag. Þeir þola fyllilega þann
samanburð, enda eru ISUZU RODEO jepparnir, sem nú fara sigurför um Bandaríkin, smíðaðir á sömu
forsendum.
Berðu líka verð, stœrð og gœði pallbílanna saman við það sem aðrir bjóða. Komdu svo til okkar og akfu bílunum
til reynslu. Þú munt sannfœrast um að þeir eru fremstir í sínum flokki!
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ! ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN Á VEGUM FRAMLEIÐANDA.
J@utyilM)RD
M tiðs otiífig
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 og 674300