Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
15
„Okkur langar að hitta
hana og tala við hanau
Yfirlýsing í tilefni
veitingu Sakh-
arov-verðlaunanna
til Aung San Suu
Kyi frá Búrma —
eftir eiginmann
hennar, dr.
Michael Aris
Á þessari stundu þegar við
hugsum öll til Suu en erum þó svo
órafjarri henni þar sem hún er í
algerri einangrun frá umheimin-
um, hef ég fallist á að skrifa um
hana fáein orð frá eigin brjósti.
Allt frá barnæsku var Suu í sí-
fellu minnt á að hún væri dóttir
þjóðarhetju Búrma, U Aung San.
Hann er dáður sem foringi þjóðar-
innar í sjálfstæðisbaráttu hennar,
en var myrtur 1947, aðeins 32 ára
— rétt í þann mund sem sjálfstæð-
ið sem hann hafði barist fyrir og
samið um varð að veruleika. Suu
var þá tveggja ára. Það má segja
að alla tíð síðan hafi hún verið að
fræðast um föður sinn, sem hún
aldrei þekkti, og þær meginreglur
fijálsræðis, aga og sjálfsfórna sem
hann var fulltrúi fyrir.
Til þessara lífsreglna hefur hún
sótt innblástur í baráttu sína. Sú
barátta er að sönnu mjög ólík
þeirri sem faðir hennar háði — en
takmark beggja hið sama. Faðir-
inn neyddist til að beita vopna-
valdi meðfram samningslipurð
sinni í baráttunni gegn útlendum
yfirráðum, en dóttirin hefur lagt
áherslu á friðsamlegar aðgerðir til
að skapa skilyrði fyrir þjóðfélag
laust við ótta.
Áður en við giftum okkur fyrir
sem næst tuttugu árum bað Suu
mig að lofa því að standa aldrei í
vegi fyrir henni og landi hennar
eða hindra á annan hátt að henni
tækist að fullnægja því sem hún
kallar grundvallarskyldu sína
gagnvart þjóð sinni. Ég lofaði því
— enda þótt ég vissi fullvel að
einn daginn myndi hún halda heim
á leið þegar sú stund rynni upp
að hún yrði að endurgjalda þá
ástúð og það álit sem íjölskylda
hennar naut. Suu leit jafnframt
svo á að menntun hennar, sem hún
var svo lánsöm að njóta frá fimm-
tán ára aldri í Delhí og Oxford,
hefði verið undirbúningur undir
að jijóna landi sínu.
Á sama hátt og það voru hvort
tveggja forlög og fijáls vilji sem
leiddu okkur saman í hjónaband
1972, þá var það hvort tveggja
söguleg tilviljun og hennar eigin
ákvörðun sem réð því að hún sneri
aftur að hjúkra móður sinni árið
1988 — rétt í þann mund sem alda
mótmæla reið yfir Búrma og allur
almenningur krafðist breyttra
stjórnarhátta.
Það endaði með því að Suu
stofnaði nýjan stjórnmálaflokk,
Lýðræðishreyfinguna. I maí 1990
vann flokkur hennar einn glæsi-
legasta kosningasigur allra tíma,
þegar frambjóðendur hans
hrepptu 82% þingsæta í fijálsum
kosningum. Sjálf hafði hún þá
setið í stofufangelsi í tíu mánuði,
eftir að hafa farið um landið þvert
og endilangt með mannréttinda-
boðskap sinn og ákall um borgara-
lega ólöghlýðni. Vilji fólksins kom
þannig.skýrt I ljós. Búrmanska
þjóðin kaus til forystu dóttur sjálf-
stæðishetju sinnar sem loks hafði
gefist tækifæri til að snúa aftur
til heimalands síns. En búrmanska
þjóðin var jafnframt að kjósa konu
sem hafði sannað sjálfa sig í orra-
hríð stjórnmálanna með staðfestu
sinni og gáfum.
Síðan er meira en heilt ár og
ekkert bólar á því lýðræði sem
lofað var. Raunar virðist mér það
vera íjarlægara takmark en
nokkru sinni fyrr — en hver getur
svo sem um það sagt? Suu er enn-
þá lokuð einsömul inni á heimili
sínu. í þessum mánuði byijar hún
þriðja árið sem pólitískur fangi.
Valdhafar hersins hafa jafnvel
þvingað þær leifar sem eftir
standa af stjórnmálaflokki hennar
til að víkja henni úr sæti leiðtoga.
Og þeir halda áfram að beita linnu-
lausum þrýstingi til að fá hana til
að yfirgefa landið af sjálfsdáðum.
Mér og sonum okkar er gert með
öllu ókleift að hafa samband við
hana.
Það er rétt ég greiði hér úr einni
af þeim mörgu mótsögnum sem
Búrma glímir nú við, enda þótt
þessi sýnist nú harla léttvæg. Þar
eð ég er útlendingurinn* sem mun
ávallt vera kvæntur Suu, þá lýsi
ég því hér með yfir að ég hef
nákvæmlega enga löngun til að
hlutast til um innanríkismál í föð-
urlandi konu minnar. Við ákváðum
fyrir löngu að enda þótt ég muni
ævinlega standa heilshugar á bak
við hana, þá myndi ég aldrei reyna
að hafa áhrif á stjórnmálabaráttu
hennar. í þeim efnum er hún sinn
eigin herra.
Samt sem áður held ég það sé
ekki ósanngjarnt að reyna að hafa
áhrif á yfirvöldin í Búrma í þá
veru að leyfa mér og sonum okkar
að hitta hana með reglulegu milli-
bili. Er það til of mikils ætlast?
Væri það ekki í samræmi við sið-
menntaða framkomu hvar sem er
í heiminum og við þær meginregl-
ur Búddha um siðferði og samúð
sem allir Búrmabúar halda í heiðri?
Okkur langar til að hitta hana
og tala við hana. Við söknum
hennar.
Búrma verður sjálft að marka
sína framtíðarbraut. En ég held
það verði aðeins unnt þegar því
linnulausa ákalli Suu og Tjölda
annarra um raunverulegar viðræð-
ur í þágu friðar og sátta verður
svarað. Sjáíf mun hún undir eng-
um kringumstæðum gefast upp í
baráttu sinni fyrr en slíkar viðræð-
ur hefjast af alvöru, ekki fyrr en
hún er þess fullviss að Búrma
hefur tekið rétta stefnu og hún
sjálf þar með gert skyldu sína.
Aðeins þegar því marki er náð
mun hún geta helgað sig fjölskyldu
sinni á ný og sest við skriftir (eins
og núverandi yfirvöld í Búrma
hafa raunar hvatt hana til). Þetta
var það sem faðir hennar hafði
alltaf ætlað sér þegar sjálfstæðis-
baráttan væri í höfn, að draga sig
í hlé og helga sig íjölskyldu sinni
og skriftum, en ótímabær dauði
hans setti strik í reikninginn.
Það er ekki að ástæðulausu sem
faðir hennar gaf dóttur sinni nafn-
ið Aung San Suu Kyi. Ég man að
hún sagði mér nokkru áður en við
giftumst að nafn hennar þýddi:
Skínandi safn óvenjulegra sigra.
Enda þótt við eigum þess ekki
kost að bera saman bækur okkar,
þá veit ég að Aung San Suu Kyi
þiggur þann mikla heiður sem
Sakharov-verðlaunin eru í nafni
þjóðar sinnar en ekki í nafni sjálfr-
ar sín. Sigur hennar er hinn sið-
ferðilegi sigur allra þeirra sem
beijast og þjást í þágu mannrétt-
inda í Búrma og um heim allan.
* Einn stærsti „glæpur“ sem valdhafarnir í
Búrma saka Aung San Suu Kyi um er að
vera gift „útlendingi". Þýð.
FJOLSKYLDU
SUMARFRÍ
Á FJÖLLUM
KISUPÖSSUN
Tökum að okkur að gæta kisu á meðan heimilisfólkið fer ífrí.
Hafið samband við Helgu í síma 675563, eða Eyvöru í síma
50048.
Geymið auglýsinguna.
5-6 daga námskeið fyrir alla
fjölskylduna í Skíðaskólanum
Kerlingarfjöllum.
- DÁSAMLEGT SUMARFRÍ -
BROTTFARARDAGAR:
14. og 21. júlí.
5 daga námskeið 5. ágúst.
Almennt 5-6 daga námskeið 28. júlí.
UPPLÝSINGAR 0G BÓKANIR HJÁ
NÝJA SÖLUAÐILANUM OKKAR:
FERDASKRIFSTOFA
ÍSLANDS
VÍií
itb
SKÓGARHLÍÐ 18 - SÍMI 91-25855
F 4966 ELM
Sambyggður ofn/
örbylgjuofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill.
Full sjálfhreinsun,
kjöthitamælir, spegilútlit,
örbylgjuofn, tölvuklukka
og tímastillir.
FIM 6
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill, full
sjálfhreinsun, stálútlit,
tölvuklukka og tímastillir.
F 3805 ELM
Ofn
Yfir-undirhiti, blástur, grill
og snúningsgrill,
fituhreinsun, svart eða
hvítt spegilútlit,
tölvuklukka með tímastilli.
grill, fituhreinsun, svart Funahöfða 19
eða hvítt glerútlit, sími 685680
tölvuklukka með tímastilli.