Morgunblaðið - 10.07.1991, Side 18
Í8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
Mannræningjar í Kasmír;
Deilt mn hvernig tveir
Svíar komust undan
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Kasmír. Reuter.
TVEIR Svíar sem voru í þrjá mánuði í haldi hjá herskáum múslímum
frá Kasmír komu til Stokkhólms á sunnudaginn. Sænska utanríkis-
þjónustan hefur haldið því fram að mönnunum tveimur hafi verið
sleppt vegna mikils þrýstings á mannræningjana af hennar hálfu,
en mennirnir vísa slíkum staðhæfingum algerlega á bug og segjast
hafa komist undan af eigin rammleik.
Reuter
43 mánaða uppreisn
Ungur Palestínumaður stekkur hér yfír logandi vegartálma í Assaw-
ani-hverfínu í austurhluta Jerúsalem í gær er þess var minnst að
43 mánuðir eru liðnir frá því uppreisn Palestínumanna á herteknum
svæðum ísraela hófst.
Mennirnir tveir, Johan Jansson
og Jan-Ole Loman, eru báðir verk-
fræðingar að mennt. Þeim var rænt
fyrir rúmum þremur mánuðum af
flokki múslíma sem berst gegn ind-
verskum yfírráðum í Kasmír. Að
eigin sögn yoru þeir í mjög strangri
gæslu allan tímann. Aðfaranótt
laugardags voru þeir látnir vera
einir í herbergi í fyrsta sinn og
gripu þeir tækifærið og skutust út
um gluggann. Þeir sögðu að mann-
ræningjamir hefðu verið í næsta
herbergi og það væri skjótræði sínu
einu að þakka að þeir komust und-
an. Eftir að hafa gengið 25 km
komu þeir að lögreglustöð og þar
með lauk hrakningum þeirra.
Sænska utanríkisþjónustan hefur
eignað sér heiðurinn af flótta fang-
anna og haft var eftir Pierre Sc-
hori, aðstoðarmanni utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, að „lausn" fang-
anna væri sigur fyrir þá stefnu ut-
anríkisþjónustunnar að beita hóg-
værum aðferðum sem lítið færi fyr-
ir. Hann telur að föngunum hafi
Sovétríkin:
Umbótasinnar ætla
að stofna nýjan flokk
Moskvu. Reuter.
FYLKING svokallaðra lýðræðissinnaðra kommúnista innan rússneska
kommúnistaflokksins ætlar að stofna nýjan flokk sem mun leggja
áherslu á velferð almennings, að því er Irína Vínogradova, einn leið-
togi fylkingarinnar, sagði í gær.
Að sögn Vínogradovu fínnst um-
bótasinnunum sem standa að stofnun
flokksins ganga allt of hægt að koma
umbótum á í landinu og kenna þeir
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta um
að hluta. Þeim finnst að hann hafi
leyft harðlínu- og afturhaldsöflunum
innan kommúnistaflokksins að ná
þar undirtökum.
Flokkurinnn mun heita Lýðræðis-
flokkur rússneskra kommúnista og
er Vínogradova bjartsýn á að hann
muni hljóta mikið fylgi. Fylkingin
sem stendur að honum telur sig hafa
Sovéskar forsetakosningar:
Jeltsín styður Gorbatsjov
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
ætlar að styðja Míkhaíl Gorbatsj-
ov í sovéskum forsetakosningum
haldi hann áfram að virða sjálf-
stæði hinna einstöku lýðvelda
Sovétríkjanna. Skýrði sovéska
fréttastofan TASS frá þessu í
gær.
Þeir Jeltsín og Gorbatsjov hafa
löngum eldað grátt silfur saman og
barist um völd og áhrif í Sovétríkj-
unum. Þeir hafa þó friðmælst að
undanförnu og er sú ákvörðun Jelts-
íns að styðja Gorbatsjov í forseta-
kosningum talin mjög mikilvæg
fyrir Gorbatsjov sem á í harðri bar-
áttu gegn harðlínumönnum í
kommúnistaflokknum.
Stefnt er að því að halda forseta-
kosningar í Sovétríkjunum eftir að
búið er að skrifa undir nýjan sam-
bandssáttmála um framtíðarsam-
skipti lýðvelda Sovétríkjanna og
miðstjórnarvaldsins í Moskvu.
4 milljónir stuðningsmanna. „Við
munum einkum höfða til þeirra sem
eru andvígir því að afturhaldsöfl nái
undirtökum í kommúnistaflokknum,
þeirra sem vilja róttækar efnahags-
umbætur og þeirra sem kusu Jelts-
ín“, sagði Vínogradova. Hún sagði
einnig að kommúnistaflokkurinn
myndi líða undir lok I núverandi
mynd, en „hvenær það verður veit
enginn".
Það er e.t.v. til marks um þessa
þróun að nýja stjórnmálahreyfingin
sem stofnuð var í síðustu viku í Sov-
étríkjunum, Lýðræðislega umbóta-
hreyfingin, hefur styrkt sig í sessi.
í gær birti sovéska blaðið Izvestija
yfírlýsingu frá áhrifamiklum hópi
menntamanna og ffamkvæmdastjóra
iðnfyrirtækja þar sem lýst var yfír
stuðningi við hreyfínguna. Á meðal
þeirra 32 sem skrifuðu undir yfirlýs-
inguna voru áhrifamenn innan
kommúnistaflokksins.
Alsír:
Mamskir
leiðtogar
í haldi
Algeirsborg. Reuter.
LEIÐTOGI íslömsku frelsis-
fylkingarinnar í Alsír var
handtekinn í fyrrakvöld og
um leið dregið mikið úr við-
búnaði hersins í höfuðborg-
inni, Algeirsborg. Eru nú
þrír helstu frammámenn
fylkingarinnar í haldi en
þeir eru sakaðir um að
hvelja til ofbeldis og upp-
reisnar gegn stjórnvöldum.
Mjög agasamt hefur verið í
Alsír í meira en mánuð og ríkir
enn umsátursástand í sumum
stærstu borgunum. Hefur ísl-
amska frelsisfylkingin, sem
vann mikinn sigur í sveitar-
sjórnarkosningum í fyrra, efnt
til mótmæla gegn stjómvöldum
og verkfalla og krafist þess
jafnframt, að kosningalögum
verði breytt. Almennar þing-
kosningar áttu að fara fram í
Alsír í síðasta mánuði en Chadli
Benjedid forseti frestaði þeim
vegna ástandsins í landinu.
Stjórnarflokkurinn, Þjóðlegi
frelsisflokkurinn, hefur farið
með völd í Alsír síðan landið
varð sjálfstætt, 1962, og hefur
löngum aðhyllst sósíalska
stjórnarhætti. Á því hefur þó
orðið veruleg breyting og er
stjórnarflokkurinn nú helsta
von miðstéttarinnar og þeirra,
sem vilja aukiðfijálsræði í vest-
rænum anda. Islamska frelsis-
fylkingin vill hins vegar, að
samfélagið allt lúti lögum trúar-
innar. Sækir hún fylgi sitt mik-
ið til fátækasta fólksins og
ungra atvinnuleysingja, sem
fínnst sér flestar bjargir bann-
aðar.
verið „leyft“ að sleppa, og þakkar
það ötulli vinnu utanríkisþjón-
ustunnar á bak við tjöldin.
Þegar þessar fullyrðingar voru
bornar undir Jansson, annan gísl-
anna, sagði hann: „Það eitt er um
þetta að segja að farið hefur afskap-
lega lítið fyrir aðgerðum utanríkis-
þjónustunnar. Allt annað eru hel-
berar getgátur.“ Hann sagði að
þeim hefði ekki verið leyft að flýja,
heldur hefðu þeir gripið eina tæki-
færið sem gafst.
Bæði Hægri flokkurinn og Þjóð-
arflokkurinn í Sviþjóð hafa ásakað
Schori og Sten Andersson utanrík-
isráðherra um að nota málið til
framdráttar eigin flokki, Jafnaðar-
mannaflokknum.
■ KAUPMANNAHÖFN - Ríkis-
saksóknaraembættið í Danmörku
tilkynnti á mánudag að ákveðið
hefði verið að ákæra danska eigend-
ur og norskan skipstjóra farþega-
feiju sem kviknaði í í fyrra, með
þeim afleiðingum að 158 manns
létust, fyrir að bijóta danskar regl-
ur um öryggi á sjó. 500 manns
voru um borð feijunnar Scandina-
vian Star þegar kviknaði í henni.
Hún var á leið frá Ósló til Jótlands
en var enn í norskri landhelgi þegar
eldurinn braust út. Ferjan var skráð
á Bahama-eyjum en margir í áhöfn
hennar voru frá Filippseyjum og
Portúgal. Aldrei hafði verið haldin
brunaæfing um borð og gátu yfír-
og undirmenn varla talað saman
vegna tungumálaerfiðleika.
■ MOSKVU - Tveir sovéskir her-
menn skutu átta aðra hermenn til
bana á laugardag og særðu fímm
til viðbótar með vélbyssum sem
þeir höfðu stolið úr vopnageymslum
í þorpinu Jakútíja í Rússlandi, að
sögn óháðu fréttastofunnar Inter-
fax. Hermennirnir sem urðu fyrir
árásinni voru að horfa á sjónvarp
þegar atburðurinn varð. Árásar-
mennirnir hafa enn ekki fundist.
I MANAMA - Eftirlitsmenn á
vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
fara til Iraks innan tíðar til að full-
tryggja að ekki séu neinar lang-
drægar eldflaugar í landinu á
stöðum sem ekki hafa verið skoðað-
ir enn. Douglas Englund, hers-
höfðingi í Bandaríkjaher, sem fór
fyrir nefnd á vegum SÞ sem í síð-
ustu viku hafði umsjón með eyðingu
61 íraskrar eldflaugar, sagði í sam-
tali við Reuter-fréttastofuna að nið-
urstaða nefndarinnar væri sú að
ekki væru neinar langdrægar eld-
flaugar lengur í írak en ástæða
væri til að kanna það enn betur.
★ GBC-Skírteini/barmmerki
fyrir: félagasamtök, ráðstefnur,
starfsmenn fyrlrtækja, o.m.fl.
Efni og tæki fyrirliggjandi.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
Meintar kjarnorkutilraunir íraka:
Taldir beita aðferð Bandaríkja-
manna frá fimmta áratugnum
Lundúnum. The Daily Telegraph.
BUNAÐURINN, sem talið er að írakar noti til að vinna úran í
kjarnorkusprengjur, var upphaflega notaður í Bandaríkjunum í
heimsstyijöldinni síðari til að framleiða sprengjuna, sem varpað
var á Hiroshima árið 1945.
Þegar eftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna voru að kanna herstöð við
alþjóðaflugvöllinn í námunda við
Bagdad í lok júní sáu þeir gríðar-
stóra kassa, sem taldir voru inni-
halda búnað til að vinna úran í
kjarnorkuvopn. Þeim var meinað
að skoða kassana og síðar var þeim
komið undan á 60 vörubílum. Eftir-
litsmönnunum tókst að taka myndir
af farminum áður en hermenn komu
að þeim, miðuðu á þá byssum og
hröktu í burtu. Þeir segjast sann-
færðir um að búnaðurinn sé til
kjamorkuvopnaframleiðslu og
einskis annars.
Talið er að þessi búnaður sé sömu
gerðar og sá sem vísindamenn í
Kaliforníuháskóla notuðu í síðari
heimsstyijöldinni og nefndur hefur
verið kalutron. Hætt var að nota
slíkan búnað í nútíma úranverum
fyrir löngu og tekin var upp mið-
flóttaaðferðin svokallaða. Hún
byggist á því að úran hexaflúoríð,
eða úran í loftkenndu ástandi, er
látið snúast á miklum hraða í gríð-
arstórri steypiröð, eða samstæðu
tækja sem taka við efninu hvert
af öðru með stigv^xandi áhrifum.
Þessi aðferð krefst hins vegar mik-
illar tækniþekkingar, sérhæfðs bún-
aðar og gífurlegs fjármagns, sem
Irakar hafa ekki yfir að ráða. Sér-
fræðingar segja að það sé fljótt að
spyijast þegar ríki reyna að tileinka
sér þessa tækni.
Hins vegar er erfíðara að fylgj-
ast með tilraunum með gömlu að-
ferðinni, sem írakar eru taldir nota.
Með henni er rafsegulsviði beitt
til að auðga úran-235, sem er
geislavirk samsæta úrans og notuð
í kjarnorkuvopn. Kalutronið líkist