Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
Ferðamannaslóðir vanbúnar til að
taka við þungri umferð;
Dimmuborgir og Suð-
urárbotnar í hættu
vegna átroðnings
Vaxandi hætta á uppblæstri þar
sem varanlegar slóðir vantar
NOKKUÐ er um að þeír sem ferðast ofan byggða leggi leið sína í
Suðurárbotna. Talið er að aukin umferð bíla um vegleysur þangað
geti hæglega komið af stað gróðureyðingu. Dimmuborgir eru í veru-
legri hættu af átroðningi miklu fleiri ferðamanna en staðurinn þolir
að óbreyttum aðstæðum. Tröllslegir bryndrekar fara um viðkvæmar
slóðir á hálendi íslands. Mikið skortir á að ferðamönnum sem koma
með bíla sína til íslands séu gefnar nægilega góðar leiðbeiningar um
umgengni við landið.
„Segja má að ferðamannastraum-
ur í Suðurárbotna hafi aukist nokk-
uð, en satt að segja hafa menn lítinn
áhuga á að hann aukist, fólk er ekk-
ert hvatt til að fara þangað og það
er eiginlega þegjandi samkomulag
um að hafa það svo, að minnsta
kosti meðan slóðir eru ekki bættar
mikið,“ sagði Hjörleifur Sigurðarson
á Grænavatni í Mývatnssveit í sam-
tali við Morg^unblaðið. „Ég vil ekki
segja að land hafi nú þegar spillst
af þessari umferð en þó er það í
áttina. Efst við ána er dálítið blautt
og viðkvæmt, en það skiptir í sjálfu
sér ekki miklu máli í þurrkum eins
og núna að undanförnu. Hins vegar
er keyrt eftir móum uppeftir. Þar er
mjög þurrt og þar sem slóðin er kom-
in niður úr grasrótinni er byijað að
blása. Það er það sem menn eru
aðallega hræddir við.“
Hjörleifur sagði að umferð í Suð-
urárbotna hefði ekki verið mikil hjá
Grænavatni í sumar, hún væri að
jafnaði mest í ágúst. Hins vegar
væri mikið farið upp frá Svartár-
koti. Þar lægi einkum leið útlend-
inga, en þar væru aðallega á ferð
Þjóðveijar, Austurrikismenn og
Svisslendingar.
Um ferðamennsku í Mývatnssveit
taldi Hjörleifur að hún hefði verið
heldur minni í ár en tvö þau síðustu,
allt þar til fyrir viku eða svo þegar
allt hefði fyllst og fjöldinn orðið
hrikalegur. Þáttur íslendinga væri
sýnilega síminnkandi í þessum
manngrúa. Þó hefði hann orðið var
við að Akureyringar væru farnir að
fara sunnudagstúra í Mývatnssveit
eins og í gamla daga og það væri
gleðileg endurvakning gamalla siða.
Hins vegar væri mjög áberandi um-
ferð stórra rútubíla með fólk af stóru
ferðamannaskipunum. Þeir kæmu
akandi frá Akureyri, fólki væri hleypt
út við Dimmuborgir, færi á klósett
í Selinu og sumt í kaffi á hótelinu,
væri svo jafnan hleypt út í Náma-
skarði og síðan ekið með það í burtu.
Þetta væri svona yfírborðsferða-
mennska sem skildi lítið eftir, hvort
tveggja hjá neytendum og hinum sem
annast ferðaþjónustu í sveitinni.
Steinþór Þráinsson, landvörður í
Mývatnssveit, hafði svipaða sögu að
segja af ferðamannafjöldanumá-
„skipadögum." Hann sagði að það
skildi eftir sig sýnileg spor þegar
þessar þúsundir manna færu um við-
kvæmar slóðir. Að vísu væri sýnileg
bót í máli að útbúa aðstöðu til að
hlífa landinu við sporum manna.
Bjargey III bætist í hópinn
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þeir feðgar Óli Hjálmar Ólason og Óli Bjarni Ólason í Grímsey festu fyrir skömmu kaup á nýlegum bát,
Sóma 800, sem hlaut nafnið Bjargey III. Fyrir eiga þeir feðgar Bjargeyju og Bjargeyju II. Bátinn keyptu
þeir frá Hafnarfirði og ætla að gera út á handfæri í sumar, en þeir hafa lokið við að veiða kvóta eldri
bátanna. Til að sitja ekki auðiim höndum sumarlangt eða fram að næsta kvótaári, 1. september, ákváðu
þeir að kaupa þriðja bátinn. í síðustu viku sigldu þeir inn til Akureyrar til að lagfæra bátinn örlítið og
einnig voru settar á hann fjórar nýjar DNG-færavindur, en þær hafa reynst þeim Grímseyjarfeðgum vel.
Þannig hefði verið reynt að gera
gangstíga og stiga upp á einhveija
af Skútustaðagígum og það væri til
mikilla bóta. Hins vegar sagði hann
að í Dimmuborgum blöstu við vand-
ræði, þar væri mikil hætta af átroðn-
ingi. Einhveijar áætlanir væru til um
að leggja gönguleiðir malbiki eða
timbri þar, en það væri nánast ófram-
kvæmanlegt. Sjálfur sagðist hann
hafa stungið upp á því að Dimmu-
borgir yrðu aðeins opnar á ákveðnum
tímum dags, til dæmis frá 10 að
morgni til 6 að kveldi. Þar yrði hóp-
um svo hleypt inn á hálftíma- eða
klukkutíma fresti. Flytja mætti gest-
um fyrirlestur uppi á Borgarási og
síðan hefðu unglingar, gjarnan
skólafólk, það hlutverk að fylgja
hveijum hóp á ferð um Borgirnar.
Þama gæti skapast vinna fyrir 4 til
5 og mundi fljótt borga sig ef hver
maður greiddi fyrir þetta 50 til 100
krónur. Svona væri gert víða í út-
löndum og hlyti að mega gera hér.
Af þessu fengist auk heldur fé til
að vinna að lagfæringum á svæðinu.
Mjókurbikarkeppni KSI - Akureyrarvdllur í kvöld kl. 20.
Allir á völlinn í kvöld
SIEMENS
HYUNDAI
(ÍVlWÖR?
V iM BATASMIDJ*
Annars sagði Steinþór að ferða-
menn væru sýnilega mun færri en í
fýrra. „Hér sjást tii dæmis' varla
neinir puttalingar núna. Ýmist eru
þetta stórir hópar útlendinga skipu-
lagðir hér innanlands eða ennþá
stærri hópar á vegum erlendra aðila.
Að vísu hefur orðið stórmikil fjölgun
á einu sviði. Það eru húsbílar, sem
hrannast nú að, og eitthvert brýn-
asta mál í að bæta aðstöðu fyrir er-
lenda ferðamenn hér og annars stað-
ar á landinu hlýtur að vera að gera
eitthvað til að koma þessum húsbíl-
um fyrir. Þeir stoppa nærfellt hvar
sem er og eru yfir nótt, en þar sem
aðstaða er engin vill brenna við að
fólk keyri í burtu og skilji ruslið sitt
eitt eftir að morgni. Þetta getur orð-
ið verulegt vandamál ef ekki er strax
reynt að útbúa aðstöðu fyrir þetta
lag á ferðurn." Þetta húsbílafólk er
sem fyrr segir aðallega útlendingar.
íslenskir húsbílar eru frekar við Ás-
byrgi og þar austur um.
Steinþór sagði að dálítið væri gert
af því að sporna við því að fólk færi
um viðkvæm svæði á bílum. Þess í
stað væri reynt að hvetja fólk til
gönguferða, en árangur væri mis-
jafn. Hann nefndi sem dæmi leiðina
suður frá Lúdent, suður Þrengsla-
borgir og um Seljahjallagil í Blá-
hvamm. Þarna hefði nokkuð verið
reynt að troðast á bílum en hefði að
mestu tekist að stöðva það með hliði
við Hverfjall. Þarna væri hins vegar
kjörin dagsgönguferð, ákaflega fal-
leg.
Kári Kristjánsson, landvörður í
Herðubreiðarlindum, sagði að ferða-
mannastraumur þar væri ekki telj-
andi mikill, að vísu væri nokkuð
snemmt að áætla hvort um breyting-
ar væri að ræða frá síðasta ári, það
skýrðist ekki fyrr en lengra liði á
mánuðinn. Hann sagði að nokkuð
vel gengi að fá fólk til að fara að
reglum um umgengni við iandið, en
þó þyrfti ævinlega að fylgjast vel
með utanvegaakstri og því að fólk
settist að á slóðum þar sem slíkt
væri ekki heimilt. Kári sagði greini-
legt að fólk fengi ónógar upplýsingar
um hálendisferðir. Sýnilega þyrfti
að stórauka kynningu á þessu, til
dæmis um borð í feijunni, þannig
að fólk væri búið að kynna sér regl-
ur og skipuleggja ferðir í samræmi
við þær áður en lagst væri að bryggju
á Seyðisfirði. Iðulega bæri fólk fyrir
sig ókunnugleika ef út af reglum
bæri. Það bitnaði svo á ferðafólkinu
sjálfu ef þyrfti að vísa því burt af
náttstað en endanlega kæmi utan-
vegabröltið þó mest niður á landinu
sjálfu, skemmdin væri þegar orðin.
Kári sagði að mjög áberandi farar-
tæki væru húsbílar, afar stórir trukk-
ar, nánast hálfgerðir skriðdrekar sem
kæmust um allt en ekki endilega
eftir til þess gerðum slóðum. Til
dæmis hefði fyrir skemmstu komið
mikið ferlíki, svo breitt að eyðilagst
hefðu þijú dekk á því að nuddast í
gijót í vegköntum. Varla hefði verið
hægt að stýra þessu tæki, hefði þurft
að mjaka því aftur og fram til að
komast fyrir beygjur. Fátt vantaði á
svona vagna annað en eldflaugar svo
þeir minntu á eyðimerkurstríð suður
undir Persaflóa. Enda þótt þetta
væri ekki dæmigerð lýsing á farar-
tækjum sem kæmu í Herðubreiðar-
lindir væri um að ræða mjög mikið
af tröllslegum trukkum og á öllu
greinilegt að fólki gæfust ekki réttar
og nógu góðar upplýsingar um það
hvernig ferðast má um landið án
þess að valda spjöllum.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Notið góða veðrið til úti-
veru með F.í.
Miðvikudagur 10. júlí
kl. 20
Kvöldsigling um sundin blá.
Siglt verður að Engey. Athugið
að vegna aðstæðna verður ekki
hægt að fara í land í eyjunni að
þessu sinni en þess í stað verð-
ur höfð viðdvöl [ Viðey í baka-
leið. Verð 800 kr., frítt f. börn
m. fullorðnum. Brottför frá Við-
eyjarbryggju Sundahöfn.
Helgarferðir 12.-14. júlí
1. Þórsmörk - Langidalur. Gisti-
aðstaðan í Skagfjörðsskála
Langadal er ein sú besta i
óbyggðum. Góð leið til að kynn-
ast Mörkinni er þátttaka í ferð-
um Ferðafélagsins. Gönguferöir
við allra hæfi. Við minnum enn-
fremur á miðvikudags- og
sunnudagsferðirnar. Tilvalið að
eyða nokkrum sumarleyfisdög-
um með dvöl milli ferða.
2. Landmannalaugar - Eldgjá.
Góð gisting í Ferðafélagsskálan-
um. Nú er búið að opna í Eldgj-
ána. Gögnuferðir.
3. Þórsmörk - Fimmvörðuháls
- Seljavallalaug. Gengið úr
Mörkinni um þessa vinsælu leið
að Skógum. Bað í Seljavallalaug
að lokinni göngu. Gist í bórs-
mörk,
4. Eiríksjökull - Surtshellir.
Göngu á Eiríksjökul gleymir eng-
inn. Tjöld.
„Laugavegurinn" Nokkur sæti
laus í 6 daga ferð sem hefst
núna á föstudagskvöldið kl. 20.
Upplýs. og farm. á skrifst.,
Öldugötu 3, símar: 19533 og
11798. Pantið og takið miða í
helgarferðirnar fyrir hádegi á
föstudag.
„Fanna skautar faldi
háum“
Munið sunnudagsferðina 14. júlí
á Skjaldbreiö í tilefni þess að 150
ár eru talin liðin frá því að Jónas
Hallgrímsson orti kvæðið „Fjallið
Skjaldbreiöur". Brottför kl. 09 frá
BSÍ, austanmegin. Gerist félagar
og eignist nýju árbók Ferðafé-
lagsins: Fjalllendi Eyjafjarðar að
vestanverðu II.
Ferðafélag Islands.
félag fyrir þig.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
H ÚTIVIST
GRÓFINNI l • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14606
Miðvikudagur 10. júlf
Kl. 20: Kvöldganga
Hafravatn - Reykjaborg
Gengiö frá Hafravatnsrétt upp á
Reykjaborg en þaöan er mjög
gott útsýni yfir Mosfellsdalinn
og upp á Kjalarnes. Þá verður
gengiö niður með Varmá. Þetta
er létt ganga fyrir alla fjölskyld-
una.
Helgin 12.-14.7
Básar á Goðalandi
Fimmvörðuháls - Básar
Þjórsárdalur - Hekla
Tjaldað [ Þjórsárdal. Gengiö á
Heklu á laugardag, að Háafossi
og í Gjánna á sunnudag. Sund-
laug í nágrenninu. Fararstjórar.
Laugardagur 13. júlí
Kl. 08 Hekla
Gengið verður upp frá Fjallabak-
inu við Rauðuskál og með Heklu
gjánni og upp á topp. Þá verður
beygt vestur af fjallinu og komiö
niður á Bjalla við Næfurholt.
Gangan tekur um 8 til 9 klst. og
er leiöin um 20 km. Nokkuð bratt
á fótinn en hvorki klifur né klöng-
ur. Sjáumstl
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
„Trúboð" í dag. Gestir frá
Kanada taka þátt. Allir hjartan-
lega velkomnir.
(fffl SAMBAND (SLENZKRA
■SjaPs KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58, í kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður: Karl Jónas Gísla-
son. Allir velkomnir.
NY-UNG
Tany,Miájiiai
Samvera fyrir fólk á öllum aldri
í kvöld í Suðurhólum 35.
Bænastund kl. 20.10. Samveran
hefst kl. 20.30. Athugið breytta
dagskrá. Afríkubúarnir Kjartan
og Valdís koma [ heimsókn.
Eftir samveru: Söng- og lofgjörð-
arstund.
Ungt fólk á öllum aldri velkomið.