Morgunblaðið - 10.07.1991, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKÚDAGUR 10. JÚLÍ 1991
Þórður Kristjáns
son - Minning
Fæddur 13. janúar 1924
Dáin 30. júní 1991
Þórður mágur minn er dáinn.
Andlát hans átti sér engan aðdrag-
anda. Fréttin barst snögg sem elding
og spurningarnar brjótast um. Af
hverju hann? Af hverju núna? En
því þessar spurningar? Erum við að
vonast eftir aðdraganda? Óskum við
eftir veikindum eða sjúkralegu til
að við séum viðbúin að fá fréttina?
Erum við nokkurn tima viðbúin?
Þórður var kvæntur Pálínu systur
minni. Eignuðust þau 3 börn, Báru,
Hafstein og Laufeyju. Þórður var
Snæfellingur, en hún er Húnvetning-
ur. Þau bjuggu alla tíð í Reyfcavík.
Hús þeirra var svo að segja mitt
annað heimili frá tólf ára aldri, og
síðar fjölskyldu minnar. Voru mót-
tökur alltaf jafn hlýjar frá fyrsta
degi til hins síðasta.
Þórður var sérstaklega gestrisinn
og hjálplegur. Hann var alltaf tilbú-
inn að leysa hvers manns vanda.
Hann hafði einstakgJisefííeika til að
láta manni finpatít að maður væri
sérstaklega velkominn. Það var alla
tíð mjög gestkvæmt hjá Þórði og
Pálínu og enginn kom svo í heim-
sókn að Þórður væri ekki undir eins
kominn að útidyrunum til að taka á
móti gestunum. Það gerði hann af
svo mikilli hlýju að bróðir eða faðir
hefðu ekki gert það betur. Slík fram-
koma er aðeins á góðra manna færi.
Hann var ljúfur í lund og sérstak-
lega bamgóður.
Þórður var einn af sautján systk-
inum og eru mörg þeirra dáin. Ég
trúi að hann sé nú á meðal fjöl-
skyldu og vina, og að á grænum
grundum sé hann í leik við litlu börn-
in sem á undan fóru.
Minningarnar um Þórð og þá hlýju
og alúð sem hann sýndi, í hvert skipti
sem ég kom á heimili systur minnar
og hans, mun ég alltaf geyma. Hann
var mér bæði sem faðir og bróðir.
Um leið og ég kveð mág minn
hinstu kveðju, með þakklæti og
söknuðu, bið ég góðan Guð að gæta
hans.
Pöllu og systkinunum, Báru, Haf-
steini og Laufeyju óska ég alls hins
besta um alla framtíð. Megi endur-
minningarnar um yndislegan eigin-
mann og föður varpa birtu á líf
þeirra.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Pabbi er dáinn. Mig langar að
kveðja hann með örfáum orðum en
þó ekki kveðja því hann mun vera
með mér áfram í anda, og lifa í
huga mínum. Ég var pabbastelpa
sem lítið barn og á margar góðar
minningar um hann.
Hann var alltaf ljúfur og góður
pabbi og þegar ég varð eldri gladd-
ist hann með mér á góðum stundum
en huggaði ef ský dró fyrir sólu.
Góð kona sagði við mig að hún
sæi eitthvað fallegt við dauðann.
Ég hef mikið hugsað um orð hennar
og reynt að sjá þetta með hennar
augum og vissulega má þakka fyrir
þegar fólk lifir hresst og heilbrigt
til síðasta dags.
En dauðinn er alltaf erfiður og
sorgin sár engu að síður.
Pabbi las mikið siðustu vikurnar
og þá bækur um andleg málefni.
Eitt kvöldið ekki alls fyrir löngu
ræddum við saman um dauðann, eða
öllu heldur hvað tæki við eftir hann.
Hann trúði því að við tæki eitthvað
gott þar sem leiðir okkar lægju sam-
an með þeim sem á undan væru
farnir. Það hefur því eflaust verið
tekið vel á móti honum af foreldrum
hans, látnum systkinum og nafna
hans Þórði Páli, sem hann hefur
saknað síðastliðin tíu ár. Ég vil líka
trúa því að nú líði honum vel, að
þeir séu saman Þórður Páll og pabbi
og verndi okkur hin sem eftir lifum.
Já, hann rnat andleg gæði meir en
veraldleg og helgarferð á heimaslóð-
irnar Snæfellsnesið fannst honum
jafn yndisleg og okkur hinum fynd-
ist þriggja vikna ferð á sólarströnd.
Hann var ávallt nægjusamur og sátt-
ur við sitt.
Það eru bara nokkrir dagar síðan
ég var með litlu strákana mína hjá
mömmu og pabba og við fórum sam-
an í kirkjugarðinn. Þar fengu þeir
að ganga og hlaupa um alveg fijáls-
ir og Haukur fylgdist svo með hvort
afí kæmi ekki alveg örugglega á
eftir honum. Þetta var þeirra uppá-
halds skemmtun, að fá að hlaupa á
undan og fylgjast með afa keyra á
eftir sér.
Ég tók af þeim myndband í síð-
asta mánuði sem þeir geta horft á
um ókomin ár og minnst afa síns
um leið. Því nú er það okkar sem
eftir lifum að láta hann lifa áfram
í huga þeirra. Já, það eru fallegar
minningarnar sem litlu drengirnir
mínir eiga um afa sinn. Minningar
um yndislegan afa sem vildi allt fyr-
ir á gera.
Þeir skilja þetta varla ennþá, en
kannski skilja þeir þó meira en við
höldum. Baldur talar um að vera
góður við Pálínu ömmu, svo hann
skilur missi hennar og Haukur vill
ekki að ég segi að afi sé dáinn, held-
ur að nú sé hann hjá Guði. Það verð-
ur tómlegt sætið hans afa þeirra og
erfitt fyrir þá að koma að nýju leiði
í kirkjugarðinum, sem verður leiðið
hans Þórðar afa.
Það eru mörg falleg ljóðin sem
ég hefði viljað kveðja hann með, en
ofan á verður ljóð sem ég sendi hon-
um einu sinni í korti og honum
fannst mjög vænt um.
Hvert sem liggur leiðin mín,
lífir minning bjarta.
Elsku pabbi, ástúð þín
yljar mér um hjarta.
Föðurástin fylgir mér
fram að hinsta degi.
Fyilstu þakkir færi þér,
faðir, elskulegi.
(Soffia Jóhannesdóttir)
Hann var yndislegur pabbi og
afí, og minningin um hann mun
ávallt lifa sterk með mér.
Elsku mamma mín, Guð veiti þér
styrk og huggun.
Laufey
Kallið er komið.
Komin er nú stundin.
Vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Vald. Briem.)
í dag er til moldar borinn hann
afí minn. Mig langar til að minnast
hans í örfáum fátæklegum orðum,
til að þakka honum þær stundir sem
við áttum saman.
Þær voru ófáar stundirnar sem
ég fékk að dvelja hjá honum og
ömmu er bróðir minn lá á spítala
oft mikið veikur. Voru þau mér þá
til mikils stuðnings á erfiðum stund-
um. En bróðir minn lést 5. apríl
1981. Nú hafa þeir nafnarnir, afí
og Þórður Páll sameinast aftur í
nýju lífi þar sem þeirra vist er núna.
Margar á ég góðar minningarnar
frá Bræðraborgarstígnum þar sem
heimili þeirra afa og ömmu er þegar
við systkinin ásamt afa og ömmu
björguðum Lóu frá ketti, hjúkruðum
henni og önnuðumst þar til hún var
flughæf á ný.
Þó erfitt sé að taka á móti svona
sorgarfrétt þá eru alltaf til margar
svona fallegar minningar sem lifa í
huga okkar.
Mér gafst ekki tækifæri til að
þakka afa mínum fyrir hjálpsemi
hans og ömmu meðan ég var erlend-
is og því langar mig að þakka elsku
afa fyrir alla umhyggju og ást og
allar okkar stundir. Blessuð sé minn-
ing hans.
Elsku amma, guð geymi þig og
styrki ■ í sorg þinni.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag,
við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í stað,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
(Tómas Guðmundsson)
Magnea
í dag er til moldar borinn í Reykja-
vík Þórður Kristjánsson, verslunar-
maður. Þórður fæddist á Hólslandi
í Eyjahreppi á Snæfellsnesi, og var
hann fímmtándi í röð sautján systk-
ina. Foreldrar hans voru Danfríður
Brynjólfsdóttir og Kristján Pálsson
ábúendur á Hólslandi í Eyjahreppi.
Ljóst má vera að þröngt hafi ver-
ið í búi á svo barnmörgu heimili og
Þórður hélt ungur að árum til
Reykjavíkur. Átján ára gamall réðst
hann til starfa hjá Sighvati Einars-
syni pípulagningameistara og kaup-
manni í Reykjavík. í fyrstu starfaði
Þórður aðallega við pípulagnir, en
lengst af í verslun Sighvats, fyrst í
Garðastræti síðan í Skipholti 15.
Hlé gerði Þórður á starfí sínu hjá
verslun Sighvats, er hann réðst sem
bílstjóri Sveins Björnssonar, forseta
íslands, en því starfi gengdi hann
um árabil. Einnig ók hann leigubif-
reið um tíma. Á þessum árum
kvæntist Þórður eftirlifandi eigin-
konu sinni, Pálínu Hafsteinsdóttur
frá Skagaströnd, og eignuðust þau
þrjú börn, Báru, Hafstein og Lauf-
eyju. Barnabörnin voru orðin átta
talsins, en árið 1981 var rofið skarð
í þeirra hóp þegar nafni hans, Þórð-
ur Páll, lést.
Árið 1982 verða umskipti hjá
Þórði er verslun Sighvats Einarsson-
ar hættir starfsemi, en verslunin
hafði þá verið rekin um árabil af
dóttur Sighvats Sigurbjörgu, og
manni hennar, Óskari Þorkelssyni.
Vörukaup hf. hafði um tíma leigt
hluta af verslunarrými Sighvats og
þegar verslunin hætti alfarið rekstri
yfírtók Vörukaup hf. allan lager og
húsnæði fyrirtækisins.
Á þessum tímapunkti hefjast
kynni undirritaðs og Þórðar fyrir
alvöru, þegar hann réðst til starfa
hjá Vörukaupum hf. Þórður starfaði
mestan hluta ævi sinnar við sölu á
pípulagningakerfi og hreinlætis-
tækjum og miðlaði hann bæði leik-
mönnum og lærðum af þekkingu
sinni. Var hann einstaklega vel liðinn
af pípulagningamönnum og í því
sambandi eru mér minnisstæð sam-
skipti hans og Ingibjarts heitins píp-
ulagningameistara, sem hafði sér-
staka ánægju af að reyna að fá
Þórð til að deila við sig um hin
ýmsu mál hversdagsins, en sjaldnast
varð honum að ósk sinni, því tilsvör
Þórðar voru oftast stutt og snaggar-
aleg.
En það sem mér er minnisstæðast
í fari hans er sú mikla virðing sem
hann bar fyrir starfi sínu. Að biðja
um leyfi frá vinnu hluta úr degi til
að sinna persónulegum málum var
honum þvert um geð og forföll frá
vinnu öll þau ár sem við störfuðum
saman ótrúlega fá. Samviskusemi
og snyrtimennska voru Þórði í blóð
borin. Hann hafði einstaklega góða
rithönd og frágangur hans við vöru-
sendingar til viðskiptavina var ein-
stakur og til þess tekið. Dagfars-
prúður var Þórður með afbrigðum
og þægilegur á alla lund, en vissu-
lega koma það fyrir að honum mis-
líkaði á stundum en lét samt kyrrt
liggja.
Ágætur vinskapur myndaðist milli
Þórðar, Pálínu og eigenda Vöru-
kaupa, þeim Erling og Maríu. Meðal
annars áttu þau ánægjulegar sam-
verustundir að Miklaholti í Borgar-
firði. Þar dvaldist Þórður helgina
áður en hann lést og líkaði honum
vel dvölin á Mýrunum stutt frá fæð-
ingarstað hans.
Fyrir mína hönd og starfsfélaga
minna þakka ég honum samfylgdina
og bið góðan Guð að styrkja Pálínu,
börnin og aðra aðstandendur í sorg
þeirra.
Legg ég bæði líf og önd
ljúfi Jesús, í þína hönd
síðast þegar ég sofna fer
sitji guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pétursson.)
Rögnvald Erlingsson
Mjllllfjililk.
IGL00
SVEFNPOKINN
í bíuyfr
QG VIÐ BftOSUMÍ UMFEHB//^
ARC 2 MW/FM steríó hljómgæði, útvarp og segulband í sama tæki. Magnari
2x7 wött. Sjálfvirkur stopparí á snældu.
ARC 754 MW/FM sterió útvarp meö segulbandi, sjáítvirkur stoppari á snældu.
Bassa og hátóna stilling. Magnari er 2x10 wött. Stafrænn gluggi sem sýnir
bylgjulengd og fleiri upplýsingar. Tengi aö framan fyrir CD geislaspilara.
ARC 716L MW/FM sterió hágæða útvarp með segulbandi. Sjálfvirkur leitari á
bylgju og „skanner” sem finnur allar rásimar og spilar brot af hverri þeirra.
- Stafrænn gluggi er sýnir bæði bylgjulengd og klukku. Möguleiki á 4 hátölurum.
Tækið er i sleða
9DM,
ST VO KCK mc -
f C**
ARC 710 MW/FM sterio útvarp og segulband. Sjálfvirkur leitari og „skanner",
magnari 2x12 wött. Frábær hljómgæði. Tækið er með klukku og sérstaklega
skemmtilegri týsingu í tökkum.
%
ARC180 Atvöru tæki MW/FM sterió útvarp og segulband. 2x25 wött. Upptýstur
stafrænn gluggi. Sjálfvirk spólun á snældu. Tenging fyrir CD geislaspilara.
Útgangur fyrir fjóra hátalara með fullkomið steró innbyrgðis.
, o9 "l&ÍT8 að hlusta á 9óð
'^rs/aniroK^
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 Sl Ml 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
samuftgiu*
ORKIN/ASlA 2025-39