Morgunblaðið - 10.07.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
29
Kristinn Kolbeinn
Ingólfsson - Minning
Kidda kynntist ég síðastliðið
haust og tókust fljótlega með okkur
góð kynni. Áttum við margar góðar
stundir saman í leik og starfi. Þann-
ig hagaði til að báðir sóttum við
um nám við Samvinnuháskólann á
Bifröst og fengum nýlega inn-
göngu. Glöddumst við yfir því að
hefja báðir saman nám í haust, en
örlögin urðu önnur.
Kiddi var traustur vinur, glað-
lyndur og átti auðvelt með að um-
gangast fólk. Hans mun sárt sakn-
að.
Ég kveð vin minn Kristinn með
söknuði og virðingu, og votta for-
eldrum, systkinum og öðrum vanda-
mönnum samúð mína. Minning um
góðan vin mun ávallt lifa.
Hér vit skiljumk
ok hittask munum
á fegins degi fira
Drottinn minn.
gefi dauðum ró
og hinum líkn er lifa.
(Úr Sólarljóðum)
Kjartan Hauksson
Að morgni fyrsta júlí er við
mættum í vinnuna bárust þau
hörmulegu tíðindi að Kiddi, góður
vinur okkar og starfsfélagi, hefði
látist af slysförum. Það er undar-
legt að hugsa til þess hversu nálæg-
ur dauðinn er í rauninni, og áttum
við mjög erfitt með að trúa því að
Kiddi myndi ekki birtast brosandi
Kveðjuorð:
Steinunn
Auðuns-
dóttir
í gær var jarðsett Steinunn Auð-
unsdóttir eða amma á Bústaðaveg-
inum eins og við kölluðum hana.
Það var alltaf einhver góð tilfinn-
ing, sem fylgdi því að heimsækja
ömmu.
Hún var einstaklega hlý og góð
manlfeskja. um það þarf ekki að
fara mörgum orðum. Við sem
þekktum hana vitum það svo vel.
Enda var heimili hennar athvarf
flestum hennar 60 afkomenda, sem
nutu þess að vera í kringum hennar
hlýju persónu.
Undir góðvildinni leyndist þó
sterkur persónuleiki, sem hún öðl-
aðist á langri og stundum erfiðri
ævi.
Hún hafði óvenju heilbrigt við-
horf til lífsins, sem óhætt var að
taka sér til fyrirmyndar.
Ómentanlegt hefur það verið mér
í gegnum uppvaxtarárin að geta
skotist til langömmu eftir styrk og
ráðleggingum, og oftast dugðu
hennar ráð.
Ég þakka henni fyrir samfylgd-
ina og allt sem hún hefur fyrir mig
gert.
Olafur Elíasson
rétt eins og venjulega. Kiddi var
mjög traustur starfsfélagi, vinur
sem vildi öllum vel og bar um-
hyggju fyrir ölium. Kiddi skilur eft-
ir sig djúpt skarð í huga okkar og
eigum við öll eftir að minnast hans
með söknuði.
Við vottum fjölskyldu hans og
vinum innilegrar samúðar.
Starfsfólk Miklagarðs
í Garðabæ.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Dauðsföll gera sjaldnast boð á
undan sér. Það var því mikið áfall
fyrir okkur þegar við fréttum á
sunnudaginn síðastliðinn að Kiddi
gamli skólabróðir okkar og sam-
stúdent væri dáinn. Tekinn burt í
blóma lífsins í hörmulegu slysi.
Við kynntumst Kidda fyrst er
leiðir okkar lágu saman í Flensborg-
arskólanum í Hafnarfirði. Sáum við
strax að þarna var góður drengur
á ferð. Það fór frekar lítið fyrir
Kidda innan veggja skólans en þó
var hann alltaf mjög virkur þiggj-
andi á allt félagslíf.
Þegar að við útskrifuðumst vorið
1988 var ákveðið að fara í útskrift-
arferð til Portúgal. í þeirri ferð
kynntumst við Kidda enn frekar og
þeirri stórkostlegu manngæsku sem
hann bjó yfir. Hann hafði góðan
húmor og lífsgleðin var alltaf í fyrir-
rúmi og heiðarleikinn virtist alltaf
vera hans aðalsmerki.
Við viljum þakka Kidda fyrir þær
stundir sem við áttum með honum,
þær voru ánægjulegur tími.
Við biðjum guð að blessa fjöl-
skyldu hans og vottum við þeim
okkar dýpstu samúð og erum sann-
færð um að Kiddi gegni nú ein-
hvetju mikilvægu hlutverki hið efra.
F.h. útskriftarnema Flens-
borgar vorið 1988,
Björn Sigurðsson,
Gunnar Oskarsson.
. t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRA KEMP,
Ljárskógum 26,
sem lést 30. júní sl., verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í
dag, miðvikudaginn 10. júlí, kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á MS-félagið.
Elsa Kemp, Ólafur Ólafsson,
Lúðvík Kemp,
Bára Kemp, Magnús Axelsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNÍNA GUÐRÚN MARKÚSDÓTTIR,
sem andaðist laugardaginn 6. júlí á
Garðvangi, Garði, verður jarðsungin/trá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 12. júlí kl.
14.00.
Magnús Jónsson, Málfriður Agnes Daníelsdóttir,
Sigurborg Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN KRISTINN GUÐMUNDSSON
frá Flatey á Breiðafirði,
Sólheimum 27,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. júlí
kl. 10.30.
Gerður Gestsdóttir,
Oddný Jónsdóttir,
Gestur K. Jónsson, Valgerður Ólafsdóttir,
Ragnar Jónsson, Sigrún Sólmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
HALLBJÖRN GUÐLAUGUR GUÐMUNDSSON,
Súgandafirði,
verður jarðsunginn frá Suðureyrarkirkju í dag, miðvikudaginn
10. júlí, kl. 14.00.
Fyrir hönd tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna,
Svava Hansdóttir,
Valgeir Hallbjörnsson,
Gísli Hallbjörnsson,
Róbert Hallbjörnsson,
Valgerður Hallbjörnsdóttir.
t
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
GRÍMUR ÖGMUNDSSON,
Syðri-Reykjum,
Biskupstungum,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju föstudaginn 12. júli
kl. 14.00. Jarðsett verður á Torfastöðum.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta Ljósheima á
Selfossi njóta þess.
Grétar Grímsson, Lára Jakobsdóttir.
Grímur Þór Grétarsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir,
Sigurður Ó. Grétarsson, Gyða Halldórsdóttir,
Guðmundur H. Grétarsson, Áslaug Sigurbjargardóttir,
Ingibjörg R. Grétarsdóttir, Sigurgeir Guðjónsson,
Dagný Rut Grétarsdóttir
og langafabörn.
■ Þökkum vináttu og hlýhug við tengdamóður, t andlát og útför móður okkar og
SIGRÚNAR ÞORKELSDÓTTUR.
Erla Jónsdóttir, Þorvarður Gunnarsson,
Magnús Jónsson, Sigurþór Jónsson, Magnea Ingvarsdóttir,
Sigurborg Valgerður Jónsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar,
ÞORBJARGAR SIGRÍÐAR SIGURBERGSDÓTTUR,
áður til heimilis í Hamrahlið 23.
Þórunn Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útfför föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓHANNESAR JAKOBSSONAR
frá Reykjarfirði,
Engjavegi 7,
ísafirði.
Erla Jóhannesdóttir, Sigurjón Davfðsson,
Þröstur Jóhannesson, Selma Guðbjartsdóttir
og barnabörn.
t
Hjartkærar þakkir færi ég öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu mér
samúð og veittu mér stuðning og hjálp í orði og verki við fráfall
mannsins míns,
ÓLAFS SIGURBJÖRNSSONAR,
Vogabraut 52,
Ákranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurlaug Stefánsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
ÓLAFAR ÓLAFSDÓTTUR,
Grundargerði 21,
Reykjavík.
Sigurjón Auðunsson,
Ólafur Hjörtur Sigurjónsson, Kristín Hafsteinsdóttir,
Jórunn Sigurjónsdóttir,
Vilberg Sigurjónsson, Sigrún Andrésdóttir,
Hólmfríður Sigurjónsdóttir, Níls Jens Axelsson,
Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur hluttekningu og
samúð við fráfall og jarðarför eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu okkar,
SIGRÍÐAR SIGTRYGGSDÓTTUR
frá Skefilsstöðum,
Sæmundargötu 11,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahússinis fyrir frábæra umönn-
un í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Viggó Sigurjónssson,
Margrét Viggósdóttir, Búi Vilhjálmsson,
Sigríður Viggósdóttir, Helgi Friðriksson,
barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn.