Morgunblaðið - 10.07.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 1991
„ÉgopnaZi 13 Lepp-fyrirtdejci— nd/na,
■firin 'eg ekk,L peningcma ryu'na,-
//
Ast er ...
... að lækna hann af sjón-
varpssýki.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rightsreserved
® 1991 Los AngelesTimesSyndicate
Við smíði flaugarinnar
höfum við haldið öllu í lág-
marki.
HÖGNI HREKKVÍSI
Lærdómur fyrir þjóðina
Nú er Hafskipsmálinu endanlega
lokið og þar með mestu nornaveið-
um áratugarins hér á landi. Ég man
eftir fjölmiðlafárinu sem beinlínis
þvingaði Hafskip á hausinn, ég man
eftir umræðum á Alþingi og um-
ræðum hvarvetna á mannamótum.
Öll þjóðin var sannfærð um sekt
Hafskipsmanna og þá skiptu stað-
reyndir engu. Útvegsbankinn var
settur á hausinn og síðan seldur
og ríkið gaf einkaaðilum margar
milljónir.
En allt reyndist þetta ein, stór
loftbóla og hver ber ábyrgðina á
öllu þessu? Ekki Helgarpósturinn,
segir ritstjóri hans. Ekki stjórnmál-
amennirnir sem göspruðu hvað
mest á Alþingi. Og ekki fjölmiðlarn-
ir þó allir fjölmiðlar landsins aðrir
en Morgunblaðið tækju þátt í þess-
um hamagangi. Já, margt er skrýt-
ið í kýrhausnum.
Hörður
Þessir hringdu ...
Þungt hljóð í börnum og
gamalmennum
Ásgeir Þórðarson hringdi:
Það er þungt hljóðið í barnafólki
og gamalmennum þessa dagana
út af nýju lyfjareglunum sem heil-
brigðisráðherra hefur sett. Ráð-
herrann okkar segist hugsa um
börn og gamalmenni. Því ætti ekki
að þurfa minna hann á þetta.
Ég tel réttast að miða við
100.000 króna mánaðartekjur í
þessari nýju reglugerð. Það getur
varla verið tilgangurinn að níðast
á fátæklingum sem þá myndu
sleppa við að borga.
Mynd tapaðist
S. Sigurðsson hringdi:
Ég glataði mynd af stærðinni
66,5 x 10,5 í miðbæ Reykjavíkur
í seinustu viku. Á myndinni sem
er réttra 80 ára gömul má sjá
konu um fímmtugt og strák á
tólfta ári. Aftan á myndinni standa
nöfnin Guðrún Jónsdóttir og Guð-
mundur Guðmundsson. Ef einhver
rekst á þessa mynd, vinsamlegast
hafi samband í síma 40418 eftir
kl. 5 á daginn.
Þýskir peningar týndir
Erla Bára hringdi:
Dóttir mín týndi þýskum pen-
ingum í verslunum í Kringlunni
eða í Miklagarði í Garðabæ 4. júní.
Þetta voru 270 mörk. Finnandi
hringi í s. 656033. Fundarlaun.
Leiðrétting
Gulbröndótt læða sem fannst í
Elliðaárdalnum fyrir rúmri viku er
ekki geymd í síma 40790 heldur
á Dýraspítalanum. Hlutaðeigandi
snúi sér til hans.
Giftingarhringur
Karlmannsgiftingarhringur
fannst á Í.R. velli í seinustu viku.
í hann er grafið: Nanna Mjöll. Sá
sem saknar hans er beðinn um að
hringja í s. 71451.
Hver passar ketti?
Tekur einhver að sér að passa
ketti? Upplýsingar óskast í síma
71562.
Dýravinir
Fallegir svarthvítir kettlingar
fást gefins. Kassavanir. Hafíð
samband í síma 685693.
Sólrún hringdi:
Ég týndi hjólkoppi á leiðinni frá
Grundarfirði til Reykjavíkur á
sunnudaginn. Hjólkoppurinn er af
Bewick-gerð. Sá sem kynni að
finna hann vinsamlegast hringi í
s. 41161.
Þakklæti til Gyðu
Guðrún Möller hringdi:
Ég vil þakka Gyðu Jóhannsdótt-
ur fyrir skilmerkilega grein um
þjónustuíbúðir aldraða. Það var
tími til kominn að vekja athygli á
þessu máli. Það sem vantar eru
ibúðir til að taka við þegar fólk
getur ekki lengur búið í íbúðum
fyrir aldraða. Mér finnst að fólk
ætti að geta keypt sig inn á stofn-
un eins og Seljahlíð sem ég er á
í staðinn fyrir íbúðir fyrir aldraða
þegar það þarf á meiri hjálp að
halda.
Vantar hjúkrunarheimili
Lára Jónasdóttlr hringdi:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til Gyðu Jóhannsdóttur sem
skrifaði grein í Morgunblaðið um
helgina. Það vantar tilfinnanlega
fleiri hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða í Reykjavík. Ástandið er hrika-
legt í dag.
Seðlaveski týndist
Blátt seðlaveski, merkt Búnað-
arbankanum, fullt af alls kyns
persónuskilríkjum og skírteinum
tapaðist á laugardag í Vogahverf-
inu. Finnandi hafi samband í síma
984-54336 (símboði). Fundarlauna
heitið.
Tímabær grein
Helga hringdi:
Ég vil þakka Signýju sem skrif-
aði í Velvakanda á laugardaginn.
Þetta var tímabær grein. En það
eru ekki bara í sambandi við ilm-
vötn sem fólk þarf að passa sig.
Reykingamenn, ekki síst þeir sem
reykja vindla, mættu taka meira
tillit til náungans. Fólk sem býr' í
fjölbýlishúsum þarf sérstaklega að
passa sig og ekki skíta út það sem
allir eiga saman. Að lokum þyrfti
fólk að sýna meiri tillitssemi í sam-
skiptum hvert við annað og muna
að „aðgát skal höfð í nærveru sál-
ar“.
Úr fannst í Bláfjallagili
Guðmundur hringdi:
Ég var á göngu upp í Jósefsdal
inni af Bláfjallagili er ég rek aifgun
í veglegt kvenmannsúr. Ef einhver
saknar þess er velkomið að hringi
í 814000 og spyija eftir mér.
Kettlingar fást gefins
6 fallegir kettlingar fást gefins.
Þeir eru 8 vikna og kassavanir.
Vinsamlegast hringið í síma
689192.
Köttur í óskilum
Grábröndóttur stálpaður kettling-
ur fannst að Sóleyjargötu 23 í sein-
ustu viku. Sími : 17769, frá kl. 1
eftir hádegi.
Týndi hjólkopp
Víkverji skrifar
Síðdegis á föstudag flytur Man-
fred Wörner, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO), ræðu í Súlnasal Hótels
Sögu á vegum Samtaka um vest-
ræna samvinnu og Varðbergs um
framtíð bandalagsins. Þarna gefst
einstakt tækifæri fyrir þá, sem vilja
kynnast viðhorfum forystusveitar
bandalagsins á þessum miklu breyt-
inga- eða byltingartímum. Hernað-
arvél Varsjárbandalagsins var tekin
úr sambandi 1. apríl síðastliðinn og
hinn 1. júlí var svo formlega lýst
yfir því, að Varsjárbandalagið væri
úr sögunni. Þótt margir hafi löngum
viljað leggja Varsjárbandalagið og
Atlantshafsbandalagið að jöfnu,
kemur best í ljós við brottför Var-
sjárbandalagsins að þessi saman-
burður hefur alla tíð verið út í hött.
Varsjárbandalagið var í raun
ekki annað en tæki Sovétmanna til
að halda ríkjunum í Mið- og Austur-
Evrópu í hernaðarlegri greip sinni.
Bandalagið var stofnað í flýti á
árinu 1955 eftir að V-Þýskaland
hafði gerst aðili að Atlantshafs-
bandalaginu. Eftir að allt Þýskaland
er orðið þátttakandi í NATO og
Sovétmenn megna ekki lengur að
halda aftur af lýðræðisþróuninni í
Evrópu er Varsjárbandalagið orðið
úrelt. Það er því ekki annað en
raunsæi að taka formlegar ákvarð-
anir um að leggja það niður.
Saga Atlantshafsbandalagsins er
allt önnur. Markmið þess hafa verið
að tryggja öryggi bandalagsþjóð-
anna og vinna að friði með frelsi.
Þótt frelsi hafí rutt sér til rúms í
Mið- og Austur-Evrópu verða þjóðir
enn að leggja sitt af mörkum til
að tryggja friðinn og það verður
áfram best gert með sameiginlegu
átaki. Einmitt þess vegna er Atl-
antshafsbandalagið áfram nauð-
synlegt og ekki eru uppi nein áform
um að leggja það niður.
XXX
Veðurblíðan hefur verið með
ólíkindum. Síðdegis á laugar-
dag þegar hitinn í Biskupstungun-
um var um 26 gráður var Víkvetji
þar á ferð og átti meðal annars
ánægjulega stund í Skálholti við
upphaf sumartónleikanna þar. Hef-
ur þessi starfsemi þegar áunnið sér
sess og þarna í hitanum léku tónlist-
armenn frá Þýskalandi.
I kynningarriti sumartónleikanna
er vakið máls á því, hvort ekki sé
vel við hæfí að koma á fót Kirkju-
tónlistarstofnun í Skálholti. Hlýtur
þessi tillaga að koma til athugunar
hjá nefndinni sem nú starfar á veg-
um dóms- og kirkjumálaráðuneytis-
ins og á að gera tillögur um framtíð-
arskipan mála í Skálholti.
XXX
Kirkjur eru misjafnlega vel
fallnar til að flytja í þeim
tónlist. Víkveija hefur verið sagt,
að í fáum íslenskum kirkjum sé
hljómburður betri en í steinkirkj-
unni að Þingeyrum í Húnavatns-
sýslu. Þar var Reykjavíkurkvartett-
inn við æfingar fyrir skömmu og
var kirkjan þá opin fyrir hádegi og
síðdegis og gátu gestir og gang-
andi þá sest í kirkjuna og heyrt
kvartettinn æfa auk þess sem hann
hélt tvenna formlega tónleika í vik-
unni sem hann dvaldist fyrir norð-
an.
Það hlýtur að vera hagur heima-
manna og kirkjulegra yfirvalda að
efla listastarfsemi af þessu tagi í
kirkjum. Fögur guðshús eru góð
umgjörð um fagra tónlist og hvort
tveggja göfgar mannlífíð og ætti
að verða heimamönnum og ferða-
fólki til ánægju.