Morgunblaðið - 10.07.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
39
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Helgi Kolviðsson úr ÍK gefur hér fyrir mark Vals en Ágúst Gylfason er til vamar. Morgunbiaðið/Bjarni
Víðismenn hefndu
ófaranna frá 1987
Stigu á Laugardalsvöllinn í fyrsta sinn síðan eftir 0:5 tapið gegn Fram í
bikarúrslitaleiknum 1987 og slógu íslandsmeistarana út
VÍÐISMENN úr Garðinum komu í gærkvöldi inná Laugardalsvöll-
inn í fyrsta skipti síðan þeir fóru út af honum eftir úrslitaleik
bikarkeppninnar 1987 með 0:5 tap á bakinu. Nú var andstæðing-
yrinn sá sami, Fram, keppnin sú sama, en skemmra á veg kom-
in og úrslitin svo sannarlega önnur. Garðsbúar gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu 2:1. Guðjón Guðmundsson, fyrirliði Víðis, sem
var einn átta leikmanna liðsins í gær sem léku áðurnefndan úr-
slitaleik, var að vonum kampakátur. „Við höfum lítið vilja tala
um úrslitaleikinn, en rifjuðum hann lítillega upp fyrir leikinn í
kvöld! Nú var möguleiki á að hefna fyrir hann og það tókst.
Annars var þetta bara fyrri hluti hef ndarinnar — seinni leikurinn
í deildinni er eftir hér á Laugardalsvelli," sagði Guðjón.
Islandsmeistararnir voru mun
meira með boltann, en náðu ekki
að skapa sér verulega hættuleg
færi. Víðismenn drógu sig nokkuð
■(^■■■1 aftur eftir að hafa
Skapti skorað snemma
Hallgrímsson leiks, vörðust vel og
skrífar léku oft ágætlega
saman úti á vellin-
um þegar færi gafst.
„Það var sannarlega kominn tími
á að við sigruðum í sumar. Við
höfum átt það skilið áður en ekki
tekist að klára dæmið fyrr en nú.
Menn voru staðráðnir í að koma
einu sinni brosandi frá viðureign
við Framara og það tókst! Þetta
rífur vonandi upp sjálfstraustið og
baráttuandann," sagði Óskar Ingi-
mundarson, þjálfari Víðis að leiks-
lokum.
Grétar Einarsson kom Víði yfir
strax á 11. mín. með laglegu marki.
Björn Vilhelmsson átti fallega send-
ingu í gegnum vörn Fram, Grétar
komst inn á teig og lyfti knettinum
yfir Birki sem kom á móti. Vel að
verki staðið. Framarar sóttu mjög
fram að hléi, sköpuðu sér fáein
sæmileg færi en ekkert þeirra nýtt-
ist.
Framarar héldu boltanum áfram
mún meira eftir hlé og sókn þeirra
bar árangur á 71. mín. Markið var
glæsilegt: Ríkharður Daðason vann
knöttinn úti á velli, renndi út til
vinstri á Ásgeir Ásgeirsson sem
sendi þegar í stað inn í miðjan teig
þar sem Ríkharður var kominn og
skallaði af miklum krafti í hornið.
Skömmu fyrir markið átti Steinar
Guðgeirsson hörkuskalla í stöng og
Fram-sóknin hélt áfram eftir jöfn-
unarmarkið. En aðeins sjö mín.
síðar fögnuðu Víðismenn á ný.
Grétar tók hornspyrnu frá hægri,
Guðjón fyrirliði var á markteigs-
horninu nær og fleytti knettinum
aftur fyrir sig inn á miðjan mark-
teig þar sem varnarmaðurinn Sig-
urður Magnússon var algjörlega
óvaldaður, henti sér fram og skall-
aði markið. Mjög laglega ^ert, en
vörn Fram var steinsofandi.
Víðismenn börðust af krafti eins
og þeir eru þekktir fyrir, en léku
einnig ágætlega á milli sín. Leik-
menn liðsins léku fast en ekki
gróft, og uppskáru eins og til var
sáð. Framarar voru ekki eins og
þeir eiga að sér. Héldu knettinum
að vísu vel innan iiðsins eins og
þeir eru vanir, en lítið kom út úr
því. Þeir söknuðu greinilega Þor-
valdar Örlygssonar af miðjunni.
Hann hefur leikið mjög vel undan-
farið en meiddist á æfingu í fyrra-
kvöld. En þó hann vanti á liðið að
í kvöld
KNATTSPYRNA
Fjórir seinni leikir 16-liða úrslita
Mjólkurbikarkeppninnar verða í
kvöld og hefjast kl. 20.
Sandgrasvöllur...UBK - Víkinj^ur
Akureyrarvöllur.......Þór - IBK
Stjörnuvöllur....Stjarnan - KA
KR-völlur.............KR-ÍA
TENNIS
Tennismót Víkings hefst í kvöld og
lýkur á sunnudag.
geta miklu betur. „Þetta var bara
ekki nógu gott hjá okkuur — alger
aulagangur,“ sagði Ríkharður
Daðason á eftir. „Við vorum miklu
meira með boltann, og eftir að við
höfðum náð að jafna gerði ég ráð
fyrir því að þeir myndu reyna að
sækja meira og vöm þeirra því
opnast. En það kom aldrei til því
þeir skoruðu nánast strax. Við vor-
um ekki nógu vel vakandi þegar
hornið var tekið.“
Snérí aftur
oggerði
sigurmarkið
Sigurður Magnússon, vamar-
maður í liði Víðis, lagði skóna
á hilluna eftir keppnistímabilið
1985, en dustaði síðan rykið af
þeim aflur í vetur og fór að æfa
með iiðinu.
Sigurður sér örugglega ekki
eftir því nú — hvað þá félagar
hans og stuðningsmenn liðsins —
því það var einmitt Sigurður sem
gerði markið mikilvæga í gær-
kvöldi. Síðara markið gegn ís-
landsmeisturum Fram í Laugard-
alnum, og kom liði sínu þar með
áfram í Mjólkurbikarkeppninni.
Sigurður Magnússon
Þökkunv*
fyrirad
vera
sloppnir
ígegn *
- sagði fyrirliði Vals
eftir sigur á ÍK
„ÞETTA var erfiður leikur og
við þökkum fyrir að vera
sloppnir í gegnum þetta,“
sagði Steinar Adólfsson fyrir-
liði bikarmeistara Vals eftir að
þeir höfðu tryggt sér 2:1 sigur
gegn 3. deildariiði ÍK úr Kópa-
vogi. Heimamenn komust 1:0
yf ir en það dugði þeim ekki
þrátt fyrir hetjulega baráttu.
Þetta er í fyrsta sinn sem ÍK
kemst í 16. liða úrslit og þetta
er einnig fyrsta tap þeirra á
heimavelli í bikarkeppni.
Við vorum seinir í gang og þeir
hegndu okkur fyrir það og
þegar þeir skoruðu komst sjálfs-
traustið í lag hjá þeim,“ sagði Stein-
ar ennfremur og
Skúli Unnar bætti því við að ÍK
Sveinsson hefði leikið agaða
skrifar o g góða knatt-
spyrnu.
„Þetta var gaman en erfitt. Það^
var rólegt í markinu í fyrri hálfeik
en nóg að gera í þeim síðari,“ sagði
Ragnar Bogi Petersen fyrirliði IK.
„Við náðum að stöðva leik þeirra í
fyrri hálfleik en þeir voru óhemju
þolinmóðir í síðari hálfleik og léku
sinn bolta,“ bætti hann við.
Kópavogsliðið bytjaði af miklum
krafti og það var ekki að sjá að
þeir bæru mikla virðingu fyrir bik-
armeisturunum. Þeir léku skynsam-
lega, létu boltann ganga alveg frá
aftasta manni með góðum árangri.
Heimamenn skoruðu strax á 6.
mínútu o g var það sérlega glæsilega
að verki verið hjá Úlfari Óttars-
syni. Hann fékk knöttinn við miðju,
stakk sér á milli tveggja varnar-^
manna Vals og brunaði inn í teig-
inn. Bjarni kom út á móti en Úlfar
sendi knöttinn af öryggi framhjá
honum.
Valsmenn voru meira með knött-
inn en spil þeirra náði ekki nema
fram undir miðju, þá var allur botn
úr leik þeirra. Mikil breyting varð
á leik þeirra f síðari, hálfleik, þá
gekk boltinn manna á milli upp all-
an völl og það bar árangur.
Ragnar Bogi markvörður ÍK
bjargaði marsinnis meistaralega
áður en Val tókst að jafna.
Hörður Már átti fast skot að
marki Vals á 68. mínútu sem Bjarni
varði vel. Hann kastaði boltanurn^
fram á völlinn þar sem Magni fékk'*
hann, gaf upp í hægra hornið á
Baldur sem lék á varnarmann, og
gaf fyrir. Við fjærstöng stóð Ágúst
aleinn og gat ekki annað en jafnað.
Sigurmark Vals gerði Sævar eft-
ir fallegan samleik við Steinar.
Hann gaf á Steinar út í hægra
hornið, Steinar vippaði knettinum
laglega inn á miðjana teiginn þar
sem Sævar var mættur og skoraði
með fastri kollspyrnu.
ÍK-menn léku allir vel en þó eng-
inn betur en fyrirliði þeirra og
markvörður Ragnar Bogi, sem átti^
ailan teiginn eins og hann lagði sig
auk þess sem hann var stór-
skemmtilegur á milli stanganna.
Vörnin var sterk með Ómar sem
traustan stjórnanda og miðjumenn-
irnir léku af mikilli skynsemi.
Hjá Val voru Ágúst og Steinar
traustir og léku vel fyrir liðið en
aðrir náðu sér ekki almennilega á
strik fyrr en í síðari hálfleik, en þá
lék Valsliðið ágætlega.