Morgunblaðið - 03.08.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991
11
Takmarkad sætainagn á |iosstim frália»i*ii kjöruiii.
París
Glæsilegasta og vinsælasta borgin í dag!
Tveggja daga ferð 29. október*.
Listir og menning, verslun og viðskipti, frönsk matar- og
víngerðarlist. Skemmtun og lífsnautn í sérflokki.
Verð kr. 29.900,- í tvíbýli.
Innifalið: Flug, gisting og morgunverður, akstur
frá/að flugvelli og íslensk fararstjórn.
Takmarkað sætamagn - pantið tímanlega.
*Háð samþykki flugyfirvalda.
Amsterdam 4 eða 5 dagar
Gisting á hinu glæsilega Scandic Crown Viktoría hótel, sem
er í miðbæ Amsterdam, við Damrak. Öll herbergi með
sjónvarpi, útvarpi, myndbandi, minibar og baði. Njóttu þess
besta í heimsborginni á lægra verði en nokkru sinni fyrr.
Brottför: Fimmtudaga og föstudaga.
Sjá auglýstar dagsetningar.
Verð frá kr. 29.800,- m.v. 2 í herbergi.
Cork — Irland
þessi heillandi áfangastaður hefur slegið í gegn í
sumar og við bjóðum ódýra en stutta ferð til þessarar
fögru borgar þar sem verðlagið er ævintýri líkast og þú
finnur sömu vörumerkin og í heimborgum Evrópu.
Brottför 6. september 2 dagar
Verð kr. 19.900,- m.v. 2 í herbergi.
Glasgow
Helgarferðir á einstöku verði. 4-5 dagar í september,
október og nóvember. í boði er afbragðshótel,
Hospitality Inn og borgin býður þér einstaka möguleika
til að njóta hins besta í listum, menningu, mat og
drykk.
Brottför laugardaga og þriðjudaga.
Verð frá kr. 25.310,- m.v. 2 í herbergi.
Haustferðir Veraldar á ótrúlegu verði
Stórborgarrispa frá
aðeins 19.900,- kr.