Morgunblaðið - 03.08.1991, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLÁÐIÐ LAUGARDAÖUR 3. ÁGÚST 1991
Hótelherbergi á útsöluverði:
Bandarískum ferðamönnum til
Kaupmannahafnar fækkar mest
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
I dönskum blöðum hefur því verið slegið upp að hægt sé að fá
hótelherbergi undir venjulegu verði á mörgum hótelum í Kaup-
mannahöfn, einnig á stóru dýru hótelunum. Talað er um herbergi
á hálfvirði og einkum séu góð kjör um helgar. Þetta á við um gesti,
sem ganga inn af götunni og biðja um herbergi, eða ef fengjn eru
herbergi í gegnum hótelmiðlunina á Aðaljárnbrautarstöðinni. Ástæð-
an er sögð vera færri ferðamenn.
Sveiflan frá síðasta ári er mikil
fyrir mörg hótelanna. Svo virðist
sem sum hver hafi 15-20% minnj
nýtingu en síðastliðið sumar. í
dönskum blöðum hefur verið sagt
að kjörin séu þó misgóð, eftir því
hve gestirnir eru góðir í að prútta
Danmörk:
Grindhvalirn-
ir drukknuðu
í fiskinetum
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
ÞEIR tæplega 150 grindhvalir
sem rak á fjörur á vestanverðu
Jótlandi í júnímánuði létust ekki
af völdum vírussýkingar eins og
í fyrstu var talið. Er þetta niður-
staða rannsóknar á vegum dýra-
Iækningarannsóknastofu danska
ríkisins.
verðið niður. Samdrátturinn gerir
einnig að verkum að færri eru ráðn-
ir á hótelin í sumarstörf, sem ann-
ars er eftirsótt af skólafólki.
Hlín Baldvinsdóttir, hótelstjóri á
nýjasta og fínasta hóteli Kaup-
mannahafnar, Hotel Phoenix, segir
þó að fréttirnar séu ýktar og það
tíðkist bæði í Kaupmannahöfn og
annars staðar að hótel bjóði upp á
sumarverð, sem sé lægra en venju-
legt verð. Þannig býður Phoenix
upp á gistingu með morgunmat
fyrir tvo í sumarfríinu fyrir 915
ERLENT
danskar krónur, í stað 1.450. Miðað
við sama tíma í fyrra séu gistingar
um 4% færri, en það verði líka að
hafa í huga að sumarið í fyrra hafi
verið mjög gott. Hins vegar sé allt-
af tilhneiging hjá hótelfólki að líta
á það sem afleitt, ef ekki er fullt.
Á Jótlandi hefur gistingum fjölg-
að um 18%. Þessi mikli framgangur
er ekki mögulegur í höfuðborginni,
því þar hefur nýtingarhlutfallið allt-
af verið hærra, en talan ætti að
vera 4-6% þar, ef vel ætti að vera.
Aukningin á Jótlandi stafar örugg-
lega af því að Jótar, og reyndar
einnig Fjónbúar, hafa verið dugleg-
ir við að auglýsa sig. í Kaupmanna-
höfn virðast hvorki hótel né aðrir,
sem lifa af ferðamönnum, sjá
ástæðu til að koma sér saman um
að _kynna borgina.
Ástæðan fyrir lítilli aðsókn er
minni straumur ferðamanna um
borgina. Það eru einkum Bandaríkj-
amenn, sem virðast hafa verð sein-
ir til að taka við sér eftir Persaflóa-
stríðið. Veðrið hefur einnig haft
áhrif, því margir Norðmenn, Svíar
og Þjóðveijar fara um Kaupmanna-
höfn í sumarleyfinu. Ef veðrið er
leiðinlegt, eins og það hefur verið
á löngum köflum, staldra þeir ekki
við.
Reuter
Króatískur hermaður gengur fram hjá líki roskinnar króatískar
konur sem var skotin til bana af serbneskum skæruliðum í þorpinu
Sarvas í gær.
Utanríkisráðherra Hollands um ástandið í Júgóslavíu:
Síðasta úrræðið yrði að
senda friðargæslusveitir
Áttatíu sagðir hafa fallið í árás Serba á Dalj
Zagreb, Búdapest, Amsterdam, Bonn. Reuter.
HANS van den Broek, utanríkisráðherra Hollands, sem er í forystu
ráðherranefndar á vegum Evrópubandalagsins (EB) er hélt til Júgó-
slavíu í gær, sagði í viðtali við hollenska útvarpið, að ef bardagar
héldu áfram í landinu væri ekki útilokað að senda þangað sérstakar
friðargæslusveitir. Gætu þær sveitir til dæmis verið undir yfirum-
sjón Vestur-Evrópusambandsins. Sú lausn yrði hins vegar að vera
neyðarúrræði þegar allt annað hefði verið reynt en sú væri ekki
raunin ennþá. Á fimmtudag hafði utanríkisráðherra Lúxemborgar,
sem einnig er í sendinefnd EB ásamt utanríkisráðherra Portúgals,
látið svipuð sjónarmið í ljós. Hollendingar fara nú með forystuna
innan EB.
Líffræðingurinn Carl Kinze, sem
er sérhæfður í grindhvölum, er einn
þeirra sem rannsökuðu grindhval-
ina 150. Er hann þeirrar skoðunar
að hvalimir hafi flestir drukknað í
fiskinetum sjómanna.
„Það er ekkert sem bendir til
sýkingar hjá grindhvölunum. Við
vitum að það er algengt að grind-
hvalir festist í netum sjómanna og
var búið að skera sporðinn af mörg-
um þeim hvölum sem rak á land,“
sagði Kinze. Mun það vera viðtekin
regla hjá sjómönnum að skera
sporðinn af hvölunum ef þeir fest-
ast í netunum.
Skýringuna á því að svo marga
hvali rak á land í síðasta mánuði
segir hann vera að aldrei þessu
vant hafi verið stöðug vestanátt í
þijár vikur. Margir hvalanna hefðu
líka greinilega verið dauðir lengi
áður en þá rak á land.
Reuter
Elsti faðir
heims?
Lesley Colley, 92 ára gamall
fyrrverandi hafnarverkamaður,
heldur hér á Oswald, 11 daga
gömlum syni sírium, á heimili
sínu í Ararat í Ástralíu. Lesley
á fimm önnur börn, það elsta
71 árs og það yngsta 15 ára.
Móðir Oswalds er 38 ára göm-
ul. Lesley reykir hvorki né
drekkur og hann þakkar frjó-
semi sína m.a; því auk góðs
mataræðis. „Ég borða ekki
ruslfæði - Coca cola og kart-
öfluflögur eru ekki á matseðlin-
um hjá mér,“ segir Lesley.
Hans-Dietrich Genscher, ut-
anríkisráðherra Þýskalands, segir í
grein, sem birtist í dagblaðinu
Nordsee-Zeitung í dag, að Evr-
ópubúar geti ekki leitt það hjá sér
ef Júgóslavar fari fram á að sendar
verði friðargæslusveitir til landsins.
Ef fulltrúar allra deiluaðila í Júgó-
slavíu væru því samþykkir gætu
hvorki Ráðstefnan um öryggi og
samvinnu í Evrópu (RÖSE) né held-
ur Vestur-Evrópusambandið léitt
slíka kröfu hjá sér. Væri hann reiðu-
búinn til að stuðla að því að þessar
stofnanir kæmu saman til fundar
um málið.
Genscher gagnrýndi einnig fram-
ferði Serba í greininni, sem þýska
utanríkisráðuneytið dreifði í gær,
og sagði ekki hægt að réttlæta til-
raunir þeirra til að breyta innri
landamærum ríkisins með valdi.
Volker Rúhe, framkvæmdastjóri
Kristilega demókrataflokksins í
Þýskalandi, ítrekaði í gær þá skoð-
un sína að senda bæri evrópskar
hersveitir til Júgóslavíu til að koma
á friði.
Karsten Voigt, talsmaður þýska
Jafnaðarmananflokksins í utanrík-
ismálum, sagði að flokkurinn myndi
setja sig upp á móti öllum tilraunum
til að senda lið á vegum Vestur-Evr-
ópusambandsins eða Atlantshafs-
bandalagsins tii Júgóslavíu.
Þjóðvarðlið Króatíu og lögregla
lýstu því yfir í gær að þau hefðu
náð aftur á vald sitt bænum Kostaj-
nica eftir harða bardaga en sveitir
Króata yfirgáfu bæinn eftir bar-
daga við serbneska skæruliða og
herþotur sambandshersins á mið-
vikudag. íbúar Kostajnica, fjögur
þúsund talsins, flúðu í síðustu viku
eftir að Serbar hófu stórskotaliðsár-
ás. Sögðu Króatar að ekkert mann-
fall hefði orðið í þeirra röðum í
bardögunum.
Ta/yiig-fréttastofan sagði í gær
að áttaíu Króatar, aðallega lögregl-
umenn, hefðu fallið í skriðdrekaárás
sambandshersins á króatíska landa-
mæraþorpið Dalj á fimmtudag en
þar búa alls 7.500 manns. Bárust
einnjg fregnir af því í gær að sveit-
ir sambandshersins og Serbar hefðu
lokað þorpinu af. Sagði talsmaður
lögreglunnar í nágrannaþorpinu
Osijek að fólk búsett í Dalj hefði
hringt og skýrt frá því að serbne-
skir skæruliðar gengju á milli húsa
í þorpinu og tækju Króata af lífi.
Engin opinber staðfesting hefur
fengist á þessu en í gær hélt ríkis-
stjórn Króatíu neyðarfund í gær
vegna bardaganna í Dalj. Króatar
saka sambandsherinn um að hjálpa
Serbum i bardögum gegn þeim og
segja Serba hafa það að markmiði
að innlima héruð úr Króatíu í Serb-
íu.
Alls hafa 300 fallið í bardögum
síðan Króatía og Slóvenía lýstu yfir
sjálfstæði lýðveldanna þann 25. júní
sl.
Ungversk yfirvöld skýrðu f gær
frá því að íbúar frá Króatíu af ung-
verskum uppruna væru farnir að
leita hælis í Ungveijalandi. Um
40.000 Ungveijar búa í Króatíu og
hafa 150 þeirra þegar leitað hælis
í Ungveijalandi. Rauði krossinn í
Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu og
Serbíu, segir 50 þúsund manns,
aðallega Serba, hafa flúið Króatíu
síðan átök hófust.
Vöggudauði:
Ungbörn ætti helst ekki
að láta sofa á masranum
Sydney. Reuter. ' J
SERFRÆÐINGAR á læknaráð-
stefnu í Canberra í Ástralíu
telja að með einföldum aðferð-
um sé hægt að koma í veg fyr-
ir að þúsundir ungbarna deyi
vöggudauða á ári hverju. Ein
þeirra er að láta ungbörn ekki
sofa á maganum. Ráðstefnan
stóð í tvo daga og hana sóttu
sérfræðingar frá Evrópu, Ástr-
alíu og Nýja Sjálandi.
Terry Dwyer prófessor frá
Ástralíu og samstarfsmenn hans
fylgdust með 3.500 börnum í þijú
ár á eynni Tasmaníu. Af þessum
3.500 börnum dóu 19 vöggudauða
og telja þeir að ástæðuna megi í
40% tilfella rekja til þess að þau
sváfu á maganum.
Dwyer telur að koma megi í
veg fyrir dauða 200 ungbarna af
þeim u.þ.b. 500 sem deyja vöggu-
dauða í Ástralíu á hveiju ári, ein-
faldlega með því að fræða foreldr-
ana um svefnstellingar. Dwyer
segir svefnstellingar ekki einu
ástæðu þess að ungbörn deyja
vöggudauða, en telur þær skipta
verulegu máli. „Líkurnar á að
barn sem sefur á maganum deyi
vöggudauða eru þrisvar sinnum
meiri en hjá barni sem sefur á
bakinu eða á hliðinni," sagði
Dwyer.
I Ástralíu er vöggudauði ein
heísta dánarorsök barna á aldrin-
um eins mánaðar til eins árs en
tvö af hveijum 1.000 bömum sem
fæðast lifandi deyja vöggudauða
áður en þau ná eins árs aldri. í
Bandaríkjunum er hlutfallið 1,5 á
móti 1.000. Hjúkrunarfólk á Nýja
Sjálandi, sem í eitt ár hefur ráð-
lagt foreldrum að láta börn sín
ekki sofa á maganum, segir tíðni
vöggudauða hafa lækkað.
I nýlegu hefti bandaríska
læknatímaritsins New England
Journal of Medicine er greint frá
rannsókn á vöggudauða sem gerð
var við læknadeild Washington-
háskóla í St. Louis, Missouri. Nið-
urstaða hennar var sú að ungbörn
gætu kafnað ef þau lægju á mag-
anum á of mjúkum svæflum. Þau
önduðu þá að sér sama lofti og
þau væru búin að anda frá sér
og smám saman eyddist allt súr-
efni upp og þau köfnuðu. Ráð-
legging bandarísku læknanna til
foreldra er að hafa börnin ekki í
þannig stellingu að neitt mjúkt
geti hulið andlit þeirra.