Morgunblaðið - 03.08.1991, Blaðsíða 32
32
IÍ0RG1JNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991
ATVIN NIMAUGL YSINGA R
Kennarar
Að Grunnskólanum á Drangsnesi vantar
kennara næsta vetur í kennslu yngri barna
og sérdeild. Þægilegur skóli.
Aðrar upplýsingar færðu hjá skólastjóra í
síma 91-670321 og formanni skólanefndar í
síma 95-13215.
Skólanefnd.
Sölu-
og markaðsmenn
Okkur vantar vana sölumenn með reynslu
af smásölumarkaðnum (æskilegt).
Við verslum með trausta vöru sem „auðvelt"
er að selja. Föst laun eftir samkomulagi.
Tilvalið fyrir vanan sölumann, sem vill skipta
um umhverfi og vinna hjá traustu fyrirtæki.
Umsóknir skilist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 10. ágúst merktar: „Sala - 3991“.
Ath! Öllum umsóknum verður svarað.
Verslunarstarf
Fyrirtæki okkar vill ráða starfsmann til af-
greiðslustarfa í heimilistækjadeild sem fyrst.
Starfið felur í sér kynningu og afgreiðslu
heimilistækja.
Við leitum að röskum og glaðlyndum starfs-
krafti, sem hefur ánægju af því að veita þjón-
ustu og sinna viðskiptavinum.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu starfi, eru vin-
samlega beðnir að senda okkur eiginhandar-
umsókn með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf, ásamt meðmælum, fyrir
6. ágúst nk. í póshólf 519, 121 Reykjavík.
—SMÍTH& -----------------
NORLAND
Pósthólf 519, 121 Reykjavík
Myllubakkaskóli í Keflavík
Kennarar
Eftirtaldar kennarastöður eru lausar við
Myllubakkaskóla:
Handmenntakennari (saumar), heil staða.
Tónmenntakennari, heil staða.
Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður
veitir Vilhjálmur Ketilsson, skólastjóri, í
símum 92-11884 og 92-11450.
Skólastjóri.
Unglingaheimili
ríkisins
Uppeldisfulltrúi
Starf uppeldisfulltrúa við fjölskyldusambýlið
í Sólheimum 17 er laust til umsóknar frá og
með 1. september nk.
Um er að ræða meðferðar- og uppeldisstarf
á deild innan Unglingaheimilis ríkisins. Unnið
er á vöktum. 3ja ára háskólanám á sviði
kennslu-, uppeldis-, sálar- eða félagsfræði
er æskilegt svo og reynsla af uppeldis- og
meðferðarstarfi.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Unglingaheimilis ríkisins, Síðumúla 13,
3. hæð. .
Nánari upplýsingar í Sólheimum 17, sími
685944, og á skrifstofu Unglingaheimiiisins,
sími 689270.
Forstjóri
Ritari
Fyrirtæki í Kópavogi auglýsa eftir starfskrafti
á skrifstofu sem þarf að geta hafið störf 1.
september nk. Um er að ræða vinnu við
vélritun, símsvörun, bókahaldsvinnu og önn-
ur tilfailandi verkefni. Gerðar eru kröfur um
góða kunnáttu í íslensku og haldgóða þekk-
ingu á ensku. Æskilegt er að viðkomandi
hafi bíl til umráða.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eigi síðar en 16. ágúst nk., merktar:
„Ritari - 7292“.
Starfskraftur óskast
Óskum að ráða starfskraft til afgreiðslu-
starfa í þjónustudeild okkar. Viðkomandi
þarf að vera 20 ára eða eldri, röskur, ábyggi-
legur og geta byrjað strax eða fljótlega.
Upplýsingar veitir Olafur Ingi, verkstjóri, á
staðnum. (Upplýsingar ekki gefnar í síma).
<8>
SS Heimilistæki hf ™
m Sætúni 8 Sími 691515-Kringlunni Sími 691520 m
WtKttKM l/tieAjUMSv&gýuéepA, i SOMiutujAitv ■■M
Sj ísafjarðarkaupstaður
Fjármálastjóri
Starf fjármálastjóra ísafjarðarkaupstaðar er
laust til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veita núverandi fjár-
málastjóri og undirritaður.
Umsóknir skulu sendar undirrituðum fyrir 15.
ágúst nk. á bæjarskrifstofurnar, Stjórnsýslu-
húsinu, Hafnarstræti 1, Isafirði.
ísafirði, 30. júlí 1991.
Bæjarstjórinn, ísafirði.
Kvennaathvarfið
Á næstunni þarf að ráða nýja félaga í vakt-
hóp kvennaathvarfs. Um er að ræða fullt
starf sem unnið er á vöktum. Hlutverk vakt-
hóps er að annast rekstur kvennaathvarfs-
ins, s.s. innkaup, skýrslugerð, ráðgjöf, kynn-
ingar og heimilisstörf. Nýir félagar fá 3ja
mánaða starfsþjálfun. Umsækjendur þurfa
að vera eldri en 30 ára og hafa brennandi
áhuga á málefnum kvennaathvarfsins.
Umsóknir, sem greina frá námi og starfs-
reynslu, berist Samtökum um kvennaat-
hvarf, Vesturgötu 3, pósthólf 1486, 121
Reykjavík, fyrir 15. ágúst nk.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma
613720.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóra vantar að fyrirtæki sem
selur hugbúnað fyrir myndræna, tölvustýrða
upplýsingamiðlun á sviði ferðamála af hörð-
um tölvudiskum og laserdiskum. Óskað er
eftir manni með menntun og/eða reynslu á
sviði stjórnunar, sölumennsku og tölvunotk-
unar. Jafnframt er æskilegt að viðkomandi
hafi þekkingu og reynslu á sviði íslenskra
ferðamála.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til auglýsingadeildar
Mbl. merktar: „Margmiðlun - 2203“ fyrir 15.
ágúst nk.
Með allar upplýsingar verður farið með sem
trúnaðarmál og umsóknum verður skilað til
sendandans.
Selfoss
Kennarar
Kennara vantar við gagnfræðaskólann á
Selfossi: Tónlistarkennsla, stærðfræði í
9. og 10. bekk.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma
98-21178.
Laus staða
lögreglumanns
Staða lögreglumanns við embætti sýslu-
manns Þingeyjarsýslu og bæjarfógeta
Húsavíkur er laus til umsóknar.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum ber-
ist undirrituðum fyrir 20. ágúst 1991.
Upplýsingar veitir undirritaður og yfirlög-
regluþjónn í símum 96-41300 og 96-41303.
Húsavík, 1. ágúst 1991.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
' Stykkis-
hólmur
Staða bæjarstjóra
f Stykkishólmi
Staða bæjarstjóra í Stykkishólmi er auglýst
laus til umsóknar.
Allar upplýsingar veita Ellert Kristinsson,
forseti bæjarstjórnar, í símum 93-81353 og
93-81300, og Sturla Böðvarsson, bæjar-
stjóri, í símum 93-81136 og 93-81274.
Umsóknir skal senda undirrituðum á bæjar-
skrifstofurnar við Skólastíg fyrir 15. ágúst nk.
Fyrir hönd bæjarstjórnar Stykkishólms,
Sturla Böðvarsson.
y Kópavogskaupstaður
Útideild
Starfsfólk óskast í útideild í Kópavogi. Um
er að ræða tvær 40% stöður. Reynsla og/eða
menntun í uppeldisgreinum æskileg.
Vinnutími er á kvöldin og um helgar.
Upplýsingar um störfin gefur Anna S. Sigurð-
ardóttir, unglingafulltrúi, í síma 45700.
Umsóknarfrestur er til og með 12. ágúst.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
Félagsmálastofnunar Kópavogs, Fannborg 4.
Starfsmannastjóri.
Suðurbæjarlaug -
baðverðir
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar til umsóknar
tvær stöður baðvarða karla í Suðurbæjarlaug.
Um dag-, helgar- ög kvöldvinnu er að ræða.
Ráðið er störfin frá og með 1. september nk.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður
Suðurbæjarlaugar frá kl. 8.00 til 12.00 alla
virka daga.
Umsóknir, þar sem m.a. er upplýst um
menntun og fyrri störf, berist eigi síðar en
12. ágúst nk. til bæjarskrifstofu Hafnarfjarð-
ar, Strandgötu 6.
Forstöðumaður.