Morgunblaðið - 03.08.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
174. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Umræða um EFTA-EB 1 Finnlandi;
Margir telja fulla
EB-aðild æskilega
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ kom illa við marga aðila í Finnlandi sem vilja fulla aðild Finna
að Evrópubandalaginu (EB) að samkomulag um evrópskt efnahags-
svæði (EES) tókst ekki á milli samninganefnda EB og Fríverslunar-
bandalags Evrópu (EFTA) í byrjun vikunnar. Háværar raddir hafa
verið uppi um að Finnar ættu að sækja um fulla EB aðild sem fyrst.
I forystugreinum finnskra dagblaða og í opinberum ummælum hef-
ur verið rætt um hugsanlegar beinar viðræður á milli Finna og EB
þar sem samningastaða EFTA gagnvart EB er nú afar slæm. Að
mati ieiðarahöfunda sýndu utanríkisráðherrar Evrópubandalagsins
EFTA-ríkjunum fyrirlitningu með því að að bíða ekki fundarins í
Brussel seint á mánudag.
Ráðstefna um frið í Miðausturlöndum:
Baker fékk ekki ákveðið
svar frá Palestímimönnum
Leiðarahöfundar töldu að nú
ættu Finnar að endurmeta samn-
ingastöðu EFTA og að vel kæmi
til greina að einstök lönd tækju sig
út og semdu beint við EB. Finnst
þeim að EB hafi fallist á flest þau
skilyrði sem skipta Finna miklu
• •
Oldungadeild
Bandaríkjaþings:
Heimila hem-
aðaraðgerðir
gegn Irökum
Washington, Lundúnum. Reuter.
ÖLDUN G ADEILD Bandaríkja-
þings ákvað í gær að veita
George Bush Bandaríkjaforseta
heimild til að „beita öllum að-
ferðum sem nauðsynlegar eru“
til þess að sjá til þess að Irakar
gætu ekki framleitt kjarnavopn.
Tillaga þessa efnis var lögð fram
af repúblikanum Bob Dole og var
hún samþykkt með 97 atkvæðum
gegn tveimur. Dole sagði að með
þessu væri þingið jafnframt að
heimila að hervaldi verði beitt ef
Saddam Hussein íraksforseti láti
ekki í té allar upplýsingar um getu
íraks til að framleiða gereyðingar-
vopn.
„Ef þú, Saddam Hussein, gengst
ekki nú þegar við áætlunum Iraka
um að framleiða efna- og kjarna-
vopn og upprætir þau, munum við,
Bandaríkin, forsetinn og þingið sjá
um það fyrir þig,“ sagði Dole.
Fyrr um daginn hafði Dick Chen-
ey, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, hótað að Bandaríkin
myndu beita vopnavaldi ef íraksfor-
máli, enda væru hvorki veiðikvótar
né sérskilmálar um umferð vörubfla
í Olpunum Finnum ofarlega í huga.
Þess vegna ættu Finnar að varast
að kasta frá sér þeim árangri sem
þegar hefur náðst.
Engin formleg ákvörðun hefur
samt verið tekin þar sem nú standa
yfir sumarleyfi stjórnmálamanna
og ráðamanna. Ríkisstjórnin heldur
formlega í þá stefnu að reyna þurfi
að ganga frá EES-samkomulagi þó
að seint verði.
Pertti Salolainen, utanríkisráð-
herra Finnlands, sem fer með for-
mennsku í EFTA um þessar mund-
ir, segist enn vera hlynntur EES-
samningi. A fundi sem hann átti
með utanríkisnefnd finnska þjóð-
þingsins á miðvikudag varpaði hann
samt fram þeirri hugmynd að hægt
væri að ná öðru samkomulagi við
EB, sem e.t.v. yrði ekki eins hag-
stætt, ef ekkert yrði úr EES-samn-
ingi í haust. Að loknum fundinum
sagði hann við fréttamenn að nokk-
ur EFTA-ríki hefðu ekki haft raun-
verulegan áhuga á að EES-samn-
ingur yrði að veruleika. Hann sagði
einnig að sér hefði komið það
spánskt fyrir sjónir að kröfur af
hálfu EB hefðu farið vaxandi á
meðan viðræðurnar stóðu yfir.
Jerúsalem, Amman, Beirút. Reuter.
gær við þrjá helstu leiðtoga
Palestínumanna, þ. á m. Faisal
al-Husseini, á fjögurra klst.
Iöngum fundi. Husseini gaf Bak-
er ekki ákveðið svar við því
hvort Palestínumenn myndu
sækja fyrirhugaða ráðstefnu um
frið í Miðausturlöndum, en gaf
þó í skyn að þeir væru fúsir til
þess. Hann sagði að svars væri
að vænta innan fárra daga.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að ráðstefnan væri
„nærri því“ í höfn og hvatti Isra-
ela og Palestínumenn til að leysa
ágreining sinn fyrir ráðstefn-
una.
Ráðgert er að halda ráðstefnuna
í október ef allir aðilar fallast á
að sækja hana fyrir þann tíma.
Palestinumenn eru nú þeir einu sem
eftir eiga að gefa ákveðið svar þar
að lútandi. Þeir hafna því enn að
ísraelar geti sett skilyrði fyrir því
hveijir _ fulltrúar Palestínumanna
verði. A fimmtudag féllst Yitshak
Shamir, forsætisráðherra ísraels, á
þátttöku ísraela í ráðstefnunni ef
fulltrúar frá Frelsissamtökum Pal-
estínumanna (PLO) og Palestínu-
menn frá austurhluta Jerúsalems
verði ekki á meðal þátttakenda.
Viðbrögð viðjáyrði Shamirs voru
yfirleitt mjög jákvæð í ísrael.
Helstu dagblöð þar í landi hylltu
ákvörðunina og sögðu að nú væri
allur þrýstingurinn kominn yfir á
Palestínumenn. Ariel Sharon, hús-
næðismálaráðherra ísraels, sagði
þó að _það yrðu söguleg mistök af
hálfu Israela að taka þátt í friðar-
ráðstefnu um Miðausturlönd og
hótaði að segja af sér ef svo færi.
Husseini, sem er nátengdur PLO,
sagði að Palestínumenn væru að
vinna að því að yfirstíga helstu
hindrunina, sem er deilan um það
hveijir eigi að verða fulltrúar þeirra
1,7 milljóna Palestínumanna sem
búa á hernumdu svæðunum.
Eftir fund sinn með Palestínu-
mönnunum hélt Baker til Amman
í Jórdaníu þar sem hann ræddi við
Hussein konung. Eftir þriggja klst.
fund ræddu þeir við fréttamenn og
hvatti Baker Palestínumenn til að
sækja ráðstefnuna og gefa ekki frá
sér það „sögulega tækifæri“ sem
nú byðist til að tryggja frið í Mið-
austurlöndum. Hussein gaf einnig
í skyn að Palestínumenn ættu að
sækja ráðstefnuna en forðaðist að
segja það beint.
seti hlýddi ekki samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna.
JAMES Baker, utannkisráð-
herra Bandaríkjanna, ræddi í
Reuter
Innrásarinnar
minnst í Kúveit
Eitt ár var í gær liðið frá því að
írakar réðust inn í Kúveit. Engar
opinberar minningarathafnir voru
skipulagðar af hálfu stjórnvalda
af þessu tilefni en íbúar Kúveit
minntust þeirra sem féllu í bar-
dögum_ eða meðan á hersetunni
stóð. Á myndinni má sjá Abdul
Nasser Fakhro syrgja við gröf
frænda síns, Wafa A1 Amar, sem
var einn af forystumönnum kúv-
eisku andspyrnuhreyfingarinnar.