Morgunblaðið - 03.10.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
224. tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovéska varnarmálaráðuneytið:
Semja verður um
fækkun í herafla
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA varnarmálaráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í gær
þar sem sagði að fækkun í hefðbundnum herafla væri háð samning-
um við Vesturveldin. Yfirlýsingin er gefin daginn eftir að Pavel
Gratsjev, fyrsti aðstoðarvarnarmálaráðherra, sagði í rússneska þing-
inu, að til athugunar væri að minnka herafla Sovétmanna um helm-
ing fyrir lok ársins 1994. Er yfirlýsingin tekin til marks um ágrein-
ing meðal æðstu manna um framtíð sovéskra varnarmála.
Jevgeníj Shaposhníkov, varnar-
málaráðherra Sovétríkjanna, sagði
í viðtali við rússneska sjónvarpið í
fyrradag, að í ljósi þess hve viðræð-
ur í Vínarborg um fækkun hefð-
bundinna vopna færu vel af stað
væri hann tilbúinn að mæla með
fækkun í landhernum úr 3,7 millj-
ónum í þijár milljónir. Hann sagði
það nægan niðurskurð en sagði
ekki á hvaða tímabili hann gæti
komið til framkvæmda.
í tilkynningu varnarmálaráðu-
neytisins í gær var vitnað til sjón-
varpsviðtalsins við Shaposhníkov
og sagt að hann hefði margsinnis
skýrt afstöðu ráðuneytisins opin-
berlega. I fyrirsjáanlegri framtíð
væri hægt að fækka hermönnum
um 700 þúsund. Frekari niður-
skurður í framtíðinni væri ekki úti-
lokaður en færi eftir stjórn- og
hermálaþróuninni í heiminum og
yrði að byggjast á gagnkvæmum
samningum og nýrri skipan örygg-
ismála í heiminum.
Pjotr Korotkevítsj, sem stjórnaði
rannsóknum á nýrri gerð kjarn-
orkuflauga þar til í fyrra, sagði í
samtali við vikublaðið Líteratúrnaja
Gazeta, í gær, að Sovétmenn verðu
nú um 300 milljörðum rúblna, jafn-
virði 210 milljarða dollara sam-
kvæmt opinberri gengisviðmiðun
sovétstjórnarinnar, til varnarmála á
ári. Er það þrisvar sinnum hærri
upphæð en yfirvöld halda fram
opinberlega.
Litningarannsóknir:
Reynist tíundi hver
Dani rangfeðraður?
FIMM til tíu prósent danskra
barna eru rangfeðruð ef marka
má rannsókn sem framkvæmd
var af Réttarlitningastofnun
Kaupmannahafnarháskóla.
Stofnunin athugaði DNA-litn-
inga eitt þúsund Dana en með sam-
anburði á litningum föður og barns
er hægt að slá því föstu hvort faðir-
inn sé raunverulega „hinn rétti“.
Finn Taksoe-Jensen, lagapró-
fessor við Kaupmannahafnarhá-
skóla, segir í samtali við danska
dagblaðið Jyllandsposten að erfitt
geti reynst fyrir feður, sem gruna
að börn þeirra séu rangfeðruð, að
fá því breytt. Samkvæmt dönskum
lögum sé ekki hægt að höfða fað-
ernismál eftir að barn hefur náð
fimm ára aldri. Þangað til sé það
hægt en einungis ef faðirinn hafi
ekki áður viðurkennt barnið sem
sitt. „í raun reyna nánast allir feð-
ur frekar að halda hjónabandinu
saman og ýta hugsanlegum grun-
semdum af þessu tagi frá sér,“ seg-
ir Taksoe-Jensen.
f
Morgunblaðið/Páll Þórhallsson
Forseti Islands í Dyflinni
Opinber heimsókn forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, til
írlands hófst í gær. Frú Mary Robinson, forseti írlands, tók á móti
Vigdísi á flugvellinum í Dyflinni og var síðan kannaður heiðursvörður
og skotið af fallbyssum til að fagna gestinum. A myndinni sjást for-
setarnir heilsast og með frú Robinson er eiginmaður hennar, Nich-
olas Robinson. Um 150 íslenskir farþegar í Flugleiðaþotunni í baksýn
gátu fylgst með móttökunni en þeir eru í innkaupaferð til Dyflinnar.
Sjá frétt á bls. 4
Valdaránið á Haiti:
íhlutun fjöl-
þjóðlegs
herliðs ekki
útilokuð
Port-au-Prince, Washington. Reuter.
VALDARÁNIÐ á Haiti hefur verið
fordæmt víða og Evrópubandalag-
ið og ríkisstjórnir ýtnissa vest-
rænna ríkja hafa ákveðið að hætta
fjárstuðningi við Haitistjórn. Seg-
ir í yfirlýsingum þeirra, að þau
líti enn á Jean-Bertrand Aristide
sem lögmætan forseta í landinu
og Bandaríkjastjórn hyggst beita
herforingjastjórnina efnahagsleg-
um og pólitiskum refsiaðgerðum.
Vill hún ekki útiloka, að fjölþjóð-
legur her verði sendur til landsins.
Leiðtogi valdaránsmannanna, Ra-
oul Cedras hershöfðingi, kom fram
í sjónvarpi í fyrrakvöld og sagði, að
byltingin hefði verið gerð til að
„tryggja stjórnarskrárréttindi þegn-
anna“, sem Aristide forseti, „uppvax-
andi einræðisherra", hefði ætlað að
taka af þeim. Um sínar eigin áætlan-
ir og þriggja manna herforingja-
stjórnar ræddi hann ekki en Ar-
istide, sem flýði til Venezúela, sagði
í Caracas í gær, að valdaránsmenn-
irnir yrðu ekki lengi við stjómvölinn
og hét því að snúa aftur til Haiti. í
gær hélt hann til Washington á fund
Samtaka Ameríkuríkja þar sem hann
bað um stuðning þeirra við að konta
valdaránsmönnunum frá.
Óttast er, að valdaránið hafi kost-
að mörg hundruð manns lífið og er
haft eftir vitnum, að hermenn fari
um götur í höfuðborginni, Port-au-
Prince, og víðar og skjóti á fólk af
handahófi. Ráðherrar í ríkisstjórn
Aristide og ýmsir frammámenn á
Haiti hafa surnir verið handteknir
en aðrir hafa leitað hælis í erlendum
sendiráðum eða fara huldu höfði.
Sambandsher Júgóslavíu ger
ir harða hríð að Dubrovnik
Zagreb, Belgrad, Róm. Reuter.
STJÓRN Svartfjallalands, sem
styður Serba í deilunum í Júgó-
slavíu, kallaði í gær út varalið
hersins í lýðveldinu og óttast
Bretiand:
V erkamannaflokkurinn
heitir mikilli uppstokkun
Brighton. Reuter.
ROY Hattersley, varaformaður Verkamannaflokksins, heitir því að
flokkurinn muni leggja niður iávarðadeild breska þingsins og gera
stjórnarskrárbreytingar í átt til aukins lýðræðis komist hann til
valda í næstu kosningum.
í ræðu á landsfundi Verka-
mannaflokksins í gær sagði Hatt-
ersley ennfremur að það kæmi til
álita að breyta kosningalöggjöfínni,
kæmist Verkamannaflokkurinn til
valda, þannig að þingstyrkur flokka
yrði í samræmi við kjörfylgi þeirra.
Einmenningskjördæmi þar sem
efsti maður sjgrar eru nú við lýði
í Bretlandi. íhaldsflokkurinn hélt
völdum eft.ir tvennar síðustu þing-
kosningar þrátt fyrir að hann fengi
ekki meirihluta atkvæða. Hingað
til hefur Verkamannaflokkurinn
ekki léð máls á því að breyta kosn-
ingalöggjöfinni.
stjórnmálaskýrendur að þetta
merki að Svartfellingar hyggi á
beina þátttöku í bardögum Serba
og Króata. Talið er að yfir þús-
und manns hafi fallið í átökunum
undanfarnar vikur. Harðir bar-
dagar voru um alla Króatíu í
gær, eldar loguðu í fjallshlíðum
við ferðamannaborgina Dubr-
ovnik sem ráðist var á af landi,
úr lofti og af sjó, bílflök lágu
eins og hráviði á vegum í grennd-
inni. Króatíska útvarpið sagði að
tvær MiG-þotur flughersins
hefðu verið skotnar niður yfir
borginni. Lloyds-tryggingafélag-
ið í London varaði í gær við tund-
urduflum á siglingaleiðum við
Júgóslavíu.
Herinn beitti stórskotaliði og
sprengjuvörpum í árásunum á
Dubrovnik, annan daginn í röð.
Rafmagns- og vatnsleiðslur borgar-
innar eru í sundur, samgöngutæki
eru sködduð og herinn hefur iokað
helstu aðflutningsleiðum. Embætt-
ismaður í borginni sagði ástandið
mjög slæmt, skriðdrekar og fót-
göngulið sambandshersins væru
komin að suðurhverfum hennar.
Heimildarmenn sögðu að tugir
manna hefðu fallið í grennd við
Dubrovnik, sem er þekkt og forn-
fræg ferðamannaborg, einnig við
borgirnar Osijek og Vukovar í
austurhéruðunum og við Nova Gra-
diska. Tölum stríðsaðila um mann-
fall bar ekki saman.
Sambandsherinn, þar sem Serbar
ráða öllu, ítrekaði í gær hótanir um
að eyðileggja undirstöðumannvirki
Króata. „Þessu er endanlega iokið,
við erum hættir að trúa orðum
þeirra," sagði í yfirlýsingu æðstu
yfirmanna Júgóslavíuhers í gær um
afstöðu króatískra stjórnvalda. Þau
voru sökuð um að hafa notað
ótryggt vopnahlé til að endurskipu-
leggja lið sitt.
Herinn hefur undanfarna mánuði
orðið fyrir hverri auðmýkingunni á
fætur annarri í baráttunni við Slóv-
ena og Króata sem vilja slíta öll
tengsl við sambandsríkið Júgóslvaíu
og verða sjálfstæð lýðveldi. Ráða-
menn Króata sögðu í gær að vopn-
aðar sveitir þeirra hefðu umkringt
um 70 búðir sambandshersins í lýð-
veldinu. Franjo Tudjman, forseti
Króatíu, sendi á þriðjudag George
Bush Bandaríkjaforseta bréf þar
sem hann fer fram á aðstoð Banda-
ríkjanna í stríðinu við Serba. Tudj-
man ræddi við ítalska ráðamenn í
Róm síðdegis í gær og hét hann
því að láta hætta umsátrinu um
herbúðirnar jafnskjótt og Júgó-
slavíuher hætti árásum á lýðveldið.
Tudjman á fund með Jóhannesi
Páli II páfa í dag. Króatar og Slóv-
enar eru kaþólskir, en Serbar til-
heyra Réttrúnaðarkirkjunni. Ut-
anríkisráðherra Páfagarðs, Angelo
Sodano, sagði að reynt væri að fá
ríki heims til að sameinast um að
viðurkenna sjálfstæði Króatíu og
Slóveníu.