Morgunblaðið - 03.10.1991, Qupperneq 15
MOJRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAQUR 3. QKTÓBER 19Q1
15
Einstakt listaverk
eftir Ragnar
Tómasson
I'erlan í Öskjuhlíð er einstakt
listaverk. Hún er hugvitssamleg
lausn afar ólíkra viðfangsefna. Full-
gerð er hún einföld og auðskilin.
I upphafi verks hefur enginn einn
maður eða hópur manna þá reynslu,
þekkingu og innsæi að geta metið
í smáatriðum hönnunar- og fram-
kvæmdaferil slíkrar byggingar til
enda.
Mistök og endurmat á ýmsum
verkþáttum einkenna alla metnað-
arfulla frumsmíð.
Hið fegursta ljóð getur verið svo
einfalt í gerð að vandalaust virðist.
Fæstum endist þó ævin öll til að
kveða það ljóð sem lifir höfund sinn.
Það þurfti kjark til þess að ráð-
ast í byggingu Perlunnar, því sam-
tíminn lastar það oft sem sagan
síðan lofar.
Á þriðja hundrað þúsund manns
hefur þegar heimsótt Perluna.
Erlendir'ferðamenn flykkjast þang-
að.
Gjaldeyristekjur okkar af ferða-
mönnum eru yfir 12 milljarðar á
ári. Það eru dýrmætar tekjur í fiski-
Ragnar Tómasson
leysi okkar og lækkuðu álverði.
í mínum huga leikur ekki vafi á
því hver dómur sögunnar um Perl-
una og þá sem að henni stóðu verð-
ur.
Höfundur er lögniaður.
M ÞEIR SKÁTAR sem hafa tekið
þátt í Gilwell-námskeiðum, alþjóð-
legum foringjanámskeiðum skáta,
koma saman árlega á Úlfljóts-
vatni. Að þessu sinni verða endur-
fundir Gilwell-skáta laugardaginn
5. október 1991 og hefst dagskrá
í Úlfljótsvatnskirkju kl. 18.00. Gilw-
ell-þjálfunin dregur nafn sitt af al-
þjóðlegum foringjaskóla skáta sem
er í Gilwell Park í London og við
þann stað var Baden-Powell stofn-
andi skátahreyfingarinnar kenndur
er hann fékk lávarðstign. Hafa
skátar um allan heim kennt þjálfun
þessa við Gilwell í virðingarskyni
við Baden-Powell. Um þessar
mundir eru 32 ár liðin frá því er
fyrsta Gilwell-námskeiðið var hald-
ið á íslandi og eru Gilwell-skátar
hvattir til að fjölmenna að Úlfljóts-
Björgvin Magnússon skólastjóri
vatni og hitta gamla félaga og rifja
upp skátastörf sín og gamlar minn-
ingar frá Úlfljótsvatni.
(Fréttatilkynning)
SIEMENS-gæð/
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóöar og á mjög góðu verði.
HS 24020
! Breidd 60 sm
I Grill
14 hellur
I Geymsluskúffa
HN 26020
Breidd 50 sm
Grill
4 hellur
! Geymsluskúffa
Munið umboðsmenn okkar víðs vegarum landið
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs.
• Borgarnes: Glitnir.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvitárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir.
• Grundarfjöröur: Guöni Hallgrimsson.
• Stykkishólmur: Skipavík.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar.
• ísafjörður: Póllinn hf.
• Blönduós: Hjörleifur Júliusson.
• Sauöárkrókur: Rafsjá hf.
• Siglufjöröur: Torgið hf.
• Akureyri: Sir hf.
Húsavik: Öryggi sf.
Þórshöfn: Norðurraf
Neskaupstaöur: Rafalda hf.
Reyðarfjörður: Rafnet.
Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmundss
Breiðdalsvik: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss.
Höfn i Hornarfirði: Kristall.
Vestmannaeyjar: Tróverk hf
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga.
Selfoss: Árvirkinn hf.
Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar
Keflavík: Ljósboginn.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
PATRICK SWAYZE KEANIIREEVES
FRUMSÝNING Á TOPPMYND ÁRSINS
SÍMI 78900 - ÁLFABAKKA 8 - BREIÐHOLTI
SÝND KL. 4.40,6.50,9 og 11.15.