Morgunblaðið - 03.10.1991, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1991
ATVINNUAUGIYSINGAR
Óskum eftir hressum og glaðlegum nemum
í framreiðslu (þjóninn).
Einnig óskum við eftir aðstoðarfólki í sal -
tilvalið fyrir skólafólk.
Upplýsingar á staðnum eða í símum 624045
og 29499.
Café Ópera,
Lækjargötu 2.
Húsgagnaverslun
Röskur og lipur starfskraftur, karl eða kona,
getur fengið gott framtíðarstarf við af-
greiðslu- og sölustörf á verslunargólfi stórrar
húsgagnaverslunar. Leitað er að þjálfuðum
og starfsreyndum manni eða konu með
meðmæli sem staðfesta þjónustuhæfileika á
verslunarsviði og sem hækkar í launum í
þessu nýja starfi.
Eiginhandarumsókn, sem greini ýtarlega frá
fyrri störfum og öðru sem máli skiptir, ósk-
ast send á auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Sölureynsla - 11896“.
Öllum umsóknum verður svarað og með þær
farið sem trúnaðarmál.
Fyrsti vélstjóri
óskast á Guðmund, VE 29, til síldar- og
loðnuveiða.
Vélarstærð 809 kwa.
Upplýsingar í síma 98-12300 eða 98-12303
hjá útgerðarstjóra.
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðinguróskasttil starfa á nætur-
vaktir í 60% starf.
Hjúkrunarstjóralaun eru í boði.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
Sólvangs í síma 50281.
Vinnuvélastjórar
Viljum ráða menn vana jarðýtum.
Upplýsingar í símum 98-78700, 78240
og 985-20067.
Verkstjóri
Aðstoðarverkstjóra vantar í rækjuvinnslu.
Upplýsingar í símum 96-61475 og 96-61395.
Söltunarfélag Dalvíkur hf.
iL'
ST. JÓSEFSSPlTALI
LANDAKOTI
Ársstaða aðstoðarlæknis á lyflækningadeild
Landakotsspítala er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. janúar 1992.
Umsóknir, með upplýsingum um nárrisferil
og fyrri störf, sendist til yfirlæknis lyflækn-
ingadeildar, sem veitir nánari upplýsingar.
Reykjavík, 25. sept. 1991.
St. Jósefsspítali,
Landakoti.
Kynningarstörf
Óskum eftir dugmiklu og jákvæðu starfsfólki
til að annast kynningar á sælkerabökum í
verslunum og mörkuðum á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar tim nafn,
aldur, síma og fyrri störf á auglýsingadeild
Mbl. merktar: „Baka - 7300" fyrir 5. október.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJANESSVÆÐI
Hefur þú metnað í
starfi?
Hjá Svæðisstjórn á Reykjanesi er starfandi
hópur af fóiki, sem hefur metnað og áhuga
á að þroskast í starfi svo og að vaxa sem
einstaklingar. Við leggjum ríka áherslu á
uppbyggjandi samskipti og árangursríkt
samstarf.
Við bjóðum upp á skemmtileg og fjölbreytt
störf með fötluðum á sambýlum,
skammtímavistun og á hæfingarstöð.
Hjá okkur verður þú ekki ein/einn í starfi,
því við getum boðið þér upp á stuðning
og/eða handleiðslu.
Starfið er í sífelldri þróun og lögð er rík
áhersla á að þörfum skjólstæðinga og starfs-
manna sé mætt sem best hverju sinni.
í okkar hóp vantar okkur bæði þroskaþjálfa
og aðra starfsmenn.
Ef þú hefur áhuga, þá getum við gefið þér
nánari upplýsingar í síma 641822 milli kl.
11.00 og 12.00 virka daga.
Kærkveðja.
Starfsfólk Svæðisstjórnar Reykanessvæðis.
RAÐA/ ló^l Y^IIKIC^AR
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Myndlistarmenn athugiðU!
„Nordisk tecknings triennal 1992“
Norræni teiknþríæringurinn verður haldinn í
annað sinn árið 1992. Öllum listamönnum
íslenskum er heimil þátttaka. Auk þess verð-
ur einum íslenskum listamanni boðin þátt-
taka sérstaklega.
Umsóknir þurfa að berast aðalskrifstofu
þríæringsins í Svíþjóð eigi síðar en 25. októ-
ber nk. og senda þarf inn teikningar fyrir
8. nóvember.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu
Sambands íslenskra myndlistarmanna við
Freyjugötu 41, kl. 10.00-14.00.
Frá skrifstofu SÍM.
Ferðaþjónustubændur -
starfsþjálfun
Margrét Jóhannsdóttir, ráðunautur Búnaðar-
félags íslands, mun halda kynningarfundi um
Fjarnám í Ferðaþjónustu bænda á eftir-
farandi stöðum:
Á Hótel Borgarnesi fimmtudaginn
3. október kl. 20.00.
Á Narfastöðum í Reykjadal sunnudaginn
6. október kl. 20.00.
Á Bakkaflöt í Lýtingsstaðahreppi mánud.
7. október kl. 20.00.
Um er að ræða samvinnuverkefni Ferðaþjón-
ustu bænda, Fræðslusviðs Iðntæknistofnun-
ar og Bréfaskólans með aðstoð félagsmála-
ráðuneytisins.
6-10 ára
Morguntímar í teiknun, málun og mótun
fyrir 6-10 ára börn.
Upplýsingar á skrifstofu skólans milli
kl. 16.00 og 19.00.
Myndlistaskólinn íReykjavík,
Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík,
_________sími 11990.__________
KENNSLA
Táknmálsnámskeið
3ja vikna byrjendanámskeið í táknmáli -
TÁK I hefst þann 14. október.
3ja vikna framhaldsnámskeið - TÁK II
hefst þann 18. nóvember.
Kennt verður á mánudags-, þriðjudags- og
fimmtudagskvöldum frá 19.30-21.10 í Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnar-
skertra við Vesturhlíð.
Innritun í síma 627702.
Morgunleikfimi
alla morgna fyrir konur og karla.
AtíRftrrN
\HosieJ
v/Bergstaðastræti,
sími 15103.
Gítarkennsla
Nú getur þú lært á gítar í gegnum bréfa-
skóla. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið í rokk og blús hefjast í hverri viku.
Upplýsingar í síma 91-629234.
Félag íslenskra gítarleikara.
Róleg kvennaleikfimi
mánudaga og miðvikudaga kl. 13.30, 16.30
og 17.45. ___, .
nÍRMrN
uwsiej
v/Bergstaðastræti,
sími 15103.
Síldarnóttil sölu eða leigu
Lengd 220 faðmar, dýpt 70 faðmar, garn
210/12.
Nánari upplýsingar gefur Netagerð Sveins
Vilhjálmssonar hf., Neskaupstað,
sími 97-71439.
Eignarh.fél.
Iðnaðarbankans
Til sölu hlutabréf að nafnverði kr. 2 milljónir.
Tilboð, miðað við staðgreiðslu, sendist til
auglýsingadeildar Mbl. merkt: „Góð fjárfest-
ing - 1056".