Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991 mmmn /frmcé er b/Fse&Ul 09 h-Ctt er upp- t) Skntt /yzL kJnu-trskam matsöU/stno- Ást er... 6-8 ... þegar boltinn skiptir ekki máli — aðeins hann. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ® 1991 Los AngelesTimes Syndicate Láttu mig svara. Við þurfuni að leggja af stað eftir klukku- tíma ... SVALA LIND / Útsölumál ÁTVR Við sátum 15 saman og fengum okkur kaffisopa einn eftirmiðdag í síðustu viku. Margt var skrafað og víða komið við, en endirinn varð sá að samræð- urnar snerust nær eingöngu um tvö mál, sem nú eru mjög á vörum manna hér í borg, nefnilega ákvörð- un borgarstjórnar nú nýlega um að leyfa bílaakstur um göngugötuna, þ.e. austasta hluta Austurstrætis, til reynslu í 6 mánuði, og í öðru lagi flutning áfengisútsölunnar frá Lind- argötu og niður í Austurstræti. Þessi tvö mái spinnast saman á ýmsa vegu, eins og koma mun fram hér á eftir, en mesta umfjöllun fékk flutningur áfengisútsölunnar, sem allir sem afstöðu tóku voru algjör- lega á móti. Öllum bar saman um að mjög stór hópur manna og ekki hvað síst kvenna muni veigra sér við að ganga — oftast um langan veg — með áfengispoka, þar í bænum sem um- ferð er mest að degi til, því ekki verður hægt að leggja bíl rétt við innganginn nema í örfáum undan- tekningar tilfellum. Við útsöluna í Lindargötu og næsta nágrenni er að jafnaði hægt að leggja tugum, ef ekki töluvert í annað hundrað bílum, sem nær ein- göngu stoppa aðeins örstutta stund, því þarna er varla nokkur umferð nema þeirra sem erindi eiga í áfeng- isútsöluna og gangandi umferð varla merkjanleg nema þá þeirra sem eru þar sömu erinda og þeir sem koma akandi. Það er því lítið feimnismál að láta sjá sig þar með áfengispoka. Þá verður engin aðstaða í Aust- urstræti fyrir þá sem þurfa að gera stærri innkaup, þ.e. að kaupa í kassavís. Má í því tilfelli nefna flutn- ingabílstjóra utan af landi, sem iðu- lega gera stórinnkaup, stundum fyr- ir tugi manna utan af landi. Sú að- staða er hin ágætasta við Lindar- götu útsöluna. Við fengum heldur ekki séð að sú ráðstöfun að opna göngugötuna fyrir bílaumferð komi verslunar- mönnum við Austurstræti að nokkni leyti til góða, ekki síst fyrir þá sök að bílastæðum mun fækka verulega, líkast til bæði í Vallarstræti og Thor- valdsensstræti, bæði vegna að- keyi'slu en þó sérstaklega vegna frá- keyrslu fyrir stóra flutningabíla, .jafnvel með „kálfa“ aftaní. Það var álit okkar að samdráttur í verslun í miðbænum sé ekki því að kenna að ekki sé hægt að keyra bíla alla leið frá Lækjargötu til Aðal- strætis, heldur vegna tilkomu stór- markaðanna og að opna göngugöt- una fyrir bílaumferð muni hafa lítil sem engin áhrif til batnaðar. Eins vorum við allir sannfærðir um að opnun áfengisútsölu í Aust- urstræti og lokun Lindargötuútsöl- unnar muni hafa mjög neikvæð áhrif fyrir ATVR. Austurstrætisútsalan mun aldrei komast í hálfkvisti við Lindargötuna. Þá má og geta þess að forstöðumaður Lindargötuútsöl- unnar sér alltaf til þess að af- greiðslufólk sé ávallt til staðar, kurt- eist og lipurt um allar upplýsingar, sem ekki er hægt að segja um neina aðra útsölu. í þeim öllum getur ver- ið erfitt að finna afgreiðslufólk og sérstaklega þegar mikið er að gera. Besta lausnin, ef nauðsynlegt þykir að opna útsölu í Austurstræti, sem sjálfsagt kæmi sér vel fyrir suma en fáa, væri að halda samt áfram útsölunni við Lindargötu, enda skilst okkur að hún sé arðbær- asta útsala landsins, enda aðstæður þar bestar, bæði utanhúss og innan, afgreiðslufólk liprast og vantar aldr- ei til leiðbeininga. Aðalstöðvarnar á Stuðlahálsi bjóða, að vísu, upp á ágæt bílastæði, en þær eru staðsett- ar nánast uppi í sveit, afgreiðslurými mjög takmarkað og afgreiðslufólk sjaldséð, utan gjaldkera. Að loka Lindargötuútsöiunni fyrir aðra í Austurstræti er molbúahátt- ur, framkvæmdur í anda Gísla, Ei- ríks og Helga. Hvorki verður sól- arljósið borið inn í bæinn í fötum né tunnan nýtt ef botninn hefur gleymst í Borgarfirði. Væri ekki nær að opna útsölu í vesturbænum. Þessi mjólkurkýr mundi hagnast best á því. Albesta lausnin væri þó sérversl- anir með áfengi, reknar af einstakl- ingum, og að afnema um leið þá sérréttindahópa .sem heimilt er að kaupa áfengi á innkaupsverði. ÁTVR mundi engu tapa á því en spara um leið himinháar upphæðir í rekstrarkostnaði. Að lokum skörum við á sem flesta að láta í ljósi skoðun sína á þessu máli. Það þarf að afnema þessar hafta- og einokunarráðstafanir sem Framsóknarflokkurinn fann upp á sínum tíma, eða hvað finnst nútíma- fólki um bann við að nefna orðið DANS í auglýsingum, sem var í gildi um árabil og fundið upp af ráðherra Sjálfstæðisflokksins? F.h. Kaffiklúbbsins Þaulseta, JÚIÍUS. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi livetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- Ieyndar. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeiiur eða árásir á nafngreint fólk. HÖGNI ÍIHI.KKVÍSI Víkverji skrifar Víkveiji hefur veitt því athygli, að kvikmyndahúsin virðast nú ganga harðar eftir því en áður hefur tíðkast, að aldurstakmörk séu virt. Tólf ára vinur Víkveija var þannig vísað frá við miðasölu í Regnboganum fyrir skömmu, þegar hann ætlaði sér að sjá mynd, sem bönnuð var börnum yngri en 16 ára. Þá fór þessi sami vinur í Stjörnubíó um síðustu helgi, til að sjá Arnold Schwarzeneggei' í kvik- myndinni Tortímandanum. Skýrt er tekið fram í auglýsingum kvik- myndahússins, líkt og Regnbogans, að myndin sé bönnuð börnum yngri en 16-ára, svo drengurinn mátti svo sem sjálfum sér um kenna, þegar honum var vísað frá, enda reynsl- unni ríkari eftir ferð sína í Regnbög- ann. XXX Víkverji sýndi þessum unga vini litla hluttekningu, þegar hann kvartaði sáran undan óréttlæti heimsins og harðneskju starfsfólks kvikmyndahúsanna. Víkveiji telur nefnilega, að það sé fyrir löngu tímabært að láta þessi aldurstak- möi'k gilda í raun, því hingað til hafa allt of ung börn getað séð ótrúlegar ofbeldimyndir. Það sljákkaði þó talsvert í Víkveija þeg- ar andlit vinarins unga ljómaði skyndilega og hann sagði að í raun væri hann ekkert súr yfir málalok- unum í Stjörnubíói, því hann gæti alltaf nálgast myndina síðar á myndbandaleigu! Því miður er þetta sennilega hárétt hjá honum, því Víkveiji hefur oftar en einu sinni séð yngri börn en hann ganga út af myndbandaleigunum með mynd- ir, sem fullorðnum hryllir við. Það er því full ástæða til að biðja starfs- fólk myndbandaleiganna að taka upp sömu reglur og starfsfólk kvik- myndahúsanna, en þó er mikilvæg- ast að foreldrar reyni að sporna við því að börnin sitji yfir óhugnanleg- um kvikmyndum. xxx Sænska dagblaðið Dagens nyhet- er skýrði fyrir skömmu frá áköfum veiðimanni og er sú saga látin fljóta hér með fyrir skotveiði- menn. Hópur veiðimanna hafði orð- ið viðskila við félaga sinn, en menn- irnir voru á elgsveiðum. Þeir gengu fram á félagann kviknakinn á ströndinni, en við hlið hans lá dauð- ur elgur. Þegar veiðimaðurinn, sem var nokkuð þrekaður, hafði jafnað sig sagði hann félögum sínum veiði- söguna. Hún var á þá leið, að hann hafði skotið-á elginn í skóginum, en aðeins náð að særa hann. Elgur- inn ruddist í gegnum skóginn, niður að strönd og lagðist til sunds. Veiði- maðurinn hikaði ekki, kastaði af sér klæðum og synti á eftir. Að skammri stundu liðinni dró af elgn- um. Veðimaðurinn synti að honum, náði taki á hornunum og fór á bak elgnum. Dýrið sá sitt óvænna og synti til lands. Þar fundu félagar veiðimannsins ákafa hann og dýrið, sem var þá dautt. íslenskir skot- veiðimenn eru sjálfsagt margir miklir ákafamenn, en ekki er þó hægt að mæla með því að þeir elti gæsina eða ijúpuna á haf út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.