Morgunblaðið - 03.10.1991, Síða 48
FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Utanríkisráðherra um EES eftir
fund með írskum starfsbróður:
ur farið breikkandi
Dvflimii. Frá Páli Pórhailssyni blaóainaiini
ÞAÐ VAR þungt hljóðið í Jóni
Baldvin Hannibalssyni utanríkis-
ráðherra eftir viðræður hans í
gær við Gerald Collins utanríkis-
ráðherra Irlands í Dyflinni í
gær. Arangur hefði enginn verið
og minni líkur væru nú um sam-
komulag um Evrópskt efnahags-
svæði en áður.
Fundur utanríkisráðherra Evr-
ópubandalagsins í fyrradag skilaði
- litlum árangri. „Afstaða Breta er
óbreytt, afstaða Frakka hefur
harðnað, afstaða framkæmda-
stjórnarinnar er óþekkt, bilið milli
aðila hefur farið breikkandi, líkurn-
ar á að þessir samningar takist eru
minni nú en áður,“ sagði Jón Bald-
vin. Aðspurður um árangur af rúm-
lega klukkustundar löngum fundi
með Collins sagði Jón Baldvin að
hann hefði enginn verið.
Collins sagði við fréttamenn eftir
fundinn að írar gætu ekki fallið frá
þeirri afstöðu sinni að ekki mætti
■tleyfa tollfrjálsan innfiutningtil Evr-
ópubandalagsins á síld, lax og
makríl. Afkoma heillra byggðarlaga
væru í húfi. Hann kvaðst þó von-
góður um að samningar næðust á
endanum þar sem jafnvægi ríkti
milli kröfugerðaraðila en fyrst
þyrfti EB að leysa innbyrðis deilu
um afstöðuna til EES, nánar tiltek-
ið um samningsumboð til handa
framkvæmdastjórninni. Stefnt væri
að því að þetta gerðist 21. október
Morgunblaósins.
nk. en útilokað væri að ljúka samn-
ingum fyrir þann tíma, til þess
væri tíminn of naumur.
ísklifurá Sólheimajökli
Morgunblaðið/Þorkell
Tólf áhugamenn um ísklifur fóru nýlega á Sólheimajökul til að læra þessa íþrótt undir stjórn leiðbeinenda
úr Islenska alpaklúbbnum. Myndin var tekin þegar tveir piltar voru að leiða í fyrsta skipti, það er að klífa
ísvegg án þess að hafa reipi að ofan til að reiða sig á.
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarimiar lagt fram á Alþingi:
Ríkisútgjöld lækka um 5
milljarða að raungildi
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra l.agði í gær fram á Alþingi fjár-
lagafrumvarp fyrir næsta ár. Samkvæmt því eiga tekjur ríkissjóðs að
verða 106,4 milljarðar króna samaborið við 101,9 milljarða kr. í endur-
skoðaðri áætlun fyrir yfirstandandi ár. Heildargjöld verða 110,1 millj-
arður og halli á ríkissjóði því 3,7 milljarðar eða sem svarar til 1% af
landsframleiðslu. Utgjöld ríkisins lækka um 5 milljarða kr. að raun-
gildi á næsta ári og er einuig áætlað að skatttekjur, metnar á föstu
verðlagi, verði ivið Iægri en á þessu ári. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs
er áælluð 4 niilljarðar á næsta ári, eða sem nemur 1,1% af landsfram-
leiðslu og lækkar um 8 milljarða kr. á milli ára.
I frumvarpinu er ekki gert ráð
fyrir neinum launahækkunum á
næsta ári. Er reiknað með rúmlega
3% samdrætti þjóðartekna og að við-
skiptahalli verði 17 milljarðar á
næsta ári, kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna rýrni um 3% og að fram-
færsluvísitalan hækki um 3% frá
upphafi til loka næsta árs en um
5,5% ef miðað er við hækkun á milli
Friðrik sagði að brýnasta verkefni
ríkisstjórnarinnar væri að draga úr
lánsfjárþörf ríkisins og opinberra
stofnana og sagðist vilja ná víðtæku
samstarfi við launþegahreyfinguna
um það, sérstaklega vegna hús-
næðismála. Sagði hann að þrátt fyr-
ir efnahagssamdrátt á næsta ári, sem
muni skei'ða hefðbundna skatteiefna,
verði ekki gripið til þess ráðs að
hækka skatthlutföll eða leggja á
nýja skatta.
Útgjöld ríkissjóðs til samneyslu
lækka um 1,8 milljarða kr. að raum
gildi frá áætlun yfirstandandi árs. í
stað þeirra munu sértekjur fyrirþjón-
ustu ríkisstofnana aukast um tæp-
lega 2,5 milljarða kr. Tilfærslur, eins
og bótagreiðslur almannatrygginga,
niðurgreiðslur á vöruverði og fram-
lög til atvinnuvega, sveitarfélaga og
sjóða, lækka að raungildi um rúma
3 milljarða kr. Þar vegur þyngst
lækkun á framlagi til sjúkratrygg-
inga um 23,7% frá áætluðu framlagi
á þessu ári.
Áætlað er að tekjur af tekju- og
eignarskatti einstaklinga og fyrir-
tækja aukist að raungildi á næsta
ári mælt á verðmælikvarða lands-
framleiðslu. Á hinn bóginn er gert
ráð fyrir nokkrum samdrætti í veltu-
sköttum, þar sem ráðstöfunartekjur
heimilanna dragast saman um allt
að 3%. Þá verður jöfnunargjald fellt
niður um næstu áramót og við það
minnka tekjur ríkissjóðs um 900
millj. í undirbúningi eru breytingar
á tekjuskattslögunum sem miða að
því að draga úr endurgreiðslum til
tekjuhærri skattgreiðenda þó engar
ákvarðanir hafi verið teknar um það
en miðað er við að þær rúmist innan
ramma frumvarpsins.
Sjá fréttir um fjárlagafrum-
varpið í fjögurra síðna B-blaði,
í uuðopnu og á bls.2.
Hlaup í Skeiðará
virðist í aðsigi
Fýlu leggur af jöklinum og áin er dökk,
segir Ragnar Stefánsson í Skaftafelli
Bilið milli aðila hef-
SKEIÐARÁRHLAUP virðist
vera í aðsigi. Ragnar Stefánsson
bóndi í Skaftafelli telur miklar
líkur á því miðað við reynslu
síðustu áratuga. Hann vill samt
ekki fullyrða neitt um málið en
segir ýmis teikn benda til að
hlaup sé í aðsigi.
„Vatnið í Skeiðará hefur farið
vaxandi undanfarna tíu daga og
við höfum fundið jökulfýlu af og
til,“ segir Ragnar.
„Þar að auki er vatnið nú venju
fremur dökkt á litinn en allt eru
þetta hefðbundnar vísbendingar
um að hlaup sé í aðsigi.“
Skeiðará hljóp síðast á árinu
1986 eða fyrir fimm árum síðan.
í máli Ragnars Stefánssonar kem-
ur fram að venjan hafi verið á
síðustu áratugum að hlaup verða
í ánni á fimm ára fresti, þannig
að tímasetningin á hlaupi nú væri
nærri lagi.
„Ég hef fylgst grannt með ánni
nú síðustu fjóra daga og að mínu
mati stefnir þróunin nú í hlaup.
En það er ekkert hægt að segja
með vissu og lítið hægt að spá því
áin er dyntótt," segir Ragnar Stef-
ánsson í Skaftafelli í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Sigurjón
hyggst selja
Propaganda
SIGURJÓN Sighvatsson og Steve
Golin félagi hans eru í þann veg-
inn að selja hljómplötufyrirtæk-
inu Polygram fyrirtæki sitt,
Propaganda Films. Polygram,
sem er að mestu í eigu hollenska
fyrirtækisins Philips, átti fyrir
49% í fyrirtækinu en hyggst nú
verja 200 milljónum dala til að
færa út kvíarnar í kvikmynda-
framleiðslu.
Sigurjón Sighvatsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að þeir
félagar yrði áfram framleiðendur
hjá fyrirtækinu og mundu annast
daglegan rekstur þess. Með þessu
móti fengju þeir dágóða fjárhæð í
vasann, losni við áhyggjur af rekstr-
inum og geti einbeitt sér að kvik-
myndaframleiðslunni, sem hugur
þeirra hafi alltaf staðið til.
Sjá nánar C/ bls.l