Morgunblaðið - 27.10.1991, Qupperneq 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1991
EFNI
1
^%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\V
%\'%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%
%\%\\\%\%\%\%\v\v\%\%\V
%\%\\w\%\%\%\%\%\%\%\\
%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\V
%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\VJ
%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\%\v
%\%\v
u u"A' W.
S" " ' - ••
ÉÍ'íÖí' ’• •• i
\\\\\\\\
, » ' 'áö'IÉK'IUÖ
Fyrirhugaðar breytingar í Austurstræti með járnpollum sem af-
marka akstursleiðina um götuna, bekkjum og gróðurpottum.
Fremst við Lækjargötu verður sett upp hlið með veltiskilti og
upplýsingum um hvort gatan er opin eða lokuð.
✓
Breytt götumynd í Austurstræti
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu að breytingum í Austur-
stræti í tilraunaskyni um 6 mán-
aða skeið. Gert er ráð fyrir að
gatan verði opnuð fyrir bíla-
umferð úr Bankastræti og á
framkvæmdum að vera lokið
fyrir 1. desember næstkomandi.
Áætlaður kostnaður vegna fram-
kvæmdanna er um 5 milljónir
króna, að sögn Stefáns Hermanns-
sonar aðstoðarborgarverkfræð-
ings. í götunni verður komið fyrir
jámpollum sem afmarka ökuleið
bíla auk þess sem götulýsingin
verður aukin og bætt. Hlið verður
sett upp fremst við Lækjargötu
með upplýstu skilti sem segir til
um hvort gatan er opin fyrir bí-
laumferð, eða ekki. „Hliðið gerir
það mögulegt að loka götunni á
góðviðrisdögum og jafnvel í jóla-
umferðinni þegar fjölmenni er í
Austurstræti,” sagði Stefán.
Fjórirjáta
aðild að
íkveikju
FJÓRIR menn hafa játað aðild
að íkveikjunni í Heiðmörk á mið-
vikudag. Þeir hafa verið í haldi
lögreglunnar síðan á fimmtudag
en líkur voru á að þeim yrði
sleppt í gær, laugardag, þar sem
málið er að mestu upplýst. Þrír
mannana voru handteknir á
fimmtudag, og einn á föstudag,
grunaðir um að hafa kveikt í
húsi Nordmanslaget í Heiðmörk
á miðvikudag.
Mennirnir þrír voru handteknir
þar sem lýsing á bíl þeirra kom
heim og saman við lýsingu á bif-
reið, sem sást við húsið, skömmu
áður en vart varð við eldinn.
Skúlagata:
Erfitt að
hringja til
útlanda
Eðlilegt að innflytjend-
ur borgi fyrir tollskýrslur
- segir Indriði H. Þorláksson í fjármála-
ráðuneytinu um mótmæli stórkaupmanna
„INNFLYTJENDUM er skylt,
lögum samkvæmt, að standa skil
á upplýsingum um þær vörur,
sem þeir flytja inn. Eg tel eðli-
legt, að þeir beri eðlilegan kostn-
að af þeirri þjónustu, sem þeir
fá við innflutninginn. Sums stað-
ar erlendis eru tollskýrslur seld-
ar í verslunum, en hérna hefur
þeim verið dreift, innflyljendum
að kostnaðarlausu. Við stefnum
að því að innflytjendur greiði
sjálfir kostnað við prentun og
dreifingu þeirra,” sagði Indriði
H. Þorláksson, skrifstofustjóri
Bændur selji
ekki kálfa
með afslætti
STJÓRN Landssambands kúa-
bænda hefur sent framleiðendum
nautgripakjöts bréf þar sem þeir
eru hvattir til að selja ekki kálfa
til kjötframleiðslu á afsláttar-
verði, en eins og greint hefur ver-
ið frá í Morgunblaðinu hafa ein-
staka sláturleyfishafar lækkað
einhliða verð á nautgripakjöti til
framleiðenda um allt að 10%.
Landssamband kúabænda telur að
þar sé um að ræða skýlaust brot
á lögum um framleiðslu, verðlagn-
ingu og sölu á búvörum.
Verðlagning á nautgripakjöti til
framleiðenda er samkvæmt búvöru-
lögunum ákveðin af sexmannanefnd,
og er verðlagsgrundvöllur kúabús nú
bundinn til næsta hausts, en fimm-
mannanefnd ákveður heildsöluverð í
heilum og hálfum skrokkum. Telur
Landssamband kúabænda að á með-
an ekki hafí verið gerð breyting á
skipan þessara mála beri sláturleyfis-
höfum að hlýta settum lögum. í bréfi
stjórnar LK til framleiðenda eru þeir
hvattir „til að bregðast hart við ein-
hliða aðgerðum sláturleyfíshafa um
lækkun verðs til framleiðenda og
öðrum siðlausum aðgerðum og
þrýsta á um leiðréttingu mála hver
á sínu svæði” eins og orðrétt segir
í bréfínu.
tekju- og eignadeildar fjármála-
ráðuneytisins.
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur sent fjármálaráðherra bréf,
þar sem mótmælt er harðlega hug-
myndum um töku gjalds fyrir toll-
skýrslur. í bréfínu segir: „Bent skal
á að tollskýrslueyðublaðsins er
krafist af tollyfirvöldum. Eyðublað-
ið er ekki fram komið vegna óska
innflytjenda og því er ekki um þjón-
ustu við innflytjendur að ræða. Það
hefur verið stefna félagsins í tolla-
málum að einfalda tollafgreiðslur
og fækka smágjöldum, sem eru
bæði tafsöm og dýr.”
Indriði sagði að við undirbúning
fjárlaga hefði verið kannaður sá
möguleiki, að menn greiddu fyrir
tollskýrslur. „Lögum samkvæmt
eiga innflytjendur að standa skil á
upplýsingum um innflutninginn,”
sagði hann. „Síðan er það tollyfír-
valda að setja reglur um í hvaða
formi þær upplýsingar eru gefnar.
Það er því ekki sjálfgefið að innflytj-
endur fái skýrslumar ókeypis. Að
auki fá þeir ýmsa aðra þjónustu,
til dæmis við frágang skýrslnanna.
Þá má nefna, að um þijár af hveij-
um fjórum tollskýrslum ónýtast.
Þær eru þá kannski notaðar til að
gera uppkast að endanlegu skýrsl-
unni. Ef menn greiða fyrir skýrsl-
umar er líklegt að þeir fari sparleg-
ar með þær.”
Indriði sagði að hann sæi engin
ný rök í málflutningi stórkaup-
manna. „Mér finnst eðlilegt að þeir
sem aðrir beri eðlilegan kostnað af
opinberri þjónustu í þeirra þágu.
Við miðum við að gjöldin nægi fyr-
ir prentunar- og dreifíngarkostnaði.
Þessum gjöldum verður komið á svo
fljótt sem auðið er, en það gætu
liðið nokkrar vikur þar til gjaldtaka
hefst.”
SUMIR símnotendur í nýju fjölbýl-
ishúsunum á mótum Skúlagötu og
Klapparstígs kunna að eiga í erfið-
leikum með að hringja beint úr
síma sínum til útlanda. Morgun-
blaðinu er kunnugt um símnot-
anda, sem verður að panta öll
símtöl til útlanda í gegnum talsam-
band, en þá leggst 35 króna auka-
gjald, sem notandinn ber, ofan á
hvert símtal.
Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur,
blaðafulltrúa Pósts og síma, var
gamall koparstrengur með tuttugu
línum eina símalögnin, sem var til
staðar þegar byijað var að byggja á
homi Klapparstígs og Skúlagötu.
Svokallaður fjölsími var tengdur við
koparstrenginn, sem margfaldar
getu hans, en samskipti fjölsímans
og gamla strengsins gengu ekki
snurðulaust fyrir sig. Hrefna sagði,
að umræddur símnotandi væri ekki
með númer í stafræna símkerfinu,
og þannig stæði á sambandsleysinu
við útlönd. Hún sagði að ákveðið
hefði verið að leggja nýjan síma-
streng ofanjarðar fyrir jól.
Karpov hefur vinnings-
möguleika gegn Kasparov
KARPOV er með hagstæðari bið-
skák úr sjöundu umferð Til-
burg-skákmótsins gegn heims-
meistaranum Kasparov. Staðan í
mótinu er sú að Kasparov er efst-
ur með 5 vinninga og biðskák.
Næstur kemur Anand með 5
vinninga.
Karpov er með biskup og tvo
riddara gegn hróki og peði heims-
meistarans. Þrátt fyrir þennan liðs-
mun á heimsmeistarinn jafnteflis-
möguleika því ef honum tekst að
fóma hróknum fyrir biskupinn er
ekki hægt að þvinga fram mát með
tveimur riddurum.
Úrslit í sjöundu umferðinni sem
tefld var á föstudag urðu annars
þau að Short vann Kamsky, Anand
vann Barejev og Timman vann
Kortsnoj. Short hefur nú 4'A vinn-
ing, Timman 3‘/2, Kamsky 3,
Karpov 2lh og biðskák, Kortsnoj 2
og Barejev 1 'h vinning.
Framkvæmdastjóri Verktakasambandsins:
Verktakar munu leita til
breskra arkitekta í EES
ÍSLENSK verktakafyrirtæki munu í vaxandi mæli snúa sér til ír-
skra og breskra arkitektastofa verði EES-samningarnir samþykkt-
ir, að mati Pálma Kristinssonar, framkvæmdastjóra Verktakasam-
bands íslands.
Pálmi segir að ástæðan sé ein-
faidlega sú að þjónusta þeirra er
ódýrari en íslenskra arkitektastofa.
yVerkfræðingalaun eni mjög lág á
Irlandi, helmingi lægri en í Dan-
mörku og augljóslega töluvert lægri
en hér. Islenskir arkitektar og verk-
fræðingar hafa búið við mjög mikla
vernd og það er hlutur sem mun
breytast. Reyndar er ákvæði í bygg-
ingareglugerð að íslenskur arkitekt
í Arkitektafélagi íslands skuli skrifa
upp á teikningar bygginganefndar,
en þetta mun breytast. Sama gildir
um verkfræðinga og tæknifræð-
inga. Þarna er um að ræða vinnu
sem hægt er að kaupa án þess að
flytja vinnuaflið til íslands í mörg-
um tilfellum,” sagði Pálmi.
Hann sagði að meistarar yrðu
einnig varir við breytingar. „Hér
er við lýði kerfi sem heitir iðnlög-
gjöf, sem er að okkar mati gjörsam-
lega úrelt. Með henni eru starfsrétt-
indi tryggð og réttindi til vinnunn-
ar. Þetta kerfi mun molna niður.
Þama munum við merkja mun
meiri áhrif en hvað varðar ófaglært
vinnuafl,” sagði Pálmi.
Hann sagði að allur hvati í sam-
keppni leiddi til verðlækkunar á
þjónustu og hugsanlega lækkandi
byggingarkostnaðar.
Sigurreifir
►Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra og Hannes Hafstein,
aðalsamningamaður íslands lýsa
æsilegu tímahraki lokataflsins í
EES-samningaviðræðunum í Lux-
emburg/10
Hver kemur sér næst
upp kjarnasprengju?
►Margtbendir til þess að Saddam
Hussein íraksforseti haldi áfram
tilraunum til að koma sér upp
kjarnorkusprengju þrátt fyrir refs-
iaðgerðir og tilraunir Sameinuðu
þjóðanna til að gera áform hans
aðengu./14
Milljónir á vogarskál-
um viðvaninga
►Á hveiju ári eru nýjarfasteign-
ir, og hluti eldri fasteigna, metnar
fyrir rúmlega 70 milljarða. Ýmis-
legt bendir til þess, að þeir rúm-
lega 400 brunabótamenn sem
sinna stórum hluta þessara mata,
séu ekki hlutverki sínu vaxnir./16
Vil frekar moka skít en
bíða dauðans
►Ragnar Guðmundsson bóndi á
Nýhóii í Fjallahreppi sóttur heim
/19
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► 1-28
Kringlan laðar að
►Könnun á aðdráttarafli Miðbæj-
ar Reykjavíkur og Kringlunn-
ar./14
C
► 1-28
f
Hann mótaði menn
►Sagt frá útskurðarmeistaranum
og myndhöggvaranum Ríkharði
Jónssyni. /1
Leyndardómar Bibl-
íunnar
►Deilurnar um innihald og útgáfu
Dauðahafshandritanna, sem fund-
ustárið 1947./4
Kaffi úr glasi
► Systurnar Guðný og Gróa á
Ketilvöllum í eldhússpjalli /8
Finnsk lágmenning
►Finnsk lágmenning er lítið kynnt
á Islandi þó hún standi nær okkur
en lágmenning annarra Norður-
landa./lO
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 36
Dagbók 8 Manniífsstr. 6c
Hugvelqa 9 Minningar
Leiðari 20 12c,13c,21c
Helgispjall 20 Fjölmiðlar 16c
Reykjavíkurbréf 20 Kvikmyndir 18c
Myndasögur 22 Dægurtónlist 19c
Brids 22 Bíó/dans 22c
Stjömuspá 22 A fomum vegi 24c
Skák 22 Velvakandi 24c
Fólk í fréttum 34 Samsafnið 26c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
éM