Morgunblaðið - 27.10.1991, Síða 13
Jt jM flfc »1 C* |-
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUJSÍNUDAGUR’27. OKTÓBER 1991 - C 13
Jónas Hjörleifs-
son — Minning
Fæddur 2. janúar 1909
Dáinn 30. september 1991
Foreldrar Jónasar voru Hjörleifur
Jónsson bóndi í Skarðshlíð undir
Austur-Eyjafjöllum og Ragnhildur
Þórðardóttir vistráðin á sama stað.
Meinbugir voru á, Hjörleifur kvænt-
ur stórlátri konu, Sigríði Guðna-
dóttur. Þau áttu fimm börn.
Foreldrar Hjörleifs lifðu þá í
skjóli sonar síns Gissurar í Drangs-
hlíð. Þegar þeim barst fregn þessi
féll gömlu konunni allur ketill í eld,
en maður hennar lét sér hvergi
bregða, kvað slíkt margan góðan
dreng hafa hent og haldið virðingu
sinni óskertri. Síður hefði hann
kosið son sinn staðinn að hnupli.
Bjóst hann svo til J'erðar og rölti
út að Skarðshlíð. Árangur þeirrar
farar varð sá að til engra örþrifa-
ráða var gripið.
Guðrún, systir þeirra Hjörleifs
og Gissurar, bjó í Vesturbænum í
Drangshlíð. Hún og maður hennar,
Þorsteinn Jónsson tóku hinn ný-
fædda svein í fóstur og ólu hann
upp sem eiginn son.
Jónas gerðist snemma tápmikill
og áræðinn. Þrátt fyrir nokkurn
aidursmun urðum við brátt leikfé-
lagar og unnum síðar saman að
félagsstörfum tvíbýlisins. Saman
vöktum við yfir túni, gengum sam-
an til ánna um sauðburð, sóttum
þær eftir fráfærur og smöluðum
þeim á kvíból kvölds og morgna
sumarlangt. Aldrei hallaði á hann
við störf þessi þótt yngri væri.
Fósturforeldrar Jónasar áttu sér
eina dóttur barna. Hún giftist og
ungu hjónin tóku við snotru búi.
Nýi bóndinn reyndist lítill búhöldur,
enda sjósókn meira við hans hæfi.
Þegar Jónas var 17 ára féll bóndinn
frá. Ekkjan stóð ein uppi með fimm
böm á framfæri. Ekki var annað
sýnna en hún yrði að hverfa frá
föðurleifð sinni, en þá gerðist Jónas
fyrirvinna hennar. Með harðfylgi
sínu og atorku tókst honum að snúa
málum til réttari átta, svo að ekki
þurfti að leita á náðir Kreppulána-
sjóðs, sem settur var á laggirnar
um líkt leyti og Jónas hvarf frá
Drangshlíð.
Á þessum árum fór Jónas að
afla sér tekna með sjósókn á vetr-
um. Hann komst í skipsrúm hjá
aflakónginum Guðmundi Jónssyni á
Skallagrími og var þar vertíð eftir
vertíð. Sannar það best harðfengi
hans, því að engir veifiskatar urðu
mosavaxnir um borð á Skalla.
Jónas hugðist þó ekki gera sjó-
mennsku að ævistarfi heldur verða
bóndi. En jarðnæði lá ekki á lausu
undir Austur-Eyjafjöllum.
Um langan aldur hafði Stefán
Halldórsson búið góðu búi á Rauða-
felli. Á fjórða áratug þessarar aldar
var hann orðinn ekkjumaður og
börn hans horfin úr föðurgarði.
Sonur hans, sem líklegur var að
taka við á Rauðafelli, varð úti. Er
af því saga hörmuleg. Varð nú að
ráði með góðu samþykki barna
Stefáns að Jónas fengi jörðina til
ábúðar og tryggði Stefáni áhyggju-
lausa elli uns yfir lyki. Um það leyti
hafði Jónas kvænst Ragnhildi Guð-
jónsdóttur frá Raufarfelli. Ingveld-
ur móðir hennar hafði lengi búið í
ekkjustandi og komið börnum sín-
um öllum til manns af eigin ramm-
leik.
Rauðafell var talin fleytingsjörð
góð, en ág’alli að Kaldklifsá spillti
lendum. I tíð Jónasar hefur það
breyst í vildisjörð og ágangur vatna
heftur.
Um margt voru þeir sambýlis-
menn ólíkir, Stefán fastheldinn á
fornar venjur en Jónas maður
breyttra tíma. Með léttri lund tókst
Jónasi að forðast árekstra og Stefán
átti gott ævikvöld í skjóli þeirra
hjóna. Stefán andaðist 1962.
Jónas og Ragnhildur eignuðust
þijár dætur og tvo syni. Þau heita
Guðrún, Guðný, Þórhildur, Þor-
steinn og Guðni. Dætur þeirra hafa
stofnað heimili á Höfn í Hornafirði,
Vestmannaeyjum og Reykjvaík.
Synir þeirra hafa ætíð átt heimili á
Rauðafelli en aflað fanga útífrá og
veið fengsælir. Guðni hefur verið
vertíðarmaður á aflahæsta skipi
Vestmannaeyja árum saman en
heima á sumrum. Þorsteinn vann
að virkjun Þjórsár. Hann kvæntist
og reisti nýtísku hús á hlaðvarpan-
um heima og hefur nú tekið við
búsforráðum á Rauðafelli. Foreldr-
ar hans urðu því engar hornrekur
við búendaskipti en gátu áfram
dvalist í sínu gamla húsi. Því hefur
verið vel viðhaldið og snyrt í kring.
Ákveðið hefur verið að það verði
griðastaður brottfluttra ættingja.
Jónas var hamhleypa til allra
verka og hlífði sér í engu. Hann
var góður granni, lítt sýtingssamur
um smámuni. Kom það sér vel í
þéttbýli meðan slægjulönd voru enn
bútuð í smáspildur og ógirt. Hann
var fús að rétta nágrönnum hjálpar-
hönd og átti mörg dagsverk í ann-
arra garði og ekki ætíð reiknuð til
verðs. Glaður og reifur var hann
til hinstu stundar.
Hin síðari ár þvarr hið mikla lík-
amsþrek Jónasar, enda því tíðum
ofgert. Fyrir nokkrum árum átti
hann alllanga legu á Landspítala
Islands. Eg tók upp þráðinn frá
bernsku okkar og heimsótti hann
daglega. Áttum við þar ógleyman-
legar stundir er við rifjuðum upp
sameiginlegar minningar frá
bernskudögum okkar. Þrátt fyrir
þverrandi minni stóðu þeir honum
ljóslifandi fyrir sjónum.
Jónas var jarðsunginn frá sókn-
arkirkju sinni í Eyvindarhólum. Svo
margir fylgdu honum til grafar að
fleiri hlýddu í andakt utan dyra en
innan og þó rúmar hin fagra kirkja
öll sín sóknarbörn í sæti samtímis.
Það kom þó ekki að sök því að
Eyjafjöll skörtuðu sínu fegursta
með blikandi haf á aðra hönd en
sólglitrandi jökla á hina.
Jón Á. Gissurarson
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
V^terkurog
k./ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúsiega uppiýsingar og ráðgjöf
um
KS.HELGASONHF
IISTEINSMKMA
■■ SKEMMUVEGt 4ð'SlMt 7Q677
Grímur Grimsson
framkvæmdarstjóri
Steve Allison
kennari
Julie Ann Ingham
skólastjóri
Michele Geldens
kennari
Margrét Hálfdánardóttir
skrifstofustjóri
Helen Everett
kennari
Jacqueline Foskett
kennari
Cheryi Hiii
Kennari
Carolyn Godfrey
kennari
ALLIR KENNARAR SKÓLANS
HRH í SÍMA 25331 EDA 259« 06 FADU FREKARIUPPLYSINGAR
KENNSLA HEFST 4. NÓVEMBER NK.
Fyrir fullorðna:
Almenn enska (7 vikur)
(1-11 stig)
Enskar bókmenntir (5 vikur)
Rituð enska (5 vikur)
Viðskiptaenska I (5 vikur)
Viðskiptaenska II (5 vikur)
Bretland: Saga, menning og
ferðalög (5 vikur)
Önnur námskeið:
Krárhópar (5 vikur)
Umræðuhópar (S vikur)
Fyrir börn:
Leikskóli fyrir 3-5 ára (6 vikur)
Byrjendanámskeið 8-10 ára (6 vikur)
Bytjendanámskeið 10-12 ára (6 vikur)
TOEFL - G MAT - GRE námskeið
Undirbúningsnámskeið fyrir próf sem
krafist er við flesta skóla í
enskumælandi löndum (4/5 vikur)
Einkatímar:
Hægt er að fá einkatíma eftir vali
Verið velkomin að líta inn í Enskuskólann í
spjall og kaffí áður en námskeiðin hefjast, 30.
okt. til 3. nóv. nk.
Við bjóðum upp á 11 námsstig í ensku.
Við metum kunnáttu þina og í framhaldi af því
ráðleggjum við þér hvaða námskeið hentar þér
og þínum óskum best.
Komdu í heimsókn eða hringdu - þvi fylgja
engar skuldbindingar
ÞU FINNUR ORUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ
ÞITT HÆFI HJA OKKUR - VELKOMIN I HOPINN
Velkominn í Enskuskólann
TUNGOTU 5 101 REYKJAVIK