Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 4

Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Morgunblaðið/Albert Kemp Sigrún Yrja Klörudóttir ásamt systkinum sínum. Frá vinstri: Andri Heiðar Guðlaugsson, eins árs, Sigrún Yrja og Guðrún Lára Guðlaugsdóttir, tveggja ára. En á innfelldu myndinni sést bíllinn sem mæðginin kom- ust úr. Björgnnarafrek 6 ára stúlku á Fáskrúðsfirði: Aðstoðaði við að bjarga syst- kinum sínum úr brennandi bíl SIGRÚN Yrja Klörudóttir, sex ára stúlka frá Fáskrúðsfirði, sýndi mikið hugrekki er hún hjálpaði móður sinni við að bjarga tveimur yngri systkinum sínum úr brennandi bíl í Fáskrúðs- firði síðastliðinn föstudag. Móðir Sigrúrlar, Klara Kristín Einarsdóttir, var á leið frá Stöðv- arfirði til Fáskrúðsfjarðar ásamt þremur börnum sínum, Sigrúnu Yiju, Guðrúnu Láru Guðlaugs- dóttur, tveggja ára, og Andra Heiðari Guðlaugssyni, eins árs, er slysið átti sér stað í sunnan- verðum firðinum síðdegis' á föstudag. Klara missti stjórn á bílnum, sem snerist og valt upp fyrir veginn fjallsmegin. Við velt- una kviknaði í bílnum og logaði hann er bíllinn staðnæmdist á hjólunum. Klara byijaði á að losa Sigr- únu úr öryggisbeltinu og koma henni út um glugga bílsins, þar sem hún tók á móti systkinum sínum eftir að Klara hafði losað þau úr bílstólum í aftursæti bíls- ins. Sigrún fór með börnin frá bílnum og á síðustu stundu komst Klara út úr brennandi bílnum. Þær biðu ásamt börnun- um í vari við stein, vegna ótta við sprengingu í bílnum, í um fimmtán mínútur þar til þeim barst hjálp. Klara tvífótbrotnaði og brenndist lítillega og var flogið með hana til Reykjavíkur þar sem gert var að meiðslunum. Að sögn lögreglu á Fáskrúðs- firði varð óhappið þar sem vegur- inn er löng aflíðandi beygja. Mikil hálka var á þessum slóðum og orðið dimmt. \ I VEÐUR Heimild: Veöurstofa íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.151 gær) ÍDAG kl. 12.00 VEÐURHORFUR íDAG, 26. NÓVEMBER YFIRLIT: Skammt norðvestur af írlandi er 973 mb lægð, sem þok- ast norðaustur og suðvestur af Vestmannaeyjum og norðaustur af landinu eru smá lægðir sem báðar þokast austnorðaustur. SPÁ: Minnkandi norðvestan- og vestanátt. Dálítil él á Vestfjörðum og austur með norðurströndinni, en á landinu austanverðu má búast við nokkuð björtu veðri. Vægt frost verður víðast hvar. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Þykknar upp með vaxandi suðaustan- átt. Rigning eða slydduél um sunnan- og vestanvert landið er líður á daginn eða um kvöldið. Frostlaust sunnanlands og síðar einnig fyrir norðan. HORFUR Á FIMMTUDAG: Austlæg átt. Nokkuð vætusamt um sunnan- og suðaustanvert landið, en úrkomuminna í öðrum lands- hlutum. Heldur hlýnandi veður. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir * V El EE Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur |"7 Þrumuveður TÁKN: •Q ► Heiðskirt QA Aiskýjað s, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * f * / * Slydda ' * / * * * * * * * Snjókoma VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hlti +1 0 veður skýjaö skýjað Bergen 8 léttskýjað Helsinki 6 súld Kaupmannahöfn 7 aiskýjað Narssarssuaq +13 léttskýjað Nuuk +13 léttskýjað Os!ó 7 súld Stokkhólmur 7 þokumóða Þórshöfn 9 rigning Algarve 19 léttskýjað Amsterdam 1 þokumóða Barcelona 14 léttskýjað Berlín 3 þokumóða Chicago +9 léttskýjað Feneyjar vantar Frankfurt 3 súld Glasgow 9 místur Hamborg 0 þokumóða London 7 súld Los Angeles 13 hálfskýjað Lúxemborg 0 alskýjað Madríd 7 þokumóða Malaga 17 léttskýjað Mallorca 18 skýjað Montreal 2 skýjað NewYork 3 heiðskírt Orlando vantar París 5 skýjað Madelra 17 alskýjað Róm 12 rigning V/n 7 þokumóða Washlngton 1 skýjað Winnipeg +23 heiðskírt Mögulegt að stækka Höllina um 2000 sæti VERKFRÆÐINGAR, sem kann- að hafa möguleika á stækkun Laugardalshallar að undan- förnu, fyrir íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur, telja að hægt sé að stækka höllina um 2.000 sæti þannig að hún geti í heild rúmað 5.000 manns. Áætlað er að stækkunin og aðrar breyt- ingar henni samfara myndu kosta 250 milljónir. Að sögn Júlíusar Hafstein, for- manns íþrótta- og tómstundaráðs, þyrfti að taka þijár burðarsúlur sem ganga niður úr þaki Laugardals- hallarinnar burt. Með þeim hætti væri hægt að bæta við 700 til 800 sætum við austur- og vesturhlið hallarinnar, í heild á milli 1.400 til 1.600 sætum. Þar að auki væri hægt að bæta við 700 til 800 sætum við suðurhliðina með því að færa gólflötinn til. Með þessu móti yrði hægt að koma fyrir 5.000 áhorfend- um í Laugardalshöll. Fyrir heimsmeistarakeppnina sem fyrirhugað er að halda hér á landi árið 1995 er krafist húsnæðis sem tekið gæti 7.000 manns í sæti en að sögn Júlíusar hefur hand- knattleikssambandið óskað eftir því að sá staðall verði endurskoðaður. Hann tók hins vegar fram í sam- tali við Morgunblaðið að ekki væri verið að kanna möguleika á stækk- un Laugardalshallarinnar í tengsl- um við fyrirhugaða heimsmeistara- keppni. „Við erum með þessu ein- ungis að afla okkur upplýsinga til þess að vita hvar við stöndum. Ef ríkisvaldið hefur áhuga á að skoða málið hefur það frumkvæði að því og myndi kosta framkvæmdirnar að fullu. Gert er ráð fyrir að stækk- un Laugardalshallarinnar og and- litslyfting myndi kosta um 250 milljónir,” sagði Júlíus í samtali við Morgunblaðið. -----» ♦ ♦----- Blaðamannafé- lagið afléttir vinnustöðvun BLAÐAMANNAFÉLAG íslands hefur aflétt boðaðri vinnustöðvun á Tímanum, Alþýðublaðinu, Pressunni og Degi. Utgefendur blaðanna hafa samið um skil á gjöldum til félagsins og þegar greitt stærstan hluta af skuldum sínum, að sögn Lúðvíks Geirsson- ar formanns Blaðamannafélags- ins. Blaðamannafélagið boðaði vinnu- stöðvun þár sem útgefendur Tímans, Þjóðviljans, Alþýðublaðsins, Press- unnar og Dags stóðu ekki skil á afdregnum félagsgjöldum og lífeyr- issjóðsgjöldum og skulduðu auk þess gjöld til menningarsjóðs og orlofs- heimilasjóðs. Vinnustöðvunin átti að koiria til framkvæmda i gær bærust greiðslur ekki fyrir þann tíma. Lúð- vík segir eldri mál Þjóðviljans enn óuppgerð vegna greiðslustöðvunar útgáfufélags hans. Hins vegar yrðu viðræður við forráðamenn blaðsins til að knýja á um skil á iðgjöldum á greiðslustöðvunartímanum. Sótt um leyfi fyrir nýja leigubílastöð Á FUNDI borgarráðs nýlega var lögð fram umsókn um rekstrar- leyfi fyrir nýja leigubifreiðastöð á höfuðborgarsvæðinu. Það eru leigubifreiðasljórar annarra stöðva, sem sækja um leyfið. Að sögn Jóns M. Smith, sem sæti á í undirbúningsnefnd þeirra leigubifreiðastjóra sem sækja um leyfið, sóttu þeir um leyfi fyrir einu og hálfu ári. „Sú umsókn virðist hafa sofnað í kerfinu hjá þeim. Við fórum þess vegna aftur af stað með nýja umsókn og var hún loks- ins tekin fyrir núna. Mér skilst að hún hafi verið send til umsagnar borgarlögmanns og þannig stend- ur málið nú,” segir Jón. Jón segir að það séu leigubif- reiðastjórar frá öðrum stöðvum, sem séu að sækja um leyfið. „Þetta þýðir því ekki fjölgun á leigubílum. Við erum að stofna okkar eigin leigubílastöð, sem við eigum og rekum sjálfir þannig að við ráðum okkur sjálfir. Við höfum fengið vilyrði fyrir húsnæði hjá Olís, en ég veit ekki enn hvar." Jón segir að allir bflstjórarnir sem komi til með að keyra á stöð- inni myndu eiga hlut í henni. „Það yrði jafnframt tryggt að hlulabréf gætu ekki safnast á aðeins fáar hendur og að enginn gæti náð hreinum meirihluta," segir Jón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.