Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
11
Byggðastofnun á
röngiim forsendum
eftir Björn
Bjarnason
Töluverðar umræður hafa orðið á
Alþingi vegna skýrslu Davíðs Oddss-
onar forsætisráðherra um Byggða-
stofnun. í skýrslunni gerði hann
grein fyrir starfi stofnunarinnar á
síðasta ári. Hafa aldrei orðið jafn-
miklar umræður um þessa árlegu
skýrslu forsætisráðherra. Byggða-
mál eru á starfssviði allsheijarnefnd-
ar á Alþingi og sem einn af fjórum
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í
þeirri nefnd hef ég lýst því áliti mínu
á þingi, að vanda Byggðastofnunar
mætti að verulegu leyti rekja til
rangs starfsgrundvallar hennar. Méð
þeim orðum vísa ég til þess, að þenn-
an grundvöll er að fínna í Fram-
kvæmdastofnun ríkisins.
Vandinn sem við er að etja í at-
vinnumálum þjóðarinnar nú er af
ýmsum borinn saman við hin snöggu
umskipti til hins verra, sem viðreisn-
arstjórnin varð að glíma við á árinu
1967. Tókst henni á skömmum tíma
að snúa vörn í sókn án þess að hverfa
frá meginstefnu sinni. Kjarni hennar
var að fella niður kerfi útflutnings-
bóta og innflutningsgjalda, sem
komið hafði í veg fyrir aðlögun að
nýjum aðstæðum og eðlilega um-
breytingu og þróun atvinnuveganna.
Samhliða því sem atvinnulífið var
losað úr fjötrum með réttri gengis-
skráningu voru gjaldeyris- og við-
skiptahöft felld niður og stjórn pen-
ingamála og fjármála styrkt. Þá var
ráðist í uppbyggingu orkufreks iðn-
aðar og grundvöllur lagður að samn-
ingum við markaðsbandalögin í Evr-
ópu. Það er fráleitt að gagnrýna
störf viðreisnarstjórnarinnar á þeim
forsendum, að þau hafi verið fjand-
samleg þeim, sem búa í dreifðum
byggðum landsins. Stjórnin stóð
meðal annars þannig að verki, að
sérstöku gjaldi af álverinu í Straum-
svík var varið til að jafna mun á
milli byggðarlaga. Eftir áföllin 1967
var komið á fót atvinnumálanefnd-
um í öllum byggðum landsins og
studdust þær við opinbera sjóði. Það
sýndi best kosti efnahagsstefnu við-
reisnarstjómarinnar hve fljótt og
skipulega hún gat brugðist við hruni
atvinnulífsins 1967. Réttmæt gagn-
rýni er, að róttækum breytingum í
anda viðreisnarstefnunnar hafí ekki
verið fylgt nægilega fljótt og fast
eftir, svo sem með afnámi verðlags-
hafta, samdrætti í ríkisrekstri og
viðnámi gegn útþenslu opinberra
sjóða.
Ríkisstjórnin sem tók við af við-
reisnarstjórninni sumarið 1971 undir
forystu Framsóknarflokksins og með
aðild Alþýðubandalagsins einsetti
sér að taka upp aðra stefnu en við-
reisnarstjórnin hafði fylgt, ekki síst
í byggða- og atvinnumálum. Á þess-
um árum kenndu vinstrisinnar
stefnu sína gjarnan við „félagslegan
áætlunarbúskap”. Þeirri stefnu átti
að hrinda í framkvæmd með Fram-
kvæmdastofnun ríkisins, en undir
hana voru settir sjóðirnir, sem við-
reisnarstjórnin hafði notað í því
skyni að jafna aðstöðumun á milli
byggðarlaga. Með „félagslegum
áætlunarbúskap” var ætlunin að
sameina sósíalisma Alþýðuband-
alagsins og samvinnustefnu Fram-
sóknarflokksins.
Til að minna á málflutning vinstri-
sinna á fyrstu mánuðunum eftir að
viðreisnarstjórnin fór frá er nærtækt
að vitna til umræðna á Alþingi í
nóvember 1971, fyrir réttum 20
árum, um frumvarp til laga um
Framkvæmdastofnun ríkisins.
Ragnar Arnalds, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins, líkti stofnuninni við
skipulagsnefnd atvinnumála, eða
„Rauðku”, sem starfaði hér á of-
stjórnarárum fjórða áratugarins og
vann að því að hneppa atvinnulífið
í ríkisfjötra. Taldi Ragnar miður, að
starf „Rauðku” hefði lagst niður og
sagði að með Framkvæmdastofnun
væri ætlunin að „hverfa frá handa-
hófsvinnubrögðum og happa- og
glappastQfnu” viðreisnarstjórnarinn-
ar og taka upp „hagstjórnaraðferðir,
sem að vísu óneitanlega bera
nokkurn keim af sósíalískum úrræð-
um, eins og hvers konar áætlana-
gerð hlýtur að gera”. í umræðum
um þetta sama frumvarp sagði
Steingrímur Hermannsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, meðal
annars að andstaðan við frumvarpið
um Framkvæmdastofnun ríkisins
væri byggð á „þeim rótgróna mis-
skilningi sem víða ríkir hjá auðvalds-
fyrirkomulagi og þeim flokkum, sem
því fylgja, að enn skuli fylgt hinni
gömlu reglu um, að framboð og eftir-
spurn skuli ráða efnhagsþróun.
Staðreyndin er vitanlega sú, að þessi
gamla grundvallarkenning er fyrir
löngu úrelt orðin, jafnvel í þeim ríkj-
um, sem auðugust eru og lengst
hafa haldið í einstaklingsframtakið
og framtak fyrirtækja og stórat-
hafnaraðila.”
Þessi orð um gildi sósíalískra hag-
stjórnaraðferða og undanhald auð-
valdsskipulagsins hljóta að horfa
öðru vísi við fyrrgreindum þing-
mönnum nú en fyrir 20 árum. Ör-
birgð hundruð milljóna manna á fá-
tæktarrústum áætlunarbúskapar
sósíalisma og kommúnisma segir
allt sem segja þarf um styrk hinna
ólíku hagkerfa. Á heimsmælikvarða
hefur viðreisnarstefna borið sigurorð
af félagslegum áætlunarbúskap, ef
þannig má að orði komast.
Starfsgrundvöllur Byggðastofn-
unar var lagður með lögunum um
Framkvæmdastofnun ríkisins. Þeirri
stofnun var síðan skipt í þrennt með
lögum frá 1985, það er Framkvæmd-
asjóð íslands, sem nú er verið að
leggja niður, Byggðastofnun ogþró-
unarfélag. Það er á þessum forsend-
um, sem ég tel, að starfsgrundvöllur
Byggðastofnunar sé rangur. Þótt
margir agnúar hafi verið sniðnir af
síðan upphaflegu lögin um Fram-
kvæmdastofnun ríkisins voru sett
býr lengi að fyrstu gerð í þessu efni
eins og öðrum.
Tilfærsla fjármagns
Hvarvetna í iðnvæddum og auð-
ugum rikjum tíðkast að styrkja
byggðir sem eiga undir högg að
sækja vegna fámennis eða fjarlægða
frá þéttbýli. Þessi stefna styðst við
góð og gild rök. Henni er hrundið í
framkvæmd með misjöfnum hætti.
Mestu skiptir að sjálfsögðu að þann-
ig sé staðið að tilfærslu þessa fjár
skattgreiðenda að það nýtist sem
allra best.
í bréfi frá Byggðastofnun dag-
settu 1. nóvember 1991, sem er svar
við fyrirspurn frá állshetjarnefnd
Alþingis um fjárveitingar til byggða-
mála í frumvarpi til fjárlaga fyrir
næsta ár, segir meðal annars:„Öll
framlög af fjárlögum hafa með ein-
um eða öðrum hætti áhrif á byggð
í landinu. Gildir þar einu hvort þau
eru talin framlög til þess málaflokks
eða ekki. Starfsemi ríkisins, sem
m.a. er stærsti atvinnurekandi á
landinu, hlýtur að hafa veruleg áhrif
á þróun búsetu í landinu. Víða um
Björn Bjarnason
„Það er á þessum for-
sendum, sem ég tel, að
starfsgrundvöllur
By ggðastofnunar sé
rangur. Þótt margir
agnúar hafi verið
sniðnir af síðan upphaf-
legu lögin um Fram-
kvæmdastofnun ríkis-
ins voru sett býr lengi
að fyrstu gerð í þessu
efni eins og öðrum.”
lönd hafa farið fram yfirgripsmiklar
rannsóknir á þætti hins opinbera í
búsetuþróun, þar sem bæði eru
könnuð áhrif beinna aðgerða ríkis-
valdsins til að hafa áhrif þar á og
hinna óbeinu, þ.e. áhrif af starfsemi
ríkisins sem ekki er sérstaklega
ætlað að hafa áhrif á byggðaþróun.
Almennt hefur niðurstaða þessara
kannana verið sú að áhrifin eru tal-
in meiri af þeim aðgerðum og starf-
semi ríkisins sem ekki er ætlað að
hafa áhrif á byggðina en hinum sem
ætlað er það hlutverk. Þetta stafar
ekki síst af því að upphæðirnar eru
miklu hærri í verkefnum ríkisins sem
hafa hin óbeinu áhrif á búsetuna.”
Ástæða er til að vekja athygli á
þessu mati stofnunarinnar um leið
og þess er getið, að síðan 1972 hafa
12 milljarðar króna verið fluttir með
fjárlögum um Byggðasjóð og Byggð-
astofnun frá skattgreiðendum til
þeirra verkefna sem sjóðurinn og
stofnunin hafa sinnt. Hafa upphæð-
irnar þá verið færðar til verðlags í
nóvember 1991. Inni í þessari tölu
eru þær 1.200 milljónir króna, sem
Byggðastofnun voru færðar sérstak-
lega úr ríkissjóði nú í ár til að létta
skuldum af stofnuninni. Innan
Byggðastofnunar var rætt um að
þessi fjárstuðningur þyrfti að vera
þrír milljarðar króna, svo að fjárhag-
ur hennar kæmist í viðunandi horf.
Inn á nýja braut
Það er alrangt, að gagnrýni á
Byggðastofnun sé bundin við þá, er
búa á höfuðborgarsvæðinu. Á stjórn-
málafundum utan þess hef ég orðið
var við slíka gagnrýni. Harðasti
dómurinn síðustu mánuði var kveð-
inn upp af Áskeli Einarssyni, sem
hefur starfað að sveitarstjómarmál-
um á Norðurlandi í 33 ár og þar af
í 20 ár sem framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlendinga.
Hann sagði meðal annars í Morgun-
blaðsgrein fyrir nokkrum vikum:
„Kjarni málsins er sá, að hin svo-
nefnda byggðastefna hefur miste-
kist. Eftir 20 ára störf Byggðastofn-
unar og núverandi miðstýringu og
forsjárhyggju í byggðamálum er
byggðavandinn aldrei meiri.”
Áskell Einarsson telur, að eitt
hafi hann lært af reynslu síðustu
20 ára, að byggðastefna á íslandi
verði ekki rekin af þeim fyrir sunn-
an, heldur af heimamönnum sjálfum.
Kemur þetta heim og saman við
mat starfsmanna Byggðastofnunar.
Undir lok almenns'inngangs í prent-
aðri ársskýrslu Byggðastofnunar
fyrir árið 1990 segir, að það hafi
orðið hugarfarsbreyting, sem veki
vonir um að nú séu að verða þátta-
skil í atvinnu- og byggðaþróun.
Sigurður Guðmundsson, forstöðu-
maður þróunarsviðs Byggðastofnun-
ar, skýrði þessa hugarfarsbreytingu
á þann veg í nýlegu viðtali við Þjóð-
viljann, að menn séu hættir að tala
um aðflutt vandamál og átti sig á
því, að þeir einu sem muni leysa
málin séu heimamenn sjálfir. Sé
þessi þróun að verða ber að fagna
henni, því að hún gengur þvert á
hinn „félagslega áætlunarbúskap”,
sem fólst í því að menn ættu að
treysta meira á forsjá áætlanasmið-
anna og ríkisvaldsins en Sjálfa sig.
í þessari grein hef ég beint athygl-
inni að Byggðastofnun. Hinar röngu
forsenöur sem móta starfsgrundvöll
Byggðastofnunar valda því að hún
á í miklum erfíðleikum með að sinna
hlutverki sínu við nútímalegar að-
stæður, þar sem það eru ekki sósíal-
ismi og ríkisforsjá, sem hafa sigrað,
heldur ftjálsræði og framtak ein-
staklingsins. Er mikilvægt að finna
Byggðastofnun nýjan starfsgrun-
dvöll og gera henni með þeim hætti
kleift að verða nýtt afl til að styrkja
byggð um land allt.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
SIEMENS
Með SIEMENS heimiUstœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusia Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
BorgarfjörOur: Rafstofan Hvftárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, MunaÖarhóli 25.
Grundarfjöröur: Guöni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
Búöardaiur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlfusson, Ennisbraut 1.
Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
Siglufjöröur: Torgiö hf., Aöalgötu 32.
Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
• Húsavík: öryggi sf., GarÖarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Noröurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, BúÖareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
C </>
o|
0*0*
3<Q
0=8
3 2:
o2
Q Q'
3 7?
q2
Q^
3
a