Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 12

Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Fj ölskyldukvöld á Pizza Hut Þriðjudagskvöld eru fjölskyldukvöld hjá okkur á Pizza Hut. Þá bjóðum við upp á okkar geysivinsælu fjölskyldupizzu, sem er heil máltíð fyrir 4 til 6. Með fjölskyldupizzunni fáið þið að auki fría könnu af Pepsí svo allir hafi nóg að drekka. Gerið ykkur dagamun og koinið á Pizza Hut í kvöld. Sameinumst gegn alnæmi eftir Guðjón Magnússon Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur ákveðið að helga einn dag ár hvert baráttunni gegn al- næmi. Dag þennan ber upp á 1. desember nk. í ár er yfirskrift dags- ins „Sharing the Challenge” sem útleggst _ „Sameinumst gegn al- næmi”. Ákall sem undirstrikar þá einföldu staðreynd að alnæmi er hraðvaxandi faraldur um allan heim. Smitsjúkdómur sem virðir hvorki landamæri né mannvirðing- ar. Faraldur sem þá aðeins er unnt að stöðva ef allir sameinast í barátt- unni. í ákallinu felst þó ekki ein- göngu sú einlæga ósk að við, hvert og eitt, gáum að okkur og gerum nauðsynlegar ráðstafanir til að veij- ast smiti og til að breiða ekki út smit. í ákallinu felst jafnframt ósk um samstöðu með öllum þeim sem eru smitaðir eða sjúkir. Ákall um að sporna gegn útskúfun smitaðra úr samfélagi manna. Ákall um að aðstoða eftir mætti þá sem á hjálp og umönnun þurfa að halda. Faraldurinn leggst þegar þungt á mörg fátækustu ríki heims. Þessi ríki geta ekki komið hinum sjúku til hjálpar né dregið úr hraðri út- breiðslu án verulegs stuðnings frá öðrum þjóðum, alþjóðastofnunum og ijöldahreyfingum sem hafa mannúð að leiðarljósi. Það felst því í ákalli dagsins „Sameinumst gegn alnæmi” ósk um algera samstöðu þjóða heims í baráttunni við al- næmi, Þar erum við íslendingar eftirbátar. Framlög okkar eru afar smá ef haft er í huga velferð og þjóðartekjur. Það á reyndar við um neyðarhjálp og þróunaraðstoð, hveiju nafni sem hún nefnist. Útbreiðsla alnæmis á íslandi heldur áfram. Stöðugt greinast nýir „Það er ógnvekjandi að þrátt fyrir að endur- teknar kannanir sýni að Islendingar vita full- vel hvernig alnæmis- veiran berst milii ein- staklinga eigum við enn langt í land með að stöðva útbreiðslu al- næmis hér á landi.” einstaklingar. Heildarfjöldi HIV- smitaðra var samtals 66 þegar sein- ast voru birtar tölur þann 30. sept- ember 1991. Þá höfðu greinst 7 ný tilfelli á fyrstu 9 mánuðum ársins. Það er ógnvekjandi að þrátt fyrir að endurteknar kannanir sýni að íslendingar vita fullvel hvernig al- næmisveiran berst milli einstakl- inga eigum við enn langt í land með að stöðva útbreiðslu alnæmis hér á landi. I einhverjum tilvikum er um að kenna falskri öryggis- kennd. Hérlendar tölur sýna að af þeim sem hafa greinst eru tveir af hveijum þremur samkynhneigðir og einn af hveijum sjö sprautufíklar. Þeir sem telja sig ekki í þessum hópum gætu því haldið „það kemur ekki fyrir mig”. Tölurnar sýna ann- að. Samkvæmt upplýsingum Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er fjöldi smitaðra samtals 8-10 millj- ónir. Af þeim hafa níu af hverjum tíu smitast við kynmök. Ekki bara það. Þrír af hverjum fjórum sem eru smitaðir eru gagnkynhneigð- ir. Skilaboðin eru í raun afar ein- föld. Allir geta smitast af alnæmi. Hver áhætta þín er, fer eftir því Guðjón Magnússon hvar þú ert og hvað þú gerir, en ekki eftir því hver þú ert. Sameinumst gegn alnæmi - í verki. Höfundur er læknir og formaður landsnefndar um alnæmisvarnir. _____________Brids___________________ Amór Ragnarsson Bridsfélag Breiðholts Að loknum 12 umferðum í baro- meter-tvímenningi er staða efstu para þessi: Óli Bjöm Gunnarsson - Marinó Kristinsson 112 Jón Ingi Bjömsson - Ólafur H. Ólafsson 86 HaukurHarðarson-VignirHauksson 81 Kristín Guðbjömsdóttir - Bjöm Arnórsson 72 Magnús Oddsson—Lilja Guðnadóttir 55 Þorsteinn Kristjánsson - Rafn Kristjánsson 52 Keppnin heldur áfram næsta þriðjudag. Samstarfsnefnd um Bindindisdag fjölskyldunnar. Áf1J[L Veistu aö þriöja hver fjölskylda í land- inu á um sárt aö binda af völdum áfengisneyslu einhvers eöa einhverra í fjölskyldunni? Veistu að áfengisneysla hefur aukist um 17-20% með tilkomu bjórsins? Veistu hve mörg börn og unglingar verða að öllum líkindum fórnarlömb áfengis næstu árin? Er ekki tímabært aö staldra við og at- huga sinn gang, barnanna vegna? Bindindisdagur fjölskyldunnar — ekki bara í dag. Brids-Víkingur Hafin er bridskeppni í Víkingi, hinu nýju félagsheimili Víkings í Stjörnugróf. Fyrsta kvöldið var síð- astliðinn þriðjudag. Úrslit urðu eft- irfarandi: Karólína Sveinsdóttir - Sveinn Sveinsson 137 Hafþór Kristjánsson - Gunnar Benediktsson 125 Jakob Gunnarsson - Valgarð Jakobsson 121 Hannes Guómundsson - Þórður Sverrisson 110 Næstkomandi þriðjudag, 29. nóv- ember, verður eins kvölds tvímenn- ingur. Allir eru velkomnir. Mætið tímanlega. Bridsfélag Kópavogs Sl. fímmtudag var spiluð næsts- íðasta umferð í barómeternum. Staðan: Sveinn Þorvaldsson - Hjálmar Pálsson 191 SævinBjamason-GuðjónSiprðsson 180 Ragnar Bjömsson - Páll Valdimarsson 169 Guðmundur Grétarsson - Árni Már Bjömsson 150 Agnar Kristinsson - Erlendur Jónsson 126 Hæstu skor náðu:' Ragnar Björnsson - Páll Valdimarsson 80 ÞórðurJörundsson-AxelLámsson 78 Sigurður Siguijónsson - Herta Þorsteinsdóttir 62 Bridsfélag Reykjavíkur Nú hefir verið spilað í tvö kvöld í sveitakeppninni og 4 leikjum lokið. Staðan: S. Ármann Magnússon 85 Trygingamiðstöðin 78 Verðbréfamarkaðurinn 77 LACafe 72 Jón Steinar Gunnlaugss. 72 Hjalti Elíasson 70 Roche 69 Björn Theodórsson 68 Helztu tíðindi síðasta spilakvöld urðu þau að í fyrri umferðinni vann Verðbréfamarkaðurinn sveit LA Cafe stórt eða 24-6, en í seinni leiknum tapaði Verðbréfamarkaðurinn fyrir S. Á. Magnússyni með 3 gegn 25! í sveit S. Ármanns spila bræðurnir Hermann og Ólafur Lárussynir auk Ásmundar Pálssonar og Hjördísar Eyþórsdóttur. Tryggingamiuðstöðin vann báða sína leiki af öryggi en í sveitinni eru nýbakaðir Reykjavíkurmeistarar í tví- menningi. Auk þeirra eru Ragnar Magnússon, Páll Valdimarsson, Sig- urður Vilhjálmasson og Hrólfur Hjaltason í sveit Tryggingamiðstöðv- arinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.