Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 / KPAKKAR! /KUNÍÐ AB BURSTA .TENNURNAR eftir Dean Abraham- son og Valdimar K. Jónsson Síðari hluti Alþjóðlegar skuldbindingar íslands Það veltur á ýmsum þáttum þversu mjög þarf að stjóma út- streymi gróðurhúsalofttegunda. Þeir mikilvægustu eru eftirfarandi: Hversu mikil aukning verður í notkun jarðefnaeldsneytis, fyrir- hugað álver og túlkun stöðugleika- ákvæðis EFTA-sáttmálans. Ný 210.000 tonna álbræðsla sem komin væri í gagnið fýrir árið 2000 myndi auka útstreymi CO2 um 330 þúsund tonn á ári. Aukn- ing eldsneytisnotkunar um 2% á ári myndi auka C02-útstreymi um 500 þúsund tonn á ári og um 1.500 þúsund tonn ef notkunin eykst um 5% á ári. Ef ný 210.000 tonna álbræðsla, sem notaði hinn hefðbundna Hail og Héroult-bræðsluferil, væri kom- in í gagnið fyrir árið 2000, mun útstreymi KFK-14 og KFK-116 auka til viðbótar gróðurhúsaáhrif sem jafngilda 3,45 milljónum tonna útstreymi af CO2 á ári. Heildaraukningin vegna bræðsl- unnar myndi þá vera 3,78 milljón- ir tonna af CO2 (jafngildum) á ári. Því til viðbótar kæmi svo aukn- ing sem yrði vegna aukinnar olíu- notkunar. Valkostir til að draga úr útstreymi Það eru margar leiðir mögulegar til að ná fram marktækum sam- drætti í útstreymi gróðurhúsaloft- tegunda hér á landi. Þessar eru helstar: • Bæta við mengunarvarnatækj- um, sem fjarlægðu KFK-14 0g KFK-116 úr útblæstri álversins eða bætta stýringu til að minnka spennuris, sem minnk- ar framleiðslu á KFK-14 og KFK-116. • Breyta yfir í framleiðsluaðferð sem afoxar súrál án þess að framleiða KFK-14 og KFK- 116, eins og hin hefðbundna aðferð Hall og Héroult gerir. • Hætta notkun KFK-efna sem eru til almennra nota, og nota í staðinn önnur efni sem hafa lítil sem engin gróðurhúsaáhrif. • Minnka notkun jarðefnaelds- neytis. • Hefja stórfellda skógrækt sem myndi taka upp það koltvíoxíð úr andrúmsloftinu sem kæmi til viðbótar vegna nýs álvers. Útrýming KFK-14 og KFK-116 Mengunartæki sem nú eru notuð í álbræðslum fjarlægja ekki KFK- 14 og KFK-116.17 Ef notuð væri sú tækni sem fjarlægir KFK-14 og KFK-116 úr útblásturslofti ál- bræðslu, væri hægt að minnka og jafnvel útrýma þessari uppsprettu gróðurhúsalofttegunda. Ef þetta yrði gert í núverandi álbræðslu og þeirri sem fyrirhuguð er, þá væri hægt að draga úr útstreymi gróðurhúgalofttegunda um 1,4 milljónir tonna á ári mælt í CO2 jafngildum þannig að það yrði minna en það var árið 1990. Þetta myndi leyfa aukningu í eldsneyti- snotkun um 3,5% á ári fram til ársins 2000,18 en leyfði enga aukn- ingu síðan. Onnur bræðsluaðferð notuð Völ er á nokkrum öðrum þekkt- um aðferðum til afoxunar súráls en þeirri venjulegu Hall- og Héro- ult-aðferð, t.d. Alcoa-ferlinum sem ekki myndar KFK-14 og KFK-116 og þarf minni raforku.19 Líklegt er að þau gróðurhúsaáhrif sem hin hefðbundna bræðsluaðferð veldur í umhverfinu verði í framtíðinni viðurkennd og þá jafnvel með skatti á útstreymi gróðurhúsaloft- tegunda.20 Það myndi ýta undir endurskoðun á öðrum mögulegum bræðsluferlum t.d. Alcoa. eru komin á alla útsölustaði Dean Abrahamson Önnur efni í stað KFK-kælirefna Gróðurhúsaáhrif, af völdum KFK-efna í kælivökvum, einangr- unarefnum og til ýmissa annarra nota, eru vel þekkt. í nokkrum löndum er hafin vinna við að finna aðrar leiðir til að ná fram sömu áhrifum og þessi efni hafa, en án þess þó að losuð séu út í andrúms- loftið efni sem eyða ósonlaginu eða valda gróðurhúsaáhrifum. Árið 1990 var útstreymi inn- fluttra KFK-efna og lítilsháttar magns skyldra mengunarefna þekkt sem halónar, jafngildi út- streymis 893 þúsund tonna af CO2. Ef önnur efni væru notuð í stað þessara sem hefðu engin gróðurhúsaáhrif þá samsvaraði það aukningu í C02-útstreymi vegna nýs álvers og myndi leyfa aukningu í eldsneytisnotkun um 2,75% á ári fram til aldamóta, en enga aukningu þar á eftir. Hér væri þó enn óleystur vandi vegna útstreymis KFK-14 og KFK-116. Minni notkun jarðefnaeldsneytis í stað jarðefnaeldsneytis má nota rafmagn, vetni eða alkóhól sem framleitt er með íslenskri sól- arorku, vatns og jarðgufuorku. Það tæki a.m.k. heilan áratug eða meira að framkvæma slíkar breyt- ingar og enn hafa ekki farið fram næganlegar hagkvæmnisathugan- ir á slíkum skiptum. Ef sá skilningur er hafður um EFTA-sáttmálann að hann eigi aðeins við um koltvíoxíð, þá þyrfti, vegna nýs álvers, að draga saman eldsneytisnotkun frá því sem hún var árið 1990 um 11% fram til aldamóta, til þess að jafna út þá aukningu sem kæmi með nýju ál- veri. Ef dregið væri úr þessari elds- neytisnotkun með því að nota vetni sem framleitt væri með íslenskri raforku, þá þyrfti til þess um 2,09 TWh(e).21 Þetta magn er um 47% af þeirri orku sem framleidd var árið 1990, -sem er nálægt því að vera jafnmikið og notað var til ál- og kísiljárnsbræðslu. Viðbótarvetni þyrfti að framleiða til að hafa fyr- ir allri aukningu umfram það sem notað var árið 1990. Ef aftur á móti er átt við allar gróðurhúsalofttegundir í EFTA- sáttmálanum þá yrði ekki einu sinni nóg að nota vetni í stað allr- ar olíu, sem notuð er, til að ná jafnvægi í útstreymi eins og það Valdimar K. Jónsson var árið 1990. En þetta myndi þýða aukna raforkuframleiðslu upp á 23,7 TWh(e), nærri 5,4 sinn- um meira en framleitt var árið 1990. Skógrækt til upptöku koltvíoxíðs úr andrúmsloftinu Eyðing skóga í hitabeltislöndum eykur koltvíoxíð í andrúmsloftinu en ræktun nýrra skóga tekur það upp. Þetta skýrist af því að allar lifandi verur fá kolefni sem er upprunalega tilkomið vegna ljó- stillífunar hjá grænum plöntum. Tré eru að meðaltali 45% kolefni og eftir því sem þau verða fleiri og stærri því stærri geymslur verða þau fyrir koltvíoxíð sem einu sinni var í andrúmsloftinu. Menn verða þó að gera sér grein fyrir því að skógar í vexti taka til sín úr and- rúmsloftinu meira en þeir gefa frá sér af CO2; eftir að fullum vexti ‘er náð er upptaka CCh^ sú sama og þeir gefa frá sér. Á íslandi ná tré fullum vexti á 40-60 árum. Við landnám var ísland að stór- um hluta vaxið skógi sem nú hefur að mestum hluta verið eytt. Eldgos og hörð veðrátta á fimmtándu og sextándu öld hefur farið verst með skóginn. Aðeins einangraðar leifar af skógi eru eftir, en áætlað er að um 11.000 ferkílómetrar (km2) lands henti til skógræktar á ís- landi miðað við núverandi veðurf- ar.22 Ef túlkun EFTA-sáttmálans er sú að hann eigi aðeins við um CO2, þá þyrfti skógrækt á um 0,955 km2 lands til þess að taka upp þau 330.000 tonn af CO2 sem kæmu frá nýrri álbræðslu. Ef túlk- unin á EFTA-sáttmálanum væri hins vegar sú að hann tæki til útstreymis allra gróðurhúsaloft- tegunda, þá þýddi það að aðeins 85% af útstreymi nýs álvers yrði tekið upp, ef ræktaður yrði skógur á þeim 11.000 km2 lands sem talið er henta til skógræktar. Niðurstöður íslensk stjómvöld, í samvinnu við önnur lönd í EFTA, EB auk Nýja Sjálands, Japas, Ástralíu og Kanada, samþykktu að stefna að því að árið 2000 yrði ekki um meira útstreymi koltvíoxíðs að ræða í andrúmslofti en það var árið 1990. íslensk stjórnvöld eru líka um það bil að samþykkja að byggt verði nýtt álver. Útstreymi gróðurhúsalofttegunda hefur einn- ig verið að aukast síðan 1983 Öll Lionsdagatöl eru merkt. Þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstúpa. Allur hagnaður'AreHntir óskíþiúr til líknumdldi Er Antíkristur þegar farinn að starfa? Spádómarnir rætast Gróðurhúsaáhrif og álver á Islandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.