Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
17
„í nokkrum lönduni er
hafin vinna við að finna
aðrar leiðir til að ná
fram sömu áhrifum og
þessi efni hafa, en án
þess þó að losuð séu út
í andrúmsloftið efni
sem eyða ósonlaginu
eða valda gróðurhúsa-
áhrifum.”
vegna meiri notkunar jarðefnaelds-
neytis, þá sérstaklega í fiutninga-
geiranum.
Ýmsar aðgerðir eru mögulegar
til þess að jafna út þessa mögulegu
aukningu í útstreymi gróðurhúsa-
lofttegunda fram til aldamóta.
Hvetjar af þessum aðgerðum eru
nauðsynlegar er háð eftirfarandi
þremur atriðum; hvort túlkun
EFTA-sáttmálans er sú að hann
taki til allra gróðurhúsaloft-
tegunda eða aðeins til koltvíoxíðs;
hver vöxtur (eða minnkun) verður
í útstreymi gróðurhúsalofttegunda
vegna eldsneytisnotkunar fram til
aldamóta; og hvaða tækni verður
valin fyrir framleiðsluferil nýs ál-
vers.
Þróun og notkun aðferðar til að
fjarlægja KFK-14 og KFK-116 úr
útblæstri starfandi álvers og því
sem fyrirhugað er, myndi draga
nægjanlega mikið úr útstreyminu
til þess að jafna út þá aukningu
útstreymis CO2 sem yrði frá nýju
álveri og myndi að auki leyfa 3,5%
aukningu í olíunotkun á ári fram
til aldamóta. Útstreymi gróður-
húsalofttegunda frá orkugeiranum
yrði samt sem áður að ná stöðugu
í því magni sem það yrði árið 2000.
Bygging nýs álvers sem notaði
einhvern af þeim öðrum bræðslu-
ferlum sem mögulegir eru í stað
Hall og Héroult, til dæmis Alcoa,
myndi hafa álíka mikil áhrif og
íjarlæging KFK-14 og KFK-116
úr útblæstri álversins, ef gert væri
ráð fyrir að engum öðrum gróður-
húsalofttegundum yrði sleppt út,
eins og t.d. kolefnisfjórklóríði.
Ef hætt yrði notkun allra KFK-
efna í kælivökvum, froðumyndandi
efnum og til ýmissa annarra nota,
og í staðinn notuð tækni sem ekki
ylli gróðurhúsaáhrifum, myndi það
jafna út þá aukningu CO2 út-
streymis sem kæmi með nýju ál-
veri. Þetta leyfði einnig um 2,75%
aukningu í eldsneytisnotkun á ári
fram til aldamóta, og því yrði hald-
Honda 91
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfí
Tilboö
Nú aðeins 1.290 þús.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA
U HONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVlK., SlMI 689900
ið stöðugu þar á eftir. Hér væri
þó enn óleystur vandi vegna út-
streymis KFK-14 og KFK-116.
Vetni, sem framleitt yrði með
íslenskri vatnsorku, mætti nota í
stað olíueldsneytis. Til þess að
jafna út þá aukningu í CO2-
útstreymi sem kæmi með nýju ál-
veri þyrfti að auka raforkufram-
leiðsluna um 47%, auk viðbótar-
orkuþarfar vegna vaxandi elds-
neytisnótkunar.
Að lokum; skógrækt á um 0,955
ferkílómetrum lands myndi jafna
út þá aukningu sem yrði á CO2-
útstreymi frá nýju álveri með
210.000 tonna ársframleiðslu.
Stærð þessa landsvæðis er álíka
mikil og þess lands sem nú er í
ræktun og er um 1.400 km2. Tölu-
vert stærra svæði þyrfti að þekja
með skógi til þess að ná inn CO2
vegna einhverrar aukningar í elds-
neytisnotkun.
Líklegt er að einhver samtvirin-
un þeirra leiða, sem nefndar hafa
verið hér að ofan, sé nauðsynleg
til þess að ná jafnvægi í útstreymi
fyrir árið 2000.
Neðanmálsgreinar og
tilvitnanir
17. Fabian, P., et al., op cit.
18. Árið 1990 var útstreymi KFK-14 og KFK-
116 jafngildi 381 þúsund tonna af kolefni eða
1,397 milljónir tonna af CO2. Fjarlæging KFK-
14 og KFK-116 úr útblæstri núverandi ál-
bræðslu myndi þannig leyfa útstreymi á um
330 þúsund tonnum af CO2 frá nýju bræðsl-
unni, auk viðbótar upp á rúmlega 1 milljón
tonna af CO2. Þetta myndi leyfa aukningu á
útstreymi vegna eldsneytisnotkunar frá því sem
það var árið 1990 um 2,4 til 3,4 milljónir tonna
af CO2. Þetta þýddi að meðaltalsaukning í elds-
neytisnotkun mætti vera um 3,5% á ári fram
til aldamóta.
19. Fyrsta hvarf Alcoa-ferilsins er að súrál
hvarfast við klór og kolefni sem myndar álkl-
óríð sem síðan leysist upp við rafgreiningu í
ál og klóríð. 2 A1203 + 6 C1 + 3CÆ4 A1C13
+ 3 CO2 Æ 4 A1 + 6 CI2 + 3 CO2. Þetta er
lokaður ferill. Sjá Elvers, op cit.
20. Evrópubandalagið hefur nýlega lagt til að
settur verði 10% skattur á hverja tunnu af
olíu, sem viðleitni í að draga úr útstreymlgróð-
urhúsalofttegunda. Þetta samsvarar 80% á
hvert tonn kolefnis. Ef útstreymi gróðurhúsa-
lofttegunda vegna framleiðslu áls-yrði skatt-
lagt í samræmi við hugmyndir Evrópubanda-
lagsins um olíuskatt, þá yrði sá skattur um
450% á hvert tonn áls framleitt með rafmagni
frá vatnsaflsvirkjunum, en 900% á hvert tonn
áls framleitt með rafmagni frá kolaraforkuver-
um. Verð. á áli nú er um 1.150 dalir á tonn.
Sjá: Montgomery, P.L., „Heavy Energy Tax
is Pro{K)sed to Curb Emission in Europe,” New
York Times: (26. september 1991); álverð úr
New York Times: (27. September 1991).
21. Eldsneytisnotkun yrði að minnka nægilega
til þess að draga úr CCh-útstreymi sem svarar
330 þúsund tonnum á ári vegna nýs 210.000
tonna álvers. Þetta jafngildir minnkun í olíu-
notkun um 104 þúsund tonn á ári. í stað 50
þúsund tonna af olíu mætti nota vetni sem
framleitt væri úr 1 Terawatt-klst. rafmagns
(TWh(e) = 1012 Wh(e)), því þyrfti, ef skipta
ætti út 107 þúsund tonnum af olíu, 2,09
TWhíe).
22. Áætlað er að nýir skógar á íslandi geti
tekið upp um 0,94 tonn af kolefni á hektara
á ári, frá þeim tíma sem skóginum er plantað
og fram til þess að hann hefur náð fullum
vexti, í 40-60 ár. Því þyrfti, til þess að Qar-
lægja 370.000 tonn af CO2 á ári; [(330.000
tonn C02/ári) x (0.272 tonn kolefni/tonn CO2)]
/ [0.94 tonn kolefni/hektara á ári] = 95.500
hektarar = 0,955 km2.
Höfundar eru prófessorar við
Háskólann íMinnesota ogHáskóla
íslands.
Fóðraðir jakkar Ermalaus vesti Ermalaus
með földum rennilós, hlýir i vetrarkulda með tveimur brjóstvösum og vasa fyrir cnmfpctinmir
en einnig þægilegir ó sumrin. Einnig til veski. Aðgengilegir vasar fyrir nagla, Hyu
léttir ófóðraðir jakknr. skrúfur og aðra smóhluli hanga niður me^ vaffhólsmóli, heilu
ú hliðunum og að oflan og reyna því bakstykki og vosa fyrir
ekki ó bakið. hnéhlifar.
Axlabönd Buxur
breið, þægileg og skiptasl með nýju sniði og
ofarlega ó bakinu. vasa fyrir hnéhlífnr.
Belti
breitt með sterkum lós.
RAFVER HF
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Simar: 91-81 24 15 og 81 2117
Umboðsmenn: Geisli Vestmannaeyjum, Póllinn ísafirði, Glitnir Borganesi, Snarvirki Djúpavogi
SORTIMO vinnufatnaður fyrir
fagmenn sem klæða sig á
skipulegan hátt
Fötin skapa manninn líka í vinnunni. SORTIMO vinnufatnaður er nútímalegur,
stílhreinn og þægilegur. SORTIMO er fyrsta flokks vinnufatnaður úr 50% bómull
(innra byrðí) og 50% polyamid (ytra byrði) sem er endingargott og hrindir vel frá
sér óhreinindum og raka.