Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NOVEMBER 1991
Ipasco Steel Ltd., aðaleigandi ísl. stálfélagsins:
Stálverksmiðja dóttur-
fyrirtækis gjaldþrota
STÁLVERKSMIÐJAN Lesjofors í Svíþjóð, sem var í eigu fyrirtækis-
ins Ipasco AB í Svíþjóð, en það er eitt af dótturfyrirtækjum Ipasco
Steel & Holding Ltd., sem átti 93% hlut í Islenska stálfélaginu, er nú
til gjaldþrotameðferðar. Eigendur hennar ákváðu að óska eftir gjald-
þrotaskiptum í október sl. skv. upplýsingum talsmanns Ipasco AB í
Svíþjóð, Lars Erik Oberg, en hann átti einnig sæti í stjórn Islenska
stálfélagsins, sem nú hefur verið
Lars Erik sagði að erfiðleikar
sænsku stálverksmiðjunnar tengd-
ust á engan hátt gjaldþroti íslenska
stálfélagsins. Sagði hann að verk-
smiðján í Svíþjóð væri gömul og
gjörólík verksmiðju íslenska stálfé-
lagsins. Ákvörðunin hefði verið tek-
in vegna langvarandi erfiðleika í
sænskum stáliðnaði og margar
gamlar stálverksmiðjur verið rekn-
ar með miklu tapi. „Markaðurinn
hvarf og tveir stærstu viðskiptavin-
ir fyrirtækisins voru endurskipu-
lagðir. Fundia, okkar stærsti við-
skiptavinur, var keypt af norskum
og finnskum aðilum. Við l áttum
lýst gjaldþrota.
ekki annars úrkosta,” sagði hann.
Hann sagði að á Íslandi hefðu
verið allt aðrar aðstæður og verk-
smiðja Stálfélagsins átt mjög góða
möguleika. „Þar er hráefnið mjög
ódýrt, orkan til staðar og verksmiðj-
an sjálf nýtískuleg. Þú getur verið
viss um að við gerum okkar besta
til að koma aftur og reisa verk-
smiðjuna á íslandi við. Við leitum
allra leiða því það eru margir mögu-
leikar ef við getum fengið góða
meðeigendur á íslandi. Þá færi
verksmiðjan fljótlega af stað,” sagði
hann.
Lars Erik sagði að Ipasco sinnti
ýmsum viðskiptum í stáliðnaði, m.a.
í Kína, þar sem það hefði byggt
stálverksmiðju. Björn Hallenius er
aðaleigandi móðurfyrirtækisins, Ip-
asco Steel Ltd., og stjórnarformað-
ur íslenska stálfélagsins, sem hefur
höfuðstöðvar sínar skráðar í Lon-.
don og á nokkur dótturfyrirtæki,
m.a. í Bretlandi og Frakklandi.
Hefur hann ekkert viljað ræða við
Morgunblaðið um önnur viðskipti
Ipasco Steel en þau sem snúa að
ísl. stálfélaginu. Hann sagði þó í
samtali við Morgunblaðið að Ipasco
Steel Ltd. væri stórt fyrirtæki sem
hefði langa reynslu af niðurrifi stál-
verksmiðja og sölu þeirra frá Evr-
ópu til þróunarríkja, þar sem það
annaðist einnig uppsetningu verk-
smiðja. Sagðist hann hafa verið í
stöðugum viðskiptum við Kínveija
sl. tíu ár.
og njótið Ijúffengrar móltíðar
í skemmtilegum félagsskap.
Verö pr. mann kr. 3.500.-
Mi&oog
Íslensk-ameríska félagið og Hótel Holiday Inn
gefa nú Islendingum kost á að taka þátt í
hinum eina og sanna "Thanksgiving" kvöldverSi
um næstu ÞakkargjörSarhelgi dagana
28., 29. og 30. nóvember 1991.
Misstu ekki af þessu sérstaka tækifæri til þess
bragða á alvöru kalkún framreiddum með
ekta amerískri fylIingu,"Cranberrysósu,
" og "Pumpkin Pie".
Sérstakir gestgjafar kvöldsins verSa:
fimmtudagskvöldiS 28/11, bandarísku
sendiherrahjónin Sue og Charles E Cobb Jr.,
föstudagskvöldiS 29/11, hjónin Lilly og
Þórhallur Asgeirsson og laugardagskvöldiS
30/11, hjónin Lára Margrét Ragnarsdóftir
og Olafur Grétar GuSmundsson.
Gestgjafar kvöldsins munu Ijá því
persónulegan blæ með því að velja
eftirrétt eða forrétt eftir sinni eigin
uppskrift, eins og þau sjálf hafa
kynnst í Bandaríkjunum. Hótel
Holiday Inn verður skreytt og fært í
hátíðarbúning og Björn R. Einarsson
og félagar munu laSa fram viðeigandi
stemmningu með Ijúfri hljómlist.
sljóro Holidoy Inn, Sigtúni 38, í sima: 689000 ■ Fax: 680675
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Styttan af landnemum Eyjafjarðar, Helga magra og Þórunni
hyrnu, verður send til Bretlands þar sem steypa á hana í brons.
Stallurinn var sagaður undan styttunni til að auðvelda flutninginn.
Landnemar Eyjafjarðar halda utan:
Styttan af Helga magra og
Þórunni hyrnu steypt í brons
STYTTAN Landnemar eftir Jónas Jakobsson af þeim Helga magra
og Þórunni hyrnu verður send til Bretlands um næstu mánaðamót
þar sem steypa á styttuna í brons.
Styttan, sem er úr steinsteypu,
var orðin mjög illa farin, en hún
hefur staðið á Hamarkotsklöppum
frá árinu 1957. Brugðið var á það
ráð er styttan var farin að molna
í sundur að senda þau hjónin í
þurrk í dælustöð Hitaveitu Akur-
eyrar við Þórunnarstræti, en þar
hefur hún verið í tæp fimm ár.
Ingólfur Ármannsson, menning-
arfulltrúi Akureyrarbæjar, sagði
að styttan yrði send utan um næstu
mánaðamót, en hún verður steypt
í brons í Bretlandi. Áætlaður kostn-
aður er við steypuna er um 2,2
milljónir króna, en Samskip hafa
boðið þeim hjónum endurgjalds-
lausa siglingu. Búist er við að stytt-
an verði komin aftur til Akureyrar
í byijun sumars á næsta ári.
■ NÝ BÓK eftir Jack Higgins,
Svik og njósnir, er komin út hjá
Hörpuútgáfunni. Á bókarkápu
segir m.a.: „Bandamenn er í óða
önn að undirbúa innrásina á megin-
land Evrópu. Þeim er mikið í mun
að blekkja andstæðingana, iáta þá
búast við innrás á öðrum stað en
fyrirhugað var. Njósnarar eru send-
ir yfír Ermarsund. En fljótlega kem-
ur í ljós að ekki er allt sem sýnist
og maðkar í.mysunni hjá njósnafor-
ingjum bandamanna sem víla ekki
fyrir sér að senda
fólk í klærnar á
Gestapó ef það
þjónar æðri
markmiðum.
Svik og njósnir
er 224 bls. Prent-
uð og bundin í
Prentsmiðj unni
Jack Higgins Odda hf. Þýðing-
una gerði Gissur
Ó. Erlingsson. Káputcikning er
eftir Kristján Jóhannsson.
Hitablásarar fýrir iðnaðarhúsnæði.
Ýmsar stærðir.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SlMI 624260