Morgunblaðið - 26.11.1991, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
Landsfundur Alþýðubandalagsins:
Afstöðu til EES og fisk-
veiðistjórnunar frestað
Sættir forystumanna héldu en „aðstoðarmennirnir” tókust á í kosningum
Ólafur Ragnar Grímsson var að þessu sinni ekki í brennipunkti átaka á landsfundi Alþýðubandalagsins
sem fram fór um helgina og var klappaður í formannsembættið á ný af flokksmönnum. Hann sést hér á
tali við Mörð Arnason félaga í Birtingu en í ræðustóli er Heimir Pálsson fundarstjóri.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson var
endurkjörinn formaður Alþýðu-
bandalagsins og Steingrímur J.
Sigfússon varaformaður sam-
hljóða og án mótframboðs á
landsfundi flokksins um helgina.
Sættir æðstu forystumanna héld-
ust á fundinum og ekki bar mikið
á beinni gagnrýni á þá en ein-
kennandi var að aðstoðarmenn
þeirra úr tíð síðustu ríkisstjórnar
og helstu stuðningsmenn tókust
á í kosningum til stofnana flokks-
ins og ágreiningur á milli fylk-
inga endurspeglaðist við umræð-
ur um stjórnmálaályktun. Flokk-
urinn klæddist umyrðalítið í bún-
ing jafnaðarmennsku við af-
greiðslu stefnuskrár en eftir
miklar umræður frestuðu lands-
fundarfulltrúar því að taka skýra
afstöðu til Evrópsks efnahags-
svæðis og fiskveiðistefnunnar.
Átök urðu við kosningu til níu
manna framkvæmdastjórnar á laug-
ardag þegar Stefanía Traustadóttir,
varaþingmaður Steingríms J. Sig-
fússonar, og Árni Þ. Sigurðsson rit-
stjórnarfulltrúi Þjóðviljans og fyrr-
um aðstoðarmaður Steingríms voru
felld í framkvæmdastjórnarkjöri. Á
sunnudag var kosið um 32 fulltrúa
í miðstjórn og þá hlaut Stefanía
efsta sætið. Félagar í Birtingu telja
sig fara með mikinn sigur út af
þessum landsfundi.
Landsfundurinn afgreiddi nýja
stefnuskrá flokksins eftir að gerðar
höfðu verið nokkrar beytingar á
þeim drögum sem voru lögð fyrir
fundinn. Gerðar voru breytingar á
lögum flokksins um að framvegis
verði formaður og varaformaður
kosnir viku fyrir landsfund af öllum
félagsbundnum Alþýðubandalags-
mönnum.
Mestur hluti landsfundarins fór
hins vegar í umræður um drög að
stjórnmálaályktun, sem tók miklum
breytingum í meðferð fundarmanna.
Ekki er tekin skýr afstaða til evr-
ópsks efnahagssvæðis- í endanlegri
stjórnmálayktun eða til fiskveiði-
stefnunnar en ákveðið var að halda
ráðstefnur um þessi mál á næsta
ári þar sem flokkurinn ætlar sér að
móta endanlega afstöðu sína.
Styrkleikaprufa leiddi til
átaka
Formaður og varaformaður
flokksins voru klappaðir inn Temb-
ættin að nýju á landsfundinum á
laugardag. Þegar kom að kjöri
gjaldkera kom hins vegar fram
mótframboð þar sem gerð var til-
laga um Auði Sveinsdóttur félaga í
ABR gegn Unni Kristjánsdóttur.
Var þetta talið sýna að þrátt fyrir
yfirlýsingar um fullar sættir og
samhug flokksmanna væru fulltrúar
hins svokallaða flokkseigendafélags
að gera styrkleikaprufu á lands-
fundinum. Fóru þá þegar af stað
átök á milli þeirra fylkinga sem
hafa löngum háð stríð á landsfund-
um flokksins á undanfömum árum.
Niðurstöður kosninganna urðu þær
að Unnur var endurkjörin gjaldkeri
með um 60% atkvæða.
Fulltrúar ABR felldir
Þegar kom að kosningu í níu manna
framkvæmdastjórn lagði kjörnefnd
fram uppstillingarlista sem Birting-
armönnum og stuðningsmönnum
formannsins af landsbyggðinni þótti
nokkur ögrun við sig. Þar var gert
ráð fyrir endurkjöri Stefaníu Traust-
asdóttur, félaga í ABR, og að Árni
Þ. Sigurðsson,ABR, ritstjórnarfull-
trúi og fyrrverandi aðstoðarmaður
Steingríms J. Sigfússonar í ráðherr-
atíð hans, yrði einnig kjörinn full-
trúi. Var rætt um hann sem form-
annsefni í framkvæmdastjórn.
Stakk þá Elsa Þorkelsdóttir lög-
fræðingur upp á Heiðrúnu Sverris-
dóttur fulltrúa af Reykjanesi til
framkvæmdastjórnar. Álfheiður
Ingadóttir stakk upp á Auði Sveins-
dóttur arkitekt. Niðurstöður kosn-
inganna urðu þær að Stefanía og
Árni voru felld en Auður og Heiðrún
kosnar í stjómina. Töldu stuðnings-
menn Ólafs Ragnars sig hafa farið
með mikinn sigur út úr þessu kjöri
og að þeir hefðu nú tögl og hagldir
í framkvæmdastjóm.
Þessar niðurstöður settu mark
sitt á miðstjórnarkjör á sunnudag
og gengu svokallaðir „lyfseðlar”
með nöfnum ýmissa fulltrúa hínna
stríðandi fylkinga á milli landsfund-
armanna. Kosið var um 32 fulltrúa
í miðstjórn skv. nýju lagaákvæði og
varð niðurstaðan sú að liðsmenn
„flokkseigendafélagsins” og félagar
í ABR töldu sig hafa hafa haft sig-
ur út úr þeim átökum. Stefanía
Trausta'dóttir varð efst í kosning-
unni, Skúli Alexandersson fyrrv.
alþingismaður í öðru sæti og Smári
Haraldsson bæjarstjóri á ísafirði í
þriðja sæti. Kjartan Valgarðsson
varð eini fulltrúi Birtingar sem náði
kjöri til miðstjórnar en Mörður Árn-
ason, félagi í Birtingu og fyrrver-
andi aðstoðarmaður Ólafs Ragnars
{ fjármálaráðuneytinu, varð fyrsti
varamaður og féll sem aðalmaður
vegna kynjakvótareglu flokksins.
Margir viðmælendur blaðamanns
á fundinum sögðu að þessi kosn-
ingaátök hefðu ekki síst verið á
milli landsbyggðarfulltrúa og
flokksmanna í Reykjavík. Fulltrúar
í framkvæmdastjórn eiga sæti í
miðstjórn flokksins og þrátt fyrir
að rætt væri um „sigur” stuðnings-
manna Steingríms J. Sigfússonar
og Svavars Gestssonar má ráða af
mati alþýðubandalagsmanna að
valdahlutföll séu mjög óljós í mið-
stjórninni eins og hún er nú sam-
sett. Hafði einn landsfundarfulltrúa
á orði að í stað þess að beina spjót-
unum að forystumönnunum hefðu
það verið aðstoðarmenn þeirra [í
ráðuneytunum] sem fengju útreið á
landsfundinum.
Tákn ófriðarins
Stefanía Traustadóttir sagði í
samtali við Morgunblaðið að margar
skýringar lægju að baki úrslitum
kosninganna til framkvæmdastjórn-
ar. „Landsbyggðin hefur að mörgu
leytið hafnað Reykjavíkurfulltrúun-
um og fínnst að borgin eigi ekki
að hafa þar mikil áhrif. Fram-
kvæmdastjórnin er nú fyrst og
fremst samsett af fulltrúum af
Reykjanesi en þeir eru þar alls fjór-
ir af níu. Það er ennþá verið að
refsa Reykjavíkurfulltrúunum þó
svo að þeir hafi lagt sig fram um
samkomulag að undanförnu. Þetta
er að mörgu leyti skrítin afstaða
landsbyggðarfulltrúanna vegna
þess að flokkurinn stendur vel að
vígi út á landi en illa í Reykjavík,”
sagði hún. Stefanía sagði að hún
hefði af mörgum verið talin tákn
um átökin innan flokksins og það
skýrði einnig kosningaútkomuna en
hún er fyrrv. formaður ABR. Hún
sagði þó að þrátt fyrir þetta væri
flokkurinn sterkari nú en éftir lands-
fundinn en árið 1989, bæði málefna-
lega og vegna þeirrar samvinnu sem
tekist hefði með forystunni að und-
anförnu. Ýmislegt þyrfti samt bæta
og að landsbyggðin þyrfti að taka
meira tillit til Reykjavíkur en fram
hefði komið á fundinum.
Birting hrósar sigri
Fulltrúar Birtingar stóðu á fund-
inum í fararbroddi þeirra afla innan
flokksins sem áður hafa verið kennd
við lýðræðisarm og stuðningsmenn
Ólafs Ragnars. Kom það m.a. fram
í tillögum þeirra varðandi stjórn-
málaályktun. Þá töldu þeir sig hafa
náð miklum árangri þegar fundur-
inn samþykkti rýmkaðar heimildir í
Iögum flokksins um rétt til að stofna
sérstök félög innan flokksins og
gera þær Birtingu að fullgildum
flokksfélaga í Reykjavík ásamt
ABR.
Kjartan Valgarðsson formaður
Birtingar sagðist vera ánægður með
niðurstöður landsfundarins.„Þær
hugmyndir sem við lögðum af stað
með við stofnun Birtingar hafa nú
hlotið góðan hljómgrunn í Alþýðu-
bandalaginu. Við höfum allan tím-
ann talað fyrir jafnaðarstefnunni
innan flokksins," sagði hann.
Gegn fákeppni og einokun
Landsfundurinn bætti nokkrum
atriðum inn í þau drög að stefnu-
skrá sem lágu fyrir fundinum, eink-
um varðandi umhverfismál þar sem
segir m.a.: „Alþýðubandalagið lítur
á helstu auðlindir landsins, sérstak-
lega fiskistofna og orku fallvatna,
hreint vatn, loft, jarðhita og náttúru
alla sem sameign landsmanna. Arð-
urinn af nýtingu þessara auðlinda
skili sér til allra landsmanna og
ætíð sé tekið mið af hreinni ímynd
landsins.” í kafla sem ber heitið
„Jöfnuður-jafnrétti-velferð” er m.a.
bætt inn setningu um að flokkurinn
betjist fyrir rétti launafólks til fullr-
ar atvinnu og frelsi til að semja um
réttlát laun og í kafla um hagkerfi
og markað þar sem segir að flokkur-
inn þurfi að vera sérstaklega á verði
gegn auðsöfnun og yfirdrottnun
sem byggist á fákeppni og einokun
á markaði eða annars konar sérrétt-
indaaðstöðu.
Þjóðin vöruð við EES-samningi
Nýr kafli um EES var samþykkt-
ur eftir miklar umræður um stjórn-
málaáiyktun flokksins. Þar segir
m.a. að íslendingar eigi að stuðla
víðtækri fríverslun milli landa og
eiga góð samskipti við Evrópuband-
alagið og allar þjóðir og heimshluta.
Um niðurstöður samningaviðræðna
EFTA og EB segir að þær séu ekki
í samræmi við þá fyrirvara sem
Alþýðubandalagið hafí sett í tíð síð-
ustu ríkisstjórnar um fjórfreslsið
svokallaða. Felld voru út ummæli
um að í samningnum um EES felist
ýmis sóknarfæri fyrir íslendinga
sem voru í drögunum eins og þau
voru lögð fyrir landsfundínn en lögð
áhersla á að á næstu mánuðum fari
fram ítarleg og hlutlæg kynning á
öllum atriðum sem hann varða.
„Landsfundur Alþýðubandalagsins
varar íslensku þjóðina við fjölmörg-
um ákvæðum í EES-samningunum
og þeirri miklu áhættu sem tekin
væri með samþykkt hans fyrir
stjórnarfarslegt og efnahagslegt
sjálfstæði íslendinga. Með EES-
samningi værum við að lögfesta
drjúgan hluta af ákvæðum Rómar-
samningsins og samþykktum EB
og margt bendir til að það auðveldi
þeim eftirleikinn sem vilja koma
Islandi alla leið inn í Evrópubanda-
lagið,” segir m.a. í stjórnmálaálykt-
uninni. ítrekuð er sú stefna að ekki
komi til greina að sækja um aðild
að EB og svo segir: „Ekki hefur
verið sýnt fram á að nauðsyn reki
íslendinga til að gera samning um
aðild íslands að Evrópsku efnahags-
svæði. Við getum einhliða tekið
ákvarðanir um aðlögun að breyting-
um í Evrópu sem og annars staðar
eftir því sem samræmist íslenskum
hagsmunum,” segir þar. Þá felur
landsfundurinn þingflokki, að höfðu
samráði við miðstjórn og fram-
kvæmdastjórn, að taka endanlega
afstöðu til málsins eftir víðtæka
umræðu og kynningu. Er stjórn
flokksins falið að efna til sérstakrar
ráðstefnu um EES-samninginn.
Ennfremur eru flokksmenn hvattir
til virkrar þátttöku í ýmsum Qölda-
samtökum til stuðnings kröfunni um
þjóðaratkvæðagreiðslu um samn-
inginn.
Tillaga um auðlindaskatt
dregin til baka
Hart var deilt á fundinum um
ályktun um sjávarútvegsmál. Var
tillaga Birtingar um auðlindaskatt
þó dregin til baka en samkomulag
náðist á sunnudag á milli deiluaðila
um fremur óljóst orðalag, þar sem
ríkjandi fiskveiðistefnu er ekki hafn-
að berum orðum. í þeim umræðum
bar einna mest á Skúla Alexanders-
syni, fyrrv. alþingismanni, Merði
Ámasyni, fulltrúa Birtingar, Jó-
hanni Ársælssyni alþingismanni og
Má Guðmundssyni hagfræðingi.
Málamiðlun tókst um orðalag þar
sem segir að mikilvægustu verkefni
í sjávarútvegi séu að byggja upp
fiskistofna, auka arðsemi í grein-
inni, lækka tilkostnað og treysta
undirstöðu greinarinnar til frambúð-
ar. Landsfundurinn bendir á að nú-
verandi fiskveiðistefna hafi brugðist
í mikilvægum atriðum og þurfi end-
urskoðunar við. Felld var út máls-
grein sem var í upphaflegu drögun-
um þar sem sagði að fiskveiðistjórn-
unin þurfi að vera eins óháð hags-
munaaðilum og mögulegt er. í sjáv-
arútvegsályktuninni segir einnig að
flokkurinn telji að skylda eigi út-
gerðina til að selja fiskinn á innlend-
um fiskmörkuðum nema hann fari
beint til innlendrar fískvinnslu. í
ályktuninni er einnig sagt að heim-
ila eigi erlendum fiskiskipum að
selja fisk á íslenskum mörkuðum
og kaupa þjónustu á íslandi.
Kjaramál í skugganum
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
átti ekki rétt til setu á landsfundi
flokksins að þessu sinni og höfðu
ýmsir fundarmenn það á orði. Um-
ræður um kjaramál voru ekki áber-
andi en í stjómmálályktuninni eru
ítrekaðar tillögur flokksins frá í vor
um lífskjarajöfnun, um breyttatekj-
uskiptingu sem Iykil að nýjum kjara-
samningum, skatt á hátekjur, stór-
eignir og fjármagnstekjur sem nota
eigi til að hækka barnabætur og
skattleysismörk og aðrar jöfnun-
araðgerðir í skattamálum.
Ólafur Ragnar sagði að loknum
landsfundinum að flokkurinn hefði
samþykkt viðamiklar ályktanir og
sagði það sýna mikinn pólitískan
styrk. „Ég held að fundur okkar
hafi gefíð íslensku þjóðinni nýja
von, bjartsýni og kraft,” sagði hann.
Flokksmenn hyggjast forðast átök
um formannskjör á iandsfundum
framtíðarinnar með þeirri Iaga-
breytingu sem gerð var um að fram-
vegis verði formaður og varaform-
aður kosnir með beinni kosningu
allra félaga flokksins í kjördæmun-
um ekki síðar en viku fyrir lands-
fund. Framboð eiga að liggja fyrir
átta vikum fyrir landsfund. Skv.
breytingunni fer talning í kosning-
unum sjálfum svo fram á landsfundi.
Viðræður við erlenda
jafnaðarmenn
Tillaga Birtingar um að Alþýðu-
bandalagið undirbúi aðildarumsókn
að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna
var vísað frá á fundinum en formað-
urinn lýsti því yfir að hann ætlaði
að eiga viðræður við forystumenn
erlendra jafnaðarmannaflokka um
aukin tengsl og samskipti.
Áherslur í stefnuskrá og stjórn-
málaályktun á jafnaðarstefnu og
auknar markaðslausnir sættu engri
verulegri gagnrýni á fundinum.
Skilgreining jafnaðarmannaflokks-
ins eins og hún var sett fram í drög-
um að stefnuskrá fyrir fundinn
stendur óbreytt í nýju stefnu-
skránni. Hvort sem það er til marks
um að flokkurinn er að færast til
hægri í pólitíska litrófinu eða ekki
kemur væntanlega í ljós á næstu
misserum. „Sósíalismi” stendur hins
vegar óbreyttur á milli tveggja
komma í upphafsorðunum. Við
landsfundarslit á sunnudag risu svo
fundarmenn úr sætum og kytjuðu
Internationalinn að venju en að
þessu sinni voru fáir baráttuhnefar
hafðir á lofti í takt við sönginn.
Texti: Ómar Friðriksson.